Morgunblaðið - 25.01.1983, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.01.1983, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 SNJÓFLÓÐIN Á PATREKSFIRÐI Á þessari loftmynd má sjá feril sjóflóðsins, sem féll ofan Geirseyrar. Útlínur þess eru markaðar með svörtum línum. Flóðið lenti fyrst á húsinu Hjöllum 2 og stórskemmdi það svo og húsið við Hlíðarveg 2. Það féll síðan í sjó fram og skemmdi eða gjöreyðilagði nánast allt, sem á leið þess varð. Á myndinni eru götunöfn og húsnúmer merkt inn til frekari glöggvunar. Fjórir létust, 33 heimilislausir — Ytra flóðið allt að 20 metra hátt og 200 metra breitt Á þessari loftmynd Ómars Ragnarssonar sjást útlínur og upphafsstaður flóðsins í gilinu í fjallinu Brellum. Dökki bletturinn sýnir feril flóðsins niður yfír byggðina. ÞAÐ VAR hrikaleg aðkoman á Patreksfirði er blaðamenn Morgunblaðs- ins komu þar á sunnudag, degi eftir að snjóflóðin höfðu fallið þar og orðið fjórum að bana og valdið skemmdnm fyrir tugi milljóna á húsum, bílum og húsmunum. Á fjörukambinum við Litladalsá voru leyfar hússins Ár- bæjar, sem barst um 70 metra með flóðinu. Innar, á Geirseyri, þar sem fyrra flóðið féll, lágu einnig leyfar eins húss, bílhræ á víð og dreif og brak og húsmunir eins og hráviður um hlíðina. Mikill vatnselgur var enn úr hlíðinni og hundruðir björgunarmanna að störfum víða á svæðinu. Þau hús, sem uppi stóðu voru bæði sprungin, skökk og full af krapi, snjó og vatni. Þeir Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður, og Pétur Sveinsson, lögreglufulltrúi, skipulögðu björgunarstörfin og röktu þeir at- burðarásina fyrir blaðamanni Morgunblaðsins: Það var um klukkan 15,40 að fyrra flóðið féll úr gili í fjallinu Brellum ofan Geirseyrar. Það skall fyrst á húsunum að Hjöllum 2 og Hlíðarvegi 2. Síðan æddi það niður hlíðina á ógnar hraða að sögn sjónarvotta, allt að 15 til 20 metra hátt og 150 til 200 metrar að breidd og færði á kaf eða tók með sér alls um 13 hús, útihús og fjölda bíla. í húsinu númer 2 á Hjöllum voru hjón ásamt tveimur ungum börnum sínum. Flóðið skall á ytri enda þess og fyllti bílskúr og eldhús og er húsið talið ónýtt. Hjónin sakaði ekki, en bæði börnin grófust á kaf þar sem þau voru stödd í eldhúsinu og lézt annað þeirra, 6 ára stúlka. I hús- inu við Aðalstræti 79 var stödd öldruð kona ásamt tveimur son- um sínum. Flóðið kaffærði húsið og létust konan og annar sonur hennar en hinn slapp lítt meidd- ur. í húsinu við Aðalstræti 79a voru staddar þrjár konur, allar í risi. Var það móðir með tvær unglingsdætur sínar. Flóðið bar húsið niður á Strandgötu og slapp konan af sjálfsdáðum úr brakinu, en önnur dóttir hennar lenti í sjónum og hin var föst í brakinu. Þeim var báðum bjargað þegar, lítt meiddum. Auk þessa fólks er talið að um 25 manns hafi verið á svæðinu eða í húsum sínum, en

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.