Morgunblaðið - 06.04.1983, Side 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983
FPAM
TÖLVUSKÓLI
Tölvunámskeið
Innritun stendur nú yfir á eftirtalin tölvunámskeið
er hefjast eftir páska.
Almennt
grunnnámskeið
Á þessu námskeiði eru kennd grundvallaratriði
tölvufræðinnar, svo sem uppbygging tölva, helstu
gerðir, notkunarmöguleikar og fleira.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er hafa áhuga á
að kynnast tölvum og notkunarmöguleikum þeirra,
sem og starfsmönnum fyrirtækja er starfa nú þeg-
ar við tölvur eða munu gera það í náinni framtíð.
Almennt
grunnámskeið
fyrir unglinga
Námsefnið er að öllu leyti hið sama og á almennu
grunnnámskeiði aö því undanskildu aö framsetn-
ing efnisins er miöuð við að þátttakendur séu á
aldrinum 12—16 ára.
BASIC 1
forritunarnámskeið
Efni þessa námskeiðs er miðað við að þátttakendur
hafi einhverja undirstööu í tölvufræöum, hafi t.d. sótt
almennt grunnnámskeið. Kennd eru grundvallaratriði
forritunar, uppbygging forrita og skipulagning. Við
kennsluna er notað forritunarmálið BASIC. Að loknu
þessu námskeiði eiga þátttakendur aö vera færir um
að rita forrit til lausnar á ýmsum algengum verkefn-
um er henta til lausnar meö tölvu.
BASIC 1
forritunarnámskeið
fyrir unglinga
Námsefniö er aö öllu leyti hið sama og á almennu
Basic forritunarnámskeiði að því undanskildu að
framsetning námsefnisins er miðuð við að þátttak-
endur séu á aldrinum 12—16 ára.
Framsýn býður
framhaldsnám
Auk ofangreindra námskeiða býður Framsýn
framhaldsnámskeið er hefjast á sama tíma. Meðal
þeirra möguleika er þar bjóðast, má nefna: BASIC
2 forritunarnámskeið, COBOL 1 forritunarnám-
skeið, CP/M stýrikerfisnámskeiö, fjölda annarra
námskeiöa fyrir þá sem svala vilja fróöleiksfýsn og
auka við þekkingu sína.
Innritun og upplýsingar um ofangreind nám-
skeið í síma 91-39566 milli klukkan 13.00 og 18.00
og um helgar milli klukkan 13.00 og 16.00.
TÖLVUNÁMSKEIÐ ER FJÁRFESTING í
FRAMTÍÐ ÞINNI.
Tölvuskólinn Framsýn, Síðumúla 27,
Pósthólf 4390, 124 Reykjavík, sími 39566.
Mbl./Aroór.
íslandsmeistarar í sveitakeppni 1983, sveit Þórarins Sigþórssonar. Talið frá vinstri: Guðmundur Páll Arnarson,
Þórarinn Sigþórsson, Björn Eysteinsson, Guðmundur Sveinsson, Guðmundur Sv. Hermannsson og Þorgeir Eyjólfs-
son.
Sveit Þórarins Sigþórssonar íslandsmeistari í bridge:
Glæsileg spilamennska í lokaum-
ferðinni tryggði yfirburðasigur
Bridge
Arnór Ragnarsson
Sveit Þórarins Sigþórssonar
sigraði glæsilega í 8 sveita úrslita-
keppninni um Islandsmeistaratitil-
inn í sveitakeppninni sem lauk á
páskadag. Hlaut sveitin 128 stig af
140 mögulegum. Af þessum 12
stigum sem vantaði til að ná fullu
húsi töpuðust 10 fyrsta keppnis-
daginn. Eina sveitin sem ógnaði
meistartitli Þórarins var sveit Sæv-
ars Þorbjörnssonar. Eitthvað virt-
ist spilamaskína þeirra einnig
hiksta í upphafi mótsins því þeir
töpuðu fyrsta leiknum fyrir sveit
sem varð í neðsta sætinu. Þórarinn
Sigþórsson hefir þrisvar sinnum
orðið íslandsmeistari í bridge, síð-
ast 1981 en þá spilaði hann í sveit
Egils Guðjohnsens, en sveit með
nafni Þórarins hefir ekki orðið ís-
landsmeistari áður. f fyrra varð
sveitin í öðru sæti eftir sveit Sæv-
ars Þorbjörnssonar sem hreinlega
„stal“ Islandsmeistaratitlinum í
síðustu spilum mótsins. Þá hlaut
Þórarinn 102 stig en Sævar 103
stig. Meðspilarar Þórarins, þ.e. ís-
landsmeistararnir { bridge 1983
eru: Guðmundur Páli Arnarson,
Björn Eysteinsson, Guðmundur
Sv. Hermannsson, Þorgeir Eyj-
ólfsson og Guðmundur Sveinsson.
Enginn þessara spilara hefir áður
orðið íslandsmeistari í sveita-
keppni.
Þegar sex umferðum var lokið í
mótinu var sú staða komin upp, að
aðeins sveitir Þórarins og Sævars
Fríðríks Ólafssonar
Vornámskeiðin hefjast í vikunni 11.—15. apríl í
húsakynnum skólans að Laugavegi 51,3. hæö. Aö
þessu sinni er boðið uþþ á fjögur mismunandi
námskeið:
BYRJENDAFLOKK
FRAMHALDSFLOKK I
FRAMHALDSFLOKK II
FRAMHALDSFLOKK III
Hvert námskeiö er 12 klst. í flokkum 13 ára og
yngri verður kennt frá 17—19 á daginn, en í flokk-
um fulloröinna frá 20—22 og veröur þeim nú gef-
inn kostur á að æfa sig að kennslu lokinni.
Skráning
Innritað veröur út þessa viku fram á sunnudag á
milli kl. 16 og 19 í skólanum sjálfum, eöa á sama
tíma í síma 25550.
Sérnámskeið
í skákskólanum er einnig boöið uþþ á einkatíma.
Skólinn útvegar leiðbeinendur til kennslu og fjöl- *
tefla bæði í Reykjavík og úti á landi.
Skákskólí Friðrfks Ófafssonar
Laugavegi 51 Síml. 25550.
Friðrik Ólafsson. GuðmundurSigurjónsson, Helgi Ólafsson,
Jón L Árnason, Margeir Pétursson.
Pétur
Jónasson
kynnir
gítarinn
NÆSTII daga mun Pétur Jónasson
gítarleikari kynna hljóðfæri sitt í
skólum á Suðurlandi og er ferð þessi
styrkt af menntamálaráðuneytinu.
Miðvikudaginn 6. apríl heim-
sækir Pétur Kirkjubæjarklaustur,
fimmtudaginn 7. apríl Vík í Mýr-
dal og föstudaginn 8. apríl Hellu
og Hvolsvöll.
Á kvöldin mun Pétur halda
opinbera tónleika á viðkomustöð-
um sínum og flytja þá efnisskrá
sem spannar öll helstu tímabil í
sögu gítarsins, frá endurreisnar-
tímanum til vorra daga. Tónleik-
arnir á Kirkjubæjarklaustri verða
í kapellunni klukkan 21.00, í kirkj-
unni í Vík klukkan 20.30 og áform-
að er að hann haldi tónleika á
Hellu á föstudagskvöldið.