Morgunblaðið - 25.02.1983, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983
Kvennalisti
til Alþingis
í dag sitja 3 (þrjár) konur á Alþingi ísiendinga.
í dag er Ijóst aö konum fjölgar ekki á AÍþingi
næsta kjörtímabil ef ekkert veröur aö gert.
í dag eru konur meirihluti félaga í Alþýöusam-
bandi íslands en þó eru aöeins tvær konur í
fimmtán manna miöstjórn þess.
í dag eru konur meirihluti félaga í BSRB en þó eru
aðeins fjórar konur í ellefu manna aöalstjórn
þess.
í dag vinna 70% kvenna utan heimilis.
í dag ná aðeins 3% giftra kvenna meðaltekjum.
í dag gegna konur tvöföldu hlutverki, þær eru
fyrirvinnur og þær eru mæöur barna, sem
ekkert rúm viröist vera í þessu þjóðfélagi.
í dag er ekki hlustað á þaö sem konur hafa til
málanna aö leggja.
Við viljum breyta þessu
— Hvað um þig?
Komdu á fundinn á Hótel Borg
á morgun kl. 14.00.
Áhugahópur um framboð
kvenna til Alþingis.
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
FÆÐING MEÐ ÞRAUTUM OG
BAKTJALDAMAKKI
Um tilurö óperunnar Tosca í tilefni konsert-
uppfærslu Sinfóníunnar á óperunni.
COBRA-HÓPURINN UNDIR
SMÁSJÁNNI
Laufey Helgadóttir skrifar frá París um þennan
litríka listhóp Svavars Guónasonar, Asgers
Jorn o.fl.
ÁHRIFAMIKILL LISTFERILL SEM
SPANNAÐI AÐEINS ÁRATUG
í tilefni sýningar Leikfélags Akureyrar á Bréf-
beranum frá Arles, er grein eftir Guöbrand
Gíslason um málarann Vincent van Gogh.
SKÁLD VELUR LJÓÐ
Guömundur Daníelsson ríöur á vaðiö og velur
Ijóö eftir Guómund Friöjónsson á Sandi.
Vönduð og menningarleg helgarlesning
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND GUÐJÓNSSON
Hindúakonur standa yfir rjúkandi rústum heimilis síns í Assam i dögunum.
Ólgan í Assam á rætur að
rekja allt til aldamótanna
Óeirðirnar í Assam á Indlandi, sem hafa haft í för með sér dauða vel i
annað þúsund manna, eiga sér lengri sögu en stla mætti í fyrstu. Hér var
ekki um atburð að ræða sem fyrir engar sakir itti sér stað, illdeilur
Assama og Bengala í Assam eiga sér langa sögu og óeirðirnar og fjölda-
morðin i dögunum voru aðeins nýjasta innleggið.
Vandamilið hófst þegar um aldamótin, er breska nýlendustjórnin hóf
og leyfði innflutning i þúsundum múhameðstrúarmanna fri Bengal til að
vinna i tegörðum sínum og ökrum. Assam er frjósamt hérað, en hinir
innfæddu að sama skapi litlir búmenn og þannig siu Bretar sér leik i
borði með innflutningnum.
En Bengalirnir voru fljótir
að hasla sér völl í Assam,
þeir náðu öllum æðstu embætt-
isstöðum í sýslunni, voru
bústjórar á stærstu búunum og
þannig mætti lengi telja. Því fór
svo, að hinir innfæddu tóku lít-
inn sem engan þátt í uppbygg-
ingu ríkisins næstu áratugina.
Árið 1931 fór fram manntal í
Assam og þá fór hinum inn-
fæddu að verða ljóst að tekið var
að halla undan fæti, aðeins 31,4
prósent íbúa töluðu tungu inn-
fæddra, aðeins 5 prósentum
fleiri en töluðu bengölsku tung-
una. Auk þess höfðu Bengalirnir
sölsað undir sig miklar jarðeign-
ir og víða voru innfæddir ekki
annað en leiguliðar í eigin landi.
Breskur embættismaður að
nafni C.S. Mullan reyndist
getspakur er hann sá úrslit
manntalsins. Hann sagði þá, að
þjóðflokkahlutföllin myndu
ganga afar nærri assamfskri
menningu og það kom á daginn.
Er hér var komið sögu, fóru
uppþot Assama að skjóta upp
kollinum, enda réðu Bengalir
lögum og lofum í landinu. Hin-
um innfæddu líkaði ekki yfir-
valdið þrátt fyrir að þjóðarbrot-
in séu náskyld og tali mjög svip-
aða tungu.
Upp úr 1950 brutust enn út
óeirðir. Þetta var nokkrum árum
eftir að Assam varð sjálfstætt
ríki í ríkinu. Hinir innfæddu
voru nú farnir að láta meira til
sín taka og nær allir ráðherrar
Assam voru úr röðum þeirra.
Það hallaði undan fæti hjá
Bengölum, hluti þeirra flýði úr
landi, en það sem skipti meira
máli var að hinir múhameðs-
trúuðu gáfu upp assömsku sem
móðurmál sitt f manntali sem
fram fór um þetta leyti. Þetta
gerðu þeir til að friða hina inn-
fæddu. Þetta hafði í för með sér,
að manntalið sýndi 56,7 prósent
íbúanna mælandi á assamiska
tungu, en aðeins 16,5 prósent á
tungu Bengala. Upp úr þessu
fóru hinir innfæddu að ýta
Bengölum til hliðar, svipta þá
embættum og koma eigin mann-
skap að. Fór nú spennan mjög
vaxandi.
Enn var manntal árið 1971 og
þá voru yfirburðir innfæddra
meiri en fyrr, Assamar 61 pró-
sent, Bengalir 19 prósent og inn-
fæddir virtust traustir í sessi.
En svo breyttist dæmið skyndi-
lega. 24 prósent íbúanna um
þetta leyti voru múhameðstrú-
armenn frá Bengal. Þeir höfðu
snúið sér að assamískunni, en f
kjölfarið á stofnun Bangladesh,
fluttu þúsundir flóttamanna til
Assam og þjóðerniskennd þeirra
sem fyrir voru hvatti þá til að
taka aftur upp fyrri tungu og
menningu. Jafnaðist leikurinn
nú mjög á ný og hinir innfæddu
gerðust smeykir um hagi sína.
Árið 1979 var síðan stofnuð
fjöldahreyfing gegn Bengölum,
mjög óvænt. Segja má að eitt-
hvað slíkt hafi legið í loftinu, en
upptökin voru slysaleg. Kosn-
ingastjóri Assam sagði þá á
fundi eitthvað á þá leið, að inn-
flytjendur til norðausturríkja
Indlands kynnu að raska mannt-
ali og kosningahlutföllum. Stjór-
inn leiðrétti sig síðar, sagðist
hafa átt við innflytjendur frá
Nepal til Sikkim, en Assambúar
hlustuðu ekki á slíkt, tóku orð
mannsins sem undirstrikun ótta
síns. Nokkrum vikum síðar var
flett ofan af 45.000 flótta-
mönnum frá Bangladesh, sem
höfðu látið nöfn sfn ólöglega á
kjörskrá og þá var stofnuð afar
fjölmenn hreyfing innfæddra til
upprætingar hugsanlegrar yfir-
töku Bengala. Það var svo
grunnt á því góða, uns allt fór í
bál og brand á dögunum vegna
kosninganna. Innfæddir vildu
láta svipta Bengalina kosninga-
rétti, en það kom aldrei til álita.
Þá gripu innfæddir til ofbeldis
sem keyrði um þverbak. 1980
hafði fjöldahreyfingin fengið því
framgengt að kosningunum yrði
frestað og bannaði stjórnvöldum
að ganga frá hinu hefðbundna
manntali. Óttuðust Assamarnir
mjög útkomuna.
óeirðirnar lágu í loftinu, her-
og lögregluverði var komið fyrir
um gervallt Assamríki og for-
sætisráðherrann Indira Gandhi
hóf samningaumleitanir við full-
trúa innfæddra. Hún sat 22
fundi á 114 dögum með full-
trúunum, en allt kom fyrir ekki.
Þá var ekki annað að gera en að
boða til kosninga og þá sprakk
sprengjan.
Þetta er flókið mál, því í næst-
um hverju einasta sveitarfélagi
og bæjarfélagi í ríkinu ríkir ótti
milli Ássama og Bengala, hindúa
og múhameðstrúarmanna. Og
stjórnmálamennirnir hafa ekk-
ert gert og geta í raun lítið, því
báðir helstu flokkarnir, Kon-
gress-flokkurinn og Vinstri
flokkurinn, segjast bera hag inn-
flytjendanna fyrir brjósti, inn-
flytjendurnir eru atkvæðakistur
miklar. Það er því ekki stjórn-
málalegu aðhaldi fyrir að fara
og því miður litlar horfur á var-
anlegum friði í Assam meðan
svo er.
(Byggt á The Guardian
og The Observer.)