Morgunblaðið - 07.04.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
Áhrif áburðarverðshækkunarinnar:
Búvöruverð hækkar
um 4—5% 1. júní
Hefur í för með sér 0,75—1% hækkun F-vísitölu
LANDBÚNAÐARVÖRUVERÐ mun hækka um 4—5% 1. júní nk. vegna 70%
hækkunar á áburðarverdi, en verð til bænda mun hækka um 4,95%. For-
senda þessa er að niðurgreiðslur ríkisins verði óbreyttar.
Sem dæmi um hækkun á land-
búnaðarvöruverði má nefna, að
súpukjöt mun hækka um 5% og
mjólkurverð mun hækka um 4,8%,
þannig að hver lítri mjólkur mun
hækka um 55 aura, eða úr 12,65
krónum í 13,20 krónur.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
hefur 4—5% hækkun landbúnað-
arvöruverðs í för með sér
0,75—1% hækkun á framfærslu-
vísitölu, sem vegna margföldun-
aráhrifa hefur í för með sér í
kringum 3,5% hækkun verðbólg-
unnar.
Þá má nefna, að um 1% hækkun
á framfærsluvísitölu hefur í för
með sér þörf útflutningsatvinnu-
veganna fyrir um 1% gengislækk-
un.
Sveinn G. Gylfason, ungl-
ingameistari í skák látinn
SVEINN Gunnar Gylfason, ungl-
ingameistari íslands í skák árið
1980, lézt á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans í Reykjavík á annan
páskadag eftir skamma sjúkdóms-
legu. Sveinn var fæddur 9. apríl
efnilegur skákmaður og gat sér
fyrst gott orð á árunum 1978—79
er foreldrar hans bjuggu í Dan-
mörku. Þá var Sveinn amtmeistari
stór-Kaupmannahafnarsvæðisins
í sínum aldursflokki. Hann var
síðan annar á unglingameistara-
móti Danmerkur fyrir 12 ára og
yngri árið 1978, en sigraði alla
keppinauta sína í aukakeppni
fyrir fjóra efstu keppendurna.
Eftir þetta vann hann sinn
flokk á móti í Váxjö í Svíþjóð 1979
og tefldi auk þess með meistara-
liði Gladsaxeborgar í dönsku
deildakeppninni. Þessi árangur
Sveins vakti mikla athygli í
Danmörku og Svíþjóð vegna þess
hve ungur hann var og frá íslandi.
Eftir að Sveinn kom heim tefldi
hann fyrir Skákfélag Keflavíkur
og varð unglingameistari íslands í
flokki 20 ára og yngri árið 1980, en
var þó aðeins 14 ára gamall. Þegar
hann veiktist, daginn fyrir skír-
dag, hafði hann nýhafið þátttöku í
Skákþingi íslands 1983.
Ljðsm.: Emilia Björg Björnadöttir.
Níels Marteinsson með nýju gróðurhúsaávextina; agúrkur, radfsur, sal-
at, kínakál og fleira.
Nýir gródurhúsaávextir komnir á markað:
Verð á agúrkum lækkar úr
70 krónum í 50 pr. kg í dag
NÝJAR íslenskar agúrkur eru
nú komnar á markaðinn, og er
framboð þegar orðið það mikið
að verð á hverju kílógrammi
lækkar úr 70 krónum í 50 krónur
frá og með deginum í dag. Auk
þess sem gúrkur eru komnar á
markað, sagði Níels Marteinsson
hjá Sölufélagi garðyrkjumanna í
gær, væru komnar radísur og
einnig lítilsháttar af papriku,
ásamt salati, steinselju og kína-
káli.
Garðávexti þessa sagði hann
vera komna úr gróðurhúsum
víða um land, svo sem frá Hvera-
gerði, Biskupstungum, Hruna-
mannahreppi og Borgarfirði. ís-
lenskir tómatar eru ekki enn
komnir á markað, en Níels sagði
von á þeim í næsta mánuði.
Skákþing íslands:
Ágúst, Hilmar
og Elvar tefla
til úrslita
ER Skákþingi íslands var að Ijúka
seint í gærkveldi var Ijóst að Svíinn
Dan Hansson myndi sigra í landsliðs-
flokki, og hljóta fyrstu verðlaun, sem
eru sólarlandaferð. Um leið var Ijóst að
þrír menn yrðu jafnir í öðru til fjórða
sæti, Ágúst S. Karlsson, Hilmar S.
Karlsson og Elvar Guðmundsson, allir
með 7,5 vinninga. Munu þeir þrír þar
með tefla aukaskákir um Islandsmeist-
aratitilinn, þar sem Dan tekur ekki
þátt í þeirri keppni, þar eð hann er
sænskur ríkisborgari.
Ágúst Karlsson og Ásgeir Kára-
son gerðu í gærkveldi jafntefli og
einnig varð jafntefli hjá Hilmari
Karlssyni og Gylfa Þórhallssyni, og
Elvar Guðmundsson vann Sævar
Bjarnason.
Til aöstandenda
námsmanna:
Eru námsmenn
erlendis á
kjörskrá?
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálf-
stæðisflokksins hefur beðið Morg-
unblaðið að koma þeim tilmælum til
námsmanna erlendis og aðstand-
enda þeirra hér heima, að þeir kanni
hvort viðkomandi séu á kjörskrá eða
ekki.
Komið hefur í ljós, að þó lög
segi nú til um, að námsmenn er-
lendis skuli vera á kjörskrá, þá eru
mikil brögð að því að svo sé ekki.
Kærufrestur vegna þessa rennur
út hinn 8. apríl, og fyrir þann tíma
þarf að gera athugasemdir, sé fólk
ekki að finna á kjörskránni vegna
alþingiskosninganna 23. apríl.
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálf-
stæðisflokksins mun veita upplýs-
ingar um þessi mál, og jafnframt
aðstoða við leiðréttingar sé þess
óskað.
Portúgal:
1.200 tonn af saltfíski
tekin heim vegna selorms
1966, sonur hjónanna Gylfa Guð-
mundsNonar, skólastjóra Grunnskól-
ans í Keflavík og Guðrúnar Jóns-
dóttur, kennara. Sveinn var við nám
í Fjölbrautaskóla Keflavíkur.
Hann var þekktur sem mjög
Snjóflóð skemmdi
dælustöð í Siglufirði
SNJÓFLÓÐ féllu í gær í Siglufirði,
innan kaupstaðarins, og tóku þau
með sér aðra af tveimur dælustöðv-
um Hitaveitu Siglufjarðar sem þar
er.
Veldur þetta mjög minnkandi
heitavatnsstreymi til bæjarins, og
hvöttu bæjaryfirvöld Siglfirðinga
í gærkveldi til að spara heita
vatnið eins og mögulegt er.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
snjóflóð valda skaða á dælustöðv-
um Hitaveitu Siglufjarðar, því þar
skemmdust dæluhúsin mikið í
flóði fyrir nokkrum misserum.
„ÞAÐ ER LJÓST, að eftir þetta áfall
verðum við að ormahreinsa allan
saltfisk og skyggna á Ijósaborði áður
en honum verður pakkað til útflutn-
ings. Við höfum einnig tekið þá
ákvörðun að 1.200 lestir af saltfiski,
sem verið var að skipa upp í Portú-
gal verði teknar heim til endur-
vinnslu. Ljóst er að þetta hefur mjög
aukinn kostnað í för með sér, en hjá
þessu verður ekki komizt, ef við ætl-
um okkur að halda saltfiskmörkuð-
um okkar erlendis," sögðu Friðrik
Pálsson, framkvæmdastjóri SÍF, og
Þorsteinn Jóhannesson, stjórnarfor-
maður SÍF, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Það kom í ljós fyrir páska, að
Portúgalir höfðu orðið varir við
óvenju mikið af selormi í saltfiski,
sem þar var verið að skipa upp úr
flutningaskipinu Suðurlandi. Þá
hafði um 450 lestum verið skipað
upp, en alls voru 1.200 lestir í
farminum. Okkur fannst ekki ann-
að fært, en að taka fiskinn heim
aftur til að bjarga markaðnum.
Hér verður fiskurinn síðan flokk-
aður, endurmetinn og orma-
hreins^ður áður en hann verður
sendur aftur á markað erlendis.
Kostnaður vegna þessa reiknast
okkur til að vera muni á bilinu 6
til 7 milljónir. Þá fylgir því auð-
vitað mikill kostnaður að orma-
hreinsa allan fisk í framtíðinni og
gaeti það orðið á bilinu 40 til 60
milljónir, en mjög erfitt er að geta
sér til um ákveðna upphæð."
Hver er skýringin á þessu nú?
„Til þessa hefur fiskur sem farið
hefur til Portúgal, Spánar og ítal-
íu ekki verið fyllilega ormalaus
enda hefur þess ekki verið krafizt
og ekki komið kvartanir af þessu
tagi áður. Hins vegar hefur allur
fiskur af 1. og 2. gæðaflokki átt að
vera ormalaus. Það er aðeins á
Grikkland, sem allur fiskur hefur
verið skyggndur og ormahreinsað-
ur. Nýlega bárust Portúgölum
upplýsingar um að mikið af sel-
ormi væri í saltfiski, sem var á
leiðinni þangað frá Alaska. Svo
reyndist rétt og var sá farmur
stöðvaður. í kjölfar þess hafa þeir
skoðað framinn frá okkur og því
er ekki að leyna, að í þessum farmi
var meira af ormi en leyfilegt er.
Því veldur væntanlega vaxandi
ormagegnd vegna fjölgunar sels
og það að ekki hefur verið fylgzt
nægilega vel með vinnslu fisksins
hér heima. Þá er ljóst að nýjar
kröfur og eru gerðar það er svo, að
matvælaeftirlit er sífellt að verða
meira i Evrópu. Við því er ekkert
annað að gera en að auka gæða-
eftirlit hér heima."
Hvaðan var þessi ormafiskur?
„Það voru óvenjumargir fram-
leiðendur, sem áttu fisk í þessu
skipi, eða um 100 talsins enda lest-
aði skipið á svæðinu frá Suður-
nesjum norður og austur um að
Eskifirði. Aðeins var búið að losa
og skoða frá fáum framleiðendum,
en selormar fundust í fiski frá öll-
um kauptúnunum 5 á Snæfells-
nesi, 2 á Suðurnesjum, 2 á Norður-
landi og 1 á Vestfjörðum. En auð-
vitað voru pakkar frá sömu aðil-
um einnig ormalausir. Staersti
hlutinn var að sjálfsögðu óskoðað-
ur eftir í skipinu," sögðu þeir
Þorsteinn og Friðrik.
„Upplýsingarnar gefa ekki
rétta mynd af verðlaginu“
— segir Guðbjörg Þórhallsdóttir hjá Fríhöfninni í Keflavík
„VIÐ TELJUM þessar upplýsingar
ekki gefa rétta mynd af verðlaginu
í fríhöfninni og að þær standist
hreinlega ekki,“ sagði Guðbjörg
Þórhallsdóttir, sem vinnur hjá Frí-
höfninni á Keflavíkurflugvelli, í
saintali við Mbl., er hún var innt
álits á niðurstöðum á könnum út-
gefenda bókar sænska útgáfufyr-
irtækisins „General Publications"
á verðlagi í fríhöfnum víðsvegar
um heiminn, en samkvæmt þeim
er verðlag á vínum um 45% hærra í
Keflavík, en það er í Amsterdam,
eins og kom fram í Mbl. í gærdag.
„Við erum með öll okkar verð
bundin í dollurum og erum því
að breyta almennu gengi hér
nánast annan hvern dag, sem
hefur í för með sér breytilegt
verð. Verð það sem um getur í
bókinni er því alls ekki í gildi í
dag og er eflaust gjörbreytt, þó
ekki hafi ég neinar nákvæmar
tölur þar að lútandi," sagði Guð-
björg ennfrerílur.
Þá sagði Guðbjörg ennfremur,
að verð á ýmsum vínum eins og
viskí hefði verið lækkað verulega
að undanförnu og sömu sögu
væri reyndar að segja af koníaki.