Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 19 ■ HAVfc beaw Vilja frí á afmælisdegi King Myndin hér að ofan sýnir stuðningsmenn þess, að almennur frídag- ur verði skipaður í Bandaríkjunum þann 15. janúar ár hvert til að minnast fæðingar Martin Luther King, í fjölmennri göngu í Los Angeles. Þá vildu þeir, sem í þessari göngu voru, mælast til þess að Santa Barbara Avenue í LA yrði framvegis nefnd Martin Luther King Boulevard. King hefði orðið 54 ára þann 15. janúar. „Sanngjarnt samkomulag er báðum aðilum fyrir bestu“ — segir Yasuhiro Nakasone, forsætisráðherra Japana, um efnahagsviðræður hans og Reagans Washington, 18. janúar. AP. YASUHIRO NAKASONE, sem nú er í opinberri heinisókn í Bandaríkj- unum, sagðist í dag vonast til þess að geta dregið úr þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að vernda vinnumarkaðinn með því að draga úr innflutningi, m.a. frá Japan. Nakasone og Reagan Bandaríkjaforseti áttu í dag viöræður um varnarmál og viðskipti. Nakasone sagði í viðtali við fréttamenn, að mikilvægt væri að koma í veg fyrir ögranir af beggja hálfu, sem leitt gætu til þess að framtíðarmarkmið beggja ríkjanna biðu verulegan hnekki af. „Það er báðum aðil- um fyrir bestu að halda höfði og komast að sanngjörnu sam- komulagi, sem báðir aðilar geta sætt sig fyllilega við,“ sagði for- sætisráðherrann. Háttsettur bandarískur emb- Á atvinnumissi yfir höfði sér vegna erótísks ljóðs Helgrað, 18. janúar. AP. ,;Ég HELD að málið snúist fyrst og fremst um þá staðreynd að ég er kona. Ég á í höggi við hóp þröngsýnna kerfiskarla, sem setja lög og reglur, en skilja ekki gildi listar. Ég mun halda áfram að skrifa það, sem ég hef lögun til að skrifa.“ Það er júgóslavneska ljóðskáld- ið Gordana Stosic, sem nýtur um- talsverðrar virðingar og vinsælda í heimalandi sínu, sem segir svo. Hún á nú á hættu að missa kenn- arastarf sitt eftir að erótískt ljóð, sem hún samdi, birtist á prenti. Gordana mun fyrsta konan, sem birtir slíkt ljóð á prenti í Júgóslavíu. Hún hefur gefið út þrjár ljóðabækur. Ætla að hrella sendi- ráðsstarfs- menn áfram Kuala Lumpur, Malajsíu, 18. janúar. AP. Noðanjarðarhreyfing múham- eðstrúarmanna, sem berst gegn veru sovéskra hermanna í Afganistan, hefur skýrt frá því, að árásum á sov- éska sendiráðið í Kuala Lumpur verði haldið áfram. Hreyfingin, sem ber nafnið Al- þjóðleg bræðralagshreyfing mú- hameðstrúarmanna og segist vinna með sambærilegum hreyf- ingum í Afganistan, Pakistan, Indlandi og Thailandi, hefur lýst ábyrgð á skotárás á sovéska sendi- ráðið í borginni þann 12. þessa mánaðar á hendur sér. Tuttugu skotum var þá hleypt af á sendi- ráðið, en ekki urðu nein meiðsli á starfsmönnum þess. „Ef Sovétmenn hætta ekki barb- arisma sínum í Afganistan eiga þeir ekki skilið samúð eins né neins,“ sagði m.a. í tilkynningu frá hreyfingunni. Þá var haft eftir einum meðlima hreyfingarinnar í dagblaðinu New Straits, sem gefið er út á ensku í Malaysíu, að henni væri hvorki í nöp við lögreglu né yfirvöld heldur beindust aðgerðir hennar ein- göngu að sovéska sendiráðinu. Yfirmenn kommúnistaflokksins í Júgóslavíu voru fljótir að komast á snoðir um þetta sérstæða ljóð og vöruðu Gordönu við því, að hún kynni að missa starfið. Verði henni vikið úr starfi á hún rétt á launagreiðslum í tvö ár, eða þar til henni hefur verið fundin önnur staða. Júgóslavneskir rithöfundar njóta mun meira frelsis en kolleg- ar þeirra í Austurblokkinni al- mennt, en það eru takmörk fyrir því hversu frjálslyndir þeir mega vera í skáldskap sinum án þess að misbjóða yfirvöldum. Vandræði Gordönu hófust fyrst þegar bílablað í Belgrað, Autosvet, krafðist þess, að henni yrði vikið úr starfi með þeim ummælum, að hún væri ekki verðug þess að kenna börnum eftir það sem hún hefði látið frá sér fara á prenti. Greinin í Autosvet var mynd- skreytt með myndum, sem sýndu m.a. bert læri Gordönu. „Þetta eru einungis venjulegar sumarmyndir. Ég var í stuttum kjól og það er ekkert óeðlilegt né athugavert við það þótt sjáist eitthvað í lærin á mér,“ hefur Gordana sagt um myndbirting- una. „Ég hef heldur ekkert gert á hlut nemenda minna. Ég hef kennt þeim að lesa eins og áður og ekki hefur verið gerð nein athuga- semd við kennsluna." ættismaður sagðist í dag á hinn bóginn telja útilokað, að ágrein- ingur sá, sem ríkt hefur á milli ríkjanna í viðskiptamálum, yrði leystur á meðan þriggja daga heimsókn Nakasone stendur. Frá því stjórn Nakasone tók við völdum í nóvember hefur hún gefið eilítið eftir og stækkað innflutningskvóta sinn á ýmsum bandarískum vörutegundum og lækkað tolla og aðflutningsgjöld af sumum þeirra að auki. Hefur tilslökun þessi mælst vel fyrir í Bandaríkjunum, en um tíma var ástandið orðið þannig, að lá við að uppúr syði á milli þjóðanna. „Við erum þeirrar skoðunar, að enn sé langt í það að banda- riskar vörur eigi jafn greiðan aðgang að japönskum kaupend- um og japanskar vörur eiga að kaupendum í Bandaríkjunum," sagði embættismaðurinn, sem óskaði nafnleyndar. Begin hefur öruggt forskot Tel Aviv, 14. janúar. AP. MENACHEM Begin, forsætisráö- herra ísraela, hefur örugga forystu yfir stjórnarandstæðinga samkvæmt könnun, sem gerö var í ísrael nýver- ið. Þótt forysta hans sé örugg hefur heldur dregið saman með stjórn- arflokkunum og þeim sem eru í stjórnarandstöðu. Þannig var hin- um fyrrnefndu spáð 57 þingsætum ef til kosninga kæmi, en þeim síð- arnefndu 39. í síðustu könnun voru hlutföllin 60 á móti 37. Vöruskiptajöfnuður Banda- ríkjanna við Japan var á síðasta ári óhagstæður um 20 milljarða Bandaríkjadala og hefur hallinn aldrei verið meiri. Skiptir þar vafalítið mestu bifreiðainn- flutningur Japana. Markaðs- hlutdeild japanskra bíla var á síðasta ári 20% í Bandaríkjun- um. ______, , T_____ Milljónir tóku þátt í yerkfalli Róm, 18. janúar. AP. IÐNVERKAMENN á Ítalíu efndu i dag til fjögurra stunda langs verk- falls til þess að mótmæla því, aö ekki er enn búiö aö undirrita nýja kjarasamninga til þriggja ára. Þá er einnig talið, að verkföllin hafi einnig beinst gegn nýjum skattahækkunum yfirvalda. Milljónir iðnverkamanna tóku þátt í verkfallinu í dag og stór hluti þeirra efndi til mótmæla- gangna um götur stórborga. Ekki kom til neinna átaka á milli göngumanna og lögreglu. Talsmenn verkalýðsfélaga segja, að geysilega mikil og al- menn þátttaka hafi verið í verk- fallinu, eða um 90%. Má, sem dæmi nefna, að starfsemi FIAT- verksmiðjanna í Tórínó lamaðist algerlega þann tíma, sem verkfall- ið stóð yfir. Engin dagblöð komu út á Ítalíu í dag vegna verkfalls, sem prentarar efndu til í gær, þar sem verkfall þeirra í dag hefði ekki valdið neinum verulegum óþægindum. Viðræður um nýja kjarasamn- inga standa yfir á milli verkalýðs- félaga og yfirvalda þessa dagana. Ber enn talsvert í milli í viðræð- unum og var verkfallið í dag fyrir- skipað til þess að reyna að þrýsta á um samninga. Mynd þessi er tekln ofan af þaki þinghússins í Kaupmannahöfn i dag, eftir að hluti þess hafði fokið með þeim afleiðingum að tvær konur létu lífið og margir slösuðust. Símamynd-AP. Ofsaveður í Danmörku: Björgunarmenn hlúa að fórnarlömbum, sem liggja innan um timbur og koparbita sem lágu á víð og dreif. Símamynd-AP. Tvær konur létust og margir slösuðust — þegar hluti af þaki Kristjánsborgarhallar fauk af og hafnaði á strætisvagnabiðstöð Kaupmannahofn, 18. janúar. AP. TVÆR KONUR létu lífið og margir slösuðust í morgun þegar fárviðri skall á og hluti af þaki þinghússins í Kaupmannahöfn fauk og hafnaði á einni stærstu strætisvagnastöð borgarinnar, að því er segir í fregnum lögreglunnar. Yfirmaður í slökkviliði Kaup- mannahafnar telur að um tíu tonn af kopar og timbri hafi dreifst yfir fórnarlömbin, sem öll voru að bíða eftir strætis- vögnum. Vindurinn stóð af Norðursjón- um, þar sem öll umferð ferja og skipa stöðvaðist og einnig varð að stöðva flestar lestir vegna trjábola, sem lágu dreifðir um járnbrautarteinana. Yfirvöld vöruðu landsmenn við því að vera á ferð um skógi vaxin svæði, vegna þeirrar hættu sem stafaði af trjám sem fallið gætu og svo virðist sem fólk hafi orðið við þeirri beiðni. Miklar truflanir urðu á síma- sambandi vegna ofsaveðursins, þar sem staurar brotnuðu og lín- ur slitnuðu, en einnig urðu nokkrar truflanir vegna gífur- legs álags þegar ættingjar og vinir voru að huga hver að öðr- um. Nokkra truflanir urðu einn- ig á rafmagni. Talið er að eignatjón vegna fárviðrisins nemi a.m.k. 200 milljónum islenskra króna. Rokið lægði með kvöldinu í Danmörku, en olli talsverðum skemmdum þegar það skall á S-Svíþjóð. Þar slasaðist einn maður er trjábolur lenti á bif- reið hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.