Morgunblaðið - 25.01.1983, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 25.01.1983, Qupperneq 42
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 Nokkrir bæir voru umflotnir og einangraðir. Myndin er af Hvítárbakka í Andakílshreppi. Flóðin í Borgarfirði: Þau mestu í áratugi Mikið tjón hjá bændum Borgarnesi, 24. janúar, frá Helga Bjarnasyni fréttaritara Mbl. EFTIR asahláku og rigningar urðu mikil flóð í Borgarfirði um helgina, þau mestu í áratugi og var mikið tjón af völdum þeirra. Hvítá flæddi yfir bakka sína og einangruðust nokkrir bæir á laugardag þegar flæddi í kringum þá. Þetta voru Ferjukot og Hvítárskáli við Hvít- árbrú, Þingnes, Árbakki, Hvítárbakki og Stafholtsey í Bæjarsveit og FJóðatangi og Melkot í Stafholtstungum. í Ferjukoti flæddi inn í öll hús nema nýrra íbúðarhúsið. Talsverðar skemmdir urðu í kjallara eldra íbúðarhússins þegar þar flæddi inn, og 10 hænur drápust þegar flæddi inn í hænsnakofa. Heimilisfólk- ið í Ferjukoti fékk félaga úr Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi til að koma á gúmmíbát með dælu og bensín til að geta dælt vatni úr húsum. Kristján Fjeldsted bóndi í Ferjukoti sagði í samtali við Mbl. að ekki hefðu komið svona mikil flóð í Hvítá í áratugi, hann sagðist muna eftir svip- uðu flóði frá því hann var 7 eða 8 ára gamall en aldrei síðan. í mjólkurhúsi við fjós sem var byggt 1929 og aldrei hefur flætt inn í áður, var vatnið um fet á dýpt og kýrnar í fjósinu stóðu í vatni í um 2 klukkustundir, að sögn Þorkels Fjeldsted, bónda í Ferjukoti. Vegurinn við Síkis- brýrnar fór á kaf og þegar flóð- ið var í hámarki flæddi einnig yfir aðra brúna. Þegar flóðið rénaði í morgun kom í ljós að vegurinn á milli brúnna var mjög illa farinn, hafði nánast jafnast út. Upp með Hvítá varð tjón á Hvítárbakka þegar flæddi inn í kjallara beggja íbúðarhúsanna og í útihús, auk þess sem vegur- inn skemmdist mikið. Jón Frið- rik Jónsson á Hvítárbakka sagði að Hvítá hefði verið 30 sentimetrum hærri en elstu menn myndu, auk þess sem flóðið hefði staðið lengur en vant væri. Hann sagði að þetta væri fyrsta stóra flóðið síðan byrjað var að mæla fyrir Borg- arfjarðarbrúnni. A Árbakka flæddi inn í gripahús og hlöðu og eins mun hafa flætt inn í bæði íbúðarhúsin á Runnum. Rafmagnsstaurar við Grímsá brotnuðu og einnig féllu staur- ar við Hvítárskála og varð rafmagnslaust um tíma. Bæirnir Flóðatangi og Mel- kot í Stafholtstungum, sem standa á nesi á milli Norðurár og Hvítár, voru umflotnir um tíma, auk fjárhúsanna á Svarfhóli, sem er næsti bær þar fyrir ofan. Á Flóðatanga flæddi inn í öll hús nema íbúðarhúsið. Flytja þurfti kindurnar inn í hesthús því vatnið náði þeim í kvið í fjárhúsunum þegar flóðið var í hámarki. Ein kind drapst þegar hún tróðst undir í óróan- um sem komst á kindurnar þeg- ar vatnið tók að flæða inn í fjárhúsið. Kýrnar stóðu í lág- klaufar í vatni í fjósinu. Hey skemmdust og er a.m.k. nebsta meterslagið í hlöðunum ónýtt og ef hitnar í heyinu þá skemm- ist meira hey. Vatn fór inn í fólksbíl sem stóð inni í véla- geymslu á steyptu gólfi. Sveinn Jóhannesson Sondi á Flóða- tanga sagði í samtali við Mbl. að flóðin hefðu náð hámarki á laugardagskvöldið og þá hefði beljað yfir nesið úr Hvítá en venjan er sú í flóðum að Norð- uráin er hærri og að þá flæði meira úr henni. Jóhanna Elí- asdóttir í Melkoti sagði að þetta væri mesta flóð á þessum slóðum á heniiar ævi, að minnsta kosti. Hún sagðist hafa átt heima í Melkoti í rúm 70 ár og aldrei fyrr hefði vatnað yfir hól sem stendur þar skammt frá bænum. Hún sagði að Norðurá hefði ekki rutt sig enn og flóðið hefði komið úr Hvítá sem væri frekar óvenju- legt. I Norðurárdal myndaðist klakastífla á laugardagsmorg- un í Norðurá til móts við Arn- arbæli neðan við Hreimsstaði. Hækkaði þá svo mikið í ánni ofan við stífluna að aðeins var um einn meter uppúr af síma- staurunum sem þar stóðu og var allt láglendið ofan við stífl- \una þvert yfir dalinn komið undir vatn. Þar á meðal var þjóðvegurinn um Arnarbælis- fitjar og lokaðist hann. Um há- degisbilið brast klakastíflan og vatnið og íshrönglið barst niður allan dalinn. Var Norðurárdal- ur þá einsog stöðuvatn yfir að líta. Óli R. Jóhannsson vega- verkstjóri í Klettstíu var á eft- irlitsferð um dalinn. Hann ók eftir þjóðveginum fyrir neðan Klettstíu en þar vatnaði aðeins yfir veginn, þegar klakastíflan við Arnarbæli skammt fyrir ofan brast. „Ég vissi ekki fyrr en flóðbylgjan kom yfir mig,“ sagði Óli í samtali við Mbl., „það var sára lítill aðdragandi að þessu. Ég reyndi fyrst að bakka út úr þessu en það gekk ekki og þá reyndi ég að gefa í til að komast fram úr þessu en þá lokaðist vegurinn af jakaburði bæði framan og aftan við mig og skall einnig á bílnum. Bíll- inn hentist tvívegis þversum á veginum þegar jakar skullu aft- ast á honum en mér tókst að rétta hann af í bæði skiptin." Bíll Óla drap fljótlega á sér og þurfi hann að bíða í honum í þrjú korter en þá hafði sjatnað það mikið að hann gat skriðið út um bílgluggann og gengið í klofstígvélum, sem hann hafði haft meðferðis í land. Óli sagði að vatnið hefði náð uppundir spegla á bílnum, það væri eitthvað á annan metra, Óli var heppinn að því leyti að hann slapp við aðalgusuna hún kom utar. Hefði hann lent í henni hefði bíllinn vafalaust lent utan vegar og ekki væri þá víst hvernig farið hefði. Gísli Þorseinsson bóndi og oddviti Norðurárdalshrepps á Hvassafelli sagði í samtali við Mbl. að Norðurá hefði ekki orð- ið jafn há í mörg herrans ár, og meiri klaki væri í henni en oftast áður. Gísli sagði að ekki væri vitað um skemmdir á hús- um en augsýnilega væri mikið tjón á landi vegna jakaburðar og á girðingum en það væri ókannað mál ennþá og sumt kæmi sjálfsagt ekki í ljós fyrr en með vorinu. Rafmagnslaust hefur verið af og til alla helgina þar sem tveir rafmagnsstaurar brotnuðu í látunum. Miklar skemmdir urðu á vegum í Norð- urárdal, meðal annars gróf Bjarnadalsá, sem rennur í Norðurá ofan við Hvassafell, frá öðrum endastöpli brúarinn- ar og inn í miðjan veginn. Er brúin lokuð en fært er að sunn- anverðu í dalnum norður í land. Bjarnadalsá er sakleysisleg á sumrin, bleytir varla steina en í leysingum er hún hin versta viðureignar og hefur valdið nágrönnum sínum miklum bú- sifjum í gegnum tíðina. Eins mun um margar smærri ár, sprænur og bæjarlæki um allt héraðið. Vegurinn um Arnar- bælisfitjar varð ófær vegna jakanna sem þar sátu eftir þeg- ar sjatnaði í ánni en vegurinn var ruddur á laugardag. Þá varð ófært við Norðurá í Heiðarsporði og þegar það var komið í lag þá fór að flæða yfir veginn í Gráborgarhrauni við hreppamörkin. Varð strengur-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.