Morgunblaðið - 07.04.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
3
Grásleppuvertíðin hafin:
„Veiðihorfur með
lakasta mótia
— segir Guðmundur Halldórsson, Húsavík
Grásleppuvertíðin fyrir Norður- og
Austurlandi er nú hafin fyrir
skömmu, en afli hefur verið með ein-
dæmum lélegur að sögn viðmælenda
Morgunblaðsins. Ekki er enn Ijóst
hve mikil ásókn er í veiðarnar nú, þar
sem veiðitíminn er ekki hafinn um
allt land. Á síðasta ári fengust alls
um 6.000 tunnur af grásleppuhrogn-
um og var það rúmlega þrisvar sinn-
um minna en tvö árin þar á undan. í
fyrra voru alls gefin út 358 veiðileyfi.
„Hér hefur afli nánast enginn
verið og tíð auk þess risjótt. Net
voru iögð á venjulegum tíma og
þetta hefur verið algjör ördeyða
enda sjókuldi með mesta móti.
Stöku bátur hefur verið með nokkr-
ar grásleppur eftir róðurinn, en þó
vænar. Veiðihorfur er nú með því
lakasta um langt árabil. Þess eru
þó dæmi að nær ekkert hafi fengizt
fyrr en um miðjan apríl, en þó orð-
ið sæmileg vertíð, en hins vegar er
ekkert, sem bendir til þess, að svo
verði nú. Þá hefur óvenju lítið
fengist af rauðmaga," sagði Guð-
mundur Halldórsson, útflytjandi á
Húsavík, i samtali við blaðið.
Að sögn fréttaritara Morgun-
blaðsins á Þórshöfn, Þorkels Guð-
finnssonar, hófu þrír bátar veiðar
um leið og leyfi fékkst. Hefur afli
þeirra verið með eindæmum léleg-
ur eða aðeins um ein tunna af
hrognum á bát það sem af er. Þá
hefur einnig verið lítið um rauð-
maga og telja menn það benda til
þess, að lítið rætist úr grásleppu-
veiðinni og reikna menn því með
lélegri vertíð. Þá bíða fjórir til
fimm bátar átekta í von um að
veiðar glæðist.
Að sögn fréttaritara blaðsins í
Siglufirði hefur vertíðin þar verið
með eindæmum léleg og eru fáir
byrjaðir veiðar nú. Sæmilegar hef-
ur þó fengizt af rauðmaga þar.
Hjalti Ingvarsson
Maöurinn sem lézt
í umferðarslysi
ÚTFÖR Hjalta Ingvarssonar sem
fórst, er bifreið valt í Hrunamanna-
hrcppi á skírdag fer fram frá Ólafs-
vallakirkju laugardaginn 9. aprfl nk.
Foreldrar Hjalta, sem var tví-
tugur að aldri, eru Sveinfríður
Sveinsdóttir og Ingvar Þórðarson
frá Reykjahlíð, Skeiðum.
Samkvæmt upplýsingum sjávar-
útvegsráðuneytisins er landinu
skipt niður í 6 veiðisvæði. Á svæð-
inu frá Hvítingum að Öndverðar-
nesi er veiðitímabilið frá 18. apríl
til 17. júlí, á svæðinu frá öndverð-
arnesi að Bjargtöngum er það 25.
apríl til 25. júlí, frá Bjargtöngum
að Horni 18. apríl til 17. júlí, frá
Horni að Skagatá 1. apríl til 30
júní, frá Skagatá að Langanesi 10.
marz til 8. júni og frá Langanesi að
Hvítingum 20. marz til 18. júní. f
fyrra skiptust veiðileyfi þannig, að
á fyrsta svæðinu voru veitt 122, á
öðru 40, á þriðja 38, á fjórða 51, á
fimmta 95 og á því siðasta 12.
Pétur á vinnustaðafundi í Hraðfrystistöðinni
PÉTUR SIGURÐSSON, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var á vinnustaðafundi í Hraðfrystistöðinni við Mýrar-
götu í Reykjavík í hádeginu á þriðjudaginn. Þar ræddi Pétur stefnumál Sjálfstæðisflokksins við komandi
alþingiskosningar og svaraði fyrirspurnum. Er myndin tekin við þetta tækifæri. Ljósm. Mbi. köe.
Embætti borgar-
dómara laust
til umsóknar
AUGLÝST hefur verið laust til um-
sóknar embætti borgardómara við
borgardómaraembættið í Reykjavík
og er umsóknarfrestur til 21. aprfl
næstkomandi, að því er fram kemur
í Lögbirtingablaðinu. Embætti þetta
veitist frá 1. júlí næstkomandi, en
það er veitt af forseta íslands.
Þá hefur forseti íslands veitt
Emil Ágústssyni, borgardómara,
lausn frá embætti sínu, frá og með
1. júlí næstkomandi að telja.
Hafskip á meginlandi Evrópu:
Stórbætt
þjónustuaðstaða í
Hambore
.april
Hamborg er með stærstu viðskiptahöfnum okkar á meginlandi Evrópu.
Þangað koma fjölhæfniskip okkar Skaftá og Rangá vikulega, lesta og losa vörur.
Frá og með 1. apríl hefur Hafskip hf. stórbætt alla aðstöðu sína í Hamborg hvað varðar
lestun og losun, þar sem fullkomnustu tækni er beitt.
Ennfremur opnað eigin þjónustuskrifstofu í Hamborg með eigin starfsmönnum
frá sama tíma.
Markmiðið er einfalt: Aukin hagkvæmni, betri vörumeðferð, lækkun flutningsgjalda og
hraðari þjónusta.
Hafskip (Deutschland) G.m.b.h.
Chilehaus A
Fischertwiete 2
2000 Hamburg 1
Sími (040)339341-2-3
Telex 2165028 hafud
Forstöðumaður: Sveinn Kr. Pétursson.
Okkar menn,- þínir menn
HAFSKIP HF.