Morgunblaðið - 04.03.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sölumenn Fasteignasala í miðborginni óskar eftir að ráöa traustan sölumann. Starfið krefst mikillar vinnu og viðkomandi þarf að geta unniö sjálfstætt. Tilboð óskast send augl.deild Mbl. fyrir 8. mars merkt: „H — 3708“. Sjúkraliðar Sjúkrahús Vestmannaeyja óskar að ráða sjúkraliða á morgunvaktir nú þegar, eöa eftir samkomulagi. Ennfremur sjúkraliða í vakta- vinnu frá 15. apríl. Uppl. gefur hjúkrunarforstjóri í síma 98—1955. Verkstjóri óskast Okkur vantar verkstjóra meö reynslu í rækju- vinnslu. Réttindi áskilin. Uppl. í síma 96—71189. Lagmetisiðjan Siglósíld, Siglufirði.
Skrifstofustarf Heildverslun óskar að ráöa í starf við síma- vörzlu, vélritun og fleira. Umsóknir sendist augl.deild Mbl. merktar: „Stundvís — 3680“ fyrir 7. þessa mán. Skrifstofustarf Óskum eftir aö ráða starfskraft á skrifstofu í miðbænum. Vinnutími frá kl. 13—17. Tilboð sendist Mbl. fyrir mánudagskvöld merkt: „E — 026“. Verkstjóri Starf verkstjóra Hveragerðishrepps er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 14. mars. Umsóknir sendist undirrituðum sem ásamt tæknifræðingi veita allar uppl. um starfið í síma 99-4150. Hveragerði 2. mars, 1983. Sveitarstjórinn í Hverageröi.
Hjúkrunarfræðingar Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu- stöö Miðbæjar, Reykjavík, er laust til um- sóknar. Staðan verður veitt frá og með 1. maí 1983. Þá er staða hjúkrunarfræðings við Heilsu- gæslustöðina í Þorlákshöfn laus til umsókn- ar. Staðan veröur veitt frá og með 1. maí 1983. Umsóknir um þessar stöður, ásamt upplýs- ingum um menntun og fyrri störf við hjúkrun,
Sendill Óskum að ráða samviskusaman og röskan sendil á bifhjóli 2—4 tíma á dag til snúninga. Til greina kemur að ráða tvo, sem skiptu vikunni á milli sín. /NTl m a ■ a • S m Skrifstofustjóri óskast til Þormóös Ramma hf., Siglufirði. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sem greini frá aldri, menntun og fyrri störfum ásamt meðmælum, sendist fyrir 21. mars til stjórnarformanns, Hinriks Aðal- steinssonar, Lindargötu 9, Siglufirði, sími 96—71363, sem jafnframt gefur allar nánari
tasœignapjonusian b UUbráöuney^nurfyriM.a9þrSyi99839amdd’ Austurstræti 17, S. 26600 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. uppl. ásamt framkvæmdastjóra í síma 96—71200. Þormóður Rammi hf., Siglufirði.
Rúmar 209 þúsund krónur söfn
uðust til Breiðholtskirkju
HINN 4. desember sl. fór fram alraenn fjársöfnun medal almennings og
fyrirtækja í Breióholti I vegna byggingar Breiðholtskirkju í Mjóddinni.
Uppgjöri söfnunarinnar er nú lokið. Samtals söfnuðust kr. 209.467,25. Bygg-
ingarnefnd færir einstaklingum og fyrirtækjum í Breiðholtssókn innilegar
þakkir fyrir þessar stórkostlegu undirtektir og þau ómetanlegu fjárframlög,
sem hér um ræðir. Slíkur stórhugur og rausn sýnir vel hver ítök kirkjubygg-
ingin á meðal almennings í Breiðholti I og er byggingarnefndinni eindregin
hvatning til þess að herða róðurinn enn frekar.
Eins og Breiðholtsbúum hefur
verið skýrt frá mun bygging
kirkjuskipsins hefjast áður en
langt um líður. Til landsins er
komið allt það efni sem á þarf að
halda, þar á meðal 88 límtrésbitar,
hinir lengstu 26 metrar, sem og
málmklæðning sú, sem sett verður
utan á þá. Stálstólar þeir, sem bit-
arnir munu sitja í á jörðu niðri
eru nú í smíðum og verða tilbúnir
fyrir miðjan mars. Um þessar
mundir er verið að ljúka gerð
vinnupalls þess, er standa mun á
kirkjugólfinu meðan kirkjan verð-
ur reist. Pallurinn er á hjólum og
verður færður hringinn eftir því
sem verkinu miðar áfram. Áform-
að er, að bygging kirkjuskipsins
fari fram eigi síðar en í apríl-
mánuði og mun það þá gerast á
nokkrum dögum með stórvirkum
lyftitækjum, eftir því sem veður-
far og aðrar aðstæður leyfa. Verð-
ur kirkjan síðan klædd utan og
gerð fokheld á sumri komanda.
Þess skal getið, að framkvæmd-
ir hafa tafist nokkuð við það að
vinnupallur sá, er reistur var í
janúar, fauk í því mikla veðri, sem
þá gekk yfir. En hann er nú risinn
að nýju og má heita fullgerður um
þessar mundir.
Byggingarnefnd Breiðholts-
kirkju hefur nú leitað eftir því við
allar verslanir og fyrirtæki í
Breiðholti I að þar megi koma
fyrir sparibaukum, þar sem al-
menningur getur látið nokkurt fé
af hendi rakna til stuðnings
kirkjubyggingunni. Nefndin vænt-
ir þess eindregið, að menn minnist
þess, enda safnast þegar saman
kemur.
Þess skal að lokum getið, að vel-
unnarar kirkjubyggingarinnar
geta lagt inn stærri fjárhæðir á
reikninga byggingarnefndar, eftir
því sem þeir óska. Er þar um að
ræða hlaupareikning Breiðholts-
kirkju í Breiðholtsútibúi Verslun-
arbanka íslands nr. 402. Einnig
sparisjóðsreikning Breiðholts-
kirkju í Breiðholtsútibúi Lands-
bankans nr. 661. Ennfremur ávís-
anareikningur nr. 3450 í Iðnaðar-
bankaútibúinu í Grensási.
(Fréttatilkynning.)
Fyrirlestur um
áhrif félagslegra
breytinga á streitu
Judith Bernstein, lektor í fé-
lagsráðgjöf við Noregs Social og
Kommunal Högskole, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði félagsvís-
indadeildar fimmtudaginn 10.
mars nk. í stofu 202 Lögbergi, kl.
20.30. Fyrirlesturinn nefnist
„Sociala forándringar som orsaker
til stress". Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
— smáauglýsingar —
Tilboð óskast
í Croll-byggingarkrana þar sem
hann er staddur. Uppl. í sima
44107.
Ódýrar vörur
selur heildverslun. Geriö góö
kaup. Opiö frá kl. 1—6 e.h.
Freyjugata 9, bakhús.
IOOF 1 = 16403048'/! = Sp.k.
IOOF 12 = 16403048'/! =
Tökum aö okkur
allskonar viögeröir. Skiptum um
glugga, huröir, setjum upp sól-
bekki. Viögeröir á skolp- og
hitalögnum, alhliöa viögeröir á
bööum og ásamt flísalögnum.
Vanir menn. Upplýsingar í síma
72273.
Gódan daginn!
Áskriftcirsíminn er 83033
Allt að
70%
afsláttur
Opid frá kl. 9—12
laugardag.
Síðasti dagur útsölunnar
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8.
S: 84670.