Morgunblaðið - 19.01.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
Fyrirsát í Kensington
Lögreglubifreið stendur við hlið Austin Mini-bifreiðar, sem skotin var í tætlur í sérstökum aðgerðum lögregl-
unnar í Lundúnum. Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús með skotsár á brjósti og höfði.
Hurfu í myrkrið
með þrjá gísla
Bangkok, 18. janúar. AP.
I>RÍR flugræningjar, sem rændu
þotu í innanlandsflugi í Thailandi
með 15 farþega innanborðs, sluppu í
morgun úr greipum lögreglunnar er
þeir flúðu inn í óbyggðir í norður-
hluta landsins með þrjá gísla.
Ræningjarnir réðust til atlögu í
vélinni á leiðinni á milli Lampang
og Chiang Mai og tókst fljótlega
að ná henni á sitt vald. Allir far-
þegarnir um borð voru thailenskir
og þetta mun í fyrsta sinn, sem
flugvél er rænt í innanlandsflugi
þar.
Upprunalega kröfðust ræningj-
arnir þess að fá sem svarar 13.000
Bandaríkjadölum í lausnargjald
og þrjár fallhlífar að auki, en síð-
an hækkuðu þeir kröfuna um 4.000
dollara og kröfðust þess um leið að
fá þyrlu til umráða.
Falklandseyjastríðið:
Thatcher og stjórn
hennar fírrt ábyrgð
i.undúnum.. IH ianúar AP.
l.undúnum,. 18. janúar. AP.
SEX MANNA þingnefnd skilaði i gær áliti á aðdraganda Falklandseyjastríðs
Breta og Argentínumanna, en margir hafa viljað saka Margréti Thatcher um
að horfa hlindum augum á augljósa atburðarás. Fyrir nefndinni var Franks
lávarður, 77 ára gamall fyrrum sendiherra Breta í Washington. Nefndarálitið
var á því að Thatcher ætti enga sök á því að Argentínumenn komu Bretum
jafnmikið á óvart og raun var.
því að hafa ekki séð hvað í vænd-
um var. Skýrslan segir hins vegar
að Argentínumenn hafi vissulega
látið ófriðlega nokkru fyrir inn-
rásina, en þeir hafi látið þannig
áður án þess að fylgja því eftir.
„Það er ekki við frú Thatcher að
sakast þó hún sæi ekki það sem í
vændum var og afstýrði því ekki,
leyniþjónustan stóð sig ekki sem
skyldi og var ekki nógu fljót að
átta sig á hvað um var að vera,“
sagði m. a. í skýrslunni og þar stóð
jafnframt, að herstjórnin í Arg-
entínu ákvað ekki að gera innrás á
Falklandseyjar fyrr en tveimur
ERLENT
dögum áður en til skarar var látið
skríða. Eða jafnvel aðeins einum
degi áður, „breska stjórnin fékk
því enga vitneskju um innrásina
hreinlega vegna þess að slíkt var
næstum ógerlegt," segir í hinni
105 blaðsíðna skýrslu.
Frú Thatcher las inntak skýrsl-
unnar fyrir þingheim í gær og
mótmælaóhljóð stjórnarandstöð-
unnar kæfðu næstum orð forsæt-
isráðherrans. Hrópuðu þingmenn-
irnir orð eins og „hvítþvottur" og
fleira í þeim dúr. Var það þeim
sýnilega ekki að skapi að Thatcher
hafði staðið af sér veðrið.
Vonbrigði stjórnarandstöðunn-
ar stöfuðu meðal annars af því að
utanríkisráðherrann, Carrington
lávarður, sagði af sér er stríðið
braust út og tók á sig ábyrgð af
Noregur:
Skaut konu sína
í réttarsalnum
Osló, 18. janúar. Frá Jan Erik Laure TréUarilara Mbl.
Japanir hrífast af
Alpabrúðkaupum
— sem eru nýjung í svissneskum ferðamálaiðnaði
l.u/ern, Svíkm, 18. janúar. AP.
HATT uppi í svissnesku Ölpunum fór fram nýstárleg giftingarathöfn
fyrir skömmu, fyrir framan altari úr snjó. Þar var um að ræða japanskt
par sem hafði valið þennan kost þrátt fyrir 15 gráðu frost, en þetta er
nýtt fyrirbæri í svissneskum ferðamálaiðnaði sem gengur undir nafninu
„brúðkaupspakki“.
ÞAÐ gerðist í gær í fyrsta skipti í
Noregi, að morð var framið í réttar-
sal. Skilnaðarmál var í gangi í Osló,
er eiginmaðurinn dró skammbyssu
úr pússi sínu og tæmdi úr henni í
brjóst og höfuð eiginkonu sinnar.
Hér var um júgóslavnesk hjón
að ræða, en þau hafa búið í Noregi
síðan á miðjum sjöunda áratugn-
um. Að sögn konunnar hefur karl-
inn lengi misþyrmt henni af
minnsta tilefni og hafði hún fengið
sig fullsadda. Málið var í fullum
gangi, er.k^ú'nn dró byssu úr vasa
sínum og mundaði hana ófriðlega.
Dómarinn tók til fótanna og læsti
sig inni í bakherbergi og verjandi
konunnar hljóp sem fætur toguðu
út úr salnum. Júgóslavinn miðaði á
eftir lögmanninum og hleypti af,
en hylkið var tómt og slapp verj-
andinn með skrekkinn. Hann hljóp
reyndar á hurðina og skaddaði fót
sinn nokkuð.
En er allir voru á bak og burt,
sneri Júgóslavinn sér að eiginkonu
sinni, miðaði og skaut fimm skot-
um í hana af stuttu færi og lést
hún nánast samstundis. Hann gaf
sig síðan fram við lögregluna.
Maður þessi er Króati og hefur
oft komið við sögu í norskum blöð-
um, þar sem hann hefur haldið á
loft sjálfstæðisbaráttu Króata í
Júgóslavíu. Júgóslavnesk yfirvöld
hafa meira að segja reynt að fá
hann framseldan og því hefur
hann jafnan farið ferða sinna
vopnaður.
Öllum farþegunum var sleppt
eftir að lent hafði verið í Chiang
Mai. Ræningjarnir fengu sendi-
bifreið til umráða og lögðu þegar á
flótta. Þeir veltu bifreið sinni eftir
tveggja stunda akstur og gripu þá
til þess ráðs, að stöðva einkabif-
reið með þremur farþegum.
Tóku þeir hana traustataki og
héldu á brott með þeim, sem í
bílnum voru. Ræningjarnir hafa
haft samband við lögreglu og
krefjast lausnargjalds og að þeim
verði tryggð greið leið til land-
svæðis, sem gengur undir nafninu
„Gullni þríhyrningurinn".
Veður
viða
um heim
Akureyri +3 alskýjað
Amsterdam 8 skýjað
Aþena 13 heíðskírt
Barcelona 14 heiðskirt
Beirut 11 rigning
Berlin 5 rigning
BrUssel 8 rigning
Buenos Aires 27 skýjað
Chicago +5 skýjað
Dubön 7 heiðskírt
Feneyjar 5 skýjað
Frankturt 9 rigning
Qenf 9 heiðskírt
Heisinki 0 snjókoma
Hong Kong 19 skýjað
Jerúsalem 6 snjókoma
Kaupmannahöfn 8 rigning
Las Palmas 19 heíöskírt
London 6 heiðskfrt
Los Angeles 19skýjað
Madrid 16 heiöskfrt
Malaga 16 I » f
Mallorca 15 heiðskirt
Mexikóborg 18 heiðskírt
Míami 22 heiðskírt
Moskva 1 heíðskírt
New York +1 heiðskírt
Hýja Delhí 21 heióskírt
Ósló -3 snjókoma
Paris 9 skýjað
Peking 2 heiöskírt
Reykjavík -3 •kýjað
Róm 15 heiöskírt
San Francisco 12 rigning
Stokkhólmur -2 snjókoma
Toronto -8 skýjað
Vancouver 10 skýjað
Vín 10 skýjað
Þórshöfn 2lóttskýjað
Þetta brúðkaup, sem fram fór
í dögun, var kvikmyndað af jap-
anska sjónvarpsfyrirtækinu
ABC og mun koma til með að
verða hluti tólf klukkustunda
langrar dagskrár um ferðalög.
Gifting þessi var undirbúin af
ferðaskrifstofu í Luzern og
segja talsmenn hennar að mikil
sókn sé nú þegar í brúðkaup sem
þetta hjá japönskum elskendum
og er ástæðan fyrir því að þetta
heillar helst Japani vera sögð
sú, að hefðbundin brúðkaup þar
eru gífurlega kostnaðarsöm. I
því sambandi er bent á að brúð-
kaup í Japan geti kostað allt að
10.000 dollurum, en þessi há-
fjallagifting kosti ekki nema
brot af því.
Gifting sem þessi kostar um
750 svissneska franka og er þá
allt innifalið, jafnt leiga á kjól
brúðarinnar sem vöndurinn og
kampavínið, en ættingjar eru
allir skildir eftir heima.
Ekki eru allir jafn hrifnir af
þessari brúðkaupstilhögun og er
þá sérstaklega bent á trúarleg
viðhorf en meira en 120 pör hafa
haft þennan háttinn á í gifting-
um í Ölpunum undanfarin tvö
ár, flest þeirra búddatrúar.
Flutningabifreiðastjórar í Belgfu:
Hóta aö smygla inn í
landið rándýrum lyfjum
Antwerpen, Ik lgiu, 18. janúar. AP.
ÖKUMENN belgískra fíutningabif-
reiða hafa lýst því yfir, að þeir muni
hefja smygl á dýrum lyfjum, sem
ekki eru niðurgreidd af heilbrigðis-
yfirvöldum í landinu, verði niður-
greiðslur á þeim ekki hafnar.
„Það er til fátækt fólk í Belgíu,
sem ekki getur litið glaðan dag
vegna veikinda sinna og því síður
sakir útgjalda vegna lyfjakaupa,"
sagði talsmaður félags flutninga-
bifreiðastjóra.
Talsmaðurinn sagði einnig, að
sum umræddra lyfja mætti fá í
nágrannalöndunum fyrir helming
þess, sem þau kostuðu í Belgíu.
Sagði hann ennfremur, að ef ekki
yrði snarlega gerð breyting á
verðlagningu lyfja í landinu væri
þess ekki langt að bíða, að
bifreiðastjórarnir framvísuðu
lyfseðlum, sem tryggilega væri
gengið úr skugga um að væru
ófalsaðir, með sérstakri rannsókn,
í nágrannalöndunum.
Hugmyndin að þessum lyfja-
kaupum erlendis fæddist er einn
bifreiðastjóranna heyrði hlust-
anda kvarta yfir því í útvarpi, að
hann þyrfti að borga sem svaraði
2200 íslenskum krónum í hvert
sinn, sem barn hans þyrfti að fá
sprautu vegna sjúkdóms, sem ekki
verður haldið niðri með öðru en
reglulegum lyfjagjöfum. Hlutað-
eigandi barn þarf að fá sprautu
vikulega.