Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 „ pamcx. sér&u ndeshx akalforstjónx. (,Heim ser\di/\Qa/þ]6nustonncxr''," ást er... ... aö láta álit sitt fallega og ákveðið í Ijós. Ttl Reg U.S. Pat. Off.-a* rtohts rMerved »1983 Loe Angetee Ttmee Syndtcete r—, r~- 202 Með morgunkaffinu Blessuð svaraðu í símann. Það hringir cnginn meðan sjónvarpið sendir, nema hún móðir þín! HÖGNI HREKKVÍSI Þrjár spurningar til Geirs Hallgríms- sonar, formanns Sjálfstæðisflokksins Magnús Kristinsson iðnaðarmað- ur, Reykjavík skrifar: „Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var á beinni línu hjá Dagblaðinu—Vísi um daginn. Ég hafði hug á að leggja spurningar fyrir Geir, en gat ekki hringt á tilskildum tíma. f fyrstu ætlaði ég að láta við svo búið standa, en eftir umræður á mínum vinnustað afréð ég að senda Morgunblaðinu spurn- ingarnar, sem mér lék hugur á að beina til formannsins. Ég bið blaðið að koma þeim áleiðis og birta svörin ef þau fást. Um leið og ég óska flokki mín- um, Sjálfstæðisflokknum, góðs gengis í komandi kosningum, lýsi ég aðdáun minni á hversu vel Geir Hallgrímsson hefur staðið sig í þrengingum flokksins undanfarin ár. Spurningar: 1. Hvers vegna tókstu þann kost að leiða ekki sjálfur kosningabar- áttuna í Reykjavík, þínu eigin kjördæmi? 2. Eru íslendingar orðnir svo skuldum vafnir, að þeir hafi glat- að raunverulegu sjálfstæði sínu — erum við sem þjóð komin á „sveit- ina“? 3. Ýmsir hafa hátt um flokksræði, að það sé mikið t.d. í Sjálfstæðis- flokknum og segjast ekki una því. Eru þetta ekki raddir fólks sem getur ekki sætt sig við að meiri- hluti ráði, ef samþykktir hans ganga gegn skoðunum þess — m.ö.o. andlýðræðissinnar? Virðingarfyllst." Skemmdarverk á Seltjarnarnesi „Velvakandi: Ég get ekki látið hjá líða, þótt ég sé ekki vön að skipta mér af opinberum málum, að gera lýð- um Ijósar þær óskaplegu skemmdir sem átt hafa sér stað á mynd sem máluð er á vegg ís- bjarnarins á Seltjarnarnesi, sem blasir við manni til mikils augnayndis þegar gengið er upp Skólabrekkuna. Á sínum tíma var efnt til sam- keppni í Valhúsaskóla um skreytingu á umræddan vegg og meira að segja veitt verðlaun. Þetta þótti lofsamlegt framtak þá. Myndin sem prýtt hefur vegginn er gerð af mikilli hug- myndaauðgi og vitnar sérstak- lega í aðalatvinnuveg okkar, fisk- veiðarnar. Var mikil prýði að mynd þessari á hinum stóra fleti; nóg er af grárri steinsteypunni, sem blasir við manni. Við hörmum þegar óþroskaðir unglingar í uppreisnarhug valda skemmdum á gróðri og mann- Guðrún Á. Símonar söngkona skrifar og svarar Svönu Jörgens- dóttur. „Því miður er erfitt að skrifa fólki um mál, viti það ekki neitt um hvað þau snúast. Best er að reyna að gera sitt besta. Það er enginn að amast við Sigurði Björnssyni, hvað hann gerir í tónlistarmálum hér, það er allt gott um það að segja. En í virkjum. En hvernig er sú nefnd í stakk búin, sem kosin er af bæj- arbúum og leyfir slíkan ósóma?" guðanna bænum, það eru til aðrar söngkonur en konan hans, það er hægt að gefa öðrum söngkonum tækifæri. Þetta kalla ég að nota sína aðstöðu, hvað sem hver segir. Ég veit ekki til þess, að ég hafi barist meira en aðrir fyrir óperu- flutningi hér. Ég veit að Guðlaug- ur Rósinkranz vildi bara hafa þær sænskar og svo síðast Sigurlaugu eiginkonu sína. íslenskar söngkon- ur voru og eru eins og „hundarnir í Reykjavík", bannaðar. Mínir „erfiðleikar". Hverjir hafa þá ekki? Veist þú eitthvað, sem ég veit ekki? Gagnvart þroska mín- um, það verða aðrir að dæma um. Þú segist hafa heyrt lítið í Sieg- linde Kahmann. Ég segi bara: Hvar hefur þú verið manneskja? Já, smáborgara-skrif. Þú skalt muna eitt: í smáþjóðfélagi eins og hér er þrífst enginn „stórborgari". Þess vegna verður maður að vera „smáborgari". Og ef ég er það, þá það.“ Með bráðabirgöalög- um skal land byggja! Eftirfarandi vísa er ort í tilefni af nýsettum bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar: „Öllu er stefnt í algert strand," eytt mun þjóAarhögum. I'ungt má greina þrautastand, þingræðinu unnið grand. Byggt skal land með bráðabirgðalögum. E.E. Þessir hringdu . . . Held hann hafi gefið stærstu gjöfina „Gömul og fávís kona“ hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langaði til, að það væri minnst á gjöfina hans Gísla á Uppsölum, af því að ég hef hvergi séð hennar getið í blöð- um. Hann átti að fá nokkur þús- und krónur fyrir að koma fram í sjónvarpsþáttunum, en þegar greiða átti honum féð, sagðist hann vilja láta það renna til Hjálparstofnunar kirkjunnar. Og þá datt mér í hug saga Biblí- unnar um ekkjuna, sem gaf af fátækt sinni, allt sem hún átti, alla björg sína. Mér fannst hálf- vegis eins og það væri verið að skensast með Gísla í fyrra, en ég held að hann hafi gefið stærstu gjöfina til Hjálparstofnunar kirkjunnar. Mig langaði til að þetta kæmi fram, ef það gæti vakið einhvern til umhugsunar. Gísli Gíslason á Uppsölum. í smáþjóðfélagi þrífst enginn „stórborgari“ X

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.