Morgunblaðið - 07.05.1983, Side 14

Morgunblaðið - 07.05.1983, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 H.C. Andersen, Þorsteinn Gunnarsson, skýrir Johanne Louise Heiberg, Guðrúnu Ásmundsdótt- ur, frá óforum sínum í höll Danakonungs. Johann Ludvig Heiberg, Steindór Hjörleifsson, sinnir gömlu konunni, Margréti Ólafsdóttur. Johanne Louise Heiberg, Guðrún Ásmundsdóttir, fylgist með. Sársaukablettirnir í lífí forarplantnanna Leiklist Jóhann Hjálmarsson Leikfélag Reykjavíkur: Úr lífi ánamaðkanna. Fjölskyldumálverk frá 1856. Höfundur: Per Olov Enquist. Þýðandi: Stefán Baldursson. Lýsing: Daníel Williamsson. Leikmynd og búningar: Steinþór Sigurðsson. Leikstjóri: Haukur J. Gunnarsson. Leikrit Per Olov Enquists fja.lla einkum um ástina, leitast við að birta óvæntar hliðar henn- ar, en þó gamalkunnar. Við minnumst átaka hjónanna Aug- usts Strindbergs og Siri von Ess- en í Nótt ástmeyjanna. Hjónaband Johanns Ludvig Heibergs og Johanne Louise Hei- berg er viðfangsefni Úr lífi ána- maðkanna. Johann Ludvig var afkastamikill leikritahöfundur, frægastur fyrir Álfhól. Hann var um skeið leikhússtjóri Konung- lega leikhússins í Kaupmanna- höfn. Einnig var hann atkvæða- mikill gagnrýnandi og útgefandi tímarita um listir. Johanne Louise var þekktasta Ieikkona Dana á öldinni sem leið. Kunnar eru endurminningar hennar sem komu út 1891. Fjölskyldumálverk frá 1856 er undirtitill Úr lífi ánamaðkanna. Á heimili þeirra Heiberghjóna birtist gestur sem í fyrstu er síð- ur en svo velkominn, en á eftir að höfða til frúarinnar. Þetta er ævintýraskáldið H.C. Andersen sem þráir að verða rómaður leik- ritahöfundur og langar til að semja leikrit um ástina sem sigr- ar allt. Kjörnar fyrirmyndir eru Heiberghjónin því að Andersen telur sér trú um að hjónaband þeirra sé til eftirbreytni. En Andersen sem er í senn skrýtinn og barnalegur, upptek- inn af sjálfum sér og haldinn sjálfsmeðaumkvun kemst smám saman að því að ekki er allt með felldu á heimili hinna virtu Heiberghjóna. Johann Ludvig er hættur að skrifa, en eyðir í stað- inn nóttunum við að stara á stjörnur. Johanne Louise ritar endurminningar sínar þar sem hún m.a. lýsir því hvernig hún þvoði ánamaðka í bernsku, en Per Olov Enquist talar í því sam- bandi um drauma „Um að kom- ast áfram upp á við, draumar um hreinleika, drauma um óhrein- indi" og segir að frú Heiberg hafi verið ráðgáta. Hið fágaða yfir- borð sem snýr að Andersen breytist í skjótri svipan. Þau eiga sér líkan uppruna, sprottin úr ör- birgð. Oftar en einu sinni er þeim líkt við forarplöntur. Þegar Jo- hanne Louise brýst út úr skelinni og fer að segja Ándersen frá for- tíð sinni skelfist ævintýraskáld- ið. Þessi frásögn snýst um öfug- hneigðir í ástum, drykkjuskap föður, þrældóm sem lagður er á móður margra barna. Andersen hefur líka kynnst lífinu af fleiru en góðu, en sveipar allt ævin- týraljóma. Hann dregur fram hið jákvæða, gleymir illskunni og hroðanum. En stundum er eins og hann vakni af svefni og hann horfist í augu við hið ljóta. Það kemur til dæmis fram í sameig- inlegri minningu hans og Jo- hanne Louise um gyðingaofsókn- ir í Kaupmannahöfn þar sem móðir leikkonunnar var lítilsvirt. Andersen vill hverfa á brott þeg- ar Johanne Louise drekkur í sig kjark til að opna hug sinn, skýra frá sársaukablettum lífsins og lifa þannig af. Andersen gefur sí- fellt á sér höggstað vegna þess hve einlægur og varnarlaus hann er. Johanne Louise hefur skilist að það verður hún að gera líka. Ekki má byrgja allt inni. Forviða og hræddur hlustar Andersen á játningar hennar. í gagnlegum minnispunktum höfundar leikritsins er bent á tvö tungumál Johanne Louise: „Ann- að var fágað, hitt blátt áfram og ruddalegt". Sama gilti um And- ersen að dómi Enquists: „Herra Andersen talaði tvö mál. Annað var sótt til alþýðunnar, í hans eigin fortíð, í talmálið og í óvið- jafnanlegt hrynjandaskyn hans sjálfs. Með því að nota þetta mál öðlast hann — sjálfum sér til mikillar furðu — heimsfrægð. Ævintýrin, voru þau ekki raun- verulegar bókmenntir, fannst honum. Ekki list. Hitt málið, hið fágaða, er það mál sem hann not- aði í óbugandi tilraunum sínum til að öðlast heimsfrægð. Enda er það steindautt." Til að undirstrika þetta lætur Enquist Andersen segja Hei- berghjónum frá veislu sem kon- ungshjónin héldu honum til heið- urs. f ræðu um vegsömun ástar- innar missir skáldið út úr sér tennurnar og verður að athlægi. Um list og ást fjallar leikrit Enquists. Eins og Strindberg er hann upptekinn af hjónaband- inu, helvíti þess. Ólíkir einstakl- ingar lifa saman til þess eins að tortíma hvor öðrum, gera lífið óbærilegt. Gamla konan í leikrit- inu, móðir Johanne Louise, sem tákn þess hvernig hún á eftir að verða, hluti af henni. Hún er sjúkt afskræmi sem fær hræðileg köst með stuttu millibili. Spyrja má hvaða erindi hún eigi í verkið. En er hún ekki tákn hnignunar, draugur fortíðarinn- ar sem enginn kemst undan þótt hann feginn vildi? Við skulum segja að girndin, líka hið afbrigðilega sé hluti ást- arinnar. Leikritið dýpkar og eignast fleiri fleti með lýsingu sinni á kenndum Johanne Louise gagnvart mönnum sem hún dáir og fyrirlítur í senn. Maðurinn er ekki engill. Johanne Louise flett- ir sig í raun klæðum á sviðinu án þess að þurfa að fara úr nokkurri spjör. Losti hinnar stoltu leik- konu býr að baki orðanna og látbragðsins, enda átti hún á leyndum stað kassa með klúrum bréfum. í leikritinu er getum leitt að því að Johann Ludvig hafi verið faðir hennar. Úr lífi ánamaðkanna hefur vakið mikla athygli á Norður- löndum. Leikritið var frumflutt fyrir tveimur árum í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn og nokkru seinna á Dramaten í Stokkhólmi. Uppfærslurnar þykja misjafnar. Ég hef hvoruga þeirra séð og get því ekki gert neinn samanburð á þeim og verki Hauks J. Gunnarssonar, hins unga og dugmikla leikstjóra. En raunsæileg og að mörgu leyti hófsöm leikstjórn hans er verkinu samkvæmt og reynist nógu traustbyggð til að koma list og boðskap til skila. Guðrún Ásmundsdóttir var mjög eftirminnileg í hlutverki Johanne Louise Heiberg, eins og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.