Morgunblaðið - 19.11.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
Pétur Sigurðsson:
Tryggja þarf hafsbotns-
réttindi á Reykjaneshrygg
„Ekki er ráð nema í tíma sé tekið“
Pétur Sigurðsson (S) mælti í gær fyrir tillögu, sem hann flytur ásamt
Eyjólfi Konráö Jónssyni (S) um hafsbotnsréttindi íslands á Reykjaneshrygg.
Tillagan felur ríkisstjórninni að gera nú þegar ráðstafanir til að tryggja þau
ótvíræðu réttindi til hafsbotnsins á Reykjaneshrygg og út frá hlíðum hans,
sem ísland á tilkall til skv. 76. grein hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Pétur Sigurðsson (S) sagði m.a.,
að útfærsla fiskveiðilögsögu okkar
í 4 sjómílur, síðan 12, þá 50 og loks
stóra stökkið 1976 í 200 sjómílur,
hafi verið mikil gæfuspor í lífs-
baráttu lítillar þjóðar fyrir velferð
og efnalegu sjálfstæði. Samning-
urinn um Jan Mayen, tillaga til
þingsályktunar um íslenzk rétt-
indi á Rockall-svæðinu, sem Eyj-
ólfur Konráð Jónsson hefur ný-
lega mælt fyrir og þessi tillaga um
hafsbotnsréttindi á Reykjanes-
hrygg, eru framhald fyrri skrefa í
hafréttarmálum.
Pétur sagði hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna veita Islend-
ingum réttindi yfir hafsbotninum
á Reykjaneshrygg og hugsanleg-
um auðæfum hans, allt út í 350
mílur frá grunnlinum, en þennan
rétt þurfi að sækja, samkvæmt
ákvæðum sáttmálans, með gagna-
söfnun og málatilbúnaði. Þessi
réttindi spanna öll hugsanleg auð-
æfi, sem í jarðlögum botnsins
kunna að finnast, svo og lífverur,
sem ekki hreyfa sig án snertingar
við botninn. Þannig á jarðhiti á
Reykjaneshrygg að tilheyra ís-
landi, svo og hugsanlegir málmar,
sem m.a. geta myndast við neð-
ansjávarumbrot og samþjöppun
við mikinn hita. Þessi yfirráða-
réttur eykur og á stjórnun fisk-
veiða yfir botninum og væri
skemmst að minnast gengdar-
lausrar rányrkju Rússa á karfa-
miðum á Reykjaneshrygg.
Ólafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra, sagði ísland eiga rétt að
sækja, skv. 76. grein hafréttar-
sáttmálans, bæði á Rockall-há-
sléttunni, samanber tillögu Eyj-
ólfs Konráðs Jónssonar, og á
Reykjaneshrygg. Hann upplýsti,
að strandríki þyrfti að gera rök-
studda kröfu til þess réttar, sem
hér væri fjallað um, til alþjóðlegr-
ar nefndar innan 10 ára frá gildis-
töku hafréttarsáttmálans. Ráð-
herra lagði til að sú þingnefnd,
sem um málið fjallaði, leitaði álits
Hans G. Andersen, sendiherra, en
fyrirvari hans af Islands hálfu er
viðkomandi grein sáttmáls var
samþykkt, hafi mikið gildi um
framhald málsins.
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
vitnaði m.a. til Guðmundar
Pálmasonar, sem kannað hefði
þetta mál út frá jarðfræðilegum
sjónarmiðum, en hans álit væri
ótvírætt, að Reykjaneshryggur
væri hluti af landgrunni íslands,
eðlilegt framhald landsins. Hann
vitnaði til þess að Sovétmenn
hefðu í umræðu um málið látið í
ljós þann skilning, að rétturinn
næði til 150 mílna frá 200 mílna
mörkum, þ.e. 350 mílna, og yfirlýs-
Pétur Sigurðsson
ing sendiherrans, sem utanríkis-
ráðherra hefði vitnað til, hefði
verið reist á sama skilningi. Fagn-
aði Eyjólfur því að þingnefnd
hefði samband við Hans G. Ander-
sen um málið og lagði áherzlu á
mikilvægi íslenzkrar hagsmuna-
gæzlu á þessum vettvangi.
Pétur Sigurðsson (S) þakkaði
undirtektir. Ekki væri ráð nema í
tíma væri tekið og nauðsynlegt
væri að undirbúa þetta mál vel og
vandlega.
Vilmundur Gylfason um Bandalag jafnaðarmanna:
„Tilraun sem kannski heppn-
ast, kannski misheppnast“
Málaskrá og midstjórn kunngerð síðar
HÉR FER á eftir þingræða Vilmundar Gylfasonar, er hann kunngjöröi
úrsögn sína úr Alþýðuflokknum og stofnun „Bandalags jafnaðarmanna":
„Það munu vera þinglegir siðir að
láta forseta sameinaðs Alþingis og
hv. alþingismenn um það vita, að
ég, 4ði þingmaður Reykvíkinga, hefi
með bréfi, dagsettu 18. nóvember
1982 til háttvirts annars þingmanns
Reyknesinga, Kjartans Jóhanns-
sonar, sagt skilið við minn gamla
Það er, herra forseti, ævinlega
sárt að skilja við samtök, sem mað-
ur hefur tekið þátt í af lífi og
áhuga. Ekki vegna flokks, heldur
vegna fólks. En vindar lífsins munu
áfram velta um — þrátt fyrir þessa
daga og þrátt fyrir allt.
Jafnframt, herra forseti, hefur í
dag verið lögð fram þingsályktun-
artillaga um aðskilnað fram-
kvæmdarvalds og löggjafarvalds og
beina kosningu forsætisráðherra.
Þetta þingskjal verður eitt af
stefnumálum samtaka, sem eru í
undirbúningi, og munu nefnast
Bandalag jafnaðarmanna. Ég vil þó
skýrt taka fram, að hér er ekki um
að ræða klofning af einu eða neinu
tagi, eins og háttvirtur 2. þingmað-
ur Reyknesinga gat réttilega um í
sjónvarpi í fyrrakvöld, þó ekki væri
nema þegar af þeirri ástæðu að við
munum eiga samherja úr gamla
flokkakerfinu þveru og endilöngu.
Við myndum bandalag gegn flokk-
unum. Þetta er tilraun, sem kannski
heppnast, kannski misheppnast.
Það verður að koma í Ijós. Innan
tíðar verður lögð fram málaskrá og
nafnalisti miðstjórnar; og enn síðar
verða framboð kynnt.
Herra forseti!
í fylgiskjali með þingsályktun-
artillögu þeirri, sem lögð hefur ver-
ið fram í dag, eru ritgerðir eftir tvo
fræðimenn, hvorn í sinni grein, þá
dr. Gylfa Þ. Gíslason, og Ólaf Jó-
hannesson, núverandi hæstvirtan
utanríkisráðherra. Það þarf auðvit-
að ekki að taka fram, að birting
þessara ritgerða, sem birtust í ein-
hverju ágætasta og umbótasinnað-
asta tímariti sinnar tíðar, Heiga-
felli, árið 1945, hefur engar frekari
pólitískar meiningar, heldur er hér
leitast við að afia málstað fylgis
með fræðilegum rökum.
Vitaskuld skiptir máli, að inntak
þessara ritgerða fer mjög saman
við hugmyndir í ályktunargreinum.
Meira máli skiptir þó að báðir hinir
ungu háskólakennarar lögðu á það
áherslu, hvor með sínum hætti, að
lýðræði stafaði hætta af óeðlilegu
flokkavaldi.
Einmitt þetta verður snar þáttur
í heimspeki Bandalags jafnaðar-
manna, bandalagsins gegn flokkun-
um. Flokkavaldið, hið þrönga vald,
hið fáa fólk, hefur gert þessari þjóð
og þessu landi of mikið illt.“
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Rányrkja Færeyinga
á Atlantshafslaxinum
Vilmundur Gylfason
stjórnmálaflokk, Alþýðuflokkinn,
og telst því ekki lengur til þing-
flokks þess flokks.
Að því er séð verður hefur þessi
tiifærsla engin áhrif á stöðu ríkis-
stjórnarinnar. Ég hef verið og verð
í stjórnarandstöðu, og hygg að svo
sé einnig farið með minn gamla
flokk.
Skýlaust brot á hafréttarsáttmálanum
Eyjólfur Konráð Jónsson (S) mælti í Sameinuðu þing í gær fyrir þings
ályktunartillögu, sem hann flytur ásamt Albert Guömundssyni (S), þar sem
ríkisstjórninni er falið að gera nú þegar ráðstafanir til að stöðva rányrkjti
Færeyinga við veiðar Atlantshafslaxins í efnahagslögsögu okkar og hafa um
það samráð við önnur upprunalönd laxstofnsins, ef nauðsynlegt reynist.
Eyjólfur Konráð Jónsson (S) hót
mál sitt á því að vitna til 66. grein-
ar Hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna, sem væri þverbrotinn
með rányrkju Færeyinga. Hann
vitnaði og til ákvæða, sem veita
„upprunalöndum laxstofna" ekki
aðeins rétt heldur ekki síður
skyldur um varðveizlu stcfnsins,
sem nú væri stefnt í hættu með
óhóflegum úthafsveiðum.
Samningur sá, sem gerður hafi
verið um þessi mál á ráðstefnu
hérlendis, hafi um sumt verið spor
í rétta átt, en í annan stað „slys“,
sem þurfi að mæta með endur-
skoðun málsins i heild, en þessi
samningur sé uppsegjanlegur með
6 mánaða fyrirvara.
Eyjólfur vitnaði til þess, að
samhliða margföldun á aflabrögð-
um Færeyinga, hvað úthafslax
varðar, hafi laxveiði í íslenzkum
ám skroppið saman. Á sínum tíma
hefðu laxar, sem Snorri heitinn
Hallgrímsson merkti, komið fram
við Færeyjar, svo það fengi ekki
staðist, að ekki væri samgangur
laxa milli íslands og Færeyja.
Nú viljum við íslendingar enga
þjóð fremur styrkja en Færey-
inga, sagði Eyjólfur, en það er
hvorki þeim né okkur í hag, að
sýna sinnuleysi í þessu efni, en
Færeyingar veiddu nú allt að 5
sinnum það magn í sjó sem veidd-
ist í öllum laxveiðiám á íslandi.
Með þessu áframhaldi getur stofn-
inn hreinlega hrunið. Þessi rán-
yrkja verður að hætta.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra taldi ekki fullsannað, að
lax gengi milli umræddra veiði-
svæða, og þyrfti að reyna að færa
sönnur á það með meiri laxa-
merkingum, sem nú væri að
stefnt. Hann sagði rétt vera að
veiðimagn Færeyinga hefði stór-
vaxið. Það hefði verið 50 lestir
1978, 200 lestir 1979, 700 lestir
1980 og 1000 lestir 1981. Hinsvegar
gerði samningur milli Færeyja og
Efnahagsbandalags Evrópu ráð
Vantraust á
ríkisstjórnina:
Þingfund-
ur á sjón-
varpsskermi
Sameinað þing samþykkti í
gær að umræðu um vantraust á
ríkisstjórnina, sem þingmenn
Alþýðuflokks flytja og fram fer
nk. þriðjudagskvöld, skuli
bæði útvarpað og sjónvarpað.
Þetta er í fyrsta sinn sem heilli
þingumræðu er sjónvarpað.
Auk fjögurra þingflokka,
sem hafa 30 mínútur hver til
umráða, taka þátt í umræð-
unni ráðherrar úr Sjálfstæð-
isflokki, sem hafa jafn lang-
an tíma til umráða sem þing-
flokkur væri, og Vilmundur
Gylfason, sem hefur skv.
þingsköpum 15 mínútur til
umráða. Að þessu leyti er
umræðan einnig nýlunda.
Ráðherrar úr Sjálfstæðis-
flokki hafa jafnan haft 20
mínútur til umráða við út-
varpsumræður, skv. sam-
komulagi þingflokka. Alþingi
samþykkti í gær með rúm-
lega einum þriðja atkvæða
að lengja þennan tíma í 30
mínútur, 22 samþykktu,
jafnmargir þingmenn sátu
hjá og 16 vóru fjarverandi.
Fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins tala í umræðunni:
Geir Hallgrímsson, formað-
ur flokksins, Matthías
Bjarnason, fyrrv. sjávarút-
vegsráðherra, og Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður.
Fyrir hönd Alþýðuflokksins
tala; Kjartan Jóhannsson,
formaður flokksins, Sig-
hvatur Björgvinsson, for-
maður þingflokksins, og Jó-
hanna Sigurðardóttir, al-
þingismaður. Af hálfu Fram-
sóknarflokks tala Steingrím-
ur Hermannsson, flokksfor-
maður, Ingvar Gíslason,
menntamálaráðherra, og Al-
exander Stefánsson, alþing-
ismaður. Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalags-
ins, talar fyrir flokk sinn, en
ekki lágu á lausu upplýsingar
um aðra ræðumenn síðdegis í
gær. Gunnar Thoroddsen,
forsætisráðherra, og Friðjón
Þórðarson, dómsmála-
ráðherra, tala af hálfu ráð-
herra úr Sjálfstæðisflokki.
Og löks talar Vilmundur
Gylfason, sem nú telst utan
þingflokka.
Eyjólfur Konráð Jónsson
fyrir samdrætti í afla þeirra, sem
þegar hefði sagt til sín, ef magnið
væri 850 tonn 1982 og áætlað 650
tonn 1983. Hér væru stigin spor í
rétta átt. Ég lýsi stuðningi, sagði
ráðherra, við allar tilraunir til
samkomulags um að draga úr lax-
veiði í sjó, bæði við Færeyjar og
V-Grænland.
Olafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra tók í sama streng og
landbúnaðarráðherra.