Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
33
fclk í
fréttum
Konum f jölg-
ar í ríkis-
stjórn Reagans
+ Reagan Bandaríkjaforseti hefur
fjölgaö konum í ríkisstjórn sinni aö
undanförnu og mynd þessi sýnir
Elizabeth Dole, sem fyrir skömmu
tók viö embætti umferðarmála-
ráöherra af Drew Lewis, sem sagöi
af sér og hyggst feta sig áfram í
einkarekstri þar vestra.
Elizabeth Dole hefur hingað til
starfað í Hvíta húsinu aö hinum
ýmsu störfum og þótt takast sér-
lega vel upp, en taliö er aö ástæö-
an fyrir því að hún varð fyrir valinu
nú en ekki einhver annar sé öörum
fremur sú, að Reagan hefur sætt
mikilli gagnrýni aö undanförnu
fyrir aö halda konum frá ábyrgö-
arstööum í ríkisstjórninni.
Elizabeth er gift öldungadeildar-
þingmanninum Robert Dole, sem
gjarnan heyrist nefndur sem hugs-
anlegur forsetaframbjóðandi í
kosningunum á næsta ári ...
fVv trafikminister. FAizabei
Heimilisvandræði
hjá Larry Hagman
+ Larry Hagman, bandaríski
leikarinn sem er orðinn heims-
þekktur í hlutverki JR í sjón-
varpsþáttunum „Dallas", þurfti
nýverið aö hætta störfum og
snúa hiö bráöasta frá New York
til Hollywood. Ástæðan var sú,
aö dóttir hans Heidi, sem er 22
ára gömul, kvaddi æskuheimili
sitt skyndilega til aö taka saman
viö trúarsöfnuöinn „Guösbörn".
„Dag nokkurn þegar viö sátum
viö morgunveröarboröið öll fjöl-
skyldan stóö Heidi skyndilega
upp frá boröinu og sagöi aö hún
heföi tekiö þá ákvöröun aö flytja
aö heiman. Hún heföi hitt fólk
sem væri „hennar nýja fjöl-
skylda“ og hún kysi frekar aö
vera í samneyti viö þaö," sagöi
Larry Hagman, og bætti því viö
aö þau heföu þegar í staö til-
kynnt henni aö ef þetta væri
hennar álit þá væri aö sjálfsögöu
rétt hjá henni aö fara aö heiman.
Síöan hafa þau lítið sem ekk-
ert heyrt frá henni, en vinir henn-
ar úr söfnuðinum komu og sóttu
allar eigur hennar og tilkynntu
þeim Larry og Maj, eiginkonu
hans, aö þau skyldu ekki vænta
þess aö sjá hana mikið í framtíö-
inni.
Þau hafa síöan gert margar til-
raunir til að hitta hana að máli,
en hún vill ekkert viö þau kann-
ast.
COSPER
— I>ctta hlýtur aö vera leiöin í spilavítiö.
Liz ásamt Luna
+ Mynd þessi sýnir þau Liz Taylor
og Viktor Luna, sem er mexík-
anskur lögfræöingur og nýjasti
elskhugi leikkonunnar. Hann var
meö henni á ferðalaginu um ísrael,
þar sem hún lagöi sig í líma viö aö
boöa friö.
Ferö hennar tók þó skjótan
enda þar sem hún lenti í bílslysi og
varö aö snúa til Bandarikjanna
sökum skuröa á fótleggjum og
fleiri minni háttar meiösla, eftir aö
hún haföi hitt ráðamenn í ísrael aö
máli, en hún haföi ráögert aö fara
síðan til Líbanon til viöræöna viö
Gemayel.
Samningar
um ævisögu
+ Mick Jagger mun hafa gefið upp
fyrri ákvörðun sína um aö rita
sjálfur sjálfsævisögu sína og minn-
ingar og fengið til þess John Ryle,
einn aðstoöarritstjóra Sunday
Times, sem er þrítugur að aldri.
Samningaviöræðum er lokiö
milli Weidenfelds lavarðar, en
fyrirtæki hans mun gefa bókina út,
og Prince Rupert Lowensteins,
sem er sérlegur ráögjafi hljóm-
sveitarinnar um fjármál. en við-
ræður þessar hafa farið fram und-
anfarin tvö ár.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 20. janúar kl.
20.30.
Verkefni:
Beethoven: Egmont forleikur.
Hindemidt: Fiölukonsert.
Schubert: Sinfónía nr. 8.
Wagner: Meistarasöngvarnir, forleikur.
Stjórnandi: Klauspeter Seibel.
Einleikari: Rut Ingólfsdóttir.
Aögöngumiöar í bókaverslunum Lárusar Blöndals
og Sigfúsar Eymundssonar, og í Istóni Freyjugötu
1.
Sinfóníuhljómsveit íslands
VERKTAKAR
STARFSHÓPAR
FYRIRTÆKI
ATHUGIÐ
I
1
I
'Ú
t
1
¥
í
¥
I
|
1
¥
Viö bjóöum heitan mat
í hitabökkum fyrir stærri
og smærri vinnuhópa.
Einnig bjóöum viö á staönum heitan mat,
samlokur, kaffi, smurt brauð
og allt sem svangur maöur þarf.
Sjáum einnig um veizluhöld í
heimahúsum.
Bætt og betri þjónusta.
Matstofa Miðfells sf.,
Funahöfða 7. sími 84939.