Morgunblaðið - 19.01.1983, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
Okkur ber aðeins að
borga það sem ákveð-
ið er á fjárlögum
— segir Höskuldur Jónsson um greiðslur
vegna sjúkrahúsbygginga
„l>EGAR fé er veitt á fjárlögum til
sjúkrahúsbygginga, þá er það bund-
in fjárhæð, sem breytist ekl irt. Ef
sveitarfélög byggja af einhverjum
orsökum hraðar, þá bera þau alger-
lega ábyrgð á því umframfé, sem
það leggur fram. Mótframlagið, sem
í þessum tilfellum kcmur frá ríkinu,
kemur því oft seint og í Öðru raun-
virði," sagði Ilöskuldur Jónsson,
Frakki hvarf
í Klúbbnum
Á gamlárskvöld hvarf grár, síð-
ur leðurfrakki úr veitingahúsinu
Klúbbnum. Frakkinn er nýr og því
tilfinnanlegt fyrir eigandann að
tapa honum. Skilvís finnandi er
beðinn að skila frakkanum i
Klúbbinn eða hringja í síma
85704. I frakkanum var veski með
persónuskilríkjum.
ráðuncytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, i samtali við Mbl., er hann var
inntur eftir fullyrðinum þess efnis,
að ríkið skuldaði Reykjavíkurborg
háar fjárhæðir vegna nýbyggingar
við Borgarspítalann, i formi lög-
bundins mótframlags.
„Við höfum i raun enga aðra
vörn í málinu. Við getum engan
veginn látið sveitarfélög halda
áfram málinu að eigin vild og
borga síðan meirihlutann af
kostnaði, sem við höfum í raun
aldrei samþykkt. Það er því alveg
rétt, að ef dæmið er reiknað út frá
þessum forsendum, þá á Reykja-
víkurborg umtalsverðar fjárhæðir
hjá ríkinu," sagði Höskuldur
Jónsson ennfremur.
Höskuldur Jónsson sagði, að oft
hefði ekki verið gengið nægilega
vel frá þessum málum í samning-
um ríkis og sveitarfélaga. „Okkur
ber því alls ekki að borga annað en
Alþingi ákveður hverju sinni“.
V algerður H. Bjarnadóttir um hugsanlegt kvennaframboð:
„Ekki farnar af stað, en
þetta er viss byrjun“
Fullt samráð við Kvennaframboðið í Reykjavík
„Það er mikill áhugi meðal kvenna á
sérstöku kvennaframboði, einkum
vegna úrslita i ýmsum prófkjörum
að undanförnu. Nei, ég vil ekki
segja að við séum farnar af stað, en
þetta er viss byrjun. Það hefur engin
ákvörðun verið tekin um að í fram-
boð skuli farið. Við höfum haft fullt
samráð við aðstandendur kvenna-
framboðsins í Reykjavík, síðast átti
ég viðtal við þær i dag, en við erum
ckkcrt komnar lengra en þær að
öðru leyti en því að við höfðum hátt
i gær. Þær eru búnar að funda mikið
og velta þessu mikið fyrir sér, en
munurinn er bara sá að þær hafa
ekki sent frá sér ályktun,“ sagði
Valgerður H. Bjarnadóttir á Akur-
eyri í samtali við Mbl. í gær, en um
Akranes:
Færri skráðir
atvinnulausir
ATVINNUÁSTAND á Akranesi hef-
ur batnað frá því sem var í siðustu
viku samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér hjá verka-
lýðsfélaginu þar i gær. í siðustu viku
voru á fjórða hundrað skráðir at-
vinnulausir, en nú eru þeir eitthvað
á annað hundrað.
Ástæðan fyrir bættu atvinnu-
ástandi er, að hafin var vinna í
tveim frystihúsum að nýju.
helgina hélt Kvennaframboðið
nyrðra fund um hugsanlegt framboð
við næstu þingkosningar.
Á fundinum var ákveðið að
samtökin hefðu forgöngu um að
kanna áhuga kvenna í Norður-
landskjördæmi eystra á kvenna-
framboði í kjördæminu. Var þar
samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Það hefur sannast mjög áþreif-
anlega í prófkjörum flokkanna að
undanförnu að konur eiga erfitt
uppdráttar á stjórnmálasviðinu
enn sem fyrr. Ljóst er að þessar
niðurstöður spegla aðstæður og
stöðu kvenna í þjóðfélaginu al-
mennt, og hljóta að kalla á að-
gerðir kvenna sem karla. Úrslit
sveitastjórnarkosninganna í vor
kveiktu vonarneista í brjóstum ís-
lenzkra kvenna, en hvað er að ger-
ast nú. Hvað getum við gert til
þess að sú þróun í jafnréttisátt,
sem við sáum fara af stað í vor,
haldi áfram. Framboð til Alþingis
í Norðurlandskjördæmi eystra er
mál sem varðar allar konur í kjör-
dæminu. Kvennaframboðið á Ak-
ureyri vill leggja sitt að mörkum
til þess að hlutur kvenna á Alþingi
verði veglegri eftir næstu kosn-
ingar og vill í því skyni koma af
stað starfshóp í kjördæminu til
þess að undirbúa hugsanlegt
framboð til Alþingis. Áhugasamar
konur geta hringt í síma 24507 í
Kvennarisi, mánudags- og mið-
vikudagskvöld klukkan 20 til 22.“
Kristján Zophaníasson hjá Hljómbæ heldur á nýju plötunni við laser-spilarann.
Mynd Mbl./Emilía
Bylting í sjónmáli á
plötum og spilurum
HVER tækjabyltingin rekur aðra
og nú eru það plötur og plötuspilar-
ar sem taka á sig nýja mynd.
I október síðastliðnum var í
Japan kynnt ný tækni sem felst í
að spilari les af lítilli hljómplötu
með lasergeisla í stað nálar og í
gær tók Hljómbær, Hverfisgötu,
upp sitt fyrsta tæki þessarar
tegundar. Fyrirtækin Philips og
Sony fundu upp þessa tækni í
sameiningu en flest stærri fyrir-
tæki hafa hafið framleiðslu á
þessum nýju tækjum. Sameinast
var um eitt kerfi og gerir það
allri framleiðslu auðveldara
fyrir. Platan sjálf er aðeins 12
sentímetrar á breidd, mun
sterkari en gömlu plöturnar. Og
þar sem snertiflötur er enginn
koma óhreinindi ekki að sök. Þá
er allt suð úr sögunni og hljóm-
gæði mun meiri enda gjörólík
tækni notuð til að setja hljómlist
á plöturnar og svipar henni mest
til þess sem notað er fyrir tölvur.
Aðeins önnur hlið plötunnar er
notuð og rúmast á henni 60 mín-
útur, inn á spilararnn er svo
stillt hvaða lög á að spila, í
hvaða röð og hversu oft.
Mbl. hafði samband við Ólaf
Haraldsson hjá Fálkanum til að
spyrjast fyrir um plöturnar
fyrst tækin létu ekki á sér
standa. Ólafur er einmitt ný-
kominn af ráðstefnu ytra þar
sem þessari tækni var sýndur
mikill áhugi af hálfu plötufram-
leiðenda enda er því spáð að
þessi tækni verði ráðandi eftir
5—10 ár. Hann taldi fyrirtækið
Polygramm verða fyrst til að
hefja framleiðslu í Evrópu á
nýju plötunum en það mun
senda um 250 titla frá sér í
febrúar, einnig mun framleiðsla
vera hafin í Japan.
SH og Coldwater:
Horfur á mikilli aukningu
á útflutningi fersks fisks
COLIIWATER Scafood Corporation, fyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, telur sig nú geta stóraukið sölu á ferskum fiskflökum í Banda-
ríkjunum þegar á næstunni og í um tveggja mánaða tíma. Hefur fyrirtæk-
ið áhuga á að fá um 90 lestir vikulega af ferskum fiski, aðallega karfa.
Um nokkurt skeið hafa verið
fluttar út á vegum þessara fyrir-
tækja um 40 lestir vikulega með
flugfélaginu Flying Tigers og hafa
DC-8 þotur verið notaðar við
flutningana. Verði af auknum
flutningum verður flogið tvívegis í
viku með Boeing 747 eða svoköll-
uðum Jumboþotum, sem munu
koma við hér á leið frá Evrópu til
Bandarkjanna.
Að sögn Guðmundar H. Garð-
arssonar, blaðafulltrúa SH, eru
þessir flutningar vissum skilyrð-
um háðir. Hér er aðallega um að
ræða útflutning á karfaflökum en
framundan er ekki aðalkarfaveiði-
o
INNLENT
Samkeppni skólabarna um
myndefni til reykingavarna
Nú í ársbyrjun efnir reykinga-
varnarnefnd til samkeppni meðal
skólabarna um gerð myndefnis til
reykingavarna. Annars vegar er
um að ræða auglýsingaspjöld
(plaköt) stærð A-3 eða meira, hins
vegar myndasögur, fjórar til sex
myndir. Efni myndanna þarf að
tengjast skaðsemi reykinga eða
baráttunni gegn reykingum á ein-
hvem hátt. Allir nemendur í
grunnskólum hafa rétt til þátttöku,
en samkeppnin fer fram i þremur
aldursflokkum; 6—9 ára, 10—12
ára og 13—15 ára. Verðlaun verða
sem hér segir:
Aðalverðlaun kr. 7.000 fyrir þá
mynd sem dómnefnd telur besta.
Auk þess verða veitt þrenn verð-
laun í hverjum aldursflokki, kr.
2.500, 1.500 og 1.000. Allir þátttak-
endur i samkeppninni fá viður-
kenningarskjal fyrir þátttökuna.
Myndmenntakennarar i skólum
munu sjá um framkvæmd sam-
keppninnar.
Skilafrestur til reykingavarnar-
nefndar rennur út 28. febrúar
1983, en þriggja manna dómnefnd
fjallar um myndefnið og metur það
til verðlauna. Áskilin er réttur til
birtingar verðlaunamynda, en
myndir sem ekki fá vcrðlaun verða
endursendar. Nefndin hvetur nem-
endur og kennara þeirra til víð-
tækrar þátttöku í samkcppninni.
tímabil togaranana. Vegna aug-
ljósra atriða er nauðsynlegt að
treysta aðeins á suðvesturhluta
landsins varðandi þennan útflutn-
ing og vegna hans gera kaupendur
nú aðrar kröfur um vinnslu fisks-
ins, sem krefjast ákveðinna breyt-
inga í vinnslurás fiskvinnslu-
stöðvanna. Þessi mál eru til at-
hugunnar hjá SH og þeim frysti-
húsum, sem um er að ræða og er
niðurstöðu að vænta á næstunni.
Frá því að þessir flutningar til
Bandaríkjanna hófust um mán-
aðamótin september október 1981
hafa farið um 2.00 lestir af fersk-
um flökum til Bandaríkjanna.
Verði af aukningu flutninganna
munu um 1.000 lestir verða fluttar
til Bandaríkjanna á tveggja mán-
aða tímabili.
Doktorsvörn í heimspekideild HÍ
LAUGARDAGINN 22. janúar 1983
fer fram doktorsvörn í heimspeki-
deild Háskóla íslands. Mun Vé-
steinn Ólason, mag. art., verja rit-
gerð sina, „Traditional Ballads of
Iceland. Historical Studies", til
doktorsnafnbótar í heimspeki.
Andmælendur af hálfu heim-
spekideildar verða Jón M. Sam-
sonarson, mag. art., og Erik Sönd-
erholm, dr. phil. Deildarforseti
heimspekideildar, Gunnar Karls-
son, prófessor, dr. phil., stjórnar
athöfninni.
Doktorsvörnin fer fram í stofu
101 í Lögbergi og hefst kl. 2 e.h.
Öllum er heimill aðgangur.
Vésteinn Olason