Morgunblaðið - 01.03.1983, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 01.03.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 25 • Hverju sem um er að kenna þá viröist sem íslensku landsliðsmennirnir í hand knattleik »tli ekki að ná sér neitt i strik í B-keppninni í Hollandi. • Jóhannes Stefánsson batt íslensku vörnina vel saman og átti góöan leik gegn Sviss. Hér sést hann skora með liöi sínu KR. 1. deild kvenna: Sigurganga KR óslitin EKKERT virðist getað stöðvað sigurgöngu KR-steipnanna í 1. deild kvenna í körfubolta. Þær hafa nú þegar tryggt sér íslandsmeistara- titilinn þrátt fyrir að þær eigi enn þrjá leiki eftir. Yfirburðir þeirra í vetur hafa verið ótrúlega miklir og hefur ekkert liö náð að ógna veldi þeirra. ÍS vann Hauka ÍS VANN Hauka í 1. deild kvenna í körfubolta á sunnudaginn. Hauka-stelpurnar höföu yfir 9—8 þegar 8 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik en þá fannst ÍS-dömunum nóg komiö og skoruöu 8 stig í röð. Staöan í hálfleik var síðan 22—11 fyrir ÍS, í síðari hálfleik var aldrei spurning hvort liöið væri sterkara og ÍS-dömurnar unnu öruggan sigur, 42—29. Hjá ÍS sýndu þær Kolbrún og Elísabet skemmtileg tilþrif, en hjá Haukum voru þær bestar Sóley og Sólveig. Stig ÍS: Kolbrún Leifsdóttir 12, Ragnhildur Stainback 8, Elísabet Sveinsdóttir 5, Þórdís Krist- jánsdóttir 5, Kristjana Gunnarsdóttir 5, Guðbjörg Þórisdóttir 5 og Margrét Eiríksdóttir 2 stig. Stig Hauka: Sóley Indriöadóttir 10, Svanhildur Guðlaugsdóttir 7, Sólveig Pálsdóttir 6, Ragnheið- ur Júliusdóttir 4 og Anna Guðmundsdóttir 2. Á sunnudagskvöldið bættu þær enn einum sigri við í safnið og urðu ÍR-dömurnar að þessu sinni fyrir baröinu á KR. KR haföi 8 stiga for- ystu þegar fyrri hálfleikur var hálfnaöur og staöan í leikhlé var síðan 31—20 fyrir KR. Seinni hálf- leikur var frekar jafn og lokatölur urðu síðan 53—42. Emilía Siguröardóttir lék ekki með KR og Linda Jónsdóttir fór út af á 10. mínútu s.h. En það haföi engin áhrif á íeik KR og sýnir það hversu góö breidd er í liöinu. Hjá KR voru þær Linda Jóns- dóttir meö 20 stig og systir hennar Erna Jónsdóttir, sem var meö 10 stig, bestar, en einnig var Kristjana Hrafnkelsdóttir ágæt. j liöi ÍR voru þær Guðrún Gunnarsdóttir meö 14 stig og Þóra Steffensen meö 12 stig bestar. Staðan í 1. deild kvenna: KR 13 13—0 864:504 26 ÍR 12 6—6 515:541 12 UMFN 12 6—6 523:666 12 ÍS 12 4—8 488:557 8 Haukar 13 2—11 550:669 4 Alfreð Gíslason: „Þetta var úrslitaleikur fyrir íslenskan handknattleik“ Frá Skapta liallgrímssvni Hollandi. VIÐ GERÐUM okkar místök í þessum leik en við erum mjög ánægðir með sigurinn. Það var allt annar andi í liðinu núna en gegn Spáni. Þá var komin upp- gjöf í menn fyrir leikinn. Þá voru einn eða tveir aö berjast en nú voru allir meö sagði Alfreö Gísla- son eftir leikinn gegn Sviss. — Ég var aldrei hræddur um tap í þess- um leik, mér fannst leikmenn Sviss vera mjög taugatrekktir í leiknum. Það háði mér nokkuð í leiknum að mér var vikiö tvívegis af leikvelli strax í upphafi leiksins, ég gat ekki beitt mér eins og skyldi í varnar- leiknum, sagöi Alfreö. Upplýsingar danska landsliðsþjálfarans Leif Mikkaelsen um að það ætti að skjóta uppi á svissneska mark- vörðinn komu okkur í koll. Þær sýna að svona upplýsingar má aldrei taka of alvarlega, bætti Al- freð við. — Við gerðum okkur grein fyrir því að þessi leikur var úrslitaleikur fyrir íslenskan handknattleik á næstu árum. Það var hætta á því að við færum niður í C-riðil ef leik- urinn tapaöist. Sigur í leiknum þýddi að við vorum öruggir í B-riðlinum og nú getum við andaö léttar. Jóhannes Stefánsson: „Báðir leikir okkar liafa verið mjög slakir" Frá bladamanni Mbl. á HM-keppninni í handknattleik í Hollandi. — ÞAO er snöggtum skárra að fá að taka þátt í leíknum en aö þurfa að sitja fyrir utan. Leikinn unnum við miklum baráttuvilja okkar. Eins og baráttan var á móti Spáni vinnum við ekki leik. Þetta svissneska lið er ekkert sérstakt. Þriggja til fimm marka sigur gegn þeim er bara eðlilegur. Báðir leikir okkar hafa verið slakir hingað til. Við erum ekki farnir að sýna okkar rétta andlit og góðan handknattleik í ferðinni. Ef við vinnum einn leik í keppni efstu liða gæti farið svo að við höfnuðum í 3. til 4. sæti. A góðum degi eigum viö aö geta unnið þessi liö, þau eru Handknattlelkur V_________________/ ekki ofjarlar okkar. Ég trúi til dæmis ekki öðru en að við getum staðið í sænska liðinu. Við höfum allt að vinna úr þessu. Steindór Gunnarsson sagði, aö sigurinn gegn Sviss væri ánægju- leg úrslit. Uppskera mikils erfiöis. Það var mikil spenna hjá báðum liðum. Við unnum á því að Sviss- lendingarnir voru yfirspenntir. Þessi landsliðshópur er einn sá besti sem ég hef verið í, sagði Steindór. B-keppnin í Hollandi: íslenska lióið þurfti ekki að sýna neinn stórleik til þess að sigra Svisslendinga Sóknarnýting íslenska liðsins var 38,7% Frá blaðamanni Morgunblaðsins Skapta Hallgrimssyni í Hollandi: ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik þurfti ekki að sýna neinn stórleik til að leggja Svisslendinga að velli í íþróttahöllinni hér í Visslingen á sunnudag. En sigur vannst í leiknum; þeim leik sem menn vissu að kæmi til með að verða sá þýðingarmesti fyrir ísland í riðlinum. Svisslendingar áttu ekki mikla mögu- leika gegn íslendingum þrátt fyrir að enn væru okkar menn nokkuð frá sínu besta, og einhvern veginn fannst manni sigur- inn aldrei vera í neinni hættu. Þegar upp var staðið hafði ísland sigrað með 19 mörkum gegn 15, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10—8 fyrir ísland. Það sem einkenndi leik liðanna hvað mest var mikil tauga- spenna. íslensku leikmennirnir vissu að ef leikurinn tapaðist, væru þeir í mikilli hættu og baráttan yrði hörð um áframhald- andi veru í B-riðli. Fyrir Sviss þýddi tap gegn íslandi, að þeir yrðu að vinna Spán til þess að komast í keppni efstu liða. Telja verður næsta litla möguleika á því eftir tapið gegn íslandi. Því að svissneska liðið er alls ekki gott. ísland haföi ávallt forystuna: íslenska liðið hafði nær alltaf forystuna í leiknum gegn Sviss. Sviss skoraði fyrsta markið en Al- freð jafnaöi strax og var það i eina skiptið, sem jafnt var í leiknum. ísland komst yfir, 2—1, og var síö- an yfir allt til leiksloka. Mestur var munurinn fjögur mörk nokkrum sinnum í leiknum og svo í lokin. I hálfleik var staðan 10—8 fyrir Island. Fyrri hálfleikur- inn einkenndist af taugaspennu og mikilli baráttu. Greinilegt var að leikmenn beggja liða gerðu sér grein fyrir því hversu þýðingarmik- ill leikurinn var. I upphafi siðari hálfleiksins náði Sviss að minnka muninn niöur i eitt mark, 10—9. En sú dýrð þeirra stóð ekki lengi. Með góöum leik- kafla náði Island öruggri forystu, 13—9, og eftir það var aldrei nein hætta á að leikurinn tapaöist. Það var athyglisvert að fyrstu 13 mínútur leiksins klúðraði islenska liðið átta skotum, markvörður Sviss varöi sex skot og eitt fór framhjá og eitt í stöng. íslenska liðið: Allt annað var aö sjá til íslenska liðsins í þessum leik en gegn Spánverjum. Leikmenn börðust af krafti og voru grimmir i vörninni. Brynjar Kvaran stóð í markinu og varði ágætlega og nokkrum sinn- um mjög vel, á mikilvægum augna- blikum. Jóhannes Stefánsson sem var einn þeirra fjögurra sem hvíldi gegn Spáni, spilaði nú með að mestu leyti í varnarleiknum og var mjög góður. Hann hvatti menn V i J • Brynjar Kvaran varði vel gegn Sviss. afram og batt vörnina saman. Auk þeirra átti Páll Ólafsson ágætan leik ásamt Guðmundi Guðmunds- syni. Alfreð átti góða spretti inn á milli. Svisslendingar eru engin stór- þjóð i handknattleik. Þeir eru með léttleikandi lið, en ekki góðar skyttur. Vörn þeirra er slök og sóknarleikur frekar fálmkenndur. Þaö er athyglisvert að í öðrum landsleiknum i röð er sóknarnýting íslenska liðsins afspyrnu slök eða aðeins 38,7% á móti Sviss. Ekkert til að hrópa hurra fyrir. Mörk Islands i leiknum skoruðu þessir leikmenn: Kristján Arason 5, 3 v, Guðmundur Guðmundsson 4, Alfreð Gíslason 4, Páll Ólafsson 3, Sigurður Sveinsson 2, 1 v, og Bjarni Guðmundsson 1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.