Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983
19
Tveir njósnarar
flúðu frá Ítalíu
Hóm, 28. Tebniar. AP.
TVEIR sovéskir sendiráðsstarfsmcnn, sem fóru frá ftalíu eigi alls fyrir löngu, eru
grunaðir um að hafa njósnað í vitorði með Sovétmönnunum tveimur sem hand-
teknir voru í febrúar, eftir því sem ítalskt vikurit telur sig hafa heimildir fyrir.
Blaðið Panorama segir, að Sovét-
mennirnir, Ghennadi Tchufyrey og
Youri Missiouk, hafi flýtt sér úr
landi eftir handtöku Victors Pronine
og ítalans Azelio Negrino. Skömmu
eftir handtökurnar var síðan annar
Rússi hnepptur í varðhald eins og
frá hefur verið greint, Victor Koni-
aev. Panorama segir þá Tchufyrey
og Missiouk vera félaga í umfangs-
miklum njósnahring Sovétmanna á
Ítalíu og starf þessa hrings hafi ver-
ið og sé að afla upplýsinga um hern-
aðarmannvirki NATO í landinu og
áform hernaðarbandalagsins í land-
inu, liðsflutninga, vopnabúr o.fl.
Panorma nafngreindi ekki heim-
ildarmenn sína, en sovéska sendiráð-
ið staðfesti að umræddir Rússar hafi
farið til Sovétríkjanna á dögunum.
Sendiráðið neitaði hins vegar að tjá
sig um ásakanir blaðsins og það
gerði ítalska utanríkisráðuneytið
einnig.
Mannréttindi
fótum troðin
(■«111, 28. rehrúar. Al*.
FYRSTA skýrsla Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í íran birtist í dag
og var þar að finna ógnvekjandi tölur um aftökur og pyntingar, svo og yfirlýsingar
íranskra stjórnvalda, sem segja tölurnar rangar og vestrænan áróður.
Skýrslan, sem er sextíu blaðsíðna
löng, var lögð fyrir fund í mannrétt-
indanefnd SÞ.
Þar kemur fram að sannanir liggi
fyrir um „fjölda aftaka og pyntinga"
og séu konur og börn þar ekki und-
anskilin. Einnig var minnst á með-
limi Baháí-safnaðarins sem fórnar-
lömb stjórnvalda.
I skýrslunni er haft eftir Mas’Ud
Radjavi, útlægum leiðtoga, að u.þ.b.
50.000 pólitískir fangar hafi verið í
haldi í írönskum fangelsum í sept-
ember síðastliðnum og alls hafi
20.000 manns verið teknir af lífi af
núverandi valdhöfum, „flestir vegna
skoðana sinna".
Wales:
Námumenn
í verkfalli
( ardiff, Wales, 28. febrúar. AP.
I’KJII HUNDKUf) námuverkamenn lögðu undir sig aðalstöðvar kolaráðs ríkisins
í Wales í morgun og námuvcrkamcnn í Suður-Wales gengu úr störfum sínum til
að mótmæla fyrirhugaðri lokun á námu sem ekki ber sig.
I dag hófst verkfall 23.500 námu-
verkamanna í Wales og stóðu mót-
mælendur á þaki hinnar þriggja
hæða háu byggingar aðalstöðvanna
og tóku yfir skrifstofur og skipti-
borð.
„Tilgangurinn með verkfallinu í
dag er að sýna þeim sem völdin hafa
í þessum málum að við erum ekki
lengur reiðubúnir til að leika síg-
auna iðnaðarins sem eru fluttir frá
einni námu til annarrar," sagði leið-
togi námuverkamannanna, Hugh
Edwards.
NÁMSKEIÐ í JAPANSKRI STJÓRNUN
FYRIR STJÓRNENDUR FYRIRTÆKJA OG STOFNANA
— HYGGINDI SEM í HAG KOMA —
J. INGIMAR HANSSON
Fyrirlesari
Ingimar fór nýlega i námsferð til Japan
Ferðin var skipukjgð af Bandaríska Iðnaðar-
verkf ræðingafélaginu.
Auk námskeiða í japanskri stjómun var farið i
heimsóknir til iðnfyrirtækja
J. Ingimar Hansson er rekstrarverkfræðingur
að mennt og stofnaði Rekstrarstofuna 1974
GUNNAR H. GUÐMUNDSSON
Fyrirlesari
Gunnar hefur annast athuganir þær sem
Rekstrarstofan hefur staðið fyrir á |apanskn
iðnaðaruppbyggingu og áhrifum hennar i
Bandaríkjunum og á vesturiöndum.
Gunnar K. Guðmundsson er rekstrarverk-
fræðingur að mennt og er ráðgjafi á sviði
stjórnunar, skipulags, upplýsingakerla og
tölvumála.
BOLLI MAGNUSSON
Fundarstjón
Bolli starfaði um skeið í Japan sem fulltrúi
togarakaupenda og kynntist starfsháttum við
skipasmiðar þar í landi.
Bolli Magnússon er skipatæknifræðingur að
mennt og er ráðgjafi á sviði skipasmiða og
útgerðar
Lærum af forystuþjóð á sviði stjórnunar.
Veist þú:
• Hvaö núllgallastefna er?
• Hvers vegna aukin gæöi leiöa til lægri framleiðslukostn-
aðar?
• Hvaö er Poka Yoke?
• Hvers vegna blönduð framleiösla er hagkvæmari en fjölda-
framleiösla?
• Af hverju verkföll eru nær óþekkt í stærri iðnfyrirtækjum í
Japan?
• Hvernig staðiö er aö starfsmenntun í Japan?
• Hvernig unnt er aö ná og viðhalda miklum afköstum?
• Hvaö núllbirgöastefna er?
• Hver eru tengsl iðnfyrirtækja og banka í Japan?
• Er allt sem sýnist?
Fimmtudaginn 3. mars n.k. veröur haldið námskeiö í japanskri
stjórnun. Námskeiðið ferfram aö Hótel Loftleiðum, Kristalsal kl.
13.30 til 18.00. Þátttökugjald kr. 2500 -
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 44033 sem
fyrst. Fjöldi takmarkaður.
Ráögjafaþjónusta
Stjórnun — Skipulag
Skipulagning — Vinnurannsóknir
Flutningatækni — Birgðahald
Upplýsingakerfi — Tölvuráðgjöf
Markaðs- og söluráðgjöf
Stjómenda- og starfsþjálfun
REKSTRARSTQFAN
— Samstarf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum —
Hamraborg 1 202 Kópavogi
Sími 91 - 44033
Hryðjuverka-
menn dæmdir
(ienoa, Ítalíu, 28. febrúar. AP.
IXIMSTÓLL í Genóa dæmdi í gær
10 félaga úr Rauðu herdeildunum
ítölsku til ævilangrar fangelsisvistar.
Umræddir tíu hryðjuverkamenn
voru uppvísir að sex morðum á árun-
um frá 1978 til 1980.
Sex hinna dæmdu voru auk þess
viku áður dæmdir til ævilangrar
fangelsisvistar fyrir morðið á
Aldo Moro árið 1978.
99 bílar
skullu saman
Munrhen, 28. febrúar. AP.
SEX manns slösuðust alvarlega og
nokkrir til viðbótar hlutu minni hátt-
ar meiðsli er eigi færri en 99 bifreið-
ir skullu saman í einu og sama
óhappinu sem átti sér stað á Nurn-
berghraðbrautinni skammt frá Ing-
olstadt.
Bílahrúgan náði yfir 4 kíló-
metra svæði og öll umferð tepptist
í rúmar þrjár klukkustundir.
Hálka var talin slysvaldurinn.
Höfðabakka 9,
Reykjavík.
S.85411
Hvítir, svartir og kornóttir
Kúlulampar, og allt í Stíl —
skermar, kertastjakar, vasar,
skálar og öskubakkar.
Austurstræti 8,
Reykjavík.
S. 14220