Morgunblaðið - 07.04.1983, Page 48
juglýsinga-
síminn er 2 24 80
_ ^skriftar-
síminn er 830 33
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1983
Vinnubúðir við Blönduvirkjun:
Landsvirkjun samdi við
Akur og Vörðufell fyr-
ir um 6 milljónir króna
Gerði mér grein fyrir því að
þetta gat orðið mitt síðasta
„ÞETTA var skelfileg lífsreynsla
og ég gerdi mér grein fyrir því frá
fyrstu stundu að þetta gæti orðið
mitt síðasta," sagði Roger Pichon,
höfuðsmaður í björgunarsveitum
franska hersins, eftir að hann var
kominn heill á húfi til höfuðborg-
arinnar í gærkvöld úr svaðilför
sinni um Vatnajökul.
„Það sem kom mér mest á
óvart var veðrið. Mig hafði ekki
órað fyrir því að veðurhæðin
væri svona mikil og fínkornóttur
snjórinn smaug alls staðar inn,
bráðnaði og fraus jafnvel stund-
um. Ég má víst teljast heppinn
að hafa ekki kalið meira á hönd-
um og fótum, en ég var með
smyrsl sem varði mig fyrir því
versta," sagði Pichon þreytu-
legur á leið sinni til læknis að
láta gera að þeim sárum sem
hann hlaut.
„Ég varð að skilja tjaldið eftir
á leið minni, en það nýttist mér
ekki nema eina nótt þar sem það
blotnaði svo að óbærilega þungt
var að hafa það í eftirdragi.
Einnig gáfu bindingarnar á skíð-
unum sig hvað eftir annað þann-
ig að ég neyddist til að fara fót-
gangandi mestan hluta leiðar-
innar og komst því oft á tíðum
ekki nema hundrað metra á
klukkustund. En eitt er víst, ég
sný ekki upp á jökulinn til að
sækja þessar föggur að svo
stöddu," sagði hann og brosti.
Spá Vinnuveitendasambands íslands:
Hækkun framfærsluvísi-
tölu um 110% á árinu
„EFTIR samanburð á þeim 19 til-
boðum, sem bárust var ákveðið að
ganga til samninga við Trésmiðjuna
Akur á Akranesi og Vörðufell í
Frímerkjauppboð í Sviss:
íslenska biblíu-
umslagið metið á
3,5 milljónir kr.
HINN 10. aprfl næstkomandi verða
boðin upp íslensk frímerki á frí-
merkjauppboði í Sviss . Hér er um
að ræða hið kunna „biblíuumslag"
frá 1873, sem fannst árið 1972 af
„eldri heiðursmanni á fsiandi"
eins og segir í uppboðsskránni.
Umslagið fannst í gamalli biblíu og
dregur nafn sitt af því, og er verð
þess nú áætlaö um 3,5 milljónir ís-
íenskra króna, af hinum svissn-
esku uppboðshöldurum. Nafn eig-
anda er ekki gefið upp í skránni.
Biblíuumslagið er með 23 frí-
merkjum, og var á sínum tíma
sent sýslumanninum í Árnes-
sýslu, vegna myntbreytingarinn-
ar, þegar skipt var frá ríkisdöl-
um og skildingum í krónur og
aura. í uppboðsskránni er talið
að aðeins 22 bréf af þessum tagi
hafi komið í leitirnar, og frí-
merkjaáhugamaður sagði i sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins í gærkveldi, að umslag á borð
við þetta væri varla ti] hér á
landi nú.
Islenska „biblíuumslagið" er
talið merkasta númerið á um-
ræddu frímerkjauppboði, og
prýðir heilsíðumynd í lit af um-
slaginu fyrstu síðu uppboðs-
skrárinnar. Einnig verða ýmis
önnur íslensk frímerki boðin upp
á sama uppboði, en ekkert þeirra
kemst í hálfkvisti við biblíu-
umslagið að verðmæti.
Reykjavík, sem gerðu sameiginlegt
tilboð og hafa þeir verið undirritað-
ir,“ sagði Halldór Jónatansson, að-
stoðarframkvæmdastjóri Lands-
virkjunar, í samtali við Mbl., er
hann var inntur eftir tilhögun bygg-
ingar vinnubúða fyrir starfsmenn á
Blönduvirkjunarsvæðinu, en útboð
vegna þeirra fór fram í febrúarmán-
uði sl.
Halldór sagði að um væri að
ræða 50 einingahús fyrir 100
starfsmenn, sem ætti að reisa í
sumar. Samningsupphæðin er um
6 milljónir króna. „Síðan var jafn-
framt samið við sömu aðila um
smíði á íbúðarhúsnæði fyrir 50
starfsmenn til viðbótar og smíði á
mötuneyti og hreinlætisaðstöðu,
en sá samningur er að upphæð um
6,7 milljónir króna."
Samningurinn er þó þannig, að
Landsvirkjun hefur rétt á að stað-
festa hann fyrir áramót, en að
öðrum kosti fellur hann niður. Ef
Landsvirkjun staðfestir samning-
inn ber fyrirtækjunum að skila
þessu viðbótarhúsnæði á næsta
ári.
Halldór Jónatansson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Landsvirkjun-
ar, gat þess ennfremur, að fluttar
yrðu vinnubúðir fyrir um 40
starfsmenn frá Hrauneyjafoss-
virkjunarsvæðinu í sumar, þannig
að aðstaða yrði væntanlega komin
upp fyrir 140 starfsmenn á
Blöndusvæðinu með haustinu.
Hins vegar væri ekkert ákveðið
ennþá um nánari framkvæmdir á
svæðinu.
VINNUVEITENDASAMBAND ís-
lands hefur gert nýja spá um þróun
verðlags, launa og gengis fram á
næsta ár. Niðurstöðurnar eru þær að
hækkun framfærsluvísitölunnar frá
ársbyrjun til ársloka 1983 verði
110%, en að meðalhækkunin milli
áranna 1982 og 1983 verði 90%. Verð
á Bandaríkjadollar er áætlað að
verði 36,70 krónur um næstu áramót
og hafi því hækkað um iiðlega 120%
á árinu.
Helztu forsendur fyrir spánni
eru, að 15% hækkun verði á dollar
í júní 1983 og gengissig í samræmi
við launa- og verðbreytingar í öðr-
um mánuðum. Launakostnaðar-
hækkanir og áhrif af minni þjóð-
artekjum í kjölfar orlofsleng-
ingarinnar koma fram í maí og
ágúst. Niðurgreiðslur verði svo
sem áformað er í fjárlögum. Nú-
verandi vísitölugrundvöllur verði
áfram notaður. Engar sérstakar
breytingar verði á aflamagni um-
fram það sem spáð hefur verið.
Engar grunnkaupshækkanir verði
á árinu. Engar umtalsverðar
breytingar verði á óbeinum skött-
um. Loks að viðskiptakjör batni á
árinu, þannig að frádráttur frá
hækkun framfærsluvísitölunnar
við útreikning verðbóta verði 6,3%
í júní og 7% í september og des-
ember. Eftir það verði frádráttur-
inn að meðaltali 12,5%.
Spáin gerir ráð fyrir 90% með-
alhækkun framfærsluvísitölu
milli áranna 1982 og 1983. Þá er
því spáð að meðalhækkun fram-
færsluvísitölu milli áranna 1983
og 1984 verði um 93%. Verðbóta-
hækkanir launa verði 20,5% í júní
1983, 18,5% í september 1983,
18,0% í desember 1983, 16,0% í
marz 1984 og 16,5% í júní 1984.
f frétt VSf segir, að þessi spá
sýni aðra og dekkri mynd af þróun
verðbólgunnar á næstu misserum
en séð var fyrir með sfðustu verð-
bólguspá VSÍ, sem gerð var um
mánaðarmótin nóvember-desem-
ber 1982. „Sú spá stóðst í öllum
aðalatriðum varðandi tímabilið 1.
desember 1982 til 1. marz 1983, en
gerði ráð fyrir að þá myndi heldur
draga úr verðbólguhraðanum
þannig að verðbótahækkun launa
1. júní 1983 yrði t.d. 11,85% og að
1. september 1983 yrðu þær
12,16%.
Vanskilaskuldir á sjöunda
hundrað milljóna króna
V ANSKILASK iJ LDIR fyrirtækja í
sjávarútvegi og fiskvinnslu við Fisk-
veiðasjóð og Byggðasjóð einvörðungu
nema í sjöunda hundrað milljóna
króna. Að sögn kunnugra duga þær
120 milljónir króna, sem lána á til um
60 þessara fyrirtækja því skammt. í
fyrradag voru gefin út bráðabirgðalög
sem heimila rfkisstjórninni að veita
sjálfskuldarábyrgð fyrir 120 millj. kr.
láni, innlendu eða erlendu, til þessarar
lánastarfsemi. Ríkisstjórnin samþykkti
í fyrradag tillögur nefndar um hvernig
fénu skuli ráðstafað og er Mbl. kunn-
ugt um að tvö fyrirtækjanna fá fyrir-
greiðslu að beiðni félagsmálaráðuneyt-
isins, annað 6 milljónir króna, hitt 5
milljónir.
Þessi tvö fyrirtæki eru Hrað-
frystihúsið á Eyrarbakka og Árborg,
sem gerir út togarann Bjarna Herj-
ólfsson. Á lánalistanum eru þessi
fyrirtæki með hæstu upphæðirnar, 6
og 5 milljónir. Önnur fyrirtæki fá
minna, aðeins nokkur þeirra eru þó
undir einni milijón kr. eftir því sem
Mbl. hefur fregnað. Um 800 fyrir-
tæki í landinu eiga viðskipti við
Fiskveiðasjóð. Mbl. er kunnugt að
vanskilaskuldir við sjóðinn um mán-
aðamótin febrúar, marz, námu 559
milljónum króna. Vanskilaskuldir
við Byggðasjóð voru á sama tíma
rúmlega 50 milljónir króna, ekkí eru
í þessu dæmi vanskil við bankastofn-
anir og aðra lánendur.
Bráðabirgðalögin eru gefin út að
ósk sjávarútvegsráðherra sem við-
auki við lögin um Fiskveiðasjóð fs-
lands. Fela þau í sér að ríkisstjórn-
inni er heimilt að veita sjálfsskuld-
arábyrgð á áðurnefndu láni. Þá er
kveðið á um að stofnuð skuli sérstök
deild við Fiskveiðasjóð, sem hafi það
hlutverk að veita lán af þessu fé til
hagræðingar í fiskiðnaði og til að
leysa vandamál fyrirtækja f sjávar-
útvegi. Fjárhagur deildarinnar skal
sérstaklega aðgreindur frá öðrum
hlutum sjóðsins.
í lögunum er tilgreint að fjár-
málaráðherra sé í þessu tilviki ekki
bundinn af ákvæðum laga um trygg-
ingar við veitingu rikisábyrgða.
Ragnar Arnalds sagði, að ákvæðið
væri tilkomið vegna þess að þarna
væri um að ræða stofnun sérstakrar
deildar og ekki víst hvort unnt yrði
að viðhafa sömu aðferðir við veit-
ingu ríkisábyrgðar eins og almennt
gerðist, þ. e. að Fiskveiðisjóði væri e.
t. v. ekki kleift að veita þær ábyrgðir
sem lög krefðust.
Sjávarútvegsráðherra setur sam-
kvæmt lögunum reglur um fram-
kvæmd þeirra, þar á meðal um
lánsskilyrði, lánshæfni, lánskjör og
tryggingu þeirra.