Morgunblaðið - 24.12.1982, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 24.12.1982, Qupperneq 32
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982 Sjónvarp & útvarp Sjónvarp á annan í jólum kl. 20.35: Stundarfriður — eftir Guðmund Steinsson Á dagskrá sjónvarps að kvöldi annars jóladags kl. 20.35 er leikrit Guðmundar Steinssonar, Stundarfriður. Hér er um að ræða leikgerð l’jóðleikhússins sem frumsýnd var árið 1979 og öðlaðist meiri vinsældir en áður voru dæmi til um nýtt íslenskt leikrit þar. Myndatöku annaðist Ómar Magnússon; hljóð: Baldur Már Arngrímsson; lýsingu: Ingvi Hjörleifsson; leikmynd og búninga: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir; tónlist og leikhljóð: Gunnar Reynir Sveinsson. Leistjóri: Stefán Baldursson. Stjórn upptöku: Kristín Pálsdóttir. Upptakan var gerð í sjón- varpsal í sumar. Leikendur eru: Helgi Skúlason, Krist- björg Kjeld, Sigurður Sigur- jónsson, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Guðrún Gísla- dóttir, Guðbjörg Þorbjarn- ardóttir, Þorsteinn Ö. Stephensen, Randver Þor- láksson og Sigurður Skúla- son. Leikritið gerist á heimili reykvískrar nútímafjöl- skyldu þar sem tímaskortur og tæknivæðing koma í veg fyrir allt eðlilegt fjölskyldu- líf og heimilið líkist helst umferðarmiðstöð þangað sem fjölskyldan kemur til að skipta um föt, borða og góna á sjónvarp. Hljóðvarp á jóladag kl. l!).i „Með vísnasöng ég vögguna þína hræri“ Á dagskrá hljóðvarps kl. 19.25 á jóladag verður þáttur sem ber yfirskriftina „Með vísnasöng ég vögguna þína hræri“, í umsjá Baldurs Krist- jánssonar. — I þættinum verður m.a. rætt við Brodda Jóhannes- son, skólastjóra Kennara- skólans og síðar rektor Kennaraháskólans, sagði Baldur, — um þau jól sem hann man fyrst, en það var upp úr 1920 norður í Skaga- firði. Lýsir Broddi aðstæðum öllum skilmerkilega og dreg- ur upp mynd af jólahaldi þess tíma. Þá er viðtal við sr. Sigurð Sigurðarson, sókn- arprest á Selfossi, um starf prestsins á jólum og ýmis- legt varðandi trúarinnihald jólanna fyrr og nú. Lesari með mér í þættinum er Sjöfn Jóhannesdóttir guðfræði- nemi. Baldur Broddi Kristjánsson Jóhannesson Sr. Sigurður Sigurðsson Svanavatnið í Covent Garden Á dagskrá sjónvarps kl. 21.00 að kvöldi jóladags er upptaka frá sýningu í Covent Garden-óperunni í Lundúnum í júlí 1980 á Svanavatninu — ballett eftir Pjotr Tchaikovsky. Helstu dansarar eru rússneska ballettstjarnan Nat- alia Makarova og breski dansarinn Anthony Dowell ásamt Konunglega breska ballettinum. Guðrún Birgisdóttir Sunnudagsstúdíóió á annan í jólum: Alþjóðlegur jólablær í frásögnum og tónum Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.00 á annan í jólum er Sunnu- dagsstúdíóið — Útvarp unga fólksins. Guðrún Birgisdóttir stjrónar. — Þessi þáttur verður með nokkuð alþjóðlegum jólablæ vona ég, sagði Guðrún. — Rætt veðrur við fjóra skipti- nema, sem dvalist hafa hér á landi undanfarið, þau Robertu Bianconi frá Ítalíu, Helenu de Nijs frá Hollandi, Söndru Martinez frá Ecuador í Suð- ur-Ameríku og Christofer (eða Chris, eins og hann kallar sig) Finch frá Kaliforníu í Banda- ríkjunum. Og þau segja okkur frá jólum, jólasiðum, jóla- sveinum og öðru sem tengist jólum í löndum þeirra. Svo verður jólastemmning í mús- íkinni á milli atriða. Hljóövarp á aöfanga- dag kl. 14.30: „Jólabarn“ — smásaga eftir Ingi- björgu Þorbergs Á aðfangadag kl. 14.30 er smásaga, „Jólabarn", eftir Ingi- björgu Þorbergs. Höfundurinn les. — Þetta er ný saga, sagði Ingibjörg, — samin á sunnu- dögum á aðventunni, í stað þess að baka smákökur. Hún gerist í kirkju suður á Italíu og fjallar um konu á miðjum aldri, sem stendur frammi fyrir vissu vandamáli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.