Morgunblaðið - 19.11.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
Stjórn Blaðamannafélags íslands:
Óveðursskemmdir
á Sauðárkróki
Báðar þessar myndir eru
frá Sauðárkróki og sýna af-
leiðingar óveðursins. Önn-
ur myndin er af þeim sjó-
varnargarðinum sem verr
varð úti í óveðrinu og má
fremst á honum sjá leif-
arnar af innsiglingarvita,
sem þar var. Hin myndin
er úr bátahöfninni og sýnir
þak stýrishúss einnar
þeirra þriggja trilla, sem
sukku í óveðrinu. Tvær
þeirra náðust upp í fyrra-
dag og ein um hádegið í
gær og er ein þeirra talin
nær ónýt og hinar tvær eru
báðar talsvert brotnar.
Ljósmyndir Stefán Pedersen.
Lýsir undrun á meðferð
Ríkisútvarpsins á um-
sókn Atla Steinarssonar
Á FUNDI stjórnar Blaðamannafé-
lags íslands 18. nóvember 1982 var
samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Stjórn Blaðamannafélags Is-
lands lýsir undrun sinni á meðferð
umsóknar Atla Steinarssonar
blaðamanns um stöðu frétta-
manns hjá Ríkisútvarpinu-hljóð-
varpi. Stjórnin mótmælir hringl-
andahætti stofnunarinnar varð-
andi umsóknir um þessa stöðu og
telur varhugavert að hvað eftir
annað skuli óreyndir umsækjend-
ur vera ráðnir „bakdyramegin" til
starfa á fréttastofum ríkisfjöl-
miðlanna. Stjórn BÍ telur óviðun-
andi af stjórn Ríkisútvarpsins að
möndla svo með auglýstar stöður,
að þrautreyndur blaðamaður og
félagi í BÍ um áratuga skeið skuli
ekki njóta jafnréttis á við óreynda
umsækjendur. Blaða- og frétta-
mennska er vandasamt ábyrgð-
arstarf, sem krefst víðtækrar
þekkingar og reynslu. Stjórn
Biaðamannafélags Islands fær því
ekki séð hvernig má með réttu
hafna svo reyndum blaðamanni
þegar valið er í stöður á frétta-
stofum ríkisfjölmiðlanna."
Borgarfjörður eystri:
Hauskúpa úr dys
í landi Njarðvíkur
Borgarfirói eystri, 17. nóvember.
LENGI hefur leikið grunur á því, að fornmannadysjar væru í landi
Njarðvíkur við Borgarfjörð. Seint í fyrrasumar fór áhugamaður um slík
mál að skyggnast í einn hauginn og kom fljótlega niður á hauskúpu. Lét
hann þá staðar numið og tilkynnti þjóðminjaverði fundinn, en síðan
hefur ekkert gerst í málinu og engin nánari rannsókn farið fram á
dysjunum.
Tók þessi sami áhugamaður
því höfuðbeinin í sína vörslu til
þess að þau týndust ekki í annað
sinn. Auk fyrrnefndrar höfuð-
kúpu fannst þarna tanngarður,
sem vantaði þó í nokkrar fram-
tennur, en jaxlarnir virðast
furðulega heillegir.
Verður nú að bíða álits sér-
fróðra manna, sem væntanlega
geta ákvarðað aldur hauskúp-
unnar og vonandi dregst ekki
lengur en til næsta sumars nán-
ari rannsókn þeirra á fundar-
staðnum, þar sem ekki er ólík-
legt að fleira merkilegt kunni að
leynast.
— Fréttaritari.
Prófkjör Alþýðuflokksins:
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
Samvinnusjóður Islands stofnaður:
50 félög leggja til
12—17 milljónir kr,
Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla í prófkjöri Alþýðu-
Bíl stolið
BROTIST var inn í Heklu við
Laugaveg aðfaranótt fimmtudags og
þaðan stolið bíl, samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. fékk hjá rann-
sóknarlögreglunni.
Bíllinn, sem er af Lancer-gerð,
er í eigu eins starfsmanns Heklu
og er ljósdrapplitaður að lit. Bíll-
inn er af árgerðinni 1982 og með
númerinu G-1817.
flokksins í Reykjavík hefst
í dag. Kosið verður á
skrifstofu flokksins í Al-
þýðuhúsinu og verður kjör-
fundur opinn á venjulegum
skrifstofutíma.
Prófkjörið verður síðan
dagana 27. og 28 nóvember.
Kosið verður í Iðnó og Sig-
túni og verður kjörfundur
opinn frá klukkan 10 til 16
báða dagana.
STOFNFUNDUR Samvinnusjóðs fs-
lands var haldinn í ger og kjörin var
5 manna stjórn sjóðsins. Stofnfélag-
ar eru flest kaupfélög landsins, Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga og
dótturfélög þess, alls um 50 félög.
Stofnfé var 2 milljónir króna, en að
auki skuldbundu stofnfélögin sig til
þess að láta eitt prómill af veltu
sinni renna í sjóðinn næstu 5 árin.
Að mati Þorsteins Ólafssonar full-
trúa forstjóra Kambandsins er eitt
prómill 10 til 15 milljónir króna á
verðgildi nú.
Tilgangur sjóðsins er að efla ís-
lenzkt atvinnulíf með því að efla
þátttöku samvinnuhreyfingarinn-
ar í því — eins og Þorsteinn
Ólafsson orðaði það. Stjórn sjóðs-
ins hefur enn ekki komið saman
og því ekki skipt með sér verkum.
í hana voru kjömir á stofnfundin-
um í gær: Árni Jóhannsson, kaup-
félagsstjóri, Blönduósi, Þorsteinn
Sveinsson, kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Héraðsbúa, Finnur Krist-
jánsson, varaformaður stjórnar
Sambandsins, Benedikt Sigurðs-
son, fjármálastjóri Samvinnu-
trygginga, og Þorsteinn Ólafsson,
fulttrúi forstjóra Sambandsins.
Seyðisfjörður:
Leita kafbátagirðinga
Árásir á konur í október:
Þrír menn hafa
játað afbrotin
ÞRÍR ungir menn hafa játað að hafa síðla í október ráöist á þrjár konur og
rænt þær fjármunum. Slösuðu tveir þeirra aidraða konu svo að hún liggur nú
á Grensásdeild Borgarspítalans. Þessir tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna
málsins, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins í gær.
SeyAisfirði, 1H. nóvember.
EINS OG FRAM hefur komið í
fréttum hafa verið að fljóta upp
dufl hér í flrðinum, sem að öllum
likindum munu vera úr kafbáta-
girðingum þeim, sem Bretar komu
hér fyrir á striðsárunum til að
hindra siglingar þýskra kafbáta
inn fjörðinn. Árið 1963 komu
hingað breskir tundurduflaslæðar-
ar og var fjörðurinn slæddur, en
menn urðu ekki mikils varir.
Lárus heitinn Þorsteinsson
skipherra, var Bretunum til að-
stoðar, og segir hann svo í
skýrslu sinni til Landhelgisgæsl-
unnar, að hann vilji taka það
fram, að þótt slætt hafi verið á
þessum stöðum, þá sé ekki þar
með sagt, að ekki geti leynst
nokkur dufl sem hætta geti staf-
að af. Það sé þó ekki af því að
hann telji ekki hafa verið sam-
viskusamlega slætt, þvert á móti
sé hann viss um að við slæðing-
una hafi Bretar gert sitt besta,
en auðvitað hafi þeir sínar
ákveðnu aðferðir og reglur og
breyti ekki mikið af þeim.
I sumar og haust hafa komið
upp tvö dufl, sem hafa valdið
mönnum áhyggjum og ekki að
ástæðulausu, þar sem ekki er
vitað um virkni þeirra eða
óvirkni. Seinna duflið sem upp
kom í haust, rak inn fjörðinn í
átt að rússnesku olíuskipi sem
var að losa hér 10 þúsund tonna
olíufarm. Tókst að ná duflinu
áður en það bar að skipinu, og
við rannsókn reyndist um flot-
dufl úr kafbátagirðingunni að
ræða.
Bæjaryfirvöld hér á Seyðis-
firði höfðu nú nýverið samband
við Landhelgisgæsluna, sem
ávallt hefur brugðið skjótt við í
slíkum tilvikum, og fór þess á
leit að fjörðurinn yrði kannaður
að nýju með tilliti til „eftirlegu-
dufla". Nú í dag komu hingað á
vegum Gæslunnar þrír sérfræð-
ingar frá Varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli ásamt sérfræðing-
um Gæslunnar í meðferð neð-
ansjávardufla. Munu þeir fara út
með varðskipi sem hingað kom í
dag og kanna aðstæður í firðin-
um. í dag og í kvöld hafa þeir
hlýtt á frásögn heimamanna,
sem muna stríðsárin, um legu
kafbátagirðinganna og sjó-
manna sem fest hafa veiðarfæri
sín í henni. Ætlunin mun svo
vera sú, að koma með viðeigandi
útbúnað hingað í mars í vetur og
reyna að ná því upp sem eftir er
af þessum stríðsminjum í firðin-
um. Viðbrögð manna hafa því
verið snör í þessu brýna máli,
því óskemmtilegt er til þess að
vita, að dufl geti flotið hér upp,
virk eða óvirk, fyrirvaralaust,
sjófarendum og öðrum til mikill-
ar hættu.
— Fréttaritari.
Á konurnar var ráðist 21., 23. og
24. október og áttu árásirnar sér
stað á Háteigsvegi, á Klapparstíg
og á Ægisgötu. Konurnar voru
rændar veskjum sínum og fé, en
einnig voru í veskjunum persónu-
legir munir og skilríki. I síðasta
ráninu, á Ægisgötu, þann 24.
október, varð kona fædd árið 1909
fyrir árás piltanna og hún rænd.
Féll konan í götuna og slasaðist.
Talið er að árásarmennirnir
hafi haft 1.700—1.800 krónur upp
úr þessum þremur ránum. Eins og
fyrr segir hafa tveir verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald, en
þessir menn eru fæddir árin 1963
og 1965. Þeir sem sitja í varðhaldi
hafa játað á sig árásirnar á
Klapparstíg og á Ægisgötu, en sá
þriðji tók þátt í árásinni á Há-
teigsvegi ásamt öðrum hinna.