Morgunblaðið - 04.03.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
7
Heildsöluútsala
Dömukjólar frá 250 kr., buxur frá 100 kr., blúss-
ur og peysur frá 50 kr., herravinnuföt og jakkar,
skór frá 50 kr. Barnagallar frá 130 kr., barna-
nærföt og samfestingar, snyrtivörur mjög ódýr-
ar, sængur á 440 kr., og margt fleira.
Opiö til kl. 4 laugard.
Verslunin Týsgötu 3,
viö Skólavörðustíg sími 12286.
Toyota Tercol 1981
Ljósbrúnn (sanz.) Ekinn 40 þús. km. Út-
varp. segulband. 2 dekkjagangar. Verð
kr. 145 þús.
B.M.W. 518 1980
Mazda 323 (1300) 1981
Silfurgrár, 5 dyra. Ekinn 26 þús. km.
Útvarp. segulband. 2 dekkjagangar
Verö kr. 135 þús.
Toyota Carina G.L. 1981
Brúnsanseraöur, 5 gira. Ekinn 31 þús.
km. Verö kr. 175 pús.
Galant 1600 G.L. 1980
Grænn, ekinn 35 þús. km. Útvarp.
segulband, snjódekk og sumardekk.
Verö kr. 225 þús. (skipti á ódýrarl).
V.W. Golf C1 1982
Blásanseraöur, ekinn 15 þús. km. Út-
varp. segulband. 2 dekkjagangar. Verö
210 þús
Blásanseraöur, ekinn aöeins 31 þús.
km. Útvarp, segulband. 2 dekkjagang-
ar. Verö kr. 130 þús (skipti möguleg á
nýrri bii).
Sappuro GL 1981
Rauöur, ekinn aöeins 11 þús. km. Sem
nýr. Verö kr. 198 þús.
Daihatsu Charade Xte
Runabout1982
Ljósbrúnn (sanseraóur). Ekinn 9 þús.
km. Verö kr. 170 þús.
Saab 900 GLE 1982
Blágrár (sans ), ekinn 16 þús. km.
Sjálfskiptur, aflstýri, sóllúga o.fl. Verö
kr. 315 þús.
í endaðan feril
ríkisstjórnar
„Samtímis liggur þaö fyrir aö til nokk-
urs atvinnuleysis hefur komiö, auk þess
sem ráðstöfunartekjur heimilanna eru
minni er áður.“ (Halldór Blöndal í forsíöu-
grein í islendingi).
Ferill verð
bólgunnar og
fyrirheit ríkis
stjórnar
Halldór Blöndal segir í
nýútkomnum fslendingi:
„Síðastliðið þriðju-
dagskvöld sat Svavar
Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, fyrir
svörum í sjónvarpssal.
Ekki leyndi sér, að honum
var ekki rótt í skapi þegar
spurningar beindust að
verkum ríkisstjórnarinnar
og þeirrí staðreynd að
verðbólgan hefur náð
hærra stigi nú en nokkru
sinni fyrr, eða stefnir í
80%. Samtímis liggur það
fyrir, að til nokkurs
atvinnuleysis hefur komið,
auk þess sem ráðstöfunar-
tekjur heimilanna eru
minni en áður. f rauninni
var svar Svavars Gestsson-
ar aðeins eitt þegar hann
var spurður hvernig á
þessu stæði. Ilann skýr-
skotaði til nýlegrar álykt-
unar Alþýðubandalagsins
um atvinnumál og sagði:
Þetta ætlum við að gera
seinna og þá leysist vandi
þjóðarinnar. — En talaði
hann ekki á svipuðum nót-
um þegar ríkLsstjórnin var
mynduð? Á pappírnum var
allt slétt og fellt, svo að sá
sem las málefnasamning-
inn gat ekki komist hjá því
að skilja að á árínu 1983
yrði verðbólgan komin
niður í 10—15% og kaup-
máttur meirí í landinu en
nokkru sinni fyrr. I'm
þcssi loforð vill Svavar
Gestsson ekki tala, enda
hefur meira en lítið farið
úrskeiðis. Ófarímar verða
ekki skýrðar með ytrí áfoll-
um, einfaldlega vegna þess
að síðustu árín höfum við
lifað meiri góðærí en áður
þekktust Það er að vísu
rétt, að nú hefur dregið úr
afla. En hitt er líka rétt, að
nú hefur dregið úr afla. En
hitt er líka rétt, að launa-
fólk greiddi þann reikning
að fullu með kjaraskerð-
ingunni 1. desember sl.
Samt sem áður dugði það
ekki til. Eftir kjaraskerð-
inguna hefur verðbólgan
vaxið meira en nokkru
sinni fyrr, öllum til skaða
og tjóns."
„Rfldsstjómin
öll köllud til
ábyrgöar“
Niðurlag greinar Hall-
dórs hljóðaði svo:
„Sjálfstæðismenn hafa
jafnan lagt áherslu á, að
ógerlegt sé að ráða niður-
lögum verðbólgunnar
nema með víðtækum ráð-
stöfunum, sem taka til
allra þátta efnahagslífsins.
Á því byggðist andstaðan
við bráðabirgðalögin {
ágúst, að þau gerðu það
ekki. Þau hafa nú verið í
gildi í hálft ár, nákvæm-
lega eins og gengið var frá
þeim í upphafi. Héðan af
skiptir engu máli, hvað um
þau verður af því að þau
eru þegar komin til fram-
kvæmda í öllum megin-
atríðum. Efnahagsráðstaf-
anir ríkisstjórnarínnar hafa
því sannað ágæti sitL í
sjónvarpsþættinum kenndi
Svavar Gestsson því um,
hvernig komið er, að ríkis-
stjórnin hefði ekki meirí-
hluta í neðri deild til að
koma málum sínum fram.
Hann gleymdi hinu, að rík-
isstjórnin hefur engin mál
lagt fram, sem neinu skipta
varðandi efnahagsþróun-
ina í landinu. Verðbólgu-
vöxturínn er því á hennar
ábyrgð einnar. Óryggisleys-
ið í efnahagsmálum og
versnandi lífskjör.
Það er athyglisvert, að
bæði Svavar Gestsson og
Steingrímur Hermannsson
leggja á það höfuðáherslu
að þeir vildu efna til kosn-
inga í hausL til þess að ný
ríklsstjórn settist að vökÞ
um. Það á að vera þeirra
syndaaflausn og um leið
vísbending um, hvernig
þeir ætla að heyja sína
kosningabaráttu. Þeir þvo
hendur sínar eins og Pfla-
tus forðum. En það er
meira en lítið vafasamt að
kjósendur láti sér duga
slíkan kattarþvotL Auðvit-
að verður ríkisstjórnin öll
kölluð til ábyrgðar á því
hvernig komið er. Auðvitað
getur Svavar Gestsson
ekki búist við því að hann
sé „stikkfrí“ í vondu mál-
unum fremur en Stein-
grímur Hermannsson, en
þakkað sér það sem gott
er. Og hvorugur þeirra
stækkar í augum heiðar-
legra manna við þessar til-
tektir."
Undantekning
frá reglunni
Samstaða ríkisstjórnar-
innar í álmáli, vísitölumáli,
kjördæmamáli, flugstöðv-
armáli o_s.frv. hefur öil ver-
ið á eina bók lærð, bók
sundurþykkjunnar. Hún
hefur ekki náð saman í
neinu meginmáli i heilt
misserí. Samstarfsreglan í
ríkLsstjórninni gæti allt
eins heitið: hnífurinn í bak-
ið. Meðan undirstöður at-
vinnulífsins brenna upp úti
í þjóðfélaginu, hafa ráð-
herrar ekki öðru að sinna
en vega hver aftan að öðr-
um, hafandi misst þing-
ræðislega forsendu setu
sinnar á ráðherrastóli, þ.e.
starfshæfan meirihluta á
Alþingi.
Og þó — ein undantekn-
ing er frá reghmni. Þjóð-
viljinn slær því upp með
heimsstyrjaldarletri sl.
miðvikudag að ríkisstjórn-
in hafí náð saman í einu
máli, sem væntanlega ríður
bæði verðbólgunni og at-
vinnuleysisdraugnum að
fullu (!), sum sé að andæfa
gegn „Rallye d'lslande"!
Sjálfsagt er það andóf af
hinu góða, en engu að síð-
ur er það grátbroslegt, að
ráðherrar sem sitja upp
fyrír axlir I „þúsund vanda-
málum" sem þeir hafa
heykst á að leysa, og kenna
hver öðrum um, skuli ná
saman í einu máli: „Rallye
dlslande".
Reynir Þorgrímsson á athafnasvæði Bflakaups.
Bflakaup á nýjan staö
BÍLASALAN bílakaup hefur nú
starfað í tæp 7 ár, lengst af í Skeif-
unni 5.
Nú hefur fyrirtækið flutt í eigið
húsnæði við Borgartún 1, { 105 mz
söluhús smíðað af S.G. einingahús-
um hf„ Selfossi. Tók húsasmíðin
sjálf aðeins um 13 vinnudaga.
Bílakaup hefur ávallt reynt að
tryggja öryggi seljenda og kaup-
enda eins og hægt er. Vanskila- og
gjaldþrotaskrár liggja frammi svo
hægt er að kanna greiðsluferil
skuldara. Gengið er frá tryggingu
bílanna strax við undirskrift
samninga, á hvaða tíma sem er.
Meiri áhersla er lögð á þjónustu
við viðskiptamenn en áður þekkt-
ist.
Til að mæta enn auknum kröf-
um hefur Bílakaup byggt upp sér-
stakt sölu- og þjónustuhús, fyrir
fólk í bílahugleiðingum með
bjarta, snyrtilega og rúmgóða að-
stöðu. Ýmsar aðrar framkvæmdir
eru þar fyrirhugaðar til þjónustu
við viðskiptavini.
Fjórir sölumenn eru á staðnum.
Næg bílastæði eru fyrir hendi.
Eigandi og stjórnandi Bílakaups
er Reynir Þorgrímsson.
(f'r fréttatilkynningu).
Tvær skákbæk-
ur frá SKÁK
TÍMARITIÐ Skák hefur gefið út
tvær skákbækur; Besti leikurinn eft-
ir tékknesku stórmeistarana Hort og
Jansa og Skákdæmi og tafllok með
greinum eftir sovézka skákdæma-
og tafllokahöfunda.
Bragi Halldórsson íslenzkaði
bók tékknesku stórmeistaranna
eftir enskri þýðingu, en inngangur
er eftir sovézka stórmeistarann
Lev Polugajevsky. f bókinni eru
230 skákpróf, sem Hort og Jansa
hafa valið úr skákum sínum og
gefst lesandanum færi á að íhuga
stöðumyndir og velja leiki og síð-
an sjá, hvernig honum hefur tek-
ist til. Bókin er 238 blaðsíður.
Árni Bergmann snéri bókinni
Skákdæmi og tafllok úr rússnesku
og Guðmundur Arnlaugsson ritar
formála. Eftir E.í. Umnof er kafl-
inn Fyrsti tafllokasmiður samtím-
ans, Á.A. Dombrovskís á grein um
Nýjar hugmyndir á sviði tví-
leiksdæma, S.D. Leites skrifar um
Spegilfléttur, J.G. Vladímírof um
Þríleiksdæmi nú um stundir og í
næstu framtíð, R.M. Kaufman er
höfundur kafla um Margra leikja
dæmi — skákdæmi framtíðarinn-
ar og annars um Tvíburadæmi og
A.G. Kúznetsof er höfundur
Stórmeistarafléttunnar. Áttundi
kaflinn heitir Skákskáld og rithöf-
undar. Bókin er 126 blaðsíður.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!