Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 5 Líf og friður: Höfuðbiskupar Norðurlanda boða til friðarráðstefnu DAGANA 20.—24. apríl verður hald- in í Uppsala i Svíþjóð mikil friðar- ráðstefna, sem boðað er til af höfuð- Óskarsverðlaunin: * Islendingur höfundur útnefndrar heimilda- myndar MEÐAL þeirra fimm heimilda- kvikmynda, sem útnefndar hafa ver- ið til Oskarsverðlauna, er kvikmynd- in After The Axe eftir Sturla Gunn- arsson og Steve Lucas, en framleið- andi er National Film Board of Canada. Sturla Gunnarsson er sonur Snorra Gunnarssonar og Ásthild- ar Tómasdóttur, en þau hjón fluttu til Kanada fyrir um 20 ár- um. Framboðslisti Alþýðubandalags á Reykjanesi: Geir Gunnars- son skipar efsta sætið Á FUNDI kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins í Reykjaneskjördæmi á laugardag var ákveðinn framboðs- listi flokksins fyrir komandi Alþing- iskosningar. Efstu fimm sæti listans skipa: 1. Geir Gunnarsson alþingismað- ur, Hafnarfirði. 2. Elsa Kristjáns- dóttir oddviti, Sandgerði. 3. Guð- mundur Árnason kennari, Kópa- vogi. 4. Þorbjörg Samúelsdóttir verkakona, Hafnarfirði. 5. Gylfi Guðmundsson kennari, Keflavík. Sérframboð kvenna ákveðið í Reykjavík I undirbúningi á Norðurlandi eystra og til athugun- ar á Reykjanesi Á FUNDI sem áhugamenn um fram- boð kvennalista héldu að Hótel Borg í Reykjavík á laugardaginn var ákveðið að bjóða fram kvennalista í Reykjavíkurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Listinn verður væntanlega boðinn fram undir heit- inu „Kvennalistinn“, að sögn Krist- ínar Ástgeirsdóttur, framkvæmda- stjóra hjá Kvennaframboðinu. Kvennaframboðskonur á Akur- eyri gengust fyrir tveimur fundum um helgina, á Akureyri og Dalvík, til að athuga undirtektir við kvennaframboði í Norðurlandi eystra. Á báðum fundunum voru samþykkar tillögur þess efnis að ganga frá undirbúningi uppstill- ingarlista. Þá hafa verið boðaðir þrír fund- ir í Reykjaneskjördæmi á næst- unni, þar sem kannaður verður áhugi kvenna þar á sérframboði. biskupum Norðurlanda. Efni ráð- stefnunnar verður friður og afvopn- unarmál, en ráðstefnan hefur verið kynnt undir heitinu Líf og friður. Á ráðstefnuna munu koma fulltrúar kirkjunnar og kirkjuhreyfinga vítt og breitt um heiminn, og mun herra Pétur Sigurgeirsson biskup fara af íslands hálfu. í fréttabréfi sem aðstandendur ráðstefnunnar sendu frá sér, segir að tiigangur ráðstefnunnar sé að leggja áherslu á vilja og samstöðu kirkjunnar um að berjast fyrir friði á jörð. Með því að sýna slíka samstöðu geti kirkjan þrýst á ráðamenn að taka raunveruleg skref í átt til slökunar og afvopn- unar. Þá verður það verkefni ráðstefnunnar að reyna að ná samkomulagi um ákveðnar kröfur stílaðar til helstu stjórnmálaleið- toga heimsins um raunhæfar að- gerðir til takmörkunar vopna í heiminum. Einnig verður leitast við að komast niður á sameigin- legan grundvöll sem kirkjunnar menn um allan heim geta staðið á varðandi framtíðaraðgerðir í þágu friðar og afvopnunar. Sú spurning verður einnig rædd á ráðstefnunni hvort notkun, framleiðsla og hót- un á notkun kjarnorkuvopna sé í samræmi við eða brjóti gegn vilja guðs. Morgunblaðið hafði samband við biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, og innti hann eftir því hvort íslenska þjóðkirkjan mundi ganga til þessa fundar með einhverjar fastmótaðar hugmynd- ir eða tillögur. „Ekki aðrar en þær,“ sagði Pétur, „sem komu fram í samþykkt okkar á Presta- stefnunni á Hólum í júlí í fyrra. Þar fordæmdum við geigvænlegan vígbúnað í heiminum, og bentum á að friðar- og afvopnunarmál séu ofar flokkssjónarmiðum stjórn- málaflokkanna, og því hljóti allir menn — kirkjunnar menn ekki síst — að vera kallaðir til ábyrgð- ar og aðgerða. En það er eitt mál sem mér er ofarlega í huga í sambandi við friðarbaráttuna, en það er barna- uppeldi. Hvernig staðið er að upp- eldi barna í dag hlýtur að hafa mikil áhrif á það hvort friðvæn- legt verði á jörðinni í framtíðinni. Ég vil nota tækifærið og minna á að fyrsta sunnudaginn í mars er árlegur æskulýðsdagur kirkjunn- ar, og ber hann einmitt yfirskrift- ina Uppeldi til friðar. Og við skul- um hafa hugfast það sem Jóhann- es Páll páfi II. sagði: Nú verðum við öll að byggja upp friðinn, stein eftir stein eins og dómkirkju. Sérframboö sjálfstæöis- manna á Vestfjördum: Skodanakönnun um röðun á lista 5.—6. marz nk. ÁKVEÐIÐ hefur verid að efna til skoðanakönnunar um frambjóðend- ur á lista sérframboðs sjálfstæð- ismanna á Vestfjörðum dagana 5.-6. marz nk. Frambjóðendur í skoðanakönn- uninni eru: Guðjón Kristinsson skipstjóri ísafirði, Halldór Her- mannsson skipstjóri ísafirði, Hjálmar Halldórsson rafvirki Hólmavík, Jöna Kristjánsdóttir húsfreyja Alviðru, Dýrafirði, Jón- as Eyjólfsson lögreglumaður Hnífsdal, Kolbrún Friðþjófsdóttir kennari Litlu-Hlíð, Barðaströnd, Sigurlaug Bjarnadóttir mennta- skólakennari Reykjavík og Þórar- inn Sveinsson búnðarráðunautur Hólum, Reykhólahreppi. Hafskiphfopnar * ' ‘ ’ónustuskrifstofu í manna höfh l.mars Hafskip — Danmark A/S. Færgehavn Nord Skudehavnsvej 2, 2100 Köbenhavn Ö Sími: (01) 185455 Telex: 19745 Forstöðumaður: Árni Árnason, viðskiptafræðingur. Nýr áfangi er nú í þjónustustarfi Hafskips hf. Frá 1. marsopnum viöeigin þjónustuskrifstofu í Norðurhöfninni í kóngsins Kaupmannahöfn, en þangað koma skip félagsins vikulega. Við flytjum einnig vöruafgreiðslu félagsins úr Fríhöfninni, á sama stað. Hvorutveggja til mikils hagræðis fyrir viðskiptavini okkar. Tilgangur Hafskips hf. með eigin þjónustuskrif- stofum erlendis er margþættur: • íslenskir aðilar gæta íslenskra hags- muna erlendis. • Beinni og persónulegri þjónusta. • Aukin hagkvæmni, - þ.e. lækkun erlends tilkostnaðar. — Þessu starfi höldum við áfram. Okkar menn-þínir menn HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.