Morgunblaðið - 04.03.1983, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
• íslensku unglingarnir sem taka þátt í Norðurlandamótinu í badminton ásamt þjálfara sínum. Frá vinstri:
Hrólfur Jónsson, Olafur Ingþórsson, Guðrún Júlíusdóttir, Pétur Hjálmtýsson, Þórhallur Ingason, Elísabet
Þórðardóttir. Inaa Kiartansdóttir. Indriði Biörnsson, Þórdís Edwald.
Rauði Kross íslands
efnir til námskeiðs fyrir fólk, sem hefur áhuga á að
taka aö sér hjálparstörf á vegum félagsins erlend-
is. Námskeiöiö verður haldiö í Munaðarnesi dag-
ana 10. —15. maí nk. Umsækjendur þurfa aö upp-
fylla skilyröi sem sett eru af Alþjóða rauöa kross-
inum og RKÍ og eru m.a.
1. Aldur: 25—50 ára
2. Góö menntun og almenn reynsla.
3. Góö enskukunnátta.
4. Gott heilsufar.
5. Reglusemi.
6. Nauösynlegt er aö viökomandi vilji fara til
starfa meö stuttum fyrirvara ef til kemur.
Leiöbeinendur á námskeiöinu veröa starfsmenn
frá Alþjóöasambandi Rauöa kross félaga, Al-
þjóöaráöi Rauöa krossins og Rauða krossi ís-
lands. Kennsla fer fram á ensku.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Rauöa kross
islands, Nóatúni 21, Reykjavík. Nánari upplýsingar
veitir Jakobína Þóröardóttir á skrifstofu RKÍ kl.
14—16 daglega, sími 91-26722.
Umsóknum sé skilað fyrir 15. marz nk.
Rauöi kross íslands.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■l
LEGUKOPAR
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlas hf
Ármúli 7 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgðastöð
svartar og
galvaniseraðar pípur
oOO°°°° o °OOo
sverleikar: svart, % — 5“
galv., % — 4“
Borgartúni31 sími27222
NM-mót unglinga í badminton:
Átta unglingar keppa á
Norðurlandameistaramótinu
í GÆRMORGUN héldu átta ís-
lenskir unglingar utan áleiðis til
Uppsala í Svíþjóð, til þátttöku á
Norðurlandamóti unglinga sem
hefst í dag og lýkur á sunnudag.
Keppnin verður tvíþætt: annars
vegar fer fram landsliðakeppni
og hins vegar einstaklings-
keppni. í landsliðakeppninni
leika allir viö alla og á ísland sinn
fyrsta leik við Norðmenn fyrir há-
degi í dag, en leikur síðan gegn
Finnum, Dönum og Svíum síð-
degis, þannig aö álagið veröur
mjög mikið.
I einstaklingskeppninni veröa
mótherjarnir ýmist danskir eða
sænskir og varla þarf því aö bú-
ast vió að okkar fólk sæki guil í
greipar þeirra. Þau Þórdís
Edwald og Pétur Hjálmtýsson
eiga þó möguleika á sigri í fyrstu
umferð í einliöaleik, Þórdís fær
norska stúlku sem andstæðing
og Pétur lendir á móti finnskum
pilti.
NMunglinga er hlutfallslega
jafn sterkt mót og NMfulloröinna
og hefur árangur okkar hingað til
á þeim mótum orðið frekar lítill,
og einu leikirnir sem unnist hafa
eru gegn finnskum eóa norskum
mótherjum.
Liðið sem heild er þó mjög
sterkt og ætti ef allt gengur upp
aó geta unnið góóan sigur á Finn-
um, en þeir eru orðin auðveld
bráð fyrir A-landsliö okkar nú
orðið. Um leikinn gegn Norö-
mönnum skal óspáð um úrslit og
lóst er aó allt getur þar gerst. Um
Dani og Svía þarf vart að fjöiyróa.
Þessar þjóðir hafa algera yfir-
burði yfir hinar Norðurlandaþjóð-
irnar og hafa ávallt haft.
íslenska unglingalandsliöið var
nýlega valiö. Við höfum mjög
sterkum unglingum á aö skipa
um þessar mundir og erfitt er aó
velja úr slíkum hópi þaó lió sem
allir veröa á eitt sáttir um. BSÍ
valdi sex keppendur til fararinnar
en TBR ákvaó aó senda tvo til
viöbótar. Líðið er þannig skipaö:
Frá BSÍ:
Indriði Björnsson TBR
Ólafur Ingþórsson TBR
Elísabet Þórðardóttir ÍA
Inga Kjartansdóttir TBR
Þórdís Edwald TBR
Frá TBR:
Pétur Hjálmtýsson TBR
Guórún Júlíusdóttir TBR
Fararstjóri verður Hrólfur
Jónsson landsliðsþjáltari en hann
hefur þjálfað unglingalandsliöiö
samhliöa A-landsliöinu í vetur og
náð góðum árangri. Liöió er
væntanlegt heim þann 7. mars.
Man. Utd.
tapaði
ÚRSLIT leikja í ensku knattspyrn-
unni í fyrrakvöld urðu þessi:
1. deild:
Manch. City — Everton 0—0
Norwich City — Watford 3—0
Stoke City — Manch. Utd. 1—0
3. deild:
Exeter City — Lincoln City 3—1
Oxford Utd. — Bradford City 5—1
4. deild:
Hartlepool — Port Vale 2—2
Hereford Utd. — Stockport
County 0—0
Torquay Utd. — Blackpool 1—3
Punktastaðan í borðtennis:
Hilmar og Ragnhildur
eru efst í sínum flokkum
Opna Keflavíkurmótið í borö-
iennis fór fram í íþróttahúsinu í
Keflavík, sunnudaginn 27. febrú-
■r. Keppt var í karlaflokkum, og
uröu úrslit á þessa leiö:
Meistaraflokkur karla:
1. Tómas Guöjónsson KR,
2. Gunnar Finnbjörnsson Erninum,
3. Bjarni Kristjánsson UMFK.
Tómas sigraöi alla keppinauta
sína, 2—0, hann sigraöi Bjarna í
úrslitaleik, en Bjarni tapaói síöan
fyrir Gunnari í leik um annað sæt-
iö. Keppt var um glæsilegan far-
andgrip, sem Tómas varöveitir
fram aö næsta móti.
1. flokkur karla:
1. Friörik Berndsen Víkingi,
2. Bergur Konráösson Víkingi,
3. Bjarni Friöriksson UMFK.
2. flokkur karla:
1. Kjartan Briem KR, 2. Lárus Jón-
asson Erninum, 3.—4. Höröur
Pálmason Víkingi, Trausti Krist-
jánsson Víkingi.
Kjartan sigraöi Lárus í spenn-
andi úrslitaleik, og náöi þar meö
tilskildum punktafjölda til þess aö
flytjast upp í 1. flokk. Kjartan er sá
yngsti, sem hefur náð þessum
áfanga, hann varö 12 ára í nóv-
ember sl.
Punktastaöan
28. febr. 1983
Talan í sviganum táknar fjölda
þairra móta, sem viökomandi
meistaraflokksmaóur hefur tekið
þátt í.
MEISTARAFLOKKUR KARLA:
1. Hilmar Konráósson, Vík P- 91 (•)
2. Tómas Sölvason, KR 74 (7)
3. Tómas Guójónsson, KR 71 (5)
4. Bjarni Kristjánsson, UMFK 29 (5)
5. Gunnar Finnbjörnss. örn 19 (5)
8.—7. Jóhannas Hauksson, KR 18 (•)
Kristján Jónasson, Vfk. 18 (•)
8.—9. Guömundur Maríusson, KR 10 (•)
Vigmr Kristmundsson, örn 10 (•)
10. Kristinn Már Emilss., KR 6 (•)
11.—18. Davíð Pálsson, Örn 0 (1)
Hjálmar Aðalsteinss., KR 0 (0)
Hjálmtýr Hafsteinss., KR 0 (0)
Stefán Konráðsson Vík. 0 (0)
Þorfinnur Guðmundss. Vík. 0 (0)
Örn Franzson, KR 0(1)
MEISTARAFLOKKUR KVENNA:
1. Ragnh. Sigurðard., UMSB 24 (3)
2. Ásta M. Urbancic, Örn 19 (5)
3. Kristín Njálsdðttir, UMSB 9 (5)
4. Hafdís Ásgeirsdóttir, KR 4 (2)
5. Rannveig Haröard., UMSB 1 (1)
6. -8. Arna Sif Kssrnastad, Vik. 0 (4)
Elísabet Ólafsdóttir, örn 0 (3)
Erna Sigurðardóttir, UMSB 0 (0)
I. FLOKKUR KARLA:
1. Friórik Berndsan, Vík. 30
2.-3. Bergur Konráösson, Vík 23
Einar Einarsson, Vík. 23
4. Emil Pálsson, KR 14
5. Gunnar Birkisson, örn 5
6. Sigurður Guömundss., örn 4
7. -9. Bjarni Friöriksson, UMFK 3
Kristján V. Haraldss., HSÞ 3
Sigurbjörn Bragason, KR 3
10. Ragnar Ragnarsson, örn 2
II. -13. Árni Gunnarsson, UMFK 1
Bjarni Bjarnason Vík. 1
Halldór Haralz, örn 1
Aörir hafa ekki hlotiö punkta.
1. FLOKKUR KVENNA:
1. Sigrún Bjarnadóttir, UMSB 5
2. Elín Eva Grímsdóttir, örn 2
Aörar hafa ekki hlotið punkta.
2. FLOKKUR KARLA:
1. Trausti Kristjánss., Vík 18
2. Lárus Jónasson, örn 9.
3. Þorsteinn Bachmann, Vík 8.
4. Valdimar Hannasson, KR 7
5. Jóhann ö. Sigurj.s, Örn 6
6. Hermann Báróarson, HSÞ 3
7. Snorri Briom, KR 2
8. —13 Baldur Bragason, KR 1
Birgír Ragnarsson, KR 1
Eyþór Ragnarsson, KR 1
Gísli Hjartarson, Vík 1
Kjartan Ingason, Vík 1
Kristján Eggartsson, HSÞ 1
Þrír unglingar hafa flust upp í 1.
flokk í vetur, en þaö eru þeir Sigur-
björn Bragason KR, Bjarni Bjarna-
son Vík. og Kjartan Briem KR.
Aörir í 2. flokki hafa ekki hlotiö
punkta.
Nýlega fóru fram 2 leikir í
flokkakeppni kvenna:
Örninn B—UMSB 0—3,
Víkingur—UMSB A 0—3.