Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
23
Akranes:
Skuttogarar lönduðu
í fyrsta skipti í ár
AKKANESI 1K. janúar.
Skuttogararnir lönduðu í gær og
dag fyrsta afla sínum á þessu ári.
Haraldur Böðvarsson var með 140
tonn, Krossvík var með 100 tonn,
Skipaskagi 85 tonn og Óskar Magn-
ússon var með 50 tonn.
Afli línubáta hefur verið góður
að undanförnu, en slæmar gæftir
hafa mjög hamlað veiðum. Nokkrir
bátar eru að hefja netaveiðar og
auk skuttogaranna eru tvö af
stærri fiskiskipunum á veiðum með
botnvörpu.
Á sl. ári var landað hér á Akra-
nesi alls 23.422 tonnum af fiski. Þar
af var afli togara og togskipa
14.780 tonn, bátafiskur var 7.106
tonn og af síld var landað 1.536
tonnum. Afli skuttogaranna á ár-
inu var þessi: Haraldur Böðvarsson
4.970 tonn, Krossvík 3.642 tonn,
Óskar Magnússon 3.389 tonn og
Skipaskagi 1.801 tonn, en hann hóf
ekki veiðar fyrr en í maímánuði sl.
JG—
Friðrik og Browne
gerðu jafntefli
Wijk un Zee, fra Berry Wilhuis.
Friðrik Ólafsson gerði jafntefli við
Kandaríkjamanninn Walter Browne
i 4. umferð „Sigurvegaramótsins" í
gær. Báðir lentu kapparnir í miklu
tímahraki en í lokin kom upp hróks-
endatafl og jafntefli óumflýjanlegt.
Mesta athygli vakti glæsileg skák
Seirawans frá Bandaríkjunum, en
hann fórnaði tveimur mönnum gegn
Kuligowski frá Póllandi og vann
glæsilega.
Úrslit í 4. umferð urðu:
Nunn — Anderson 'h — 'h.
Van der Wiel — Scheeren 'h — 'h
Friðrik — Browne lh — 'h
Seirawan — Kuligowski 1—0
Korschnoi — Ree 1—0
Hort — Speelman 1—0
Ribli — Hulak 'h — 'h
Staðan er nú: Ribli, Hulak og
Anderson hafa hlotið 3 vinninga,
Friðrik og Seirawan 2'h, Ree,
Browne, Scheeren, Korchnoi og
Nunn 2 vinninga. Hort og van der
Wiel hafa 1 'h og Speelman og
Kuligowski 'h.
Friðrik mætir Scheeren í dag og
hefur svart, en Hollendingurinn
hefur gert jafntefli í öllum fjórum
skákum sínum.
Forval Abl. á Norðurlandi eystra:
Olafur Ragnar þingflokks-
formaður varð í 6. sæti
í FYRRI hluta forvals Alþýðubanda-
lagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra, sem fram fór um siðustu
helgi, varð Ólafur Ragnar Grimsson,
formaður þingflokks Alþýðubanda-
lagsins, í sjötta sæti, en tæplega 200
manns tóku þátt í forvalinu.
Efstu átta sætin skipuðu eftir-
taldir: Steingrímur Sigfússon,
Þistilfirði, Svanfríður Jónasdóttir,
Dalvík, Soffía Guðmundsdóttir,
Akureyri, Helgi Guðmundsson,
Akureyri, Kristján Ásgeirsson,
Húsavík, Ólafur Ragnar Gríms-
son, Seltjarnarnesi, Eysteinn Sig-
urðsson, Mývatnssveit, Arigantýr
Einarsson, Raufarhöfn.
eigendur
Pústkerfin eru
ódýrust hjá okkur
Hjá okkur fáið þið orginal pústkerfi í allar
gerðir Mazda-bíla.
ísetningarþjónusta á staðnum.
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23
Símar: Verkstæði 81225 —Varahlutir 81265
Steinuun í Mararbúð (Sigríður Hagalín), Sigurlína (Margrét Helga Jóhannsdóttir) og Kvía-Jukki (Sigurður Karls-
son).
Salka Valka á fjölunum á ný
Á fimmtudagskvöldið hefjast að
nýju sýningar hjá Leikfélagi Reykja-
víkur á Sölku Völku eftir Halldór
Laxness eftir hálfs árs hlé.
Leikurinn var frumsýndur á
miðju síðasta leikári í tilefni átt-
ræðisafmælis höfundar og var
sýndur 40 sinnum fyrir troðfullu
húsi og var síðan boðið á alþjóð-
legu leiklistarhátíðina, Leikhús
þjóðanna, sem haldin var í Búlg-
aríu í sumar. Var sýnt þar tvívegis
og góður rómur gerður að sýning-
unni. Ástæðan fyrir því, að ekki
hefur verið hægt að hefja sýn-
ingar fyrr, voru forföll í leikhópn-
um, en nú hefjast sem sé sýningar
að nýju.
Friðþjófur Karlsson endurkjör-
inn formaður Taflfélags Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Taflfélags Reykja-
víkur var haldinn nýlega. Friðþjóf-
ur Max Karlsson var einróma
endurkjörinn formaður félagsins,
en aðrir í stjórn voru kosnir: Krist-
inn B. Þorsteinsson, varaformaður,
Björn Þorsteinsson, gjaldkeri, Þri-
inn Guðmundsson, ritari, Ólafur H.
Ólafsson, skákritari, Ólafur S. Ás-
grimsson, umsjónarmaður skák-
móta, Guðjón Teitsson, umsjónar-
maður æfinga, Stefán Björnsson,
fjármálastjóri, Einar H. Guð-
mundsson, útgáfustjóri, Óttar F.
Hauksson, umsjónarmaður skák-
móta, og Pétur ö. Andrésson,
æskulýðsfuiltrúi.
Varamenn í stjórn voru kosnir:
1. Þórir Kjartansson, 2. Benedikt
Jónasson, 3. Sævar Bjarnason, 4.
Lárus Jóhannesson, 5. Páll Þór-
hallsson og 6. Áslaug Kristins-
dóttir. Endurskoðendur félagsins
voru kosnir Hólmsteinn Stein-
grímsson og Björn Theódórsson
og til vara Tryggvi Árason.
Á aðalfundinum var rætt um
fyrirhugaða stækkun félags-
heimilisins að Grensásvegi
44—46. Er áformað að stækka
það verulega, ef unnt reynist að
standa straum af byggingar-
kostnaði. Skákæfingar, þjálfun
og skákmótahald félagsins er
orðið það umsvifamikið, að mik-
illa þrengsla gætir í félagsheim-
ilinu af þeim sökum og brýn
nauðsyn að fá viðbótarhúsnæði
til að sinna margs konar þjálfun
og námskeiðum fyrir allan al-
menning.
Til að afla fjár vegna fyrirhug-
aðrar stækkunar félagsheimilis-
ins stendur nú yfir firmakeppni í
hraðskák á vegum félagsins. Hef-
ur þátttaka verið góð, og vill
stjórn TR færa öllum þeim fyrir-
tækjum og stofnunum, sem eru
meðal þátttakenda, kærar þakkir
fyrir stuðninginn.
FrétUlilkynning
r.
A finnwear |
fínnska
Sérverzlun með
finnskan barnafatnað
Lækjargötu 2 S. 22201.
£ :
Stærðir 120—140
Stærðir 120—140
Janúartilboö okkar:
%
15%
Verólækkun
á náttsloppum
í Finnwear
líður barninu
L.
Stærðir 100—160
þínu vel.
Sendum í póstkröfu. i