Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 40
^^skriftar-
síminn er 830 33
Demantur
ædstnfedaisteina -
éuU Sc é>iifur
Laugavegi 35
ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983
Flugráð um ráðningu flugmálastjóra:
„Dæmalaus lítils-
virðing á lýðræðis-
legum hefðum“
„KJARNI málsins er sá , aö lög-
um samkvæmt er flugrád tilgreint
sem eini umsagnaraðili ráðherra í
málinu, enda er ráðið hér að velja
sér sinn framkvæmdastjóra. Að-
dróttunum samgönguráðherra í
Sjö bflar í
árekstrum á
Hellisheiði
í gærkvöldi
SJÖ bílar skemmdust töluvert í
þremur árekstrum á Hellisheiði í
gærkvöldi, en þá gekk mikið dimm-
viðri yfir með miklu roki og éljum,
samkvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar.
Árekstrarnir urðu skammt frá
Skíðaskálanum í Hveradölum
skömmu fyrir kvöldmatarleytið í
gærkvöldi. Eins og áður sagði
urðu nokkrar skemmdir á bílunum
og var einn þeirra talinn ónýtur.
Ekki var um aivarleg meiðsl á
fólki að ræða.
viðtali við Morgunblaðið í gær um
meinta „einkennilega" umfjöllun
málsins í flugráði er með öllu vís-
að á bug. Flugráð fordæmir þá fá-
dæma valdníðslu er felst í vinnu-
brögðum samgönguráðherra í máli
þessu,“ segir m.a. í niðurstöðum
greinargerðar flugráðs vegna
þeirrar ákvörðunar samgöngu-
ráðherra, aö ráða Pétur Einarsson
í stöðu flugmálastjóra, gegn ein-
róma tillögu flugráðs um ráðningu
Leifs Magnússonar í starfið.
í bréfi, sem flugráð ritar til
alþingismanna og fjölmiðla,
segir ennfremur: „Með ákvörðun
sinni, föstudaginn 25. þ.m., um
skipun í stöðu flugmálastjóra,
þvert gegn samhljóða og ein-
dreginni tillögu flugráðs, hefur
Steingrímur Hermannsson,
samgönguráðherra, sýnt í verki
dæmalausa lítilsvirðingu á lýð-
ræðislegum hefðum."
Ljosmynd Mbl. RAX.
Auðhumla og mjaltastúlkan eyfirska
Auðhumla heitir höggmynd sem Ragnar Kjartansson myndhöggvari hefur lokið við í gips fyrir mjóikursamlag
KEA á Akureyri, en höggmyndin verður steypt í kopar erlendis. Auðhumla á að standa fyrir utan hina nýju
Mjólkurstöð á Akureyri, en Auðhumla hefur verið í merki fyrirtækisins frá upphafi. í samtali við Mbl. sagi
Ragnar að þótt hugmyndin að kúnni væri sótt í forn fræði, væri mjaltastúlkan af eyfirskum uppruna þótt heldur
væri hún af stærri gerðinni, en kýrin sjálf er 3 metra há og 6 metra löng. Listamaðurinn stendur þarna hjá
verkinu.
Flutningabíll
fauk og lokaði
Vesturlandsvegi
í gærkvöldi
MIKIÐ óveður gekk yfir Suð-
vesturland í gærkvöldi, sem m.a.
varð þess valdandi að stór flutn-
ingabíll fauk á veginum fyrir
sunnan Botnsá í Hvalfirði og
lokaði hann veginum um tíma.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar urðu ekki slys á
mönnum, en bíllinn skemmdist
töluvert.
Niðurstöður skoðanakönnunar um jafnan kosningarétt:
82,9% þátttakenda vildu
jafiia kosningarétt að fiillu
42,8% þátttakenda utan Reykjavíkur og Reykjaness vildu að fullu jafnan kosningarétt
HEILDARFJÖLDI svara, sem
barst í skoðanakönnun um jafn-
an kosningarétt var 14.968, þar
af vildu 12.407 eða 82,9% jafna
kosningarétt að fullu. Aðallcga
fór skoðanakönnun þessi fram í
Reykjavík og á Reykjanesi, en
engu að síður bárust svör frá
458 aðilum utan þessara tveggja
kjördæma, 42,8% þeirra vildu
jafna atkvæðisrétt að fullu og
28,8% að hluta. Óbreytt hlutfall
atkvæða vildu hafa 24% utan-
bæjarmanna.
Fyrir þá, sem sendu inn svör,
voru lagðar þrjár spurningar.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar eru að 3% þátttakenda vildu
fjölga þingmönnum, 61,9% vildu
fækka þeim, en 34% þátttakenda
vildu hafa þingmannafjöldann
óbreyttan.
Eins og áður sagði vildu 82,9%
þátttakenda jafna atkvæðisrétt að
fullu, 10,6% vildu jafna atkvæð-
isrétt að hluta til, 4,1% kusu að
hafa hlutfall milli atkvæða í kjör-
dæmum óþreytt og 2,4% skiluðu
auðu við þessari spurningu.
Halldór Jónatansson, aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar:
Skuldir væru liðlega 100
milljónum dollara lægri
ef raforkuverð hefði fylgt byggingarvísitölu frá árinu 1971
Þriðja spurning var um kjör-
dæmaskipan. 20,7% þátttakenda
vildu halda núverandi kjördæma-
skipan, 11,6% vildu fá einmenn-
ingskjördæmi og 61,8% vildu að
landið allt yrði gert að einu kjör-
dæmi. Önnur svör veittu 1,3% og
spurningu um kjördæmaskipan
svöruðu ekki 4,5%.
Fjöldi þeirra, sem þátt tóku í
skoðanakönnuninni var 14.968 eða
10,1% af kjörskrárfjölda á árinu
1982. Þátttakan í Reykjavík varð
16,3% af kjörskrá og 15,7% í
Reykjaneskjördæmi. Þátttaka
manna úr öðrum kjördæmum var
0,8%.
Sjá nánar um niðurstöður skoð-
anakönnunarinnar á bls. 30.
„ÞAÐ hefur nýlega verið reiknað úl
að hefði rafmagnsverð Landsvirkjun-
ar til almenningsrafveitna fylgt bygg-
ingarvísitölu 1971 — 1982 hefðu
skuldir Landsvirkjunar um síðustu
áramót verið 101,7 milljónum dollur-
um lægri en þær í raun voru,“ sagði
Halldór Jónatansson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Landsvirkjunar,
m.a. í samtali við Mbl. er hann var
inntur eftir því hver fjárhagsstaða
Landsvirkjunar væri í dag, ef raf-
magnsverð til almcnningsrafveitna
hefði fylgt verðlagi frá árinu 1981.
„Skuldirnar námu samtals 341
milljónum dollara og hefðu því orð-
ið um 30% lægri ef verðið og bygg-
ingarvísitala hefðu fylgst að. Jafn-
framt mundi þá lækkun vaxta-
gjalda í ár hafa numið um 12,4
milljónum dollara og lækkun af-
borgana um 4,1 milljón dollara.
Greiðslubyrðin í ár hefði þá sam-
tais orðið 16,5 milljónum dollara
lægri í ár en fyrirsjáanlegt er nú,“
sagði Halldór Jónatansson enn-
fremur.
Þá var Halldór inntur eftir því
hvort það hefði ekki haft áhrif til
lækkunar á verðhæhkunarþörfina
framundan, ef verðið hefði fylgt al-
mennum verðlagsbreytingum und-
anfarinn áratug. „Hefði rafmagns-
verðið fylgt byggingarvísitölu um-
rædd ár mundi verðið til almenn-
ingsrafveitna aðeins þurfa að
hækka um 9,1% á þessu ári til að
tryggja rekstrarjöfnuð á árinu
miðað við 50% verðbólgu og 50%
gengissig, en miðað við það, sem á
undan er gengið, er hækkunarþörf
þessi 47,2%.
í fyrra tilvikinu yrði meðalverð
ársins 55,20 aurar á KWst, en í því
síðara 74,48 aurar á KWst. Þá er
einnig fróðlegt að gera sér ljóst að
hefði verðið fylgt byggingarvísitölu
og héldi áfram að gera það út þetta
ár, miðað við fyrrnefndar verðlags-
forsendur, færi meðalverðið í ár í
60,58 aura á KWst. og yrði hagnað-
ur þá 61,6 milljónir króna og
greiðsluafgangur 155,5 milljónir
króna, sem yrði að sama skapi til
að draga úr lántökum á árinu
vegna framkvæmda. Slík þróun
mundi síðan fyrr en seinna verða
almenningi til hagsbóta í lægri
rafmagnsverði en ella," sagði Hall-
dór Jónatansson.
Viðtal sem Mbl. átti við Halldór
Jónatansson um málefni Lands-
virkjunar verður síðan birt í heild
á morgun, miðvikudag.
29.128 hafa tekið
þátt í próf-
kjörum Sjálf-
stæðisflokksins
Sjálfstæðisfiokkurinn hefur efnt
til prófkosninga í sjö af átta kjör-
dæmum landsins. Samtals hafa
29.128 tekið þátt í prófkjörunum
sem er um 66% af þcim fjölda sem
veitti fiokknum stuðning í alþing-
iskosningunum í desember 1979,
en tæp 70% af kjósendum flokks-
ins í þeim sjö kjördæmum þar scm
efnt hefur verið til prófkosninga.
Það er einungis á Vestfjörðum
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki efnt til prófkjörs.
Sjá forystugrcin blaðsins í mið-
opnu og fréttir á bls. 2 og um-
mæli prófkjörsþátttakenda í
Austurlands- og Reykjaneskjör-
dæmi á bls. 46 og 47.