Morgunblaðið - 13.04.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983
77
Hvet þingmenn til að
taka reykingafrumvarp-
ið til endurskoðunar
Bindindismadur skrifar:
„Velvakandi.
Ég tek heils hugar undir orð
„Bjartsýnismanns" í dálkum
þínum 18. mars og annarra, sem
skrifað hafa um reykingar í
sömu veru. Sem bindindismaður
á tóbak varð ég fyrir miklum
vonbrigðum þegar ég fór að
heyra utan að mér um hið nýja
reykingafrumvarp.
Það eina sem er í því til að
vernda fólk fyrir reykingum er
það að ekki má reykja í almenn-
ingsvögnum, sem fyrr, og í af-
greiðslusölum ríkisfyrirtækja.
Eg spyr bara: Hvað um okkur
sem vinnum baka til og þurfum
að þola reykingar aðeins örfáum
skrefum frá fólki sem er verndað
gegn reykingum samkvæmt
þessu frumvarpi?
í því fyrirtæki sem ég vinn í er
manni alltaf sagt að vera ekki
með þetta röfl þegar maður bið-
ur fólk að vera ekki að blása
reyknum beint framan í mann.
Jafnvel er keðjureykt meðan
vinnufélaginn er að borða og
ekkert talið sjálfsagðara.
Ég hvet fólk til að láta í sér
heyra um þessi mál, því að
margir eru óánægðir með núver-
andi ástand.
Að lokum vil ég hvetja þing-
menn vora til að taka þetta
frumvarp til ítarlegrar endur-
skoðunar, því það mun verða öll-
um til heilla, ef reykingar verða
takmarkaðar á vinnustöðum.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna."
Skyldi Svavar senda skeyti?
Guðm. Guðmundsson skrifar:
„Velvakandi.
Eins og kunnugt er varð Svavar
Gestsson til athlægis, er hann
Skrifið
eða hring-
ið til Vel-
vakanda
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þættin-
um um hvaðeina, sem hug-
ur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 11—12
mánudaga til föstudaga.
Meðal efnis, sem vel er þeg-
ið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frá-
sagnir, auk pistla og
stuttra greina. Æskilegast
er, að bréf séu vélrituð.
Nöfn og nafnnúmer þurfa
að fylgja öllu efni til þátt-
arins.
sendi Mitterand hinum franska
heillaóskaskeyti eftir kosningasig-
urinn í Frakklandi. Frakkar könn-
uðust nefnilega ekkert við þennan
Svavar? En ástæða skeytisins var
sú, að hérlendir kommar töldu
Mitterand vera vin Rússa og and-
stæðing NATO. Fljótt kom í ljós,
að þarna hafði kommum heldur
betur orðið fótaskortur á línunni:
Mitterand er maður vestrænn í
hugsun og andvígur Rússum.
Enda hafa honum ekki verið vand-
aðar kveðjur í Þjóðviljanum að
undanförnu.
Svipað frumhlaup varð hjá
Svavari, er Papandreo hinn gríski
kom til valda. Svavar sendi skeyti,
og Grikkir könnuðust auðvitað
ekkert við sendandann? En Adam
var ekki lengi í Paradís. Papan-
dreo reyndist tryggur fylgismaður
vesturveldanna, enda er nú hreytt
skætingi í hann í Þjóðviljanum,
svo og gríska ráðamenn yfirleitt.
En nú hefur Mitterand heldur
betur hreinsað til hjá sér og vísað
úr landi fimm tugum rússneskra
njósnara á einu bretti. Mættu
ýmsar þjóðir taka Mitterand sér
til fyrirmyndar að þessu leyti.
En spurningin er þessi: Skyldi
nú Svavar senda Mitterand heilla-
skeyti?
Virðingarfyllst, með þökkum
fyrir birtingu."
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Þeir komu hvaðanæva að af
landinu.
Rétt væri: Þeir komu hvaðanæva af landinu.
OPIÐ BRÉF
til loftferðaeftirlitsins
Haukur Antonsson, Dalvík,
skrifar:
„Sæll Velvakandi.
Sendi þér hér með opið bréf til
Loftferðaeftirlitsins.
Undirritaður hefur áhuga á
einkaflugi og fór t.d. í flugskóla
strax og aldur leyfði. Einkaflug
er fyllilega samtvinnað öðru
flugi og grúndvallaratriðin að
sjálfsögðu mörg hin sömu. Or-
bætur í flugmálum, sem á óska-
lista eru, eru betri aðflugstæki
og meira malbik á flugvöllum
landsins. Aðrir hafa um það
fjallað.
Undirritaður hefur áhuga á, að
mál sem yfirvöld eru í raun og
veru búin að kveða niður, verði
gaumur gefinn á ný. Frjálslyndir
menn skilja best hvað undirrit-
aður meinar og við hvað er að
etja. Þess vegna er þetta bréf
skrifað.
Undirritaður álítur, að lágflugi
sé ekki nægilegur gaumur gefinn.
Á árum tvíþekjunnar var lágflug
sjálfsagður og nauðsynlegur
hlutur. Svo breyttust flugvélarn-
ar og mennirnir með. Lágflugi
voru settar skorður og talið óör-
uggt fyrir flugkennara. Nokkrir
gamalreyndir flugmenn visu bet-
ur og hafa skrifað um málið. í
raun og veru höfðu yfirvöld eng-
in rök gegn lágflugi og hafa ekki
enn tjáð sig um þetta mál eins og
þau væru haldin trúarofstæki.
Málið átti að vera yfir gagnrýni
og skynsemi hafið. í rauninni
skilja yfirvöld um allan heim
ekki, að lágflug er ein grein flug-
listarinnar, sem á ekkert skylt
við fífldirfsku og fíflagang, sem
engum tilgangi þjónar og aðeins
hræðir menn og málleysingja.
með þögn og afskiptaleysi þegar
á öðrum sviðum er skriffinnska
úr hófi fram?
í möppunni Reglur um loft-
ferðir er óskað eftir ábendingum
ef uppgötvaðist, að eitthvað, sem
þar er prentað, mætti betur fara.
Þessi ábending undirritaðs tekur
til 190. greinar laga um loftferð-
ir, sem birt eru í RL 2 t.d. Eldri
lög, sem í 190. grein eru talin
upp, eru nr. 32/1929 (afgreidd frá
efri deild 7. maí 1929) og nr.
49/1947. Lög nr. 49/1947 fjalla
aðeins um b-lið 17. greinar lag-
anna frá 1929 og koma því ekki
efni þessa bréfs við. Prentvillu-
púkinn virðist gera strik í reikn-
inginn því í núgildandi lögum eru
þessi lög frá 1929 sögð vera nr.
32. Sama sagði handbók flug-
manna, AIP ICELAND GEN
1.3—1, 1. maí 1970 (ógilt nú).
Undirritaðan minnir, að lögin nr.
49/1947 segi lögin frá 1929 vera
nr. 29. Þriðju útgáfuna fær mað-
ur, ef Stjórnartíðindum frá 1929
er flett upp. Þar eru 1929 lögin
(Lög um loftferðir) sögð vera nr.
28.
Aðaltilefni þessa bréfs undir-
ritaðs er auglýsing fjármála-
ráðuneytisins nr. 143/1. mars
1977 um niðurfellingu aðflutn-
ingsgjalda og birt eru í RL 1.
Starfsfólk fjármálaráðuneytisins
hefur ekki hugmynd um hvernig
þessi auglýsing er hugsuð, þ.e. til
hvers auglýsingin er, og á undir-
ritaður þá fyrst og fremst við 3.
grein og 5. grein auglýsingarinn-
ar. Nýjasta útgáfa auglýsingar-
innar er nr. 8/21. jan. 1982. Það
er ekki rétt, ef borið er fyrir sig,
að Lög um loftferðir séu eldri og
yngri lög ættu að gilda. Tollalög-
Loftför, fluglið, farþegar og
farmur hlíta íslenskum lögum og
reglugerðum þeim, er á hverjum
tíma gilda um loftferðir, tolla,
gjöld og flutninga á fólki og far-
angri. Atvinnu- og samgöngu-
ráðuneytinu skal vera heimilt, til
þess að greiða fyrir flugsam-
göngum á íslandi, að undan-
þiggja innflutningsgjaldi flug-
vélar, varahluta, hreyfla, og
áhöld, sem eingöngu eru notuð til
reksturs flugvéla.
Starfsfólk fjármálaráðuneytis-
ins segir sjálft, að yngri lög gildi
umfram eldri lög og samkvæmt
190. grein Laga um loftferðir nr.
17, 29/4 1982 er því ekki að sjá,
að heimilt sé, að draga lands-
menn þannig í dilka, að sumir
(örfáir) hljóti niðurfellingu að-
flutningsgjalda en allur almenn-
ingur (yfir 99% kjósenda) eigi
ekki að hafa þessa heimild. Lögin
segja, að niðurfellingin sé til að
greiða fyrir flugsamgöngum á ís-
landi, en ef einkaaðili ætlar sér
að nýta niðurfellinguna sam-
kvæmt auglýsingu fjármálaráðu-
neytisins þyrfti hann annað
hvort að vera starfandi flugvirki
eða forríkur sem arabískur olíu-
fursti og geta þar með haft flug-
virkja í fullri vinnu hjá sér. Yfir
99% þjóðarinnar (kjósenda), búa
við venjulegan efnahag en geta
ekki velt sér upp úr olíu-auði.
Það er mjög erfitt fyrir einkaað-
ila að eiga flugvél á Islandi vegna
hrikalegs kostnaðar. Nokkrir
kljúfa kostnaðinn þannig, að eiga
flugvél nokkrir saman; láta at-
vinnumenn sjá um viðhald og
viðgerðir og öðlast þannig niður-
fellingu aðflutningsgjalda.
Hingað til hefur verið nokkuð um
Lágflug er hægt að fljúga á rang-
an hátt og einnig á réttan hátt.
Ef nauðsynlegt er talið að setja
lágflugi sérstakar skorður, væri
lágmarkið að leyft yrði yfir sér-
stökum iandsvæðum, að æfa lág-
flug óhindrað. Þessi landssvæði
þyrftu að vera nægilega stór,
bjóða upp á sem allra mesta fjöl-
breytni og innihalda bæði auð-
veldar og hættulegar aðstæður
til að kennsla yrði til einhvers
gagns. Mörg flugslys, sem hafa
orðið að undanförnu hérlendis,
hefðu ekki orðið ef lágflug hefði
verið kennt. Slysum fjölgar'ekki
þótt lágflug sé kennt ef það er
kennt rétt.
Annað er það, sem undirritað-
ur álítur einnig: Tryggja verður,
að a.m.k. flugmenn, sem þess
óska, geti fengið endurþjálfun í
spuna (spinn) við hvert hæfni-
próf. Hingað til hafa flugmenn
lært spuna heiðurs síns vegna og
talið það siðferðislega rétt þótt
ekki væri krafis af yfirvöldum.
En breyting gæti orðið þar á hjá
næstu kynslóðum og er í raun
byrjuð að koma fram. Hvers
vegna þarf að útlandísera þetta
in eru eldri, svo og auglýsingin
sjálf. Auk þess er eðli málsins
aðalatariðið.
Það er nokkuð sláandi, að aug-
lýsing fjármálaráðuneytisins nr.
143/1. mars 1977 kemur á svipuð-
um tíma og samgönguráðuneytið
herðir skilyrði (reglur) um við-
hald flugvéla. Áður höfðu flug-
menn sjálfir frjálsar hendur um
heilmikinn hluta daglegs við-
halds á þeim vélum, sem þeir öðl-
uðust réttindi á. Ekki voru að-
eins reglur um viðhald hertar,
heldur skulu flugvélahlutir og
flugvélavarahlutir o.þ.h. vera
fjórðungi dýrari í innflutningi til
alls þorra Islendinga; aðeins at-
vinnumenn og fyrirtæki í flug-
vélaviðgerðum og viðhaldi skulu
njóta auglýstra ákvæða um að-
flutningsgjöld. Ekki er hægt að
sjá að einhverjir sérstakir aðilar
eigi að hafa möguleika á niður-
fellingu aðflutningsgjaldanna
samkvæmt gildandi lögum um
loftferðir, grein 190. (nr.
17/29.04.1982) sbr. lögin frá 1929
. — 36. grein 1929 laganna, sem
þessi 190. grein tilheyrir, er
þannig:
það, að menn með venjulegan
efnahag hafi smíðað sínar flug-
vélar sjálfir. Geti maður smíðað
flugvél sjálfur er honum einnig
heimilt að sjá um viðhald og við-
gerðir á sinni heimasmíðuðu-
fluKvél lögum samkvæmt.
Oeðlilegt er því, að fjármála-
ráðuneytið setji sérstakar höml-
ur á innflutning flugvélahluta,
flugvélavarahluta o.þ.h., sem
einkaaðilar flytja inn, hvort sem
um væri að ræða til heimasmíði
eða til verksmiðjuframleiddrar
flugvélar, sem prívat flugvirki
ætti og ætlaði að sjá um viðhald
og viðgerðir á sjálfur án þess að
vinna þó við slíkt sem aðalat-
vinnu. Slíkir einkaaðilar eiga
samkvæmt áður tilgreindum lög-
um að hafa sama rétt varðandi
aðflutningsgjöld og aðrir. Þessi
lög eiga við alla Islendinga að
sjálfsögðu. Nógir eru erfiðleik-
arnir noður undir heimskauts-
baugi, þótt ríkiskerfið sjálft — í
þessu tilviki fjármálaráðuneytið
— læði ekki rýtingi í bak al-
mennings.
Virðingarfyllst."