Morgunblaðið - 19.01.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
29
Gísli Jónsson hf. flytur inn Poncin-„bíla“:
Hægt að aka á vegum,
í snjó, í mýrum og
á vötnum eftir atvikum
Bílar
Sighvatur Blöndahl
PONCIN-verksmiÖjurnar í
Frakklandi hafa sérhæft sig
í framleiðslu á bílum og
tækjum til notkunar við erf-
iðar aðstæður. Á dögunum
kom hingað til lands fyrsti
„bíllinn“ af gerðinni Ponc-
in VP 2000, en það er Gísli
Jónsson hf., sem flytur
hann inn.
Þorsteinn Baldursson, fram-
kvæmdastjóri hjá Gísla Jóns-
syni, sagði í samtali við Mbl., að
um væri að ræða alhliða farar-
tæki, sem væri hægt að nota við
hinar ólíkustu aðstæður. Hægt
væri að aka gripnum á allt upp í
80 km hraða á venjulegum veg-
um, en hann er með sex hjólum,
sem öll eru með sér drifi. Þá er
hægt að setja á bílinn belti og
aka honum á snjó og í drullu og
mýrum. Loks er hægt að aka
honum í vatni.
Bíllinn kostar tæplega 200
þúsund krónur „standard", en
síðan er hægt að fá á hann
nokkra aukahluti eins og spil,
belti og snjótönn. Þorsteinn gat
þess, að Rafmagnsveitur ríkisins
væru þegar búnar að festa kaup
á fyrsta bílnum, enda væri þetta
upplagt farartæki fyrir rann-
sóknar- og vinnuflokka fyrir-
tækja eins og Rafmagnsveitn-
anna.
Ég tók lítilsháttar í bílinn í
snjónum á dögunum og það sem
vakti hvað mesta athygli var
hversu létt er að stýra honum,
en stýrisstangirnar eru vökva-
stýrðar, þannig að auðvelt er að
snúa bílnum á punktinum með
„litlaputta". Bíllinn er knúinn 45
hestafla Citroen-vél og er með
fjögurra gíra kassa. Hann er
með tveimur sætum frammi í, en
auk þess er rými fyrir farangur
fyrir aftan, en bíllinn er liðlega
2.650 mm á lengd, 1.700 mm á
breidd og 1.450 mm á hæð. Hæð
undir lægsta punkt er 220 mm.
Mælaborðið er af einföldustu
gerð, en þar er að finna hraða-
mæli, stjórntæki fyrir ljós og
þurrkur og miðstöð. Stýrið er í
formi tveggja stanga, sem
bremsa af hjólin, eða beltin
hvorum megin eftir atvikum.
Sætin eru þokkaleg ísetu, en
plássið mætti vera eilítið meira.
Bíllinn er með blæju.
Eins og áður sagði er mjög
auðvelt að meðhöndla bílinn og
snúa honum á punktinum. Sam-
kvæmt upplýsingum framleið-
anda á að vera hægt að aka hon-
um án vandræða niður og upp 45
gráðu brattar brekkur, auk þess
sem hann á að þola 45 gráðu
hliðarhalla.
Mazda 626 valinn
bíll ársins í Japan
— Toyota Camry í 2. sæti
— Honda City Turbo í 3. sæti
JAPANSKIR bladamenn hafa valiö Mazda 626 bíl ársins þar í landi fyrir
1982—1983, en hann fékk 286 stig í kjörinu. í öðru sæti lenti Toyota
t'amry með 251 stig og í þriðja sæti varð Honda City Turbo með 222 stig.
Fjórði í röðinni var Nissan
Datsun March með 143 stig,
fimmti Nissan Datsun Prairie
með 79 stig og sjötti í röðinni
varð Subaru Leone 4WD Turbo
með 70 stig.
I sjöunda sæti lenti Mitsubishi
Starion bíllinn með 43 stig, í átt-
unda sæti varð síðan Toyota
Sprinter Carib með 42 stig, í ní-
unda sæti Mazda 929 Rotary
Turbo með 34 stig og loks lenti
Nissan Datsun Pulsar í tíunda
sæti með 30 stig.
Motor Trend Magazine:
Renault 9 bíll ársins
1983 í Bandarlkjunum
53 blaðamenn frá 21 þjóðlandi:
Völdu Audi 100
bíl ársins 1983
Völdu Honda City Turbo „japanska“ bíl ársins
VESTUR-ÞÝZKI bíllinn Audi 100 var valinn úr hópi 44 bíla bíll ársins í
hciminum árið 1983, en það voru 53 blaðamenn frá 21 landi, sem greiddu
atkvæði í kjörinu.
Japanska bílablaðið Motor
Magazine, sem stendur fyrir
kjörinu, skýrði frá því í vikunni
að Audi 100 hefði lent í 1. sæti,
Ford Sierra 2,3 í 2. sæti og Citr-
oén BX í 3. sæti.
I sérstöku kjöri bíls ársins í
Japan, sigraði Honda City
Turbo. í 2. sæti lenti Mitsubishi
Starion og í 3. sæti varð Mazda
Capella 2.000 GT-X.
Þess má geta, að á síðasta ári
var Opel Ascona valinn bíll árs-
ins í heiminum af þessum sömu
blaðamönnum.
BANDARÍSKA bílablaðið Motor
Trend Magazine hefur valið Ren-
ault Alliance, sem við þekkjum
betur undir nafninu Renault 9, bíl
ársins 1983 í Bandaríkjunum. Ren-
ault 9 var kosinn bíll ársins í Evr-
ópu fyrir árið 1982.
Þeir bílar, sem ennfremur
komu til greina að sögn blaðsins,
sem er eitt útbreiddasta bílablað
í heimi, voru Buick Skyhawk,
T-gerðin, Ford Thunderbird,
Dodge 600 ES, Oldsmobile Fir-
enza GT, Mercury Marquise
Brougham og E-línan frá
Chrysler.
Sérfræðingar blaðsins
reynsluóku öllum bílunum á sér-
stökum brautum í Los Angeles,
auk þess sem hinir ýmsu tækni-
legu hlutir bílanna voru prófaðir
á rannsóknarstofum.
Motor Trend Magazine hefur
valið bíl ársins í Bandaríkjunum
allt frá árinum 1949. Sem dæmi
um sigurvegara má nefna, að
1958 sigraði Ford Thunderbird,
árið 1961 Pontiac Tempest, árið
1969 Plymouth Road Runner,
1979 Buick Riviera og á síðasta
ári sigraði Chevrolet Camaro
228.