Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 1

Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 1
68 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI OG 20 SÍÐNA ÚTSÝNARBLAÐI 49. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR I. MARS 1983 Prentsmidja Morgunblaðsins Olíuverð kann að lækka í 20 dollara Manama, Bahrain, 28. febrúar. AP. FULLTRÚAR olíuframleiðsluríkjanna við Persaflóa tilkynntu í dag, að þeir biðu niðurstöðu fundar annarra olíuframleiðsluríkja í París áður en þeir tækju ákvörðun um hversu mikið þeir lækkuðu verð á hráolíu sinni. Það eru fulltrúar frá Venezúela, Alsír og Kuwait, sem ræðast nú við í París, en fundur þeirra í dag um leiðir til þess að afstýra hugs- anlegu verðstríði innan OPEC stóð aðeins í um klukkustund. Engin yf- irlýsing var gefin út að honum loknum. Háttsettur embættismaður í Orðrómur um byltingu Aþenu, 28. febrúar. AP. GRÍSKA ríkisstjómin harðneitaði í dag sterkum orðrómi, sem verið hefur á kreiki í höfuðborginni, þess efnis að bylting af hálfu hersins standi fyrir dyrum. Þetta var öðru sinni á aðeins sólarhring, að ríkis- stjórnin neitaði því að bylting væri í aðsigi. Forsíður grískra dagblaða voru í dag undirlagðar af fréttum þar sem sagði, að hópur hægri- sinnaðra foringja innan hersins hygði á byltingu í kjölfar æfinga hers og lögreglu í Aþenu um helgina. Sterkur orðrómur þess efnis, að Papandreou. forsætisráð- herra, og Konstantin Kara- manlis, forseta landsins, yrði rænt barst eins og eldur í sinu um höfuðborgina í gær. Staðfest var af hálfu yfirvalda, að örygg- isgæsla við heimili forsætisráð- herrans og forsetasetrið í mið- borg Aþenu hefði verið aukin. Forskot Verka- mannaflokksins Lundúnum, 28. febrúar. AP. ÞRÁIT fyrir innbyrðisdeilur og niður- lægjandi ósigur í Bermondsey í síðustu viku hefur breski Verkamannaflokkur- inn iirugga forystu í skoðanakönnun fyrir aukakosningarnar í Darlington í næsta mánuði. Samkvæmt könnuninni hefur flokkurinn 38% fylgi þeirra er taka afstöðu, á móti 32% kosningabanda- lagsins og 30% íhaldsflokksins. Kuwait varaði við því í dag, að olíuframleiðsluríkin við Persaflóa gripu til eigin aðgerða til þess að vernda hagsmuni sína ef ekki næð- ist eining innan OPEC um lækkun á verði og framleiðslukvótum. Sagði embættismaðurinn, að ríkin við Persaflóa myndu ekki standa aðgerðarlaus gagnvart þeim meðlimum OPEC, sem ekki hlíttu ákvörðunum samtakanna. Átti hann þar augljóslega við Níg- eríumenn, sem lækkuðu olíuverð sitt um 5,50 dollara. Kuwait-menn vöruðu í gær við því, að verð á olíu kynni að lækka niður í allt að 20 dollara tunnan. Sögðu embættismenn þarlendis, að 34 dollara verðið á olíunni nú stæði völtum fótum og grípa yrði til áhrifaríkrar lækkunar til þess að svara verðlækkunum keppinaut- anna. Gullverð lækkaði mjög í dag vegna óttans um lækkandi olíu- verð. Verð á únsu lækkaði um 48,53 dollara á mörkuðum í Lundúnum og var við lokun 415,25 dollarar. í Zurich var verðið enn lægra, eða 405 dollarar og hefur lækkað um 20% á 6 dögum. Símamynd AP. Drottning á meöal stjarna Elísabet II Bretadrottning heilsar hér George Bums eftir sérstaka sýningu, sem hann ásamt öðrum frægum leikurum setti sérstaklega á svið fyrir drottningu í Hollywood. Lengst til vinstri er Frank Sinatra, þá söngkonan Dionne Warwick. Viðurkenna andstöðu pólskra menntamanna Varsjá, 28. febrúar. AP. WOJCIECH Jaruzelski, leiðtogi pólska kommúnistaflokksins, sagði f ræðu um helgina, að óheillavænleg þróun hefði átt sér stað innan raða pólskra menntamanna á undanförn- um árum og viðurkenndi jafnframt, að yfirvöld mættu þráfaldlegri and- stöðu þess hóps. Nefndi Jaruzelski sérstaklega hópa vísindamanna, svo og háskóla- Líkurnar á víðtækari átökum aukast að mun Tel Aviv, 28. febrúar. AP. HEIMILDIR innan ísraelska hersins hermdu í gær, að komið hefði verið fyrir fjórum eldflaugsveitum, alls 24 skotpöllum, með sovéskum SA-5 eld- flaugum í Sýrlandi. Sagði einnig, að nokkur hundruð Sovétmanna væru í Sýrlandi í tengslum við fiaugarnar. Tvær sveitanna eru rétt utan Damskus og hinar tvær eru norðan landamæranna við Líbanon. Caspar Weinberger, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag, að mikil hætta stafaði af sovésku SA-5 langdrægu eld- flaugunum í Sýrlandi. Sagði ráð- herrann í viðtali við NBC-sjón- varpsstöðina, að eldflaugarnar og vera Sovétmannanna í Sýrlandi yki líkurnar á viðtækari átökum í Miðausturlöndum að mun. Philip Habib, sérlegur sendi- maður Bandaríkjastjórnar í Mið- austurlöndum, kom í dag til ísrael með nýjar tillögur frá Líbönum til lausnar deilunnar um brottflutn- ing erlendra herja úr landinu. Habib neitaði að tjá sig um tillög- urnar, en sagði, að í þeim fælist e.t.v. lausn á vandanum. Shafik Wazzan, forsætisráð- herra Líbanon, lýsti því yfir í gær, að hann teldi sig vongóðan um lausn á deilunni um brottflutning erlendra hermanna frá landinu. Sagði Wazzan tillögur Banda- ríkjamanna hafa glætt vonir þar- lendra ráðamanna. Bandarískir hernaðarsérfræð- ingar vinna nú að gerð tillögu um hvernig tryggja megi norður- landamæri ísraela fyrir árásum úr suðurhluta Líbanon með tilliti til þess, að fulls öryggis banda- rískra friðargæsluliða í landinu verði gætt. Inntakið í tillögunni er sagt vera á þá leið, að Bandaríkja- menn noti könnunarflugvélar og ómannaðar vélar til þess að fylgj- ast með hræringum í suðurhluta Líbanon. prófessora. Sagði hann breyt- ingarnar í röðum þeirra á stundum óskaplegar og greinileg merki væru víða um afturför í hugsanagangi. Þá sagði leiðtoginn í ræðu fyrir viku, að hin nýju verkalýðsfélög landsins ættu í erfiðleikum vegna undirróðursstarfsemi á vegum fyrr- um félaga Samstöðu. Aðeins um 1,2 milljónir manna hafa gengið í nýju verkalýðsfélögin frá því þau voru sett á laggirnar í ársbyrjun, en meðlimir Samstöðu voru 9,5 millj- ónir. Tilkynnt var í dag, að fimm manns hefðu verið handteknir fyrir utan kirkju í gær, sökuð um að færa sér trúarathafnir í nyt til þess að koma á óeiningu. Atburður þessi gerðist í norðurh'uta Varsjár í kjölfar mjög fjölmennrar guðsþjón- ustu til minningar um Samstöðu, sem talið er að 5—8.000 manns hafi sótt. Slíkar guðsþjónustur hafa ver- ið síðasta sunnudag í hverjum mán- uði allt frá því starfsemi Samstöðu var bönnuð. Allt virtist með felldu að guðs þjónustunni lokinni, en þegar fólk rölti af stað heimleidis mættu þeim um 200 óeirðalögregiumenn með öfluga vatnsdælu að baki sér. Er þetta í fyrsta sinn frá áramótum, að vatnsdæla sést á götum úti. Voru fimm handteknir sem fyrr sagði. Hitnar f kolunum í v-þýsku kosningabaráttunni: Vogel höfðar mál vegna ærumeiðandi ummæla Bild Bonn, 28. fcbrúar. AP. T/EP VIKA er nú til þingkosninga í V-Þýskalandi og tekið er að nitna heldur bctur í kolunum í kosningabaráttunni. Hans-Joachim Vogel höfðaði í dag mál á hendur stórblaðinu Bild fyrir ærumeiðandi ummæli. Blað- ið sagði í frétt um helgina, að Vogel hefði verið foringi í ung- liðahreyfingu Hitlers í Giessen á unglingsárum sínum. Staðfest hefur verið af flokki Vogels, Sósíaldemókrötum, SPD, að bæði hann og Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, hafi verið meðlimir í ungliðahreyfingu Hitl- ers á sínum tíma, en af og frá sé að þeir hafi verið foringjar innan hennar. Willy Brandt, formaður SDP og fyrrum kanslari, sagði í dag, að ummælin um Vogel í Bild væru einungis til þess að eitra and- rúmsloftið fyrir kosningarnar á sunnudag. Kohl lagði aðaláhersluna á hættuna sem stafaði af sovéskum eldflaugum í ræðum sínum í kosn- ingabaráttunni um helgina. Vogel brýndi hins vegar fyrir mönnum hættuna á kreppu. Kohl sagði í útvarpsviðtali, að óþarfi væri fyrir V-Þjóðverja að láta slá ryki í augu sér varðandi sovéskar eldflaugar. Ekki mætti gleyma því, að yfir 300 SS-20 eldflaugum væri beint að Evrópu og þar með V-Þýskalandi. Þá lagði kanslarinn áherslu á, að hann væri reiuðubúinn til við- ræðna við Yuri Andropov, leið- toga Sovétmanna, eftir kosn- Hans Joachim Vogel ingarnar á sunnudag, fari svo að hann nái kjöri. Atti að myrða Lech Walesa? Róm. 28. fcbrúar. Al*. BÚl.GARINN, sem sakaöur er um að- ild aó morðtilræöinu við Jóhannes l’ál páfa II í maí 1981, er nú einnig grunað- ur um aðild að samsæri um að ráða Lech Walesa af dögum. Skýrt var frá þessu í tveimur ítnlskum fréttastofum í dag. Samkvæmt heimildum frétta- stofanna mun Tyrkinn, sem skaut páfa, hafa átt viðræður við Búlgar- ann um að ráða Walesa af dögum. Er nú veriö að rannsaka hugsanlegan þátt ítalska verkalýðsleiðtogans, Luigi Scricciolo, i samsærinu. Verkalýðsleiðtoginn átti þátt i að undirbúa heimsókn Walesa til ítaliu nokkrum mánuðum eftir að Sam- staða var stofnuð. Scriccolio situr nú í fangelsi vegna ákæra um njósnir og hryðjuverkastarfsemi. T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.