Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983
Dagatal
fylgiblaóanna
ALEEAP Á MÍIÐJUDÖGUM
IÞROTEA.
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
AUtaf á fóstudögum
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
ALLTAFÁ SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Fimm sinnum í viku fylgir
auka fróóleikur og skemmtun
Mogganum þínum!
Niðurstöður skoðanakönn-
unar um jafnan kosningarétt
Skoöanakönnun um
jafnan kosningarett
28. febrúar 1983
NIDURSTÖDUR SUNDURLIDADAR EFTIR KJÖRDÆMUM
SvÖr Reykjavxk Reykjanes Landiö utan R*R Alls
Spurningar Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fiðldi %
1. spurning:
rjölga þingmönnum 292 3.1 135 2.7 19 4.1 446 3.0
Fækka þingmönnum 5.866 61.7 3.157 63.1 249 54.4 9.272 61.9
öbreyttur fjöldi 3.226 33.9 1.682 33.6 185 40.4 5.093 34.0
Auöir 122 1.3 30 0.6 5 1.1 157 1.0
2. spurning: Jafna aö fullu 8.004 84.2 4.207 84.1 196 42.8 12.407 82.9
Jafna aö hluta 921 9.7 534 10.7 132 28.8 1.587 10.6
Láta óbreytt 322 3.4 176 3.5 110 24.0 608 4.1
Auðir 259 2.7 87 1.7 20 4.4 366 2.4
3. spurning: Núverandi kjördæmi 1.919 20.2 1.079 21.6 10 5 22.9 3.103 20.7
Einmenningsk jördáemi 1.062 11.2 607 12. 1 72 15.7 1.741 11.6
Landiö eitt kjördæmi 5.989 63.0 3.089 61.7 179 39.1 9.257 61.8
önnur svör 113 1.2 68 1.4 16 3.5 197 1.3
Auöir 423 4.4 161 3.2 86 18.8 670 4.5
Heildarfjöldi svara 9.S06 100.0 5.004 100.0 458 100.0 14.968 100.0
A kjörskrá 1982 58.481 31.973 58.194 148.648
Þátttökuhlutfall 16,3% 15,7% 0,8% 10,1%
Aðdragandi:
Hinn 28. október 1982 sendi
hópur manna áskorun til stjórn-
arskrárnefndar þar sem þess var
óskað að nefndin léti fara fram
víðtæka skoðanakönnun meðal
landsmanna um svonefnt kjör-
dæmamál. Stjórnarskrárnefnd
hvorki svaraði áskoruninni né
varð við þeim tilmælum sem í
henni fólust. Þessi viðbrögð urðu
til þess að stofnuð voru Samtök
áhugamanna um jafnan kosn-
ingarétt. Þessi samtök boðuðu til
blaðamannafundar þann 27. janú-
ar sl., þar sem frá því var skýrt að
samtökin hefðu ákveðið að gefa
hinum almenna kjósanda færi á
að tjá sig um þetta mál. Könnunin
yrði því miður að takmarkast við
suðvesturhorn landsins þar sem
samtökin hefðu hvorki fjárráð né
mannafla til að framkvæma slíka
könnun um landið allt; hins vegar
væru samtökin reiðubúin að að-
stoða við framkvæmd slíkrar
skoðanakönnunar í öðrum kjör-
dæmum ef þess væri óskað.
Framkvæmd:
í framhaldi af blaðamanna-
fundinum var samið við félaga-
samtök um að bera spurninga-
eyðublöð inn á hvert heimili í
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi.
Svör bárust síðan ýmist í pósti til
skrifstofu samtakanna eða í sér-
staka söfnunarkassa sem olíufé-
lögin veittu heimild til að komið
væri upp á bensínstöðvum. Söfn-
unarkössum var einnig komið
fyrir á nokkrum fjölmennum
vinnustöðum og í stórum verslun-
um síðustu daga könnunarinnar.
Á spurningalistanum var spurt
þriggja spurninga. Fyrsta spurn-
ingin var hvort viðkomandi vildi
að þingmönnum yrði fjölgað,
fækkað eða að tala þeirra yrði lát-
in óbreytt. Önnur spurning var um
það hvort atkvæðavægi ætti að
jafna að fullu, að hluta eða hvort
það skyldi látið óbreytt. Þriðja
spurning fjallaði um það hvernig
jafna ætti atkvæðavægi ef til þess
kæmi. Nefndir voru möguleikarnir
að breyta þingmannafjölda núver-
andi kjördæma, skipta landinu í
jafnfjölmenn einmenningskjör-
dæmi eða gera landið að einu kjör-
dæmi. Auk þess gafst viðkomandi
tækifæri til að nefna sjálfur aðra
möguleika. Undir svörin var við-
komandi beðinn að rita nafn sitt
og lögheimili.
Samtökin opnuðu skrifstofu að
Suðurlandsbraut 12 og var hún
opin daglega þær 3 vikur sem
könnunin stóð yfir. í lok fyrstu
viku höfðu borist um 4.700 seðlar,
viku síðar voru seðlarnir orðnir
um 9.300 og endanlega bárust
15.270 seðlar.
í lok annarrar viku könnunar-
innar voru talin svör 4.165 seðla
og niðurstöður strax sendar for-
mönnum stjórnmálaflokkanna og
þingflokka þeirra sem trúnaðar-
mál, þeim til glöggvunar, þar sem
þeir voru þá að semja sín á milli
um þessi mál. Niðurstöðurnar
voru hins vegar ekki birtar opin-
berlega til þess að þær hefðu ekki
áhrif á framkvæmd könnunarinn-
ar.
Þátttaka og úrvinnsla seöla:
Þegar skoðanakönnun er fram-
kvæmd með þeim hætti, sem hér
hefur verið gert, að fjölmennum
hópi manna eru sendir spurn-
ingaseðlar, sem ætlast er til að
þeir svari að eigin frumkvæði, er
Philips örbylgjuofnar
eru fýrir þásem þurfa
að fýlgjast með tímanum
Kebab
hvernig tíma þfnum er variö - Philips
Microwave kemur þér þægilega á óvart. Sumir nota
hann vegna þess aö þeir nenna ekki aö eyöa löngum
tlma I matreiöslu. Aörir matreiöa máltiöir vikunnar á
laugardögum og frysta þær til geymslu. Philips sér
sföan um góöan mat á nokkrum mlnútum, þegar best
hentar.
Þssglndl: Enginn upphitunartimi, fljótleg matreiösla,
minni rafmagnseyösla.
Hraöi: Þföir rúmlega 3 punda gaddferðinn kjúkling á
20 mlnútum. Bakar stóra kartöflu á 5 mlnútum.
Nærlng: Heldur fullu næringargildi fæöunnar, sem
tapar hvorki bragöi né lit.
Hreinsun: Aöeins maturinn sjóöhitnar, slettur eöa bitar
sjóöa ekki áfram - og eldamennskan hefur
ekki áhrif á eldhúshitann.
Imín
2mín
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.