Morgunblaðið - 25.02.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983
t
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og
ömmu,
ÁSTBJARGAR ODDLEIFSDÓTTUR,
Haukholtum, Hrunamannahreppi.
Guö blessi ykkur öll.
Þorsteinn Loftsson,
Oddleifur Þorsteinsson, Elín Kristmundsdóttir,
Loftur Þorsteinsson, Hanna Lóra Bjarnadóttir
og barnabörn.
t Bróöir minn, SÆMUNDUR EYJÓLFSSON, Iré Furá, ölfusi, lést í Borgarspítalanum 23. febrúar. Kristín Eyjólfsdóttir.
t ÁRNI EINAR ÁRNASON lést í sjúkrahúsi Siglufjaröar 23. febrúar. Fyrir hönd aöstandenda, Hedveig Hulda Andersen.
t Sambýlismaöur minn, bróöir og mágur, JÓNAS BJÖRGVIN EIRÍKSSON, Höfðatúni, Fáskrúðsfirði, lést 23. þ.m. i Landakotsspítala. Jaröarförin ákveöin sföar. Valgeróur Vagnsdóttir, Sigmundur Eiríksson, Vilborg Ákadóttir, Stefán Eiríksson, Lena Berg, Siggeir Eiríksson, Sigurbjörn Eiríksson.
t Eiginmaöur minn, KRISTJÁN BJARNASON, fyrrverandi sóknarprestur, Nýbýlavegi 49, Kóp., veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Guörún Guómundsdóttir.
t Eiginmaöur minn og faöir okkar, SVAVARPÉTURSSON frá Laugarbökkum Skagafirói, Höfóahlió 13, Akureyri, veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 13.30. Sigríöur Helgadóttir og börn.
t Útför sonar okkar, SIGURÞÓRS SIGURÞÓRSSONAR, Galtarholti, Skilmannahrepp, er lést af slysförum 16. febrúar, fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 28. febrúar kl. 1.30. Sigurþór Guömundsson, Kristín Aóalsteinsdóttir og systkini.
t Minningarathöfn um elskulegan eiginmann minn, fööur okkar, tengdafööur og afa, son og bróöur, GUNNAR GUOJÓNSSON, vélsmiö, Blikahólum 2, Reykjavík, er lést af slysförum aðfaranótt 24. desember sl., fer fram í Foss- vogskirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 10.30 f.h. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnarfélag fslands. Fyrir hönd barna, tengdabarna og annarra ættingja, Borghildur Ásgeirsdóttir.
t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför BJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Brunnavöllum. Fyrir hönd aöstandenda, Helga Björnsdóttir.
Glerárhverfi á Akureyri:
Kirkjubygging hefst
væntanlega í sumar
Akureyri, 18. febrúar.
„Bygginganefnd getur fyrir sitt
leyti fallist á að kirkja verði reist á
umbeðinni lóð, en vísar erindinu til
skipulagsnefndar til umfjöllunar.“
„Skipulagsnefnd er samþykk er-
indinu og leggur til að með þessa
breytingu á aðalskipulagi verði
farið með samkvæmt 19. gr., 3. og
4. málsgrein skipulagslaga nr. 19
frá 1964. Jafnframt óskar nefndin
eftir að tillögur að deiliskipulagi
lóðarinnar verði lagðar fyrir
skipulagsnefnd."
Með þessum tveim tillögum,
sem samþykktar voru á síðasta
fundi bæjarstjórnar Akureyrar sl.
þriðjudag, eru að baki áralangar
vangaveltur um kirkjubyggingu
og staðsetningu hennar í Gler-
árhverfi á Akureyri.
Það mun fyrst hafa komið til
tals einhvern tíma á árabilinu
1930—40 að reisa kirkju í Gler-
árhverfi og mun séra Friðrik J.
Rafnar fyrstur manna hafa hreyft
því að kirkjunni yrði valinn staður
við Neðriás í hverfinu. Allt frá
þeim tíma hefur hugmyndum um
kirkjubyggingu skotið upp kollin-
um af og til — og þá jafnan reikn-
að með þessari staðsetningu. Það
var svo loksins á árinu 1981, þegar
Glerárhverfi hafði verið gert að
sérstakri kirkjusókn og Pálmi
Matthíasson verið kjörinn þar
prestur, að verulegur skriður
komst á þessi mál. En enn var það
svo, að lóðin Neðriás var enn efst í
hugum manna. En sá böggull
fylgdi skammrifi, að byrja hefði
þurft á því að kaupa fasteignir,
sem á lóðinni eru — og eins og við
var að búast voru fjárráð nýstofn-
aðs safnaðar ekki slík, að við það
yrði ráðið.
Því var það, að farið var að huga
að öðrum stað undir kirkjubygg-
ingu og staðnæmst við lóð sem
liggur sunnan Sjálfsbjargarhúss-
ins í Glerárhverfi. (Sjá meðf. upp-
drátt). í ljós kom, að Sjálfsbjörg
ha£4i fengið ákveðin vilyrði fyrir
lóðinni og var því leitað til félags-
ins og varð það fúslega við því að
falla frá henni. Lóð þessi stendur
hátt í hverfinu og góðar aðkomu-
leiðir eru að henni, þannig að
sóknarnefnd og prestur eru afar
ánægð með þessa úrlausn á lóða-
málum safnaðarins. Sóknarnefnd
skipa: Þormóður Einarsson, Katr-
ín Ingvarsdóttir, Guðrún Sigurð-
ardóttir, Ásgeir Oddsson og Hall-
dór Jónsson.
Hafist verður handa við fram-
kvæmdir strax og teikningar
liggja fyrir, en Svanur Eiríksson
arkitekt hefur tekið að sér að
teikna kirkjuna. í fyrstunni verð-
ur lögð áhersla á að ljúka bygg-
ingu safnaðarheimilis en áætlað
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
jaröarför
SVEINBJÖRNS ÞÓRHALLSSONAR
flugvirkja,
Hagamel 37.
Hardia Jónsdóttir,
Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir, Stefán Sveinbjörnsson,
Jóna María Sveinsdóttir, Jón Þór Sveinbjörnsson,
Jónína E. Guómundsdóttir,
Guöríöur Þórhallsdóttir, Sigurleif Þórhallsdóttir
og Guömundur Þórhallsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eigin-
manns míns, fööur, tengdafööur og afa,
ÓLAFS ÞÓRÐARSONAR
sfmafraeóings.
Hildigunnur Halldórsdóttir,
Guöfinna D. Ólafsdóttir, Rúnar Einarsson,
Áslaug B. Ólafsdóttir, Halldór Vilhelmsson,
Hjördfs I. Ólafsdóttir, Jón Kristjánsson
og barnabörn.
t
Alúöarþakkir fyrlr samúö og hlýhug viö andlát og útför
AÐALSTEINS JÓNSSONAR
frá Vaóbrekku.
Sérstakar þakkir flytjum viö starfsfólki SJúkrahússlns á Egilsstöö-
um.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Guórún Aöalsteinsdóttir,
Jóhanna Aóalsteinsdóttir,
Guðlaug Ingibjörg,
Aöalsteinsdóttir,
Jón Hnefill Aöalsteinsson,
Stefán Aóalsteinsson,
Sigrún Aöalsteinsdóttir,
Aöalsteinn Aóalsteinsson,
Hákon Aöalsteinsson,
Ragnar Ingi Aðalsteinsson,
Birgir Þór Ásgeirsson,
Kristján Jóhann Jónsson,
Jón Jónsson,
Helgi Bjarnason,
Ari Bergþórsson,
Svava Jakobsdóttir,
Ellen Sætre,
Sigríóur Siguróardóttir,
Sirrý Laufdal,
Sigurlfna Davfósdóttir,
Ragnheióur Ragnarsdóttir,
Dagný Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
er að kirkjan sjálf rúmi fullbyggð
250 manns í sæti og að auki verði
hægt að nýta safnaðarheimilið
með þannig að hægt væri að allt
að því að tvöfalda sætisfjölda í
kirkjunni. G.Berg
Nýjung í starfi
AFS á íslandi
— allt að þrítugum boð-
ið upp á sumardvöl
AFS á íslandi, sem hefur starfað að
alþjóðlegri fræðslu og samskiptum
sl. 25 ár, tekur nú upp nýjung í
starfi. Hér er um að ræða 2 mánaða
sumardvöl erlendis fyrir fólk á aldr-
inum 15—30 ára. Þetta er í fyrsta
sinn sem fólk upp að 30 ára aldri fær
tækifæri til þátttöku.
Megin áhersla er lögð á að
þátttakendur dvelji á heimilum og
kynnist raunverulegu fjölskyldu-
lífi í því landi þar sem þeir dvelja.
Þeim er ekki ætlað að búa þar sem
gestir heldur sem fjölskyldumeð-
limir. Þannig gefst fólki kostur á
að kynnast og taka þátt í daglegu
lífi venjulegrar fjölskyldu, í stað
þess að koma sem ferðamenn eins
og flestir verða að sætta sig við.
Fjölskyldutengsl eru einn mikil-
vægasti þátturinn í starfi samtak-
anna.
1 fyrra sendi ísland í fyrsta sinn
15—18 ára unglinga til sumar-
dvalar. Þeir fóru til Bandarfkj-
anna og Danmerkur. Þetta gafst
svo vel, að ákveðið var að nú í
sumar skildi reynt að senda til
nokkurra fleiri landa. Auk Dan-
merkur og Bandaríkjanna, sýndu
Finnland, Portúgal og Spánn því
mikinn áhuga að taka við fslensk-
um nemum. Nú er því hægt að
bjóða sumardvöl í þessum 14 lönd-
um Evrópu fyrir fólk 15—18 ára,
en í Bandaríkjunum fyrir fólk
15-30 ára.
Þeir sem fara til Bandaríkjanna
munu stunda enskunám f háskól-
um fyrstu 3 vikurnar, og er þátt-
takendum skipt niður eftir kunn-
áttu og aldri. Jafnframt ensku-
náminu fer fram kynning á
bandarísku þjóðlífi og sögu. I frí-
tímum verður boðið upp á ýmiss
konar kennslu, t.d. í bandarfskri
matargerð, þjóðlegri handmennt
og tölvufræði. Seinni 5 vikurnar
dvelja þátttakendur hjá bandar-
ískum fjölskyldum.
í Evrópulöndum fara allir þátt-
takendur á sérstök fræðslunám-
skeið þar sem kynnt er menning
og saga viðkomandi lands auk
þjálfunar í að tala málið. 1 Dan-
mörku verður einnig boðið upp á
2—3 vikna skóladvöl. Allir þátt-
takendur dvelja svo hjá fjölskyld-
um og fá þannig einstakt tækifæri
til að kynnast siðum og venjum
landsmanna af eigin raun.
Umsóknarfrestur um sumardvöl
er til 18. febrúar og er hægt að fá
nánari upplýsingar á skrifstofu
AFS að Hverfisgötu 39, Reykjavík.