Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 „Getum verið við öllu búnir“ segir framkvæmdastjóri Almannavarna vegna falls sovéska hnattarins „VIÐ fylgjumst náið með þróun þessa máls og höfum í höndunum gögn frá Kanadamönnum um reynslu þeirra af falli annars hnattar með geislavirk efni innanborðs við ÞrKlavatn í Kanada 1978,“ sagði Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna, þegar Morgunblaðið hafði tal af honum vegna falls sov- éska gervihnattarins, en eins og fram kom í frétt í Morgunblaðinu í gær er ísiand innan marka þess svæðis, sem hnötturinn kann að falla á. „Við höfum þannig mjög góðar upplýsingar um hvernig bregðast eigi við og standa að málum ef hnötturinn kæmi niður í nágrenni okkar og höfum að sjálfsögðu skoðað þær mjög ítarlega. Þá fáum við upplýsingar til okkar varðandi feril hnattarins og hugs- anlegt fallsvæði, ef til kemur að hann falli til jarðar, þannig að við getum verið við öllu búnir,“ sagði Guðjón Petersen. Arnarflug hefur endurnýjað samning sinn við Líbýumenn: Um 20 starfs- menn starfa félagsins þar syðra ARNARFLUG hefur undirritað samning við Libyan Arab Airlines um áframhaldandi flug fyrir Líbýu- menn, en núverandi samningur fé- laganna rennur úr í marzmánuði nk., að sögn Agnars Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Arnarflugs. Nýi samningurinn gildir til næstu ára- móta. Samningurinn gerir ráð fyrir, að Arnarflug verði með eina Boeing 707 vöruflutningavél, ásamt áhöfnum í Líbýu. Síðan hefur Arnarflug forgang á ann- arri vél, verði þess þörf, hvort heidur um verður að ræða far- þegaflutninga, eða vöruflutninga. „Við erum ákaflega ánægðir með þessa niðurstöðu, en þessi Engin skoðana- könnun á vegum Morgunblaðsins AÐ GEFNU tilefni vill Morgunblað- ið taka fram, að enginn starfsmaður þess vinnur að skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna. Þeir, sem hafa samband við fólk í nafni Morgunblaðsins til að spyrja það um fylgi þeirra við ein- staka stjórnmálaflokka eru því ekki á vegum blaðsins. samningur er mjög hliðstæður þeim samningi, sem er í gildi, og við erum tiltölulega bjartsýnir á að koma annarri vél að áður en langt um líður," sagði Agnar Frið- riksson. „Við erum sérstaklega ánægðir með að hafa náð þessum samningi, þar sem um verulega harða sam- keppni er að ræða. Eg tel hins veg- ar, að það sem hefur gert útslagið um að við vorum valdir, sé sú stað- reynd að Líbýumenn séu ánægðir með það starfsfólk okkar, sem starfað hefur þarna syðra og þá þjónustu, sem þeir hafa fengið," sagði Agnar Friðriksson. Agnar Friðriksson sagði að- spurður, að flogið væri frá Líbýu aðallega til írlands, Bretlands, Belgíu, Þýzkalands og Ítalíu. „Annars erum við sérstaklega ánægðir með að þurfa ekki að grípa til uppsagna á starfsfólki með tilkomu þessa nýja samnings, en til þess hefðum við neyðzt að öðrum kosti. Liðlega 20 starfs- menn Arnarflugs starfa beint við þess starfsemi í Líbýu. „Ég tel að þessi samningur svari þeim sögusögnum fullkomlega og ekki þurfi að hafa um þetta fleiri orð,“ sagði Agnar Friðriksson er hann var inntur eftir sannleiks- gildi sögusagna þess efnis, að fé- lagið hefði átt í einhverjum úti- stöðum við Líbýumen að undan- förnu. Akranes: Flutninga- skipinu Frey- faxa lagt Akranesi 18. janúar. Flutningaskipinu Freyfaxa hefur nú verið lagt við bryggju á Akranesi. Ekki hefur verið endanlega ákveðið hvað gert verður við skipið, en verið er að kanna möguleika á sölu á því. Ástæðan fyrir þessu er skortur á verkefnum, flutningar á sekkjuðu sementi hafa dregist mikið saman á undanförnum árum og til marks um það má segja að árið 1966, þegar Freyfaxi kom nýr til landsins, voru flutt 35.000 tonn af sementi á ári, en sú tala hefur nú lækkað um nær helming. Auk þess var skipið mikið í mjölflutningum frá landinu, en þegar loðnuveiðar stöðvuðust dró að mestu úr þeim. Að sögn Friðriks Jónssonar út- gerðarstjóra er skipið í góðu ásig- komulagi og því hefur verið haldið vel við. Ahöfninni hefur verið sagt upp með löglegum fyrirvara, eri yf- irmenn og hluti undirmanna eru enn við störf við ýmis viðhaldsverk- efni. Friðrik sagði að verið væri að kanna önnur störf fyrir þá. - JG UóuuKÖE. Grýlukerti og snjóhengjur hanga nú víða fram af húsþökum, og geta valdið hættu fyrir vegfarendur. — Þessi húseigandi ætlar þó berlega ekki að láta þessa „aðskotahluti" húss síns verða öðrum til tjóns. Sprengjugabb í Hagkaupum TILKYNNT var um sprengju í versl- uninni Hagkaupum í Skeifunni f Reykjavík laust fyrir klukkan 18.00 í gær, en sprengjan átti að springa klukkan 20.00. Lögregla og slökkvilið mættu á staðinn og var leitað í versluninni, en engin fannst sprengjan. Hún var ósprungin enn þegar Mbl. fór í prentun, enda talið að um gabb væri að ræða. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar: Starfsemin getur haf- izt að láninu afgreiddu — segir Sigurður Þórðarson, formaður útgerðarráðs A FUNDI stjórnar Framkvæmda- stofnunar ríkisins á mánudag var ákveðið að veita Bæjarútgerð Hafn- arfjarðar fjögurra milljóna króna lán og Fiskvinnslunni á Seyðisfirði þriggja milljóna króna lán úr Byggðasjóði. Er lánveitingin bundin því að ríkið ábyrgist hana. Bæjarút- gerð Hafnarfjarðar hafði óskað eftir 10 milljóna króna láni til að leysa rekstrarvanda sinn, en eins og kunn- ugt er hefur starfsemi fyrirtækisins legið niðri frá því fyrir áramót. Lán- veiting þessi var samþykkt á þeim Full samstaða um aðild Færeyja, Grænlands og Álandseyja: Fá tvo fulltrúa hvert og að- ild að ráðherrasamstarfi FuIItrúum Norðurlandaráðs fjölgað í 87, ísland fær 7 í stað 6 Á FUNDI laganefndar Norðurlanda- ráðs voru í gær samþykktar sam- hljóða tillögur um hvemig standa skuli að aðild Færeyja, Grænlands og Álandseyja að ráðinu. Tillögurnar fela í sér að löndin fá 2 fulltrúa hvert, aðild að ráðherrasamstarfinu, en ekki forsætisnefndinni. Hún verður áfram skipuð fulltrúum ríkj- anna fimm. Fulltrúar landanna þriggja koma til með að skipa eigin sendinefndir en þær starfa þó innan sendinefnda ríkjanna sem þau til- heyra, þ.e. Danmerkur og Finn- lands. Með þessari breytingu fjölgar fulltrúum Norðurlandaráðs úr 78 í 87, þar af fá íslcndingar einn til viðbótar þeim sex sem nú sitja í ráð- inu. Að sögn Halldórs Ásgrímsson- ar, fulltrúa íslands í nefndinni, var full samstaða um þessa af- greiðslu og verða tillögur nefndar- innar til endanlegrar afgreiðslu á þingi ráðsins, sem hefst í Osló 21. febrúar nk. Eftir afgreiðslu Norð- urlandaráðsþingsins þurfa þjóð- þing ríkjanna fimm öll að sam- þykkja tillögurnar og er reiknað með að breytingin hafi að fullu gengið í gildi á þingi Norðurlanda- ráðs 1984. Þingfulltrúarnir níu sem fjölgað er um skiptast þannig á milli ríkja að ísland fær þá 7 fulltrúa í stað 6, en önnur ríki 20 hvert. Af dönsk- um fulltrúum fá Færeyingar 2, eins og verið hefur, en Grænlend- ingar, sem engan fulltrúa hafa átt, fá einnig 2. Alandseyjar hafa átt einn fulltrúa í ráðinu, en fá nú annan, þannig að Finnar verða þá með 18 fulltrúa í stað 17 áður. Noregur og Svíþjóð fá 20 fulltrúa hvor þjóð í stað 18 áður. Þessi fjölgun var ákveðin til að halda svipuðu jafnvægi og verið hefur, að sögn Halldórs. forsendum að þessi fyrirtæki hefðu ekki fengið fyrirgreiðslu á síðasta ári. Vegna þessa ræddi Morgunblað- ið við Sigurð Þórðarson, formann útgerðarráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, og innti hann eftir því, hvort þetta dygði til þess að starfsemi útgerðarinnar gæti haf- izt að nýju. Sigurður sagði, að miðað við að þessi lánveiting feng- ist afgreidd og ef lausn fengist á þeim tillögum, sem nú lægju fyrir í sambandi við skuldbreytingar- málin, myndi útgerðarráð koma saman í vikunni til að meta stöð- una. Teldi útgerðarráð grundvöll fyrir því að hefja rekstur fyrir- tækisins að nýju vegna þessarar fyrirgreiðslu, mætti ætla að skipin gætu farið út um helgina eða í upphafi næstu viku. Sigurður sagði ennfremur, að hann teldi, miðað við að lánveiting Byggðasjóðs fengist afgreidd, að skuldbreytingin næði fram að ganga og að úr framkomnum hugmyndum um aðstoð viðskipta- banka fyrirtækisins yrði á þessu ári, væri búið að leysa meginhluta þess vanda, sem óskað hafði verið að Ieystur yrði. Þá væri kominn grundvöllur fyrir því að Bæjarút- gerðin hæfi störf að nýju. Um 10 milljón- ir kr. borgaðar með ávísana- heftum á sl. ári RAGNAR Onundarson, aðstoðar- bankastjóri Iðnaðarbanka íslands, sagði á ráðstefnu Verzlunarráðs ís- lands um lánamarkaðinn í liðinni viku, að þrátt fyrir verulega hækk- un á ávisanaheftum á liðnu ári úr 16 krónum í 35 krónur hrykki það ekki fyrir prentunar- og færslu- kostnaði, hvað þá að eitthvað feng- ist upp í annan kostnað. „Mér sýnist, að á árinu 1982 hafi nálægt 10 milljóna króna kostnaði verið velt yfir á spari- fjáreigendur og lántakendur, bara af þessum eina þætti. Vitað er, að svipað hefur verið ástatt um marga aðra liði gjaldskrár- innar," sagði Ragnar Önundar- son ennfremur. Fjögur skip seldu erlendis FJÖGUR íslenzk fískiskip hafa selt afla sinn erlendis í þessari viku, bæði í Englandi og Þýzkalandi, og fengu heldur lægra verð fyrir aflann en feng- izt hcfur að undanfórnu. Ekki eru fyrirhugaðar söluferðir fleiri skipa í þessari viku. Á mánudag seldi Ársæll Sigurðs- son HF 90,2 lestir í Grimsby. Heild- arverð var 1.771.400 krónur, meðal- verð 19,66. Sama dag seldi Már SH 143,1 lest í Cuxhaven. Heildarverð var 2.612.600 krónur, meðalverð 18,26. Á þriðjudag seldi Vigri RE 183,6 lestir í Bremerhaven. Heildar- verð var 3.159.600 krónur, meðalverð 17,21. Sama dag seldi Sigurey SI 118 lestir í HuII. Heildarverð var 2.554.800 krónur, meðalverð 21,64.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.