Morgunblaðið - 07.04.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
35
Dollari hefur hækk-
að um 27,69% frá
síðustu áramótum
Pundið um 17,64% — danska krónan
um 24,66% og markið um 25,47%
FORMLEG gengisskráning var að-
eins þrjá daga í síðustu viku vegna
páskahátíðar, en frá mánudegi til
miðvikudags hækkaði sölugengi
Bandaríkjadollars um 0,18%, eða úr
21,220 krónu í 21,260 krónu. Frá
áramótum hefur Bandaríkjadollar
því hækkað um 27,69% í verði, en í
ársbyrjun var sölugengi hans skráð
16,650 krónur.
DANSKA KRÓNAN
Danska krónan hækkaði um
0,6% í verði í síðustu viku, en sl.
mánudag var sölugengi dönsku
krónunnar skráð 2,4599 krónur, en
sl. miðvikudag hins vegar 2,4746
krónur. Frá áramótum hefur
danska krónan því hækkað um
24,66% í verði, en í ársbyrjun var
sölugengi hennar skráð 1,9851
króna.
BREZKA PUNDIÐ
Brezka pundið hækkaði um
0,27% í síðustu viku, en við upphaf
hennar var sölugengi þess skráð
30,951 króna, en sl. miðvikudag
hins vegar 31,034 krónur. Frá ára-
mótum hefur brezka pundið því
hækkað um 17,64% í verði, en í
ársbyrjun var sölugengi þess skráð
26,381 króna.
V-ÞÝZKA MARKIÐ
Vestur-þýzka markið hækkaði
um 0,57% í verði í síðustu viku, en
sl. mánudag var það skráð 8,7388
krónur, en á miðvikudaginn 8,7888
krónur. Frá áramótum hefur
vestur-þýzka markið því hækkað
um 25,47% í verði, en í ársbyrjun
var sölugengi þess skráð 7,0046
krónur.
Of NGISÞROUNIN VIKURNAR 2125 0G 28 30 VARS1983
21,2.
21.8#—*
28,»,
1$
28,4.
28,2
mi, |». máki tWláw.mé. m4» ftre llitl
„Stjórnun á íyrir-
tækjum með aðstoð
tölvustýrðra líkana“
FÉLAG viðskiptafræðinga og
hagfræðinga heldur hádegis-
verðarfund að Þingholti,
Hótel Holti, fimmtudaginn 7.
apríl, en þar mun Árni Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri
Stjórnunarfélags íslands,
mun fjalla um efnið „Stjórn-
un fyrirtækja með aðstoð
tölvustýrðra líkana“.
f erindinu verður m.a. fjallað
um skipulega meðferð upplýsinga
og þýðingu þeirra við ákvarðana-
töku, en upplýsingastjórnun er
orðin sérstakt fag, sem nýtur
vaxandi athygli, sérstaklega eftir
að tölvur verða nú æ aðgengilegri
fyrir stjórnendur.
Gerð líkana sem líkja eftir
raunveruleikanum verður einnig
skýrð og sagt frá raunhæfum
dæmum um notkun þeirra. Fjall-
að verður um notkun tölva við
þessi verkefni og sagt frá helztu
nýjungum sem nú er beitt við
hönnun stjórnunarkerfa. Enn-
fremur verður sagt frá helztu
Árni Gunnarsson
vandamálum, sem upp koma þeg-
ar þarfir stjórnandans og kröfur
tölvunnar mætast.
Fundurinn hefst klukkan 12.00
með hádegisverði og er opinn fé-
lögum í Félagi viðskiptafræðinga
og hagfræðinga.
Nánari
uppl.
í síma
33290
kl. 12-14
daglega
Hressingarleikfimi kvenna og karla
Vornámskeiö hefjast
sem hér segir:
• Hjá framhaldsflokkum í leikfimisal Laugarnes-
skóla og í íþróttahúsi Seltjarnarness, fimmtu-
daginn 7. apríl. Tímar óbreyttir frá vetrarnám-
skeiöum.
• 6 vikna námskeið nýrra nemenda í kvenna-
flokki hefjast mánudaginn 10. apríl nk. í leik-
fimisal Laugarnesskóla.
• Fjölbreyttar æfingar — músík — slökun.
Astbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari.
HVERJU
SPÁIR PÚ?
Kosningagetraun Frjálsíþróttasambands íslands
er einföld.
Leikurinn er fólginn í því að giska á
hvaö flokkarnir fái marga þingmenn
í komandi alþingiskosningum.
Hverjir
fá pottinn?
Miöinn kostar 50 krónur og tara
20% af andviröi seldra miöa i
vinninga, þannig aö seljist 50
þúsund miöar veröur potturinn
500 þúsund, sem þeir getspöku
skipta á milli sín. Seljist 100 þús-
und miöar veröur potturinn 1
milljón o.s.frv. Allir skilmálar eru
á miöanum.
Gott
málefni
Frjálsíþróttasambandinu er
nauðsyn aö efla fjárhag sinn til
aö geta sinnt öflugu starfi í þágu
æskunnar í landinu. Allar tekjur
af getrauninni fara til þess aö
efla íþróttastarfiö. Takiö þátt í
leiknum.
Sölukerfi —
sölustaðir
Félagar í íþróttahreyfingunni o.fl.
munu sjá um sölu miöanna alveg
til kl. 19 á kjördag. Hægt veröur
aö skila útfylltum miöum nú þeg-
ar í íþróttamiöstööinni og hjá
Samvinnuferöum, Austurstræti.
Á kosningadaginn verður hægt
aö skila seðlum i sérstaka
stampa við flesta kjörstaöi.
Hverju spáir þú um kosningarnar? Það er spurningin.
Við spáum því aö potturinn veröi stór.
Frjálsíþróttasamband íslands, íþróttamiöstööinni í Laugardal, sími 83386.
Gódan daginn!