Morgunblaðið - 25.01.1983, Page 44
^^^skriftar-
síminn er 830 33
"^\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983
Snjóflóðin á Patreksfirði:
„Þrátt fyrir áfallið verð
um við að vera bjartsýn*
— segja Sólveig
Jóhannsdóttir
og Helgi
Páll Pálmason
„ÉG var staddur utan vid húsið
mitt, Aðalstræti 80, er ég heyrði
miklar drunur og leit upp. Þá sá ég
flóðið vaða niður úr gilinu, falla á
húsin fyrir ofan, og sá þau hreinlega
tætast upp. Ég hugsaði um það eitt
að komast inn í húsið til unnustu
minnar, en hún var þá stödd í kjall-
ara hússins,“ sagði Helgi Páll
Pálmason meðal annars í samtali
við Morgunblaðið daginn eftir að
snjóflóðin féllu á Patreksfjörð.
„Ég var nýkomin heim af næt-
urvakt af sjúkrahúsinu," sagði
unnusta Helga, Sólveig Jóhanns-
dóttir. „Ég var stödd í eldhúsinu í
kjallaranum að fá mér kökubita,
og ætlaði síðan að fara að hreinsa
upp vatn úr kjallaranum, sem
hafði flætt inn í leysingunum
áður en flóðið féll. Þegar Helgi
kom inn, skall flóðið á húsinu og
fyllti efri hæðina, en snjór og vatn
spýttust inn á þá neðri. Þetta var
ákaflega óþægilegt og ég hélt
fyrst að þetta væri okkar síðasta
stund.“
„Eftir að flóðið var fallið hugs-
uðum við aðeins um að komast út
Sólveig Jóhannsdóttir og Helgi Páll Pálmason í eldhúsi íbúðar sinnar. Er flóðið féll var Helgi utan dyra en
Sólveig í eldhúsinu, sem er í kjallara hússins. Flóðið féll nánast í gegnum efri hæð hússins og krap og vatn
spýttist inn í kjallarann. Moruunblaðið/Rax.
og tókst það þó snjór væri farinn
að hlaðast upp með útidyrahurð-
inni, sem þó snýr niður að sjó.
Þegar við komum út sáum við
mann við útihús neðan hússins og
heyrðum óp í stúlku, sem lent
hafði í sjónum. Ég hljóp þegar
niður eftir, sagði manninum að
fara inn í næsta hús, en fór síðan
niður í flæðarmálið og náði stúlk-
unni upp og fór með hana á
sjúkrahúsið. Þegar við komum
þar, vissi enginn hvað gerst hafði
og menn héldu að ég væri að
gabba. En mér var loks trúað og
sent var eftir lækni og hjúkrunar-
fólki. Við Sólveig reyndum síðan
að vinna og hún fór aftur upp á
sjúkrahús, en ég reyndi að að-
stoða við björgunarstörfin. Mér
gekk það illa, var með hálfgert
taugaáfall og fór aftur upp á
sjúkrahús og aðstoðaði fólkið þar,
sagði Helgi.“
„Mér varð fyrst hugsað til þess
að flytjast héðan á brott og alls
ekki gat ég hugsað mer að fara að
búa aftur í húsinu þó hægt væri
að gera við það, en það er nánast
ónýtt. Ég jafnaði mig svo smám
saman og er að minnsta kosti
hætt við að flytja af staðnum,"
sagði Sólveig. “Húsin beggja
vegna okkar eyðilögðust algjör-
lega, annað hreinlega hvarf en ris
hins flaut niður á Strandgötu. í
öðru húsinu voru tveir bræður og
móðir þeirra og bjargaðist annar
bróðirinn, en í hinu voru tvær
systur ásamt móður sinni og
björguðust þær allar. Við keypt-
um þetta hús í sumar og það er að
mestu ónýtt og útihúsin nokkuð
skemmd auk þess sem um 20
hænsni drápust hjá okkur. Þá
vorum við með bíl við húsið, sem
móðir Helga átti, og hann er gjör-
ónýtur. Við höfum vissulega orðið
fyrir miklu tjóni, en við höfum
skjól í framtíðinni og sjáum síðan
hvað setur. Þrátt fyrir áfallið
verðum við að vera bjartsýn,"
sögðu þau Sólveg og Helgi.
Prófkjörin í Norðurlandi eystra og Suðurlandi — Staðan á miðnætti:
Lárus og Halldór efstir fyrir norðan —
Þorsteinn stefnir í efsta sæti á Suðurlandi
Árni Johnsen í 2. sæti og Eggert Haukdal í 3. sæti
ALÞINGISMENNIRNIR Lárus
Jónsson og Halldór Blöndal höfðu
tryggt sér tvö efstu sætin á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins I
Norðurlandskjördæmi eystra, þegar
1.400 atkvæði af 2.057 í prófkjöri
flokksins höfðu verið talin á mið-
nætti. í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurlandskjördæmi var Þor-
steinn Pálsson í 1. sæti þegar 2.200
atkvæði af 4.716 höfðu verið talin á
miðnætti. Árni Johnsen var þá í 2.
sæti, Eggert Haukdal í 3. sæti og
Siggeir Björnsson í 4. sæti.
Röðin í prófkjörinu í Norður-
landi eystra var þessi: 1. Lárus
Jónsson með 789 atkvæði í 1. sæti
en 1.191 alls, 2. Halldór Blöndal
með 903 í 1.—2. sæti en 1.160 alls,
3. Björn Dagbjartsson með 564 at-
kvæði í 1,—3. sæti en 830 alls, 4.
Júlíus Sólnes 653 atkvæði í 1.—4.
sæti en 756 alls, 5. Vigfús B. Jóns-
son með 728 atkvæði í 1.—5. sæti
en 793 alls, 6. Svavar B. Magnús-
son með 733 atkvæði alls og 7. var
Sverrir Leósson með 630 atkvæði
alls.
í Suðurlandskjördæmi var stað-
an þannig á miðnætti: 1. Þorsteinn
Pálsson með 756 atkvæði í 1. sæti,
2. Árni Johnsen með 746 atkvæði í
1.—2. sæti, 3. Eggert Haukdal með
884 atkvæði í 1,—3. sæti og 4. Sig-
geir Björnsson með 1.112 atkvæði í
1.—4. sæti.
I Suðurlandskjördæmi var
kosningareglum þannig háttað, að
númera átti frá 1—4, en aðeins
mátti kjósa einn mann af hverju
svæði, þ.e. Árnessýslu, Rangár-
vallasýslu, Vestur-Skaftafells-
sýslu og Vestmannaeyjum.
„Ég mátti ekki sofna — þá
hefði ég ekki vaknað aftur“
Rætt við ívar Ström, 24 ára, sem í 17 klukkustundir lá ískaldur og örmagna í vegarkanti á Heydalsvegi
„ÞETTA voru langir 17 klukkutímar þarna í vegarkantinum, það er ábyggi-
legt, og nóttin sú lengsta sem ég hef lifað. Ég barðist við það alla nóttina aö
sofna ekki. Ég mátti ekki sofna, þá hefði ég ekki vaknaö aftur,“ sagði ívar
Ström meöal annars í samtali við Morgunblaðið í gær. Á laugardag fauk
bifreið hans út af Heydalsvegi og lenti í krapaelg. ívar komst út úr bílnum, en
blotnaði upp undir hendur. llann lagði af stað áleiðis til byggða, cn örmagnaö-
ist fljótlega. Það var síðan um klukkan 10.30 á sunnudagsmorgun, sem
Sigurður Helgason, bóndi í Hraunholtum, fann ívar liggjandi í vegarkantin-
um. Ivar var ótrúlega fljótur að ná sér og í gær kvartaði hann aðeins undan
stirðleika í fótum.
ívar er tæplega 24 ára gamall
húsasmíðanemi, sem á laugardag
lagði af stað frá Reykjavík til
Grundarfjarðar. Þar ætlar hann á
vertíð í vetur. Hann sagði að veður
hefði verið mjög vont á leiðinni og
þá sérstaklega eftir að hann lagði
á Heydalsveg. Fljótlega kom hann
að brú og þar flæddi vatnselgurinn
yfir veginn. ívar nam staðar til að
athuga aðstæður, en þá skipti eng-
um togum, að ein vindhviðan tók
bílinn og lenti hann í elgnum. Þar
sem vatnið var dýpst sagðist ívar
telja dýptina hafa verið yfir tvo
metra.
„Bíllinn fylltist fljótlega af
vatni, en ég komst út og gat krafs-
að mig upp á eyri, sem stendur að-
eins hærra,“ sagði Ivar. „Upp á
eyrinni klæddi ég mig úr og vatt
fötin, en ég hafði blotnað upp und-
ir hendur. Ég lagði síðan fljótlega
af stað i átt til næsta bæjar og
barðist áfram í 1 >/2 —2 tíma. Þá
hafði ég farið um einn kílómetra,
en að Hraunholtum voru 8—9 kíló-
metrar.
Ég var ískaldur og því fljótur að
örmagnast. Bíllinn fauk útaf um
klukkan 15 og tæpum tveimur tím-
um síðar lagðist ég í vegarkantinn
og beið þess að einhver ætti leið
hjá. Það var ekki fyrr en klukkan
10 uni morguninn að bíll fór fram-
hjá. Ég var hins vegar orðinn svo
sljór þá, að ég sá bilinn ekki fyrr
en hann var við hliðina á mér. Bíl-
stjórinn sá mig ekki, enda gerði ég
ekki vart við mig. Það var síðan
um hálftíma síðar, að Sigurður í
Hraunholtum kom, en hann var þá
að athuga hvort vegurinn væri
fær. I Hraunholtum fékk ég mjög
ívar Ström isamt Arnari, syni sín-
um.
góða aðhlynningu og var fljótur að
jafna mig. Ég þakka það ekki sízt
ullarfötum, sem ég var í, og þessi
reynsla mín kennir mér, og von-
andi öðrum, að vera vel búinn á
ferðalögum,“ sagði ívar Ström síð-
degis í gær. Hann var þá kominn
til Grundarfjarðar, en bíl sinn,
sem dreginn var upp úr elgnum á
sunnudag, skildi hann eftir að
Hraunholtum.