Morgunblaðið - 07.04.1983, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
Svavar
Jón Baldvin
Svavar hafnaði að
sitja kappræðufund
með Jóni Baldvin
Á FIMMTUDAG í fyrri viku gekk Jón
Baldvin Hannibalsson, efsti maður
A—listans í Reykjavík, á fund Svavars
Gestssonar, efsta manns G—listans,
Alþýðubandalagsins, og afhenti hon-
um bréf, þar sem Jón Baldvin skorar á
Svavar að mæta sér á kappræðufundi
um þau málefni, sem efst eru á baugi í
kosningabaráttunni. Fundurin var
ákveðinn í bréfinu fimmtudaginn 7.
aprfl kl. 20.30 í Sigtúni við Suðurlands-
braut.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá A—listanum, en þar segir
einnig: „Svavar tók sér umhugsunar-
frest til laugardags. Svar Svavars
barst hins vegar ekki fyrr en á
mánudag. Þá kvaðst Svavar hafna
því að mæta til kappræðunnar á um-
ræddum stað og tíma. Rækileg könn-
Kynning á stjórn-
málaflokkunum á
opnum fundi f MH
OPINN fundur verður í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð í kvöld og hefst
hann klukkan 20.30. Fulltrúar stjórn-
málaflokkanna kynna þar flokka
sína og stefnu þeirra. Flutt verða 7
mínútna framsöguerindi og í síðari
umferð fær hver flokkur 5 mínútur,
en síðan verða leyfðar fyrirspurnir.
Ólafur Ragnar Grímsson mætir af
hálfu Alþýðubandalags, Elín G.
Ólafsdóttir og Ingibjörg Hafstað af
hálfu kvennaframboðs, Bjarni
Guðnason fyrir Alþýðuflokk, Vil-
mundur Gylfason fyrir Bandalag
jafnaðarmanna, Haraldur Ólafsson
fyrir Framsóknarflokk og Friðrik
Sophusson fyrir Sjálfstæðisflokk.
un leiddi í ljós, að hvergi væri fáan-
legt fundarhúsnæði, sem rúmaði
væntanlegan fjölda fundargesta, á
heppilegum fundartíma. Þegar það
lá fyrir, ítrekaði Jón Baldvin áskor-
un sína til Svavars, það annað
tveggja að hliðra til með fundaáætl-
un sína, og mæta í Sigtúni á tilsett-
um stað og tíma, en senda ella f sinn
stað einhvern annan frambjóðanda
Alþýðubandalagsins í Reykjavík."
Þá segir að A—listinn muni halda
fundinn í Sigtúni nk. fimmtudags-
kvöld, en spurning sé hins vegar
hvort Svavar mæti eða tilnefni ann-
an í sinn stað.
Subbuskapur og skortur á
dreng-skap, segir Svavar
Gestsson
„Jón Baldvin er með þessu að
reyna að kaupa sér athygli á kostnað
annarra og svífst einskis til þess,
auglýsir jafnvel fundi og menn á þá,
sem ekki hafa samþykkt að mæta á
viðkomandi fundi,“ sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins er Mbl. bar efni fréttatil-
kynningarinnar undir hann.
Hann sagði einnig: „Ég svaraði
bréfi hans neitandi, sagði að það
væri of seint fram komið þar sem
svo margt er að gerast núna í kosn-
ingabaráttunni. En ég bauð honum
þó upp á það í símtali að athuga
þessi mál nánar. Þessi kveðja ber því
vott um subbuskap, sem maður hef-
ur ekki kynnst að undanförnu í þeim
pólitísku átökum sem hér eiga sér
stað. Ég tel að þarna komi fram
skortur á drengskap og heiðarleika
af hálfu þessa manns og þarna sé
hann á örvæntingarfullan hátt að
kaupa sér athygli á kostnað annarra
í erfiðri kosningabaráttu."
Sjálfstæðisflokkurinn:
Efnt til fjársöfnunar
vegna kosninganna
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efn-
ir til fjársófnunar meðal stuðnings-
manna sinna til að standa undir
kostnaðinum af kosningabaráttunni
vegna alþingiskosninganna. Verður
hún með þeim hætti að flokks-
bundnum Sjálfstæðismönnum og
stuðningsmönnum flokksins er
sendur gíróseðill að upphæð 300
krónur, sem þeir eru vinsamlegast
beðnir um að greiða. Þetta kom
fram hjá I)avíð Oddssyni, borgar-
stjóra, formanni Landssöfnunar-
nefndar Sjálfstæðisflokksins 1983
og Kjartani Gunnarssyni fram-
kvæmdastjóra flokksins.
Þá kom einnig fram hjá þeim,
að stutt er síðan síðustu kosningar
voru haldnar eða tíu mánuðir og
að alþingiskosningarnar nú eru
fimmtu kosningarnar á fimm ár-
um. Fyrir þessar kosningar verður
ekki efnt til sérstaks kosninga-
happdrættis, en Sjálfstæðistæðis-
flokkurinn efnir til vorhappdrætt-
is að venju í júní.
„Við vonum að söfnunin endur-
spegli það að Sjálfstæðisflokkur-
inn er fjöldaflokkur og að styrkur
hans kemur best í Ijós þegar hann
leitar eftir stuðningi fjöldans.
Jafnframt er það ljóst, að ef söfn-
unin gengur vel er það vottur um
að fólk hefur trú og traust á
flokknum, en gerir jafnframt
kröfu um að hann standi vörð um
sjónarmið þess," sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri.
f ávarpi sem fylgir gíróseðlun-
um segir meðal annars:
Ágæti Sjálfstæðismaður,
ákveðið hefur verið að gera sér-
stakt átak til þess að styrkja stöðu
Sjálfstæðisflokksins fjárhagslega
í þeim mikilvægu þjóðfélagsátök-
um, sem framundan eru. Sveita-
stjórnarkosningar eru ný afstaðn-
ar og þar færði samtakamátturinn
okkur víða sigur. Nú blasa við al-
þingiskosningar í apríl og líklega
aðrar kosningar síðar á árinu....
Við leitum til fólks um landið
allt og vonum að undirtektir
endurspegli þann samtakamátt
sem býr með því fólki á fslandi,
sem vill setja frelsið í öndvegi,
jafnt hjá atvinnulífi sem einstakl-
ingum. Ef við sameinumst ekki,
verða skoðanir okkar undir með
Fjársöfnun Sjálfstæðisflokksins vegna kosninganna kynnt. Davíð Oddsson,
borgarstjóri, formaður landssöfnunarinnar, og Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Morpinbimaií / kee
ófyrirsjánlegum afleiðingum fyrir
land og þjóð.“
Undir þetta ritar stjórn Lands-
söfnunarnefndarinnar, Davíð
Oddsson, borgarstjóri, Katrín
Eymundsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, Húsavík, Steinþór
Gestsson, alþingismaður, Hæli,
Theódór Blöndal, framkvæmda-
stjóri, Seyðisfirði, Jón Páll Hafl-
dórsson, forstjóri, ísafirði, Salome
Þorkelsdóttir, alþingismaður,
Mosfellssveit, Jósef H. Þorgeirs-
son, alþingismaður, Akranesi,
Gísli ólafsson, forstjóri, Seltjarn-
arnesi, Gunnar Gíslason, fyrrv.
prófastur, Glaumbæ og Ragnhild-
ur Helgadóttir, lögfræðingur,
Reykjavík.
Sameiginlegir fram-
boðsfundir á Austur-
landi og Vestfjörðum
Á næstu dögum verða haldnir sam-
eiginlegir framboðsfundir á Austur-
landi og Vestfjörðum og verða þeir
sem hér segir:
Vestfirðir:
Stjórnmálaflokkarnir, Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur, Bandalag
jafnaðarmanna.Framsóknarflokk-
ur, Sjálfstæðisflokkur og T-listi,
efna til sameiginlegra framboðs-
funda í Vestfjarðakjördæmi sem
hér segir:
í Árnesi 7. apríl kl. 14.00
í Sævangi 7. aprfl kl. 20.30
á Borfteyri 8. aprfl kl. 15.00
á Króksfjarðarnesi 8. aprfl kl. 20.30
á Patreksfirói 9. aprfl kl. 15.00
á Tálknafirói 9.aprfl kl. 15.00
á Bfldudal 10. aprfl kl. 15.00
á Pingeyri 10. aprfl kl. 15.00
á Flateyri 10. aprfl kl. 20.30
14. apríl halda fundirnir áfram og
verður nánar tilkynnt um þá síðar. Austurland:
Bakkafjördur 8. aprfl kl. 14.00
Vopnafjörður 8. aprfl kl. 21.00
Borgarfjöróur 9. aprfl kl. 14.00
Seydisfjörður 9. apríl kl. 21.00
Neskaupstaður 10. aprfl kl. 21.00
Kskifjörður 10. aprfl kl. 14.00
Reyðarfjörður 11. aprfl kl. 21.00
Egils.staðir 12. aprfl kl. 21.00
Fáakrúðafjörður 13. aprfl kl. 21.00
Stöðvarfjörður 14. aprfl kl. 21.00
Breiðdalur 15. aprfl kl. 21.00
Djúpivogur 16. aprfl kl. 14.00
Öræfi 18. aprfl kl. 14.00
Höfn 18. aprfl kl. 21.00
„Festa — sókn — framtíð“, kosningakjörorð Framsóknar:
Taka þarf á efnahagsmálunum
með meiri festu, en undanfarið
— sagði Steingrímur Hermannsson aðalframtíðarverkefnið
„VIÐ TELJUM ekki hjá því koraist
að taka á efnahagsmálunum með
meiri festu en á undanförnum mán-
uðum,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, í upphafi blaðamanna-
fundar í gær, þar sem stefnuskrá
Frmsóknarflokksins fyrir komandi
Alþingiskosningar var kynnt. Auk
Steingríms sátu fundinn af hálfu
Framsóknarflokksins Tómas Árna-
son, viðskiptaráðherra, og Haukur
Ingibergsson, framkvæmdastjóri
flokksins.
Kosningastefna Framsóknar er
lögð fram undir kjörorðunum Festa
— sókn — framtíð og gerði Stein-
grímur grein fyrir henni. Hann kvað
Framsóknarflokkinn boða þjóðar-
átak til efnahagslegs jafnvægis og
framfara, hann vildi sterka og sam-
henta stjórn sem stýrt gæti þjóðfé-
laginu inn á braut velmegunar, vax-
andi frjálsræðis, félagshyggju og
minnkandi ríkisafskipta. Steingrím-
ur sagði að ýmislegt hefði tekist vel í
núverandi ríkisstjórn, tekist hefði að
ná niður verðbólgunni með niður-
talningaleið Framsóknar árið 1981,
sem því miður hefði farið úr böndun-
um á ný. Hann kvað mikilvægt að á
næstu árum yrði sýnd festa í stjórn
landsmála svo unnt yrði að hefja
nýja sókn til betri framtíðar.
Steingrímur sagðist ekki hafa neitt
á móti því, eins og sumír hefðu haldið
fram, að kosið yrði tvisvar á árinu,
en á milli kosninga yrði að koma lagi
á efnahagsmálin. í stefnuskrá Fram-
sóknarflokksins varðandi efnhags-
málin er efst á blaði að lögbundið
verði til tveggja ára þak á hækkun
verðlags, opinberrar þjónustu, vaxta,
launa, búvöruverðs og fiskverðs. Þá
verði opinberar fjárfestingar minnk-
aðar til að skapa aukið svigrúm fyrir
atvinnuvegina. Aðspurður sagði
Steingrímur að hér væri átt við að
grundvallaratvinnuvegunum, svó
sem landbúnaði og sjávarútvegi, yrðu
sköpuð lífsskilyrði, verkefni eins og
kísilmálmverksmiðja i Reyðarfirði
mættu bíða síðari tíma.
Þeir kynntu stefnu Framsóknarflokksins fyrir kosningar. Ilaukur Ingi-
bergsson, framkvæmdastjóri, lengst til vinstri, þi Steingrímur Hermannsson
og Tómas Árnason. i.jösm. Mbi. Emflfa.
Þá segir að breyta eigi viðmiðun-
arkerfi launa þannig að verulega
dragi úr víxlverkun verðlags og
launa. Höfðu ráðherrarnir á orði í
því sambandi, að síðustu kjarasamn-
ingar hefðu leitt af sér 12—14%
hækkun launa, en kaupmáttur hefði
á sama tíma dregist saman um 7%
samkvæmt útreikningum.
Þá er fjallað um utanrikisviðskipti
og sögðu ráðherrarnir að draga
þyrfti úr óþarfa innflutningi og
nefndu pizza- og tertubotnainn-
flutning sem dæmi um óþarfa. Ekki
er minnst á stefnu Framsóknar-
flokksins í utanríkismálum í
kosningastefnuskránni, en aðspurður
sagði Steingrímur Hermannsson að
hún væri óbreytt og sú hin sama og
Ólafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra hefði framfylgt. Framsóknar-
flokkurinn væri hlynntur aðild okkar
að NATO og veru varnarliðsins.
Hann væri fylgjandi byggingu nýrr-
ar flugstöðvar og væri undirbúningi
að henni svo til lokið, en vegna neit-
unarvalds Alþýðubandalagsins væri
ekki unnt að hefja framkvæmdir á
meðan núverandi ríkisstjórn sæti.
Ríkisstjórnarsamstarfið var nokk-
uð til umfjöllunar og hugsanlegt
stjórnarmynstur að loknum kosning-
um. Steingrímur var m.a. spurður,
hvort hann væri enn þeirrar skoðun-
ar, að „allt væri betra en íhaldið", en
þau orð viðhafði hann fyrir síðustu
stjórnarmyndun. Hann kvaðst enn
þeirrar skoðunar, en í stjórnartíð
þessarar ríkisstjórnar hefði hann
komist að raun um að íhaldsmenn