Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 32
75
juglýsinga-
síminn er 2 24 80
ipr^ivwMaMfo
^/Xskriftar-
síminn er 830 33
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
Banaslys um
borð í Karlsefiii
SKUTTOGARINN Karlsefni frá Reykjavík kom í gær með
látinn skipvera til hafnar á Patreksfirði.
Tildrög slyssins voru þau, að
skipið fékk á sig brotsjó um há-
degið í gær um 30 sjómílur vestur
af Látrabjargi. Skipverjar voru þá
við vinnu á þilfari og lézt skipverj-
inn af áverkum, er hann hlaut, er
brotið lenti á honum. Ekki urðu
slys á öðrum skipverjum. Sjópróf í
málinu fara fram í Reykjavík er
skipið hefur lokið yfirstandandi
veiðiferð, en það hélt aftur til
veiða í gærkvöldi, enda var það
ekki mikið skemmt. Ekki er unnt
að birta nafn hins látna að svo
stöddu.
Lyftur opnaðar í Blá-
fjöllum um helgina?
NÚ ER nokkur von til þess, að
skíðalyftur í Bláfjöllum verði opnað-
ar á laugardag. Að sögn Stefáns
Kristinssonar, íþróttafulltrúa
Reykjavíkurborgar, er ekki fyllilega
nægur snjór þar enn sem komið er,
en þó vonast menn til þess að hægt
verði að opna um helgina.
Síðasta vetur voru lyftur í
Bláfjöllum ekki opnaðar fyrr en
18. janúar, en þess eru dæmi að
þær hafi verið opnaðar í nóv-
ember.
Þá hefur verið samþykkt verð-
hækkun á lyftugjöldum og nemur
hækkunin í flestum tilfellum
66,67% en mest er hún á 8 miða
korti eða 81,8%. Verð kortanna
verður sem hér segir: 8 miða kort
krónur 40 fyrir fullorðna og 20
fyrir börn. Dagkort krónur 100
fyrir fullorðna og 50 fyrir börn.
Kvöldkort krónur 75 fyrir full-
orðna og 35 fyrir börn. Arskort
krónur 1.500 fyrir fullorðna og 750
fyrir börn.
Að sögn Stefáns hafa lyftugjöld
ekki fylgt verðlagi síðustu ár og
nú er áætlað að verð sé samsvar-
andi og árið 1980.
Sjónvarpað
frá Alþingi
Sjónvarpsumræða frá Alþingi
um vantraust á ríkisstjórnina fer
fram nk. þriðjudagskvöld. Er
þetta í fyrsta skipti sem umræðu
frá Alþingi er bæði sjónvarpað og
útvarpað. Sjá nánar um tilhögun
umræðunnar á þingsíðu Mbl. í
dag.
Mikil síldveiði síðustu daga
veldur verkendum vandræðum
NOKKUR vandræði hafa nú skapazt vegna mikillar síldveiði i fyrradag og
gær. Vnnslustöðvar í landi eiga erfitt með að vinna þann afla, sem að landi
berst og því hefur verið nokkuð um það að sild fari í bræðslu.
Síðastliðinn sólarhring var til-
kynnt um nálægt 15.000 tunna
afla þrátt fyrir það að vinnslu-
stöðvar hafi haldið bátum inni
vegna vandræða við að vinna afla
þeirra. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er nú nokkur kurr
í síldarsaltendum vegna þróunar
þessara mála.
Sigurður Skúlason og Styrmir Guðlaugsson, starfsmenn Landgræðslusjóðs, með nýfelld tveggja metra há jólatré
úr Þjórsárdal. Verð á jólatrjám verður 40—50% hærra en f fyrra og verða fleiri íslenzk jólatré en innflutt á
boðstólum í ár. Jólatréssalan hefst eftir um þrjár vikur. Mor^nblaðið/ Krístján Einarsson
íslenzk jólatré fleiri en innflutt
ÍSLENSK jólatré eru farin að ber-
ast í söluskála Landgræðslusjóðs
og um aðra helgi er von á fyrstu
sendingunni af útlendum jóla-
trjám, en að þessu sinni verða ein-
vörðungu dönsk jólatré flutt inn.
Búist er við að jólatréssalan hefjist
almennt um 8. desember. Að sögn
Kristins Skæringssonar hjá Land-
græðslusjóði verður meira fram-
boð á íslenzkum jólatrjám að
þessu sinni en innfluttum, en það
hefur ekki gerst áður að hans
sögn. Verða milli 10 og 11 þúsund
íslenzk tré á boðstólum á landinu
fyrir þessi jól. Kjartan sagði að eft-
ir þvi sem næst yrði komist yrði
verð á jólatrjám að jafnaði
40—50% hærra en í fyrra, en þá
kostaði 150 sentimetra tré 190
krónur. Innflutningur hefur verið
bannaður á trjám frá Norður-
Ameríku vegna sjúkdómahættu,
en gin- og klaufaveikin, sem upp
kom í Danmörku í ársbyrjun, hef-
ur ekki áhrif á innflutning þaðan,
þar sem Danir töldu sig hafa kom-
ist fyrir þann faraldur í sumarbyrj-
un.
Vilmundur Gylfason stofnar Bandalag jafnaðarmanna:
Hyggjast bjóða fram
í öllum kjördæmum
Vilmundur flytur tillögu á Alþingi um þjóðkjörinn forsætisráðherra
VILMUNDUR Gylfason, fjórði þingmaður Reykvíkinga, kunngerði úr
ræðustól i Sameinuðu þingi í gær, að hann hefði „sagt skilið“ við sinn
„gamla stjórnmálaflokk, Alþýðuflokkinn". „Ég telst þvi ekki lengur til
þingflokks þess flokks," sagði Vilmundur, en bætti við, „ég hef verið og verð
i stjórnarandstöðu.“ í samtali við Morgunblaðið sagði Vilmundur i gær, að
flokkur sá, er hann væri að stofna, Bandalag jafnaðarmanna, myndi að öllum
likindum bjóða fram í öllum kjördæmum við næstu kosningar. „Þeir, sem að
okkur standa, segja, að svo eigi að vera,“ sagði Vilmundur Gylfason.
Jafnframt lagði hann fram „til-
lögu til þingsályktunar um gerð
frumvarps til stjórnskipunarlaga
um aðgreiningu löggjafarvalds og
framkvæmdavalds". „Þetta þing-
skjal verður eitt af stefnumálum
samtaka," sagði Vilmundur, „sem
eru í undirbúningi, og munu nefn-
ast Bandalag jafnaðarmanna."
Tillagan felur stjórnarskrárnefnd,
ef samþykkt verður, að taka nú
þegar saman frumvarp til stjórn-
skipunarlaga, sem hafi eftirtaldar
meginhugmyndir: 1) Forsætisráð-
herra verði kosinn beinni kosn-
ingu um landið allt til fjögurra
ára í senn. Kosið verði í tveimur
umferðum, ef nauðsyn krefur,
þannig að í síðari umferð verði
kosið milli tveggja efstu, hafi eng-
inn frambjóðanda þá náð hreinum
meirihluta, 2) Forsætisráðherra
skipi með sér ríkisstjórn, utan
þings eða inna, og verði ráðherrar
ekki fleiri samtals en níu, 3)
Löggjafarþing verði kosið til 4ra
ára, kjördæmaskipan og kosn-
ingalög verði óbreytt, nema hvað
kosningaldur lækki í 18 ár. Alþingi
verði ein málstofa. 4) Utanríkis-
ráðherra verði staðgengill forsæt-
isráðherra, 5) Stefnumörkun í
utanríkismálum verði á hendi Al-
þingis, 6) Forsætisráðherra geti
efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um
hvaða mál sem vera skal, þar á
meðal um samþykkt lagafrum-
vörp ... “
Sjá ræðu Vilmundar á þingsíðu
Mbl. í dag og viðtal við hann á
miðsíðu.
Umfangsmikið fíkniefnamisferli:
Sex manns úrskurð-
aðir í gæzluvarðhald
TVENNT var í gær úrskurðað í 7 og 15 daga gæsluvarðhald vegna gruns
um fíkniefnamisferli, en handtökur þessa fólks tengjast umfangsmiklu
fíkniefnamáli sem nú er i rannsókn hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Gísla Björnssyni
lögreglufulltrúa.
Frá því máli var skýrt í Mbl.
fyrir nokkru, en þá var fernt úr-
skurðað í varðhald. Samtals sitja
því sex manns inni vegna málsins.
Gísli sagði í samtali við Mbl., að
einkum væri um að ræða dreifingu
kannabisefna, en einnig tengdust
önnur efni málinu. Málið á rætur
að rekja til fyrrihluta þessa árs,
en þá hófst smygl fíkniefnanna
sem fyrrgreint fólk er grunað um
að hafa dreift og talið er að um
verulegt magn sé að ræða.