Morgunblaðið - 02.12.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
7
Öllum þeim sem glöddu mig meö heimsóknum, skeytum
og gjöfum á 70 ára afmœli mínu þakka ég innilega. Guö
blessi ykkur öU.
Björn Guðmundsson
Fáksfélagar
Fræðslufundur verður í félagsheimilinu fimmtudaginn
2. desember kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Sigurbjörn Báröarson les úr nýrri bók sinni „A
Fáksspori" og fjallar um helztu vandamál hesta-
mennskunnar.
2. Sýndar verða litskuggamyndir frá Landsmótinu á
Vindheimamelum í sumar.
Félagar fjölmenniö.
Fræðslunefndin
SIEMENS
Betri gjöf — vegna gædanna
Siemens-
kaffivél
med GULLSÍU
• Engar pappírssíur.
• VARIOTHERM
hitastilling.
• Dropar ekki eftir lögun.
• Snúra uppundin
í tækið.
SMITH & NORLAND HF.,
NÓATÚNI 4, SÍMI 28300.
Philips solarium
heimilislampinn kostar
aðeins 6.805 - krónur;*
meðstandara
og sjálfvirkum tímastilli
Philips solarium er fisléttur og meðfærilegur og tekur sára-
lítið pláss í geymslu. Það er líka hægt að nota hann án
standarans en þannig kostar hann aðeins5.670krónur.
Rafmagnseyðsla 0.24 kg. wött
Þyngd - 7,5 kg
Stærð dxbxh - 10x38x74 cm
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 - SÆTÚN 8 - 15655
ÓSA
— UTSTJÓRNUGUIN
Klofningur íhaldsins geirnegldur
Mesta illmælgin
Athygli vekur að mesta illmælgin í tilefni af prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík og úrslitum í því birtist í hinu ríkisrekna Alþýðu-
blaöi. Ritstjóri blaðsins til skamms tíma tók þátt í litlu og misheppn-
uöu prófkjöri krata og nú er þaö lína blaösins að draga athyglina frá
þeim hörmungum krata með skítkasti á sjálfstæðismenn. Er sú lína
í samræmi við stefnu Sigurðar E. Guðmundssonar í borgarstjórn-
arkosningunum í vor, þegar hann kepptist við að færa rök fyrir því,
aö í raun væru sjálfstæðismenn nasistar og fasistar. Kratar innan
og utan Alþýöuflokksins eru sem sé í harðri keppni um að sverta
Sjálfstæöisflokkinn sem mest.
Útlistun Al-
þýðublaðsins
í gær fjalla flokksmál
gögn vinstri manna að
sjálfsögðu um niðurstöð-
una í prófkjöri sjálfstasV
ismanna í Reykjavík. Eins
og við var að búast meta
blöðin niðurstöðuna út frá
sjónarhóli þeirra flokka,
sem eiga þau og stjórna
penna ritstjóranna. Kemur
því ekki á óvart, þótt rit-
stjóri Alþýðublaðsins sé í
senn skammsýnastur og
þröngsýnastur. Músarholu-
sjónarmiðin hafa lengi ráð-
ið ríkjum innan Alþýðu-
flokksins og ekki sta kkaöi
sjóndeildarhringurinn við
hið misheppnaða og fá-
menna prófkjör krata í
Reykjavík á laugardag og
sunnudag. Hefur jafn mikil
og víðtæk pólitisk auglýs-
ingaherferð aldrei skilað
jafn litlum árangri.
En hvað segir svo rit-
stjóri Alþýöublaösins um
prófkjör sjálfstæð-
ismanna? Meðal annars
þetta: „Það sem gerir þessi
úrslit prófkjörsins enn al-
varlegri fyrir forystu Sjálf-
stæðisflokksins, er sú stað-
reynd að prófkjörið var
lokað, þannig aö aðeins
kjarni flokksmanna stóð
að aftökunni." Skoðum
þessa fullyrðingu nánar:
Rúmlega 11 þúsund manns
voni á kjörskrá í prófkjöri
sjálfstæðismanna — þótl
flokkur þeirra sé stór og þá
sérstaklega í augum krata
er of mikið sagt, að kjarna
Sjálfstæðisflokksins myndi
11 þúsund manns. Af þess-
um fjölda grciddu 8155 at-
kvæði — því miður er
einnig oftalið að kalla allan
þennan fjölda „kjarna
flokksmanna". En kannski
skilja pólitiskir skriffinnar
krata ekki svona háar töl-
ur, því að til dæmis kusu
aðeins 3949 manns flokk
þeirra í síðustu borgar-
stjórnarkosningum i
Reykjavík.
Alþýðublaðið fer einnig
með rangt mál, þegar það
segir, að prófkjör Sjálf-
stæðLsflokksins hafi verið
lokað. Það var opið, því að
hver sá sem lét skrá sig gat
kosið. hvort heldur hann
var flokksbundinn eða
ekki.
Svo er það auðvitað eftir
öðru, að þegar útlistun rit-
stjóra Alþýðublaðsins er
lesin áfram, kemur auðvit-
að í Ijós að í málflutningi
hans er ekki heil brú og er
það í góðu samræmi við
háttalag þeirra núverandi
og fyrrverandi krata, sem
mest láta til sín taka um
þessar mundir. { forystu-
grein Alþýðublaðsins segir:
„Þegar rúmlega 8 þúsund
Reykvíkingar hafna
flokknum eins afdráttar-
laust og gerðist í prófkjör-
inu ...“ Nióurstaða krata-
blaðsins er sem sagt sú, að
„kjarni" sjálfstæðismanna
hafi hafnað flokki sínum í
eigin prófkjöri! Hvernig
væri að þessi stjórnmála-
skýrandi tæki sér fyrir
hendur að skilgreina eigin
flokk og hið ríkisrekna,
litla Alþýðublaðið, sem gef-
ið ér út vegna leiðaralest-
urs í ríkisútvarpinu, og
segði hinum litla hópi les-
enda sinna frá því, sem er
að gerast í músarholum
flokkskrílisins, sem „gefur
út“ hið ríkisrekna mál-
gagn?
Alþýðublað-
ið og verka-
lýðurinn
Engu er líkara en kratar
utan og innan Alþýðu-
flokksins telji sér mjög til
framdrátlar að vera sífellt
með Morgunblaðið á vör-
unum. Er það ekkert ný-
næmi að kratar leiti skjóls
hjá þeim sem þeir telja
sterkan og óbifanlegan í
hinum pólitísku sviptivind-
um. Hitt er jafnljóst, að
sjaldan launar kálfur
ofeldið og krötum utan og
innan flokks er það einnig
gjarnt að gera Morgun-
blaðið að blóraböggli. í
gær birti hið ríkisrekna Al-
þýðublað athugasemd frá
verkalýðsforingjum krata.
Foringjarnir mótmæla
þeim fullyrðingum Alþýðu-
blaðsins, að Alþýðusam-
bandið hafi kokgleypt síð-
ustu kjaraskerðingar, for-
ystumenn verkalýðshreyf-
ingarinnar liggi hundflatir
fyrir fótum rikisstjórnar-
innar og keppist við að
svíkja umbjóðendur sína.
Síðan segja verkalýðsrek-
endur kratæ „Þetta er
málflutningur, sem er ekki
sæmandi. Ekki Alþýðu-
blaðinu. Þetta gerir Morg-
nnblaðið..."
Ruglandi ritstjóra Al-
þýðublaðsins er takmarka-
laus eins og lýst hefur ver-
ið, en ekki sýnast verka-
lýösrekendur krata betri.
Er hér með skorað á þá að
færa rök fýrir því, að
Nlorgunblaðið ræði um for-
ystu ASÍ sem ríkisstjórn-
arrakka og svikara við
málstaó umbjóðcnda
sinna? Baráttan mílli krata
utan og innan flokks tekur
svo sannarlega á sig und-
arlegar myndir.
Ákvörðun út-
varpsráðs
Enn skal að gefnu tilefni
bent á það, að það er út-
varpsráð, sem hefur ákveð-
ið þá skipan, sem veldur
því, að ekki er lesinn út-
dráttur úr forystugreinum
Morgunblaðsins fyrr en
daginn eftir að þær birtast.
Oftar en einu sinni hefur
blaðið lýst undrun sinni á
þessari tilhögun og jafn-
framt hefur útvarpsráði
verið skrifað vegna þess
með hvaða hætti frétta-
menn útvarps, sem stytta
forystugreinarnar, sinna
starfi sínu. Við því bréfi
hefur ekki borist svar og
auðvitað skiptir útvarpsráð
aldrei um skoðun, nema
þegar fréttamenn útvarps
setja þvi stólinn fyrir dyrn-
ar.
HAFSKIP HF.
REYKJAVÍK
Til hluthafa Hafskips hf.
Kynning á starfsemi félagsins.
Fjórða árið í röð boðar félagið til fundar með hluthöfum sínum
til kynningar á starfsemi félagsins.
Á fundinum munu deildarstjórar félagsins og framkvæmdastjórar
sitja fyrirsvörum.
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 4. desember n.k. í Hliðarsal
Hótel Sögu (inn af Sulnasal) kl. 14:00.
Þess er að vænta, að á fundinum verði ræddar hinar margvíslegustu
spurningar um rekstur félagsins, framtíð þess og stöðu.
Hluthafar eru eindregið hvattir að koma til fundarins og leggja sitt af
mörkum til að gera umræður gagnlegar og samveruna ánægjulega.