Morgunblaðið - 25.02.1983, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983
Stöndum vörð um Salmóme
— eftir Guðrúnu J.
Halldórsdóttur
skólastjóra
Á Alþingi íslendinga hafa til
þessa setið 12 konur kjördæma-
kosnar eða landskjörnar. Auk
þeirra hafa allmargar konur
fengið að verma þingbekki sem
varamenn, þegar þingmenn hafa
þurft að bregða sér bæjarleið
eða verið haldnir krankleika.
Sex þessara þingkvenna hafa
komið úr röðum sjálfstæð-
ismanna auk fyrstu íslensku
þingkonunnar, sem var ksoin
utan flokka af kvennalista en
gekk í flokk íhaldsmanna árið
1923 og í Sjálfstæðisflokkinn við
stofnun hans 25. maí 1929.
Sjálfstæðismenn geta glaðst
yfir því, að hlutur íslenskra
sjálfstæðiskvenna hefur verið
heldur betri en kvenna annarra
flokka hvað þingmannafjölda
varðar og í 15 ár, þ.e. frá 1923 til
1938, var Sjálfstæðisflokkurinn
eini flokkurinn á Alþingi sem
hafði kvenþingmann í röðum
sínum.
Sjálfstæðismönnum hlýtur því
að vera það metnaðarmál að
halda forystu í því réttlætismáli,
sem þátttaka kvenna í þingstörf-
um er.
Allar þessar tólf þingkonur
hafa verið hinir mætustu þing-
menn. Þó þær hafi haft ólíkar
stjórnmálaskoðanir, hafa þær
samt borið sömu málaflokka
fyrst og fremst fyrir brjósti,
málaflokka sem miðuðu að vernd
lands og lýðs, enda hefur það
verið hlutverk kvenna frá örófi
alda að fæða Iíf, vernda það og
viðhalda, mennta og efla.
Það er ómetanlegt hverri þjóð
að eiga slíka talsmenn sem öfl-
ugasta og flesta á þingi. Tals-
menn sem þora að standa sjálf-
stæðir við skoðun sína og falla
eða standa með henni.
Einn þessara þingmanna og
glæsilegur fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins er Salome Þorkelsdótt-
ir þingmaður Reykjaneskjör-
dæmis. Hún hefur að vísu aðeins
setið eitt kjörtímabil en á þess-
um árum hefur hún áunnið sér
traust og vinsældir samflokks-
manna sinna á Alþingi og virð-
ingu annarra þingmanna.
Hún hefur borið fram mörg
þjóðþrifamál og þrátt fyrir það,
að hún hefur verið í stjórnar-
andstöðu, hafa ýmis þeirra náð
fram að ganga, vegna þess að
þau hafa verið réttlætismál.
Salome hefur haft kjark og
þor til þess að berjast fyrir
hugðarefnum sínum og hugsjón-
um og verið samvisku sinni sam-
kvæm í störfum sínum á Al-
þingi.
Því búi hefur löngum þótt best
borgið, þar sem í forsvari hafa
verið bæði bóndi og húsfreyja.
Skyldi ekki þjóðarbúinu einnig
vera best borgið á þann hátt, að
um æðstu stjórn þess annist
karlar og konur jafnt!
Salome Þorkelsdóttir er ein
þeirra kvenna, sem hafa sýnt að
til þess starfa er hún vel hæf.
Minnist þess í prófkjörinu 26.
og 27. febrúar.
Reykjavík, 23. febrúar 1982.
Vörumarkaðs^
verðs og
Vörumarkaðs-
úrval
ORA VORUR Leyft V.M. verð verð
Grænar baunir 1/i dós 24,75 22,25
Grænar baunir V4 dós 15,20 13,70
Grænar baunir 1/« dós 11,75 10,65
Gulrætur og baunir Vi dós 31,20 28.10
Gulrætur og baunir Vi dós 17,25 15,50
Gulrætur og baunir V« dós 15,00 13,50
Blandað grænmeti 1/i dós 31,35 28,20
Blandað grænmeti V2 dós 17,35 15,95
Blandað grænmeti 1/« dós 13,15 12,10
Amerísk blanda 1/i dós 30,65 27,60
Amerísk blanda V2 dós 20,15 18,10
Amerísk blanda 1/« dós 13,10 12,05
Maískorn 1/i dós 45,65 42,00
Maískorn V2 dós 34,50 31.10
Maískorn 1/« dós 25,20 22,70
Rauðkál 1/i dós 36,70 33,00
Rauðkál V2 dós 20,20 18,60
Rauðkál 1/« dós 14,65 13,50
Bakaðar baunir V2 dós 28,40 26,00
Bakaðar baunir 1/« dós 18,40 16,50
Snyttubaunir V2 dós 19,45 17,50
Fiskbollur V1 dós 29,60 26,65
Fiskbollur V2 dós 18,85 16,95
Fiskbúðingur 1/i dós 41,35 37,20
Fiskbúðingur V2 dós 23,50 21,15
Kjúklingar 5 stk. í poka kr. 96.00 kg.
Dilkakjöt í heilum skrokkum.
LÍTIÐ VIÐ í NÝJU
KAFFITERÍUNNI OKKAR,
— þaö gleöur munn og maga
Opið til kl. 8 í kvöld
og til hádegis á morgun.
m l/öruiiiarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Sími 86111.
Askriftarsíminn er 83033
, wL
Hún er falleg Amtsbókasafnsbyggingin — en langt er tyrit Glerárhyerfisbúa að sækja þangað. Morgimbisðið/ g.b.
Útibú frá Amtsbókasafninu á Akureyri f Glerárhverfi:
Húsnæði býðst í nýju
verslunarmiðstöðinni
Akureyri, 22. febrúar.
„ÍJTIBÚ frá Amtsbókasafninu í Gler-
árhverfi er eitt brýnasta framtíöar-
verkefni safnsins." Svo segir í nýút-
kominni ársskýrslu Amtsbókasafnsins
á Akureyri. Þar segir ennfremur:
„Fyrir tveim árum var gerð könn-
un á notkun bókasafnsins árin
1978—1980, meðal annars á skipt-
ingu safngesta eftir búsetu í bæn-
um. Leiddi sú könnun það í ljós, sem
í raun var vitað áður, að notendur
safnsins voru tiltölulega fæstir úr
Glerárhverfi. Þó að ástæðurnar
fyrir því geti verið fleiri en ein, er
augljóst að íbúar Glerárhverfis, ein-
kum nýrri byggðarinnar, eiga til
muna lengri leið að sækja en all-
flestir aðrir bæjarbúar og síðan
könnunin var gerð hafa byggst upp
ný hverfi, enn lengra frá.
Fáskrúðsfjörður:
Fyrsta sýning leikhópsins Veru
LEIKHÓPURINN Vera á Fáskrúðs-
firði frumsýndi á fostudaginn var gleði
og söngleikinn „Allra meina bót“ eftir
Patrek og Pál í félagsheimilinu Skrúð.
Leikstjóri var Magnús Guðmundsson,
söngstjóri og píanóleikari Haraldur
Bragason.
Leikendur eru 5, Magnús Stef-
ánsson, Steinunn Björg Elísdóttir,
Hallgrímur Bergsson, Hjörtur
Kristmundsson og Agnar Jónsson.
Lögin, sem sungin eru í leikritinu,
eru eftir Jón Múla Árnason og upp-
hafleg útsetning eftir Magnús Ingi-
marsson og er stuðst við hana á
þessari sýningu.
Leikhópurinn Vera var stofnaður
á síðastliðnu ári og er þetta fyrsta
sýning hans. Á frumsýningunni á
föstudaginn var húsfyllir og leikn-
um vel tekið.
Fyrirhugað er að vera með sýn- Formaður leikhópsins er Valdís
ingar í nágrannabyggðunum um Þórarinsdóttir.
næstu helgi. _ Albert.
Fyrir rúmu ári lét bæjarstjórn
Akureyrar frá sér fara yfirlýsingu,
sem túlka má á þann veg að heimilt
sé að hefjast handa við að kanna
möguleika á húsnæði og athuga
kostnað o.fl.
í húsnæðismálunum er um fleiri
en einn valkost að ræða þessa
stundina og nauðsynlegt er að taka
einhverjar ákvarðanir í þeim efnum
áður en langur tími líður.“
Lárus Zophoníasson, safnvörður,
taldi að um þrjár leiðir væri nú að
ræða í sambandi við húsnæðismál
safnsins í Glerárhverfi, þegar Mbl.
ræddi við hann í dag. „I fyrsta lagi
er ljóst, að okkur býðst nú húsnæði (
nýju verslunarmiðstöðinni Sunnu-
hlíð. Er þar um að ræða jarðhæð og
kjaliara í vesturálmu byggingarinn-
ar, samtals liðlega 300 fermetrar.
Þetta húsnæði getum við fengið
keypt og það má heita tilbúið til
notkunar. í öðru lagi er um það að
ræða að taka á leigu húsnæði í sömu
byggingu, en það er ekki nema um
60—70 fermetrar og því alls ekki til
frambúðar. í þriðja lagi hefur svo
verið um það rætt að bókasafnið
fengi inni í kjallara nýrrar kirkju-
byggingar í Glerárhverfi, en ekki
liggja enn fyrir teikningar af þeirri
byggingu og vafalítið líða mörg ár
áður en sú aðstaða yrði fyrir hendi."
Bókasafnsnefnd ályktaði á fundi
sínum í síðustu viku að lýsa því yfir
við bæjarstjórn að húsnæði það sem
býðst til kaups í Sunnuhlíð væri
álitlegasti kosturinn — og skoraði á
bæjarstjórn að kanna þetta mál
rækilega sem fyrst.
G. Berg.