Morgunblaðið - 07.04.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
Reader’s Digest:
Hvernig gat hvalina kalið?
Brezkur dýralæknir fjallar um lungnabólgu og kalsár háhyrninga í Sædýrasafninu
„CURIOUS Case of the Dying
Whales“ heitir grein, sem birtist
bæði í ensku og amerísku útgáfunni
af Reader's Digest (Úrvali) í þess-
um mánuði. Þar fjallar dýralæknir-
inn David Taylor um dauða tveggja
háhyrninga í Sædýrasafninu í Hafn-
arfirði. Segir hann, að háhyrn-
ingarnir hafi drepizt úr lungnabólgu
og verið illa farnir af kalsárum.
Reader’s Digest er gefið út í 31
milljón eintaka um aljan heim og er
greinin væntanleg í Úrvali. Ekki er
tekið fram hvenær hvalirnir hafi
drepizt
Segir Taylor í greininni, að
sagan hafi byrjað á því, að Jón
Gunnarsson hafi hringt til sín f
febrúar og beðið sig að koma sér
til hjálpar vegna þess að einn há-
hyrningur hafi drepizt í lauginni
hjá sér og fjórir væru veikir. Þeg-
ar hann hefði komið til landsins,
hefði einn hvalur til verið dauður
og að sögn Jóns hefði sá fyrsti
drepizt úr hjartaslagi. Taylor
segir, að við krufningu hafi komið
í ljós, að hvalurinn hefði drepizt
úr lungnabólgu og mikið hefði
verið um ljót sár á öllum háhyrn-
ingunum. Segir hann, að fyrst í
stað hafi sér komið veikindi há-
hyrninganna mjög á óvart, þar
sem þeir lifa aðallega í norður-
höfum og í miklum kuldum og
ætti þeim því ekki að vera mjög
hætt í kaldri lauginni. Hann hafi
síðan komizt að raun um það, er
hann fékk upplýsingar um veð-
urfar, að krapamyndun í lauginni
hafi valdið lungnabólgunni og
kalinu.
Taylor segir síðan, að sér hafi
tekizt að lækna hvalina af
lungnabólgunni og kalsárunum
og hafi þeim síðan verið sleppt 20
mílum utan Hafnarfjarðar. Dag-
inn eftir hafi þeir síðan verið
komnir inn á höfnina þar og svo
virzt, sem þeir væru að snfkja sér
mat. Þeir hefðu þó horfið úr
höfninni skömmu síðar.
Britam’s faxnous zoovct was buíflcd
Three crcatures of the co'dest
seus— suffcring frora the vwtf/icr?
Curious Case of the
Dying Whales
I r .yl.l. s'Bned one Fcbru»ry evcr.
mg when ibe tciepbonc í-sng—*
call fronx Jccltthl'j. SecdyraMf-
oiS, x nyo and aquaoum on tíie r«.<k>'
coasi a few miÍM !'rom Reykjavjk.
Though snail gnd sparvely stocked,
Saodyrssa)r.ul eOi.biís.* tsnc gr.mp ot'
«4lí aml h*s « c.mpic «>t pocrls ro
hotwe Jci'ter wiwlcv ílcclaod JK.enwrs
the capture of four «■ cigJw each year
to scli 'x ntar:ncUndv )
Thc dirccíor, lun Gunnar>»on. was
on Usc tc!epfc«)flc widi a wg probiírr
id flvc whaJcs caught tix prcvious
amuoui. oflc had di«J »nd the rc*>
werc i!í CouM I jer iher'c »% >oon
poamfck:
Atscr íooking » tbght ior tiie
rtexi nwjrr.mg. I began ovcrba.
oty vustiw-fcuilt gútfti riypodc
necdJes dcvigneil to p*:nrtratc
fcíufcfccr with shaíts almos! u f.mt k
When ! ficw tntp Kc!lav»k
wmd was harryiog thc trcelcs*.
etKruvtcd canb wida'ui cca»ing 1
narssiKi. met mc and w e dn's e at
t«.» Swdytasafoid which ino« h<
worid s mt-st rustged »». Thcre
can »cc sheap acd pomes tha-
wlmJc herrings núxcvl with their
icctandk brccd* !ong ago lci
to sun-ívc ,«n wltat lítue
avatiafcic durmg tbc k»n|i winters
K.gbt at tbe cdgc at' ihe »e* .
die bigh, voncrcte wbale poois
tc.dt it!c over t«. look m die I
Þrír skemmtikraftanna á fjölskylduhátíðinni „Birta fyrir blinda".
Ljósm. Bja.Bj.
Um 600 þúsund
kr. söfnuðust
á hátíðinni „Birta fyrir blinda“, sem Kiwanis-
menn gengust fyrir til ágóða fyrir Sjónstöð blindra
„ÉG GERI mér vonir um að safnast
hafi um 600 þúsund krónur, en við
eigum eftir að taka þetta nákvæmar
saman," sagði Hilmar Jónsson for-
martur framkvæmdanefndar Kiwan-
is-klúbbsins Esju í Reykjavík, sem
gekkst fyrir fjölskylduhátíð í Laug-
ardalshöll sl. sunnudag, undir heitinu
„Birta fyrir blinda". Samhliða hátíð-
inni efndi klúbburinn til happdrættis,
vinningur var bifreið sem dróst á
miða nr. 3324, en miðinn var seldur í
Grfmsey.
Um þrjú þúsund manns komu á
hátíðina, um tvö þúsund á fjöl-
skylduhátíðina sem haldin var sfð-
degis, en um eitt þúsund á ungl-
ingadansleik um kvöldið. Fjölmarg-
ir skemmtikraftar komu fram og
gáfu þeir allir vinnu sína. Hilmar
sagði að það hefði verið skemmtileg
tilviljun að bifreiðin skyldi hafa
lent í Grímsey, því þó engar bifreið-
ir væru þar, hefðu um 75% Gríms-
eyinga keypt miða í happdrættinu.
Afrakstur hátíðarinnar og happ-
drættisins, sem Hilmar sagðist von-
ast til að yrði um 600 þúsund krón-
ur, rennur óskiptur til tækjakaupa
fyrir sjónstöð blindra. Þetta er
stærsta verkefni sem einn Kiwan-
is-klúbbur hefur tekist á hendur, en
Kiwanis-hreyfingin í Evrópu vinn-
ur þetta árið að þvi sameiginlega
markmiði að styrkja blinda.
Frönsk vika á Hótel Loftleiðum:
Franskur gullverðlaunahafi
í matargerðarlist matreiðir
í KVÖLD hefst á Hótel Loftieiðum
„Frönsk vika“, en á meðan á henni
stendur ræður franskur eldhúsmeist-
ari, Jean Louis Tavernier, ríkjum í
eldhúsi hótelsins. A boðstólunum
verða franskir réttir og vín, sem mat-
argestir geta neytt undir söng frönsku
söngkonunnar Yvonne Germain. Þá
gengst eldhúsmeistarinn fyrir sýni-
kcnnslu fyrir áhugafólk í matreiðslu.
Vettvangur frönsku vikunnar verður í
Blómasal að undanskildu fóstudags—
og laugardagskvöld, en þá verður
frönsku réttina að finna í Víkingasal.
Á blaðamannafundi sem haldinn
var í gær til kynningar á frönsku
vikunni, sagði Emil Guðmundsson
hótelstjóri, að þetta væri í sjötta
sinn sem gengist væri fyrir franskri
viku, og að þær hefðu ætíð notið
mikilla vinsælda. Franska verzlun-
arráðið, franska sendiráðið hér á
landi og fleiri aðstoðuðu við undir-
búning. Margir íslenzkir aðilar sem
flytja inn franskar vörur, svo sem
bíla og frönsk vín, kynna vörur sín-
ar á göngum hótels þessa viku.
Franski eldhúsmeistarinn sagði
aðspurður á fundinum, að á mat-
seðlinum mætti finna alla vinsæl-
ustu frönsku réttina, en hann sagð-
ist leggja sérstaka áherslu á fisk-
rétti ýmis konar og taldi hann ís-
lenzka hráefnið, sem hann kemur
til með að nota, gott. Emil sagði
eldhúsmeistarann ekki aðeins
þekktan í sínu heimalandi, hann
hefði farið víða við góðan orðstír.
Árið 1970 hlaut Tavernier fyrstu
verðlaun í svonefndri „gullpönnu-
keppni" matreiðslumanna Frakk-
lands. Þá hefur hann verið með
kynningarþætti um matargerð í
franska sjónvarpinu. Sýnikennsla
Tavernier verður í Víkingasal á
mánudag og þriðjudag.
Yvonne Germain, franska söng-
konan, hóf söng 9 ára að aldri, að
sögn Emils. Hún hefur sungið inn á
margar hljómplötur, en er þekktust
í heimalandi sínu fyrir söng sinn í
kabarettinum „Hello Paris“.
Það kom fram á fundinum, að
Flugleiðir munu fljúga beint til
Kvennaathvarfið safnar
fé til húsnæðiskaupa
Franska söngkonan Yvonne Ger-
main og eldhúsmeistarinn Jean Lou-
is Tavernier. Ljésm. Mbl. Emilía.
Dr. Matthías Jónsson gaf því 50.000 krónur
Kvennaathvarfið efndi til kaffi-
samsætis í húsakynnum sínum síð-
astliðinn þriðjudag og kynnti þar
starfsemi sína. Þá kom einnig fram,
að Kvennaathvarfið missir núverandi
leiguhúsnæði sitt um miðjan maí
næstkomandi og að hafin sé söfnun til
kaupa á eigin húsnæði. í húsakaupa-
sjóði er nú rúmlega ein milljón króna,
en talið er að 2 milljónir þurfí til við-
bótar svo hægt verði að kaupa hús-
næði.
Til samsætisins var boðið forseta
Islands, félagsmálaráðherra, borg-
arstjóra og fulltrúum sveitar-
stjórna á höfuðborgarsvæðinu auk
annarra stuðningsmanna. í sam-
sætinu bárust Kvennaathvarfinu
góðar gjafir. Meðal annars færði
doktor Matthías Jónasson Kvenna-
athvarfinu að gjöf 50.000 krónur,
verkakvennafélagið Framsókn
20.000 og Starfsmannafélag ríkis-
stofnana 25.000 krónur. Fjársöfnun
hefst með merkjasölu á föstudag og
jafnframt verður opnaður gíró-
reikningur fyrir þá, sem vilja veita
stuðning á annan hátt. Reykjavík-
urborg hefur áður veitt Kvenna-
athvarfinu 300.000 krónur, ríkið
600.000 og einnig hefur fé borizt frá
öðrum sveitarfélögum í nágrenni
Reykjavíkur.
I þá fjóra mánuði, sem athvarfið
hefur starfað, hafa 47 konur og 45
börn dvalizt þar, flest af höfuðborg-
arsvæðinu, en einnig úr öllum
landsfjórðungum.
Dr. Matthías Jónasson ásamt Margréti Pálu Ólafsdóttur, en hann færði
Kvennaathvarfínu 50.000 krónur að gjöf. Morgunblaðið/KOE
Parísar á laugardögum i sumar,
eins og undanfarin ár. Hefst beina
flugið 18. júní nk. Dregið verður í
happdrætti öll kvöld frönsku vik-
unnar. Síðasta kvöldið verður dreg-
ið um ferð fyrir tvo til Parísar, en
önnur kvöld eru vinningar gjafir
frá þeim sem flytja franskar vörur
til landsins.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL:
Jan .... 18/4
Jan .... 3/5
Jan .... 16/5
ROTTERDAM:
Jan .... 20/4
Jan .... 5/5
Jan .... 18/5
ANTWERPEN:
Jan ... 19/4
Jan ... 4/5
Jan ... 17/5
HAMBORG:
Jan ... 8/4
Jan ... 22/4
Jan ... 6/5
Jan ... 20/5
HELSINKI:
Helgafell ... 15/4
Helgafell ... 14/5
LARVIK:
Hvassafell ... 11/4
Hvassafell ... 25/4
Hvassafell 9/5
Hvassafell ... 23/5
GAUTABORG:
Hvassafell ... 12/4
Hvassafell ... 26/4
Hvassafell ... 10/5
Hvassafell ... 24/5
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ... 13/4
Hvassafell .. 27/4
Hvassafell .. 11/5
Hvassafell .. 25/5
SVENDBORG:
Hvassafell .. 14/4
Arnarfell .. 27/4
Hvassafell .. 28/4
Dísarfell .. 11/5
Hvassafell .. 12/5
Hvassafell .. 26/5
Árhus:
Hvassafell .. 15/4
Hvassafell .. 28/4
Dísarfell ....... 12/5
Hvassafell ...... 13/5
Hvassafell ....... 26/5
GLOUCESTER MASS.:
Jökulfell ......... 8/4
Skaftafell ....... 23/4
Skaftafell ....... 23/5
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ....... 25/4
Skaftafell ....... 25/5
ta
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101