Morgunblaðið - 25.01.1983, Side 23
ðað
hmni
dætur hennar um tvítugt. Þær
bárust með skriðinu inni í risinu
langleiðina niður að sjó, en slös-
uðust ekki alvarlega.
Mín fyrsta hugsun var að fá
fólk til að grafa í rústum hússins
númer við 2 við Hjalla, en þar
vissi ég af fólki inni. Síðan hrað-
aði ég mér á lögreglusvarðstof-
una og hafði samband við sýslu-
mann,“ sagði Pétur Sveinsson, en
hann vann síðan við björgunar-
stöf í tæpa tvo sólarhringa sam-
fleytt eins og aðrir Patreks-
firðingar.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 27
SNJOFLOÐIN A PATREKSFIRÐI
Þessa einstæðu mynd tók Ómar Unnarsson er flóðið æddi niður á milli húsanna allt að 20 metra hátt. Mikill vatnsagi fylgdi flóðinu og var
eins og rakaský yfír þvS.
Björgunarstarfið á Patreksfirði:
Leitarhundar komu
að góðum notum
„Snjóflóðin á Patrcksfirði fcllu á
tveimur stöðum. Ég fór með leitar-
hund minn á innra svæðið eftir að
ég kom til Patreksfjarðar. Þar var
talið að kona hefði lent í snjóflóði.
Ég fór með hundinn fyrst í svokall-
aða „grófleit". Hann sýndi einum
stað sérstakan áhuga.
Aðstæður buðu ekki upp á, að
hægt væri að leita betur, og því
fór ég á ytra svæðið. Þegar þang-
að kom, skipti engum togum.
Hundurinn skreið þegar inn í
rústir og kom með fatnað af
konu, og þá þegar vissi ég hvers
kyns var,“ sagði Kjartan B. Guð-
mundsson, eigandi Labradors-
hundar, sem kom mjög við sögu
leitar að fólki sem hafði orðið
undir snjóflóðinu á Patreksfirði í
samtali við Mbl.
„Því næst fórum við á innra
svæðið og sýndi hann einum
hluta svæðisins meiri áhuga en
öðrum og í ljós kom, að einn
hinna látnu hafði orðið þar undir
og var það síðasta líkið sem
fannst.
Eg er með hundinn í björgun-
arhundasveit íslands, en í sveit-
inni eru menn úr öllum hjálpar-
sveitunum; hjálparsveitum skáta,
Flugbjörgunarsveitinni og björg-
unarsveitum Slysavarnafélag-
anna. A Reykjavíkursvæðinu eru
um 20 hundar, en þeir eru mjög
misgóðir eins og gefur að skilja.
Við höfum notið aðstoðar
Norðmanna. Bæði hafa menn far-
ið erlendis til þess að þjálfa
hunda, og eins hafa 2 Norðmenn
komið hingað til lands til leið-
beiningar. Þá eru til þjálfaðir
hundar á Akureyri, Neskaupstað
og Hellu. Þar með held ég að allt
sé upptalið, en vaxandi áhugi er á
þessu málefni.
Það skiptir öllu að komast sem
fyrst á vettvang eftir að snjóflóð
hefur fallið og til leitar eftir að
snjóflóð hefur fallið er ekkert
betra til en velþjálfaðir hundar.
Það hefur reynslan margsannað,"
sagði Kjartan B. Guðmundsson.
Mynd Mbl. Kristján Ginarsson
Kjartan B. Guðmundsson með björgunarhundinn sinn, Týrus.