Morgunblaðið - 25.01.1983, Page 36
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983
DÝRAGLENS
bPA
HRÚTURINN
il 21. MARZ—19-APRlL
HjarLsvm og trúnadartraust ein-
kenna daginn hjá þér. Ferdalög
og félagsmál ganga einstaklega
vel. í allri velgengninni máttu
gæta þín ad gleyma ekki smá-
atriöinum.
NAUTIÐ
20. APRlL-20. MAÍ
Þú ert ánægður í dag og bæði
vinna og einkalíf gengur vel.
Viöskipti og alls kyns fjármál
eru mjög hagstæö. I»ú hefur
heppnina meó þér ef þú ætlar að
biðja um kauphækkun.
TVÍBURARNIR
21. MAl—20. JÚNÍ
Ánægjulegur dagur og er það
mikið til einhverjum nákomn
um að þakka. Iní hefðir gott af
því að fara í ferðalag með þeim
sem þú elskar og reyna að
gleyma áhyggjunum um stund
'm KRABBINN
21. JÚNl—22. JÚLl
l*ér gengur betur að koma
áformum þínum í framkvæmd
en í gær. Fjármálin líta líka bet-
ur út l»ú ættir því að skella þér
út í framkvæmdir og nota tæki-
færin meðan þau bjóðast.
£«ílUÓNIÐ
Ö?||j23. JÚLl-22. ÁGÚST
Þú hefur haft áhyggjur af ásta-
málunum en þær áhyggjur
hverfa eins og dögg fyrir sólu.
I»ú sérð að þínum nánustu þykir
mjög vænt um þig. Allar deilur
ættu því að jafnast fljótlega.
MÆRIN
23. ÁGÚST-22. SEPT.
Heilsa þín er í góðu lagi og
sjálfstraustið líka. Þú nýtur
þess að vera sem mest með fjöl-
skyldunni í dag. Starf þitt geng-
ur líka vel.
VOGIN
W/1^4 23. SEPT.-22 OKT.
I»ú ert í betra skapi en í gær og
þú finnur að allt sem þú tekur
þér fyrir hendur heppnast sér-
lega vel í dag. Leyfðu ástvinum
þínum að njóta velgengninnar
með þér.
DREKINN
23. OKT.-21. NÓV.
Þú ættir að geta grætt á ein-
hverju sem þú vinnur heima í
dag. Fasteignaviðskipti eru hag
stæð í dag. I»ú getur leyft þér
smá lúxus í kvöld.
BOGMAÐURINN
22 NÓV.-21. DES.
Þetta er góður dagur til þess að
fara í smá ferðalag til skemmt-
unar. I»ú ert bjartsýnn og
ánægður með tilveruna. Ná-
grannar þínir gera þér stóran
greiða ef þú ferð fram á það.
m
STEINGEITIN
22 DES.-19. JAN.
I*ú færð mjög góðar fréttir varð-
andi fjármál í dag. I»ú ert bjart-
sýnn og lítur lífið alveg nýjum
augum. («erðu sem mest á þess-
um góða degi. Þú hefur heppn-
ina með þér.
VATNSBERINN
20. JAN.-18.FEB.
í dag er þinn dagur og þér
finnst lífið brosa við þér. Taktu
þátt í félagsmálum og leyfðu
öðrum að njóta góða skapsins
með þér. Finkamálin ganga líka
mjög vel.
:< FISKARNIR
19. FEB.-20. MARZ
l»ú ert í góðu skapi í dag. Heils-
an er góð og þér gengur vel í
vinnunni. Hvað getur það verið
betra? Farðu út í kvöld og
sinntu félagsmálum. I»ér verður
mikið ágengt.
CONAN VILLIMAÐUR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
I FELT 5MART WHEN
I U)0KE UP THIS
MORNING..
Nei, Iröken, ég veit ekki svar-
id ...
Mér fannst ég gáfuð er ég
vaknaði ...
BUT THEN IT STARTEP
T0 5N0U) UJHILE I U)AS
WALKIN6 T0 5CH00L...
En á leiðinni í skólann tók að
snjóa ...
All those snouflakes
C00LE0 POWN MV BRAIN í
Öll þessi snjókorn kældu
heilann!
BRIDGE
Umsjón: Guöm. Páll
Arnarson
Þegar spilarar eru spurðir
um merkingu sagna sinna eiga
þeir að veita þær upplýsingar
og engar aðrar. Þeir mega
auðvitað ekkert undan draga,
né heldur koma með athuga-
semdir sem ekki tengjast beint
útskýringu sagna. Hvort
tveggja er brot á velsæmis-
reglunum, og ef spilarar ger-
ast brotlegir á þennan hátt
geta þeir átt von á því að skor-
in sé leiðrétt — en aðeins, og
þetta er kjarni málsins, ef
sannað er að brotið (ónógar
eða villandi upplýsingar) hafi
leitt mótspilarana á villigötur.
Norður s G32 h ÁD10872
Vestur t 75 1 D2 Austur
sÁ97 s K65
h 94 h G3
t G1083 t 9642
IG1054 19876
Suður s D1084 h K65 t ÁKD IÁK3
Ég verð að treysta því að
lesandinn hafi lesið sunnu-
dagsþáttinn. N-S lentu í mis-
skilningi, norður sagði eins og
hann ætti 6—9 punkta og sex-
lit í spaða. Misskilningurinn
kom ekki í Ijós fyrr en á 6.
sagnstigi og vestur átti útspil
gegn 6 gröndum. Suður sagði
að ljóst væri að norður hefði
ruglast í kerfinu og ætti vænt-
anlega 6-9 punkta og hjartalit.
Norður gerði þá athugasemd
sem enginn bað um: „Ég
gleymdi mér ekki, ég taldi vit-
laust." Þessi athugasemd er
augljóslega brot á velsæmis-
reglunum, alveg sama hvaða
hvöt lá að baki. Á þá að leið-
rétta skorina? Nei, og það er
vegna þess að athugasemdin
skaðaði vestur ekki. Vestur
mátti vita fyrir víst af sögnum
og útskýringum að norður var
ekki með spaðalit.
Með brot af þessu tagi er
farið á nákvæmlega sama hátt
og þegar menn gleyma að gefa
viðvörun (alert). Það er ekki
um það deilt að það er brot að
gleyma að vara við, hins vegar
er spilurum ekki sjálfkrafa
refsað fyrir slika gleymsku,
heldur aðeins ef hún skaðar
mótspilarana.
SKÁK
Umsjón: Margeir
Pétursson
JAAN EHLVEST frá Sovétríkj-
unum varð Evrópumeistari
unglinga um áramótin með því
að verða efstur á skákmótinu í
Groningen. Þessi staða kom
upp í skák hans á mótinu við
Hollendinginn Nijboer.
36. Hxd4! — cxd4, 37. De5+ —
f6, 38. De7 — Da5+, 39. Kfl —
Dc5, 40. I)g7 mát. Ehlvest hlaut
11 v. af 13 mögulegum, en
næstur varð Daninn Hansen
með 10'A v. Elvar Guðmunds-
son hlaut 7 v. og varð í 8.—13.
sæti.
Ehlvest kemur frá Eistlandi
eins og Paul Keres, sem um
áratuga skeið var á meðal
sterkustu skákmanna í heimi.