Morgunblaðið - 04.03.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983 31
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Víkingur sigraði
Val í gær 5—3
ÍSLANDSMÓTID í innanhúss-
knattspyrnu í Mfl. karla hófst (
Laugardalshöllinni í gærkvöldí.
En þá fóru fram átta leikir. Úrslit í
leikjunum urðu þessi:
KR — Fylkir 4—1
Þróttur R. — Valur Rv. 3—3
ÍR — ÍK 5—3
Afturelding — Stjarnan 6—5
UBK — Fylkir 6—2
Víkingur R. — Valur R. 5—3
Óðinn — ÍR 3—11
Grótta — Armann ?
Haukar — Afturelding ?
Úrslit í síðustu tveimur leikjun-
um náðust ekki þar sem blaöið
fór svo snemma í prentun. Mót-
inu veröur fram haldið í dag kl.
16.00.
Fyrsti leikur mótsins var á milli
KR og Fylkis. KR skoraði strax í
leiknum og var staöan 1—0 í hálf-
leik. f þeim seinni bættu KR-ingar
þremur mörkum viö en undir lokin
skoraöi Valur Ragnarsson fyrir
Fylki eitt mark og voru lokatölur
því 4—1.
Þá voru þaö Þróttur R. og Valur
R. sem léku. Þróttarar höföu fyrri
hálfleikinn alveg fyrir sig og í hléi
var staðan 3—1 fyrir þá. Valsmenn
sóttu stíft í síöari hálfleiknum og
Þannig voru
liðin skipuð
VEGNA þrengsla í blaðinu í gær
var ekki hægt að birta liöskipan
hjá Aston Villa og Juventus er lið-
in léku í gær, en hún var þannig:
Aston Villa: Nigel Spink, Gary
Williams (Deacy, 40), Colin Gib-
son, Des Bremner, Ken
McNaught, Dennis Mortimer,
Andy Blair, Gary Shaw, Peter
Withe, Gordon Cowans, Tony
Morley.
Juventus: Dino Zoff, Claudio
Gentile, Antonio Cabrini, Mass-
imo Bonini, Sergio Brio, Gaetano
Scirea, Roberto Bettega, Marco
Tardile, Paolo Rossi, Michel Plat-
ini, Zbigniew Boniak.
þegar leikurinn var flautaöur af
höföu þeir náö aö jafna, 3—3.
Hilmar Sighvatsson skoraöi öll
mörk Vals, 3.
ÍR sigraöi síðan ÍK í næsta leik
meö 5 mörkum gegn 3 en staðan í
hálfleik var 2—2.
Afturelding og Stjarnan léku því
næst í fjörugum leik, og í hálfleik
var staðan 5 mörk gegn 4 Stjörn-
unni í vil. Afturelding náöi sér vel á
strik í seinni hálfleiknum og sigr-
aöi, 6—5.
UBK vann stóran sigur á Fylki
en lokatölurnar uröu 6—2 en afar
sprækt UBK-liö haföi yfir í hálfleik,
2—0.
Valur lék sinn annan leik gegn
Víkingi og þurftu þeir svo sannar-
lega aö standa sig vel eftir aö hafa
gert jafntefli viö Þrótt fyrr um
kvöldið. Leikinn var mjög góöur
varnarleikur á báöa bóga, en Vík-
ingar sóttu mun betur. Engu aö
síður höfðu Valsmenn yfir, 1—0, í
hálfleik, meö marki Gríms. Vík-
ingar mættu eldhressir í seinni
hálfleikinn og fyrr en varöi höföu
þeir gert þrjú mörk í röö, Sverrir
tvö og Heimir Karlsson eitt. Hilmar
minnkaöi muninn stuttu síöar fyrir
Val, og mikil spenna komin í leik-
inn. Víkingar gerðu þá spennu hins
vegar aö engu og Ömar Torfason
og Sverrir skoruöu sitt markiö
hvor áöur en yfir lauk og lokatölur
voru því 5—3 Víkingum í vll,
sanngjörn úrslit.
BJ.
Fram
sigraði
EINN leikur fór fram í gærkvöldi í
1. deild kvenna. Fram sigraði Þór
á Akureyri, 19—10. í hálfleik var
staðan 6—5. Mörk Fram skoruðu:
Guðríður 10, Sigrún 4, Arna 2,
Margrét 2, og Oddný 1. Guðrún
var markahæst í liði Þórs með 5
mörk.
AS/ÞR
ísland náði átta marka
forskoti en missti síðan
leikinn niður í jafntefli
Frá Skapta Hallgrtmaayni, Hollandi.
SÁ ÓSTÖÐUGLEIKI sem loðað hefur við íslensk landslið, í langan
tfma, geröi heldur betur vart viö sig hér í Apeldorf í Hollandi er ísland
mætti ísrael í B-keppninni í handknattleik. Eftir mjög góða byrjun
hrundi leikur íslenska liðsins algjörlega. Fyrstu 15 mínútur leiksins
máttu ísraelsmenn sín lítils gegn ákveönum íslendingum, varnarleikur
íslenska liðsins var mjög góður þar sem menn töluðu vel saman og
voru að berjast. Og sóknarleikurinn gekk mjög vel upp. Alfreö Gísla-
son var í miklum ham í byrjun og skoraðl þrjú fyrstu mörkin með
þrumuskotum. ísraelsmenn tóku hann þá úr umferö og þá losnaði um
aðra leikmenn liösins.
Strax a fyrstu minutum leiksins
kom í Ijós aö sóknarleikur ísra-
elsmanna var mjög einhæfur og
mjög lítil ógnun í honum. Og varn-
arleik hefur maöur oft séð betri en
þeir sýndu. Þegar þetta er haft í
huga er þaö enn grátlegra að þurfa
aö horfa á íslensku leikmennina
missa leikinn niöur í jafntefli, en
úrslit leiksins uröu 22—22. Eftir aö
ísland haföi haft yfir í hálfleik,
14—9.
ísland hefur nú hlotið fimm stig í
sínum riöli og nær mjög sennilega
aö halda sæti sínu í B-riöli, þó svo
aö liöiö hafi ekki leikið vel í keppn-
inni fram aö þessu.
Gangur leiksins:
Islensku leikmennirnir hófu leik-
inn af miklum krafti og kafsigldu
leikmenn ísraels alveg. Eftir 10
mínútna leik var staðan orðin
7—2, og strákarnir bættu enn um
betur og komust í 10—2 eftir 13
mínútur; yfirburðastaöa. Munurinn
oröinn átta mörk og maður farinn
aö sjá fyrir sér verulega ánægju-
legar lokatölur í leiknum.
En er hér var komiö sögu tók
heldur betur aö síga á ógæfuhliö-
ina. Gefiö var eftir í vörninni og
baráttan minnkaöi. Einnig varöi
markvörður ísraelsmanna vel og
auk þess fóru nokkur góö færi for-
göröum.
Upphaf síöari hálfleiksins var al-
gjör vitleysa. Fyrsta markiö í hálf-
leiknum kom ekki fyrr en á fjóröu
mínútu og skoruðu ísraelsmenn
það. Þeir geröu reyndar tvö fyrstu
mörkin og áfram héldu þeir og
minnkuðu muninn. Þeim tókst aö
jafna í fyrsta skipti í leiknum a 49.
mínútu leiksins, 19—19, en stuttu
áöur haföi Island haft 4ra marka
forystu, 16—12, 17—13 og
18— 14, en næst kom slæmur 5
mínútna kafli og þá breyttist staö-
an í 18—17.
Eftir aö staöan varö jöfn,
19— 19, átti Þorbergur Aðal-
steinsson mjög ótímabært skot úr
lélegu færi sem var varið og Krist-
jáni Arasyni var vikið útaf í tvær
mínútur. Útlitiö allt annaö en
glæsilegt, en heppnin var meö ís-
lenska liöinu því aö ísraelsmenn
klúöruöu dauöafæri í næstu sókn
sinni og Þorbergi tókst aö koma
íslandi yfir, 20—19. Aftur var
heppnin með islandi er þrumuskot
fór í Einar markvörö, skrúfaöist
aftur fyrir hann og var næstum far-
iö inn í markið en datt ofan á þver-
slána. Siguröur Sveinsson skoraöi
næsta mark og munurinn oröinn
tvö mörk, 21 — 19. Og þegar ein og
hálf mínúta var eftir var munurinn
enn tvö mörk, 22—20.
Aðeins einni mínútu fyrir leiks-
lok skoraöi ísrael og staöan var
22—21. í næstu sókn íslenska
liðsins náðu israelsmenn boitanum
af islendingum komust inn i all-
slaka sendingu Þorbergs og brun-
uðu fram og jöfnuöu metin,
22—22. Rétt undir lokin átti Alfreð
þrumuskot í stöng hjá ísrael og
svo til í sömu mund var leikurinn
flautaður af.
Það er fátt hægt aö segja um
leik íslenska liðsins, hann var svo
sveiflukenndur aö meö ólíkindum
var.
Enginn einn leikmaöur skar sig
• islandsmótið í innanhússknattspyrnu hófst I gærkvöldi í Laugar-
dalshöllinni. 64 lið taka þétt í mótinu. Þessi mynd er frá fyrsta leik
mótsins en þá sigraði lið KR lið Fylkis örugglega, 4—1. Það er Fylkis-
maður sem á skot aö marki KR. LjAsm. Emilia.
Island —
Israel
22:22
verulega úr, en Alfreð var einna
skástur þó svo aö hann hafi gert
sig sekan um margar villur. Sókn-
arnýtingin í fyrri hálfleiknum var
sæmileg eða 50%, 14 mörk skor-
uöu úr 28 sóknarlotum. En í síðari
hálfleiknum fór sóknarnýtingin
niöur í 33%, aðeins átta mörk voru
skoruð í 24 sóknarlotum. Þetta var
mjög slakt þegar þess er gætt aö
lið ísraels er mjög slakt. Þá er þaö
hreint út sagt furðulegt aö vera
meö átta marka forskot, 10—2,
eftir 13 mínútna leik en missa síö-
an leikinn niöur i jafntefli.
Mörk Islands skoruöu þessir
leikmenn: Alfreð 7, Þorbergur 5,
Bjarni 3, Jóhannes 2, Siguröur 2, 1
v, Kristján, Guðmundur og Hans 1
mark hver.
SH/ÞR
Staðan
ÚRSLIT leikja í B-keppninni í
gærkvöldi urðu þessi:
A-riðill:
Ungverjal. — Spánn 20—19
Tékkósl. — Sviss 25—14
V-Þýskal. — Svíþjóð 18—15
Staðan í A-riðli:
V-Þýskaland 3 2 1 0 51:47 5
Tékkóslóvakía 3 2 0 1 64:51
Sviss 3 1 1 1 53:63 3
Svíþjóð 3 1 0 2 60:63 2
Spánn 3 0 0 3 60:69 0
B-riðill:
ísland —ísrael 22—22
Holland — Belgía 22—23
Frakkl. — Búlgaría 20—18
Frakkland 3 2 1 0 62:55 5
ísland 3 2 1 0 71:66 5
Holland 3 111 57:51 3
ísrael 3 111 55:61 3
Belgía 3 1 0 2 61:68 2
Búlgaría 3 0 0 3 65:70 0
SH/ÞR
Markahæstu
leikmenn
MARKAHJESTU leikmenn B-keppn
innar í Hollandi eru nú þessir:
Erhard Wunderlich, V-Þý»kal.
Kovacs, Ungverjal.
Dirk Verhofstadt, Belgíu
Uria, Spáni
Kristján Arason
Alfreð Gíslason 21