Morgunblaðið - 04.03.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
13
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir BöRGE VISBY
Valery Giscard d’Estaing fyrrverandi Frakklandsforseti, heilsar hér arf-
taka sínum í starfi, Francois Mitterrand, á tröppum Elysée-hallarinnar í
maí 1981.
eins og stjórnarandstaðan kallar
það um þessar mundir.
Ný viðhorf
Ný viðhorf komu fram í löngu
og ítarlegu sjónvarpsviðtali við
Pierre Mauroy forsætisráðherra
nýverið. Margir hafa viljað
kenna honum um ástand mála í
Frakklandi í dag og oft hefur því
verið fleygt að hann ætti að
segja af sér vegna hins bágborna
efnahagsástands. Mauroy virtist
hins vegar rólegur og í jafnvægi
og þrátt fyrir skiptar skoðanir á
svörum hans og skoðunum er
óhætt að fullyrða að hann komst
vel frá sínu sem traustvekjandi
þjóðarleiðtogi.
Eðlilegir erfiðleikar
Ástæðan fyrir rósemi Mauroy
er án efa uppörvandi niðurstöð-
ur skoðanakannana og tvær
mikilvægar niðurstöður stefnu
stjórnvalda í efnahagsmálum:
verðbólgan hafði minnkað úr 14
prósentum niður í 10 prósent og
einnig hafði atvinnulausum
fækkað í landinu. Út á við á
Frakkland við stöðug vandamál
að stríða, þar sem verðbólgan er
þar allmeiri en í nágrannalönd-
unum, t.d. Vestur-Þýskalandi og
Bretlandi. Innanlands hefur
stjórnin náð góðum árangri á
nokkrum sviðum, til dæmis í
baráttu gegn verðbólgu og at-
vinnuleysi.
Það er eðlilegt að stjórnar-
flokkar finni andbyr í bæja- og
sveitarstjórnakosningum, slíkt
er þekkt víða. Stjórn Giscards
galt mikið afhroð í síðustu bæja-
og sveitarstjórnakosningum sem
Bæja- og sveitarstjórnakosningar í Frakklandi:
Borgaraflokkana dreymir
um stórsigur á sunnudag
En skoðanakannanir spá því að stjórnar-
flokkarnir haldi sínu fylgi að mestu leyti
„Allt er leyfilegt í draumum" segir franskur málsháttur og ekki er
langt síöan Valery Giscard d’Estaing fyrrverandi forseti Frakklands lét
sig dreyma opinberlega um stórsigur borgaraflokkanna í bæja- og sveit-
arstjórnakosningunum í mars. Ef þessi draumur hans yröi að veruleika
yrði Mitterand aö gegna þeirri siðferöilegu skyldu aö rjúfa þing og boöa
til kosninga. Með borgaraflokkana í meirihluta á þingi yrði forseti sósíal-
ista tilneyddur aö draga sig í hlé og áöur en þjóðin vissi af væri Giscard
d’Estaing kominn aftur í Elysée-höllina.
Draumar forsetans fyrrver-
andi eru dæmigerðir fyrir
það andrúmsloft sem ríkt hefur
á undanförnum tveimur mánuð-
um hjá stjórnarandstöðunni.
Bæja- og sveitarstjórnakosn-
ingarnar sem fram fara 6. og 13.
mars nk. voru fyrirfram unnar í
hugum leiðtoga borgaraflokk-
anna. Skoðanakannanir sögðu
það vera ótvírætt og stjórnar-
flokkarnir voru í varnarstöðu
vegna efnahagskreppunnar. Það
virðist hafa horfið í skuggann í
kosningabaráttunni að um er að
ræða bæja- og sveitarstjórna-
kosningar þar sem verið er að
kjósa bæjarstjóra og fulltrúa í
bæjarstjórnir þar sem málefni
lítilla staða eru í brennidepli, en
ekki verið að kjósa um heildar-
hagsmuni þjóðarinnar beinlínis.
Andrúmsloft
hlaöiö spennu
Þessi kosningahugur sem síð-
ar hefur mikið rénað er til vitnis
um spennuþrungið stjórnmála-
ástand í Frakklandi um þessar
mundir. Hins vegar bendir
margt til þess að áhugi á kosn-
ingunum nú sé mun minni meðal
hins almenna Frakka heldur en
hjá þeim sem í Frakklandi kall-
ast „stjórnmálastéttin". Nokkur
hinna stóru frönsku dagblaða
hafa undanfarna mánuði ein-
beitt sér að því að skrifa um
kosningarnar fyrir þessa „stétt".
Opinberlega hófst kosningabar-
áttan nú fyrir skömmu.
Kosningarnar verða án efa
misjafnlega spennandi eftir
stöðum, en það er heildarútkom-
an sem er áhugaverð þar sem
þetta er í fyrsta skipti sem kosið
er frá því Mitterrand og stjórn
hinna tveggja vinstriflokka tók
við völdum sumarið 1981. Að
undanförnu hafa skoðanakann-
anir verið meira uppörvandi
fyrir stjórnarflokkana en um
síðustu áramót. Er talað um í
því sambandi að sigurvissa borg-
araflokkanna hafi orðið til þess
að skorin var upp herör hjá
vinstriflokkunum og stjórnar-
andstaðan talar ekki lengur um
að koma vinstristjórninni úr
valdastóli að afloknum kosning-
um. Þjóðþingið verður að sitja út
kjörtímabilið eða til 1986. For-
setinn verður að sitja út sinn
tíma eða til 1988 og tilraunir
sósíalista verða að fá sinn tíma,
fram fóru 1977. Minni háttar
hnekkir í kosningum nú mun
ekki slá stjórnarflokkana út af
laginu, þrátt fyrir efnahags-
kreppu. Leiðtogi Sósíalista-
flokksins, Lionel Jospin, hefur
sagt, að missi þeir meirihluta
sinn í t.d. fimmtán bæjum, sé
það ofur eðlilegt.
Meginreglan er, að stjórnar-
flokkarnir og þeir sem eru í
stjórnarandstöðu hafi kosn-
ingasamvinnu í bæja- og sveitar-
stjórnakosningunum. Aðeins í
örfáum tilvikum kemur til inn-
byrðis uppgjörs milli flokkanna í
fyrstu umferð kosninganna sem
nú fara fram 6. mars, en síðari
umferðin fer fram 13. mars.
Alþjóðastjórnmál
Hvað snertir alþjóðastjórn-
mál, er fullvíst að kosningarnar
6. mars fá minni athygli en ella
sökum þýsku kosninganna sem
fram fara sama dag. Mikið sam-
hengi getur verið milli alþjóð-
legra stjórnmála og innlendra og
ef Helmut Kohl verður sigurveg-
ari kosninganna í Þýskalandi,
má vænta þess að markið styrk-
ist og frankinn veikist. Það gæti
síðan veikt stöðu frönsku stjórn-
arinnar og haft mikil áhrif þar
innanlands. Mitterrand hefur
ekki dregið dul á, að hann styður
Kohl í stefnu hans í samskiptum
austurs og vesturs og hann mun
ekki æskja þess að Hans-Jochen
Vogel, leiðtogi sósíaldemókrata,
komist til valda. En einnig það
gæti haft miklar afleiðingar
fyrir frönsk stjórnvöld.
(Heimild: Politiken.)
Vestmanneyingar
fæddir 1959
Ætlunin er aö hittast í Reykjavík 13.—14. maí nk. í
tilefni af því aö liðin eru 10 ár frá því viö vorum fermd.
Vinsamlegast hafiö samband viö neöangreinda aðila
fyrir 15. mars nk.
Gunnar Þorsteinsson s. 38041, Anna S. Karlsdóttir
sími 98-1688, Marta Jónsdóttir sími 982192 og Sól-
veig Arnfinnsdóttir simi 98-1769.
VörumarkaðS'
verð og
Vörumarkaðs-
úrval
Avaxtasafi
TROPICANA
Appelsínusafi
Appelsínusafi
Appelsínusafi
Grapefruitsafi
Grapefruitsafi
Eplasafi
Eplasafi
Eplasafi
Ananassafi
Ananassafi
Tómatsafi
Sveskjusafi
Appelsínujaykkni
FLÓRIDANA
Appelsínusafi
Eplasafi
Ananassafi
Appelsínuþykkni
JUST JUICE
Orange
Appel
Pineapple
Grapefruit
SANÍTAS
Appelsínusafi
Appelsínusafi
sykursnauður
Ávaxtasafi
FLÓRA
Appelsínusafi
Appelsínusafi
Ananassafi
Ananassafi
EGILS
Appelstnusafi
Ananassafi
Hindberjasafi
TOPP
Appelsínusafi
Leyft Okkar
verð verð
0,94 lítrar
1,88 lítrar
0,25 lítrar
0,94 lítrar
0,25 lítrar
0,94 lítrar
1,88 lítrar
0,25 lítrar
0,94 lítrar
0,25 lítrar
0,94 lítrar
0,94 lítrar
0,25 lítrar
0,25 lítrar
0,25 lítrar
0,25 lítrar
0,25 lítrar
1,00 lítri
1,00 lítri
1,00 lítri
1,00 lítri
38,20
72,35
11,25
34,15
11,10
33.80
63.80
9,55
26,10
7,85
20,60
37,50
30,00
9,70
7,55
7,95
26,25
41,95
41,95
38,25
44,50
34.40
65,10
10,15
30.75
10,00
30.40
57.40
8,60
23.50
7,00
18.50
33.75
27,00
8,75
6,80
7,15
23,65
37,75
37,75
34,45
39,60
1,80 lítrar 42,50 38,25
1,80 lítrar
1,80 lítrar
1,00 lítri
2,00 lítrar
1,00 lítri
2,00 lítrar
1,00 lítri
1,00 lítri
1,00 lítri
47,60
50,40
26,45
55,30
23,70
50,65
28,95
28,95
28,95
42,85
45,50
23,80
49,75
21,30
45,60
26,00
26,00
26,00
1,00 lítri 34,95 31,45
Matvælakynningar
Hilmar Jónsson í Gestgjafanum stjórnar
kynningu á Gluten Blue Star-hveiti frá kl.
4—7.
íslensk Matvæli hf.
kynna glæsilegt úrval framleiösluvara sinna
frá kl. 4—7.
Ath.: Allt dilkakjöt á gamla verðinu.
Opiö til kl. 8 í kvöld
og til hádegis á morgun.
Pllifi
Armúla 1A. Sími 86111.