Morgunblaðið - 04.03.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
19
Séð yfir lciktækjasalinn í hinu nýja Billagrilli að Hverfisgötu 46 í Reykjavík,
þar sem er opið alla daga vikunnar frá kl. 11—23.30.
Billagrill á Hverfisgötu:
Knattborðsstofa, leik-
tæki og skyndibitastaður
BILLAGRILL nefnist nýtt veit-
ingagrill, lciktækjasalur og knatt-
borðstofa, sem opnað hefur verið á
Hverfisgötu 46 í Reykjavík. Eigandi
staðarins er Hreiðar Svavarsson.
I Billagrilli er hægt að fá hvers
kyns smárétti, sagði Hreiðar í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins: Kjúklinga, hamborgara,
samlokur og fleira. Sæti eru fyrir
mi.li 50 og 60 manns í grillinu.
HELGINA 5.—6. mars stendur
kjötmatsnefnd fyrir sýningu á nauta-
kjöti í Afurðasölu SÍS á Kirkjusandi.
Samtímis sýningunni fer fram skoð-
anakönnun meðal sýningargesta
hvernig þeir vilja hafa nautakjötið.
Sýndir verða 24 kjötskrokkar af
gripum á mismunandi aldri, bæði
af íslenskum gripum og blending-
um undan Gallowaynautum úr
Hrísey. Vonast er til að hægt verði
að sýna það besta eða með því
besta kjöti sem framleitt er í þess-
ari búgrein og með sýningunni er
ætlunin að kynna þá fjölbreytni
sem orðin er í nautakjötsfram-
leiðslunni hér á landi.
Sýningin, sem er öllum opin,
verður á laugardag frá kl. 15 til 18
Þorgrímur ráð-
inn á frétta-
stofu útvarpsins
ÞORGRÍMUR Gestsson,
blaðamaður á Helgarpóstinum,
hefur verið ráðinn til starfa á
Fréttastofu útvarps í sex mán-
uði frá miðjum þessum mánuði.
Auk Þorgríms sóttu Atli
Steinarsson, Birna Þórðardóttir
og Stefanía Sigríður Bjarna-
dóttir um starfið.
Þá eru á staðnum átta billiard-
borð, og tæp 20 leiktæki af ýmsum
gerðum. Starfsemin er öll rekin
undir sömu stjórn, en er þó niður-
stúkuð þannig að knattborðsstof-
an er sér, grillið aflokað og
leiktækjasalurinn einnig, en inn-
angengt á milli allra staðanna.
Billagrill er opið alla daga vik-
unnar, frá klukkan 11 árdegis til
23.30 á kvöldin.
og sunnudag frá kl. 13 til 18 í af-
greiðslusal Afurðasölunnar en
einnig verður á sama tíma opin
kynning á framleiðsluvörum Af-
urðasölunnar á 2. hæð sama húss.
Patreks-
fjarðar-
söfnunin
NÚ ER mánuður liðinn síðan fjár-
söfnunin hófst vegna nauðstaddra
Patreksfirðinga eftir náttúru-
hamfarirnar, sem þar urðu þann
22. janúar síðastliðinn.
Með þessu stutta ávarpi viljum
við, sem að söfnuninni höfum
staðið, færa alúðarþakkir þeim
fjölmörgu víðsvegar um landið,
sem þegar hafa lagt þessu málefni
lið með rausn og myndarskap.
Við viljum leggja áherslu á það
að með fjársöfnun þessari er um
skyndihjálp að ræða, sem hvergi
nær til að bæta nema lítið eitt af
skaða fjölda fólks, en mun koma
sér vel fyrir þá, sem njóta, þrátt
fyrir mikinn sársauka og marg-
háttað óbætanlegt eignatjón.
Söfnunin nemur nú á fimmta
hundrað þúsund króna. Og verður
það fé nú þegar sent vestur og af-
hent hinum mætustu mönnum á
Patreksfirði til úthlutunar í sam-
ráði við hreppsnefnd, sem öllum
hnútum er kunnugust.
Við höfum ákveðið að halda
söfnuninni til 15. þ.m. — 15. marz
— og væntum þess að við bætist
og enn fleiri verði sem sjá sér fært
að leggja með okkur hönd á plóg-
inn.
í þeirri von, kæru samborgarar,
kveðjum við ykkur að sinni og
minnum á Patreksfjarðarsöfnun-
ina, gíróreikning nr. 17007-0 á
pósthúsum, f bönkum og sparisjóó-
um landsins.
Virðingarfyllst,
Sigfús Johannsson, Steingrímur (öslason,
Svavar Jóhannsson, ilannes Finnbogason,
Tómas (•uómundsson, Grímur (írímsson.
RAIIÐ.4 húsið sendir frá sér í dag, fostudag, teiknibók eftir Kristján Stein-
grím. f bókinni, sem heitir Riddarasögur, eru átta blekteikningar. Þetta er
þriðja bókin sem bókaforlag Rauða hússins gefur út. Bækur forlagsins fást í
Bókaverzlun Máls og Menningar, Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Bóka
og blaðasölunni og Fróða á Akureyri.
Kynning á nautakjöti
í Afurðasölu SÍS
Dularfulla húsið í Bíóhöllinni
KÍÓHÖLLIN hefur frumsýnt kvik-
myndina Dularfulla húsið, sem Charl-
cs B. Pierce framleiddi og leikstýðri. í
aðalhlutverkum eru Vic Morrow,
Dennis Fimple og Twyla Taylor.
Myndin fjallar um hjón, sem
koma til smábæjar í Louisiana og
hyggjast kaupa þar búgarð. Þeim er
ráðið frá því á þeim forsendum að
upprunalegir eigendur, liðnir vænt-
anlega, geri allt sem þeir geti til
þess að ekki verði búið á búgarðin-
um.
En hjónin gefa sig ekki og fara
þá margir og óhugnanlegir atburðir
að gerast. Myndin er sögð byggð á
sannsögulegum atburðum.
HVAÐ ER AÐ
GERASTÁ
ÍSLANDI ?
Aldrei fyrr höfum við getaö boðið upp á annaö
eins úrval af samkvæmisefnum frá heimsfrægum
gæðaverksmiðjum eins og Colsman og Zurrer.
Sjón er sögu ríkari.
Dömu- og herrabúðin,
Laugavegi 55, sími 18890.