Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
7
HESTAMENN
HESTAMENN
Höfum fyrirliggjandi
Vembley, Turner og Skin reiöbuxur.
Vembley, Royal og Eagle reiöstígvól.
Höfuðleður, múlar, taumar.
H.B. beisli (hjálparbeisli viö tamningar) og margt
fleira.
Einnig Skalla-Skeifurnar, þessar sterku meö
ískrúfuðum sköflum.
Kynnið ykkur okkar verö.
Sent í póstkröfu.
Verslunin
Hestamaðurinn
Ármúla 4. Sími 81146.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
Lárus Jónsson
alþingismaöur
Tryggjum honum efsta sæti á framboöslista
Sjálfstæöisflokksins og þar meö áframhald-
andi forystu í málefnum Norölendinga.
Studningsmenn
Þorskanet
Viö leitum allir aö því
besta. Besta fáan-
lega hráefninu, bestu
tækninni og ekki síst
besta veröinu.
Nýju H.C.G.-netin eru árangur samvinnu
V-Þýskalands, Japan og Taiwan. Gæöa-
standard kraftaverkanets nr. 12 er:
Þyngt: 3,1 kg
Slitþol þurrt: 21,6 kg
Slitþol blautt: 19,6 kg
Verðiö er ótrúlega hagstætt.
Höfum einnig fyrirliggjandi blýteina og ból-
færaefni.
MARCO
Sími 15953 og 13480
MÝRARGATA 26
REYKJAVÍK
HF.
;RITSTJÓRNAR6REIN=
Þriöjudagur 18. janúar 1983
Að falla á fvrsta prófinu
■ 4 SIDA - fJÓOVIUIINN. **■ ---
Þaí gstur tæ
stjómmálaafl,
djúdvhhnn
Málgagn sóaialisma, verkalýós-
hreyiingar og þjóólrelsis
AtgrMtaia: B»--u■
Loftv* Gafsa
son. Stgufdó'
Tómahljóð
. Áundanförnumára.uvum^fabýsnajnarguMjörnmála
flolckar verift stofnaðir — —
Hvaö segja Þjóðviljinn
og Alþýöublaöiö?
Fróðlegt er að sjá hvern veg málgögn Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn, fagna nýjum fjölskyldu-
meðlim á vinstra heimilinu: nýstofnuðu Bandalagi jafnaðar-
manna. „Hjá Vilmundi og Co. heyrist tómahljóð, hvar sem barið
er,“ segir Þjóðviljinn. „Bandalag jafnaðarmanna hefur hinsvegar
í krossferð sinni gegn flokkakerfinu fallið á fyrsta prófinu; tekið
upp aðferðir lokaðra flokkseigendafélaga,“ segir Alþýðublaðið.
Að styðja það
sem staðið
ergegn
Þjóðviljinn segir í
forystugrein í gær sem
fjallar um Bandalag jafn-
aðarmanna — og ber heit-
ið Tómahljóð — orðrétt:
„Vilmundi finnst víst allt
vera ómögulegt bæði í Al-
þýðuflokknum og þjóðfé-
laginu yfirleitt, og gerír
engan greinarmun á milli
þeirra stjómmálaflokka,
sem i landinu starfa. Gn sé
hann spurður hvernig hann
vilji breyta hlutunum, þá
verður þessum mælska
manni orðfátt, eða hann
talar bull. — l*að eina sem
hann hefur fram að færa er
það, að hér eigi að kjósa
ríkisstjórn í beinum kosn-
ingum. Gn skyldu nú ríkis-
stjórnir ekki vera ýmist
góðar eða slæmar, hvort
sem þær eru kosnar beinni
kosningu eða fyrír milli-
göngu lýðræðislega kjör-
innar löggjafarsamkomu?
Ginna kátlegast er að sjá
afstöðu Vilmundar til ný-
legrar fiskverðsákvöröunar
og þeirra hliðarráðstafana,
sem henni fylgdu. Vil-
mundur fordæmir harðlega
allar þessar ákvarðanir,
svo og sjálft verðlagskerf-
ið, og telur þetta allt
ómögulegt, — en svo kem-
ur rúsínan í pyLsuendanum:
Bandalag jafnaðarmanna
ætlar nú samt að styðja
þessar ráðstafanir með
sínu eina atkvæði á Al-
þingiH — Margur stjórn-
málamaðurinn hefur þótt
leikinn við að fara í gegn-
um sjálfan sig. Máske vill
Vilmundur verða meistarí í
þeirri grein.“
„Miðstýring
orfarra
sjálfskip-
aðra leiðtoga"
Alþýðublaöið segir í leið-
ara i gæn „Það getur tæp-
ast kallast efnileg byrjun
fyrir nýtt stjórnmálaafl,
sem hefur það markmið
m.a. að gera uppskurð á
núverandi flokkakerfí og
þeim starfsháttum sem
tíðkast hafa í fíokknum, að
efna til lokaðs stofnfundar.
Hér er verið að ræða um
stofnfund Bandalags jafn-
aðarmanna. Sá fundur var
ekki opinn. Þar komu sam-
an nokkrir tugir manna og
kvenna, kusu sjálfa sig i
miðstjórn og sendu frá sér
stjórnmálaályktun í nafni
miðstjórnarinnar. Fjölmiðl-
um var meinaður aðgangur
að fundinum. Hugsanleg-
um almennum stuðnings-
mönnum var heldur ekki
boðið til fundarins.
Gf þessi vinnubrögð eru
lýsandi fyrir þá breyttu
starfshætti sem tíðkast
eiga í herbúðum Bandalags
jafnaðarmanna, þá virðast
valddreifingarhugmyndir
ekki eiga aö flækjast fyrir
forystumönnum Banda-
lagsins.
Fyrstu skref Bandalags
jafnaðarmanna bera sterk-
an svip af miðstýringu ör-
fárra sjálfskipaðra leið-
toga. Mtttaka almennra
stuöningsmanna við
ákvaröanir er augljóslega
ekki inni í myndinni. Þessi
vinnubrögð lýsa þeim að-
ferðum, sem tíðkast í spillt-
um fíokkseigendafélögum,
þar sem klíkubræður halda
um alla þræði. Alþýðu-
fíokkurinn hefur hafnað al-
farið slikum vinnubrögðum
og innra starf flokksins
miðar að því að sem fíestir
taki þær ákvarðanir sem
máli skipta."
Hjörleifur,
Gísli og
Óskar
Gísli Gunnarsson og
Oskar Guðmundsson hafa
háð ritdeilu undanfarið um
kvikuhlaupin í Alþýðu-
handalaginu. sem tengzt
hefur átökum stjórnarliða í
álviðræðunefnd. Gísli sagði
m.a.: „í ofanálag brást
Guðmundi (Þórarinssyni)
sá styrkur í Alþýðubanda-
laginu gegn Hjörleifi sem
hann reiknaði með.“
„Hvað er Gísli að dylgja
ciginlega?" spyr Óskar. „Á
hann við að Guðmundur
hafi vænst styrks frá Al-
þýöubandalagsmönnum
við það að fara úr álvið-
ræðunefnd? Hvaöa menn
eru það þá? Gða á Gísli við
að gagnrýnin á vinnubrögð
iðnaðarráöherra séu sams
konar úr röðum Alþýðu-
bandalagsmanna og frá
Guðmundi G. Þórarins-
syni?“ — Þetta orðalag
„séu samskonar úr röðum
Alþýöuhandalagsmanna"
bendir ótvírætt til þess að
einhvers konar gagnrýni
hafí verið þar á ferð í garð
ráðherrans — og undrar
engan.
I þessu sambandi má
minna á að stjórn Lands-
virkjunar skipaöi nýverið
nefnd til að fjalla um verð-
lagningu og sölu orku til
orkufreks iönaðar. Þetta
var m.a. gert á þeirri for-
sendu að viðræður við Alu-
suisse væru nú komnar að
því að fjalla um raforku-
verð. Indirstrikar þetta
ekki að Hjörleifur hefur
verið að fjalla um allt ann-
að en þetta meginatriði í
u.þ.b. 2 ár — með ná-
kvæmlega engum árangrí?!
/FDniX
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Miöbær I
Miöbær II
Ingólfsstræti
Þingholtsstræti
Háteigsvegur
Skaftahlíö
Vesturbær
Tómasarhagi 9—31
Nesvegur frá 40—82
Skerjafjörður
sunnan flugvallar
Úthverfi
Skeiðarvogur Karfavogur
Njörvasund, Langholtsvegur 151—208