Morgunblaðið - 19.11.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
7
Halldór Einarsson
Kosningaskrifstofa Halldórs
Einarssonar vegna próf-
kjörsins er aö Skipholti 37.
Stuðningsmenn.
Fáksfélagar
Dansleikur veröur í félagsheimili Fáks í kvöld,
föstudag 19. nóvember.
Húsiö opnar kl. 21.30.
Miðasala á skrifstofu félagsins í dag, 19. nóvem-
ber kl. 16—18. Hestamannafélagiö Fákur.
Bang&Olufsen
Bcoeenter 7002
Þegar gæöi, hönnun og verö
haldast jafn vel í hendur og í
Beocenter 7002 hljómtækja-
samstæöunni, þá er valiö
auðvelt.
Komdu og leyfðu okkur aö
sýna þér þessi frábæru
hljómtæki, sem fá lof tónlist-
ar- og listunnenda.
Verö 39.980 — með hátölurum.
Greiðslukjör.
Beovox S 55
Ébl
Skrifstofa stuðningsmanna Geirs H. Haarde er að Túngötu 6. Símar 27227 og 19999. Skrifstofan er opin frá 14—-22. Stuöningsmenn velkomnir. Stuðningsmenn
Meöan Rómaborg brann ...
Veröbólgan æöir áfram. Atvinnuvegirnir eru reknir meö
vaxandi halla og skuldasöfnun. Viöskiptahalti viö umheim-
inn er ógnvekjandi. Erlend skuldasöfnun bii^iur framtíö-
inni æ þyngri bagga. Ríkisútgjöld vaxa langt umfram verö-
lagsþróun, ef undan eru teknar opinberar framkvæmdir,
sem rýrna ár frá ári. Heimilin berjast í bökkum, fjárhags-
lega, vegna kaupmáttarrýrnunar og stóraukinnar skatt-
heimtu. Húsbyggingar hafa dregizt svo saman aö talað er
um húsnæöiskreppu á höfuöborgarsvæðinu. Ekkert af
þessu hefur sett umtalsvert svipmót á störf hins háa Al-
þingis undanfarnar vikur. Þar líöur hver dagur í aögeröar-
leysi og snakki um smámál. Pólitískum sjónhverfinga-
mönnum er liðiö aö gera mál eins og lokunartíma sölu-
búöa og önnur slík, aö höfuðviðfangsefni þingsins dag
eftir dag, og breyta því í nokkurs konar „táningamálstofu“.
En þaö sem máli skiptir, hin efnahagslega og stjórnmála-
lega sjálfhelda þjóöarbúsins, viröist týnt og tröllum gefiö.
Ráðherrar
mæta illa
í þinginu
Starfshættir Alþingis,
þaö sera af er 105. löggjaf-
arþingi þjóðarinnar, hafa
ekki verið rismiklir. Þau
stóru vandamál, sem biða
óleyst hafa mjög takmark-
að sett svip sinn á þing-
störfin. Bráðabirgðalög rik-
isstjórnarinnar, sem átti að
leggja fram í þingbyrjun,
koma fyrst til umræðu i
efri deild nk. mánudag og
verða væntaniega dregin á
ianginn fram eftir vetri, ef
þing verður ekki rofíð.
Ráðherrar hafa mætt
mjög takmarkað á þing-
fundi. Það hefur komið
fyrir í efri deild, sem þó er
talin til fyrirmyndar i
vinnubrögðum, að orðið
hefur að taka öll dagskrár-
mál út af dagskrá og slíta
fundi vegna þess að ráð-
herrar voru ekki til staðar
að mæla fyrir stjórnar-
frumvörpum. Það telst til
tíðinda ef ráðherrar sitja í
sæti sínu á þingfundum,
jafnvel þó til umfjöllunar
séu mál, er heyra undir
þeirra verksvið og fagráðu-
neyti.
Lánsfjáráætlun sem
leggja átti fram með fjár-
lagafrumvarpi þegar þing
kom saman í haust, lætur
enn ekki á sér kræla.
Svo virðist sem tími ráð-
herra og stjórnarliða fari
allur í innbyrðis deilur og
sáttaumleitanir — út í bæ
eða í baksölum, svo hin
eiginlegu þingstörf sitja á
hakanum. Það er meir en
tímabært að fá nýja verk-
stjórn í brú þjóðarskútunn-
ar.
Lengi getur
smátt smækk-
að
Það voru miklar handa-
sveifíur hjá formanni Al-
þýðuflokksins, er hann
kunngerði þjóðinni í sjón-
varpsþætti, að í raun og
veru væri Alþýðuflokkur-
inn hinn eini sanni stjórn-
arandstöðufíokkur. Þar
stæðu menn saman: einn
fíokkur, ein skoðun, ein af-
staða!
í skjóli þessara orða
kokhreystinnar gerizt það,
að Vilmundur Gylfason,
yngsti þingmaður flokks-
ins, segir sig úr þingflokkn-
um og boðar úrsögn úr Al-
þýðuflokknum. Þessi sami
þingmaður upplýsir það í
þingræðu, að verkalýðs-
málaráð Alþýðuflokksins
hafí fellt með 16 atkvæðum
I gegn 4, að frumvarp hans
! um breytingu á vinnulög-
gjöfínni, þ.e. að heimila
stofnun vinnustaðafélaga
launafólks, verði gert að
flokksmáli. Hann gefur
jafnframt í skyn, að hann
og hans menn hafí verið
hornrekur i Alþýðuflokkn-
um o_s.frv. „Einingin" í Al-
þýðuflokknum hefur því
gufað upp í atburðarás síð-
ustu daga. Handasveiflur
flokksformannsins í sjón-
varpinu breiöa ekki yfír þá
staðreynd.
Annað mál er, hvort Al-
þýðuflokkurinn er til skipt-
ana milli nýklassískrar
róttækni og róttækrar ant-
ikstefnu eða hver þau ann-
ars eru nýjustu vigorðin á
uppboðinu í húsinu við
Austurvöll. Þá skiptingu
þarf allavega að fram-
kvæma undir sterkum
stjörnukíki, ef vel á að tak-
ast
m 1 2 3 4 5 6
ÝJA STRA UMLÍNAN
SLÆR ALLT ANNAÐ
RAFLA GNAEFNI ÚT!
Danska fyrirtækið LK-NES er enginn
byrjandi I framleiðslu raflagnaefnis.
Það var stofnað 1893 og hefur æ síðan
verið I fararbroddi. Danskar öryggis-
kröfur í rafiðnaði eru meðal þeirra
ströngustu, sem gerðar eru. LK-NES
uppfyllir þær allar og þess vegna er
framleiðsla þess viðurkennd um allan
heim.
LK-NES 2000 straumlínan er nýjasta
raflagnaframleiðsla LK-NES. Tenglar
og takkar af öllum mögulegum og
ómögulegum gerðum, innifelldir og
utanáliggjandi, einfaldir eða margfaldir.
LK-NES 2000 er byggt úr einingum
sem gerir það sérlega einfalt í uppsetn-
ingu. Smellur og klemmur koma víða í
staðinn fyrir skrúfur, mjög
einfalt er að koma efninu
fyrir og stilla það af.
LK-NES 2000 hefur fjöl-
marga samsetningamögu-
leika og ýmiskonar auka-
búnað s.s. Ijós, dimmera
og merkingar á slökkvara.
LK-NES 2000 er frábær
hönnun bæði hvað snertir
notagildi og útlit.
heimilistækihf.
HAFNARSTRÆTI3 - 20455 - SÆTÚNI8 -15655
RAEVÖIHJI? Sli
LAUGARNESVEG 52 • SlMl 86411