Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
23
Flugránið í Kína:
Vildu fara til Taiwan
Seoul, Suður-Kóreu, 6. maí. AP.
Suður-kóreanskir embættismenn
blöduðu í dag f alþjóðlegum sam-
þykktum til aö finna hvernig best
væri aö meðhöndla mál mannanna
sex, sem í gær rændu kínverskri
flugvél meö 105 manns innanborðs
og neyddu flugmanninn til aö lenda
í Suöur-Kóreu.
Flugvélin var á leið frá Sheny-
ang í Norðaustur-Kína til
Shanghai, þegar flugvélaræningj-
arnir, fimm karlmenn og ein kona,
ruddust inn í flugstjórnarklefann
og særðu tvo flugliða í átökum
sem þar urðu. Þeir vildu, að flug-
vélinni yrði snúið til Taiwan en
flugstjórinn reyndi að blekkja þá
og tók stefnuna á Norður-Kóreu.
Flugræningjarnir áttuðu sig þó og
lenti vélin skammt frá Seoul.
Yfirvöld í Suður-Kóreu segja að
forsprakki flugræningjanna sé
embættismaður kínverskrar hér-
aðsstjórnar, 36 ára gamall maður
að nafni Tjou Chang-Jen, og að
hann hafi fengið hina fimm til liðs
við sig þegar þau voru á ferð sam-
an í janúar sl.
Talsmaður stjórnar Suður-
Kóreu sagði í dag, að með málið
yrði farið „í anda Haag-samþykkt-
arinnar" um flugrán, en þar segir
að flugræningjar skuli annaðhvort
framseldir eða sóttir til saka þar
sem þeir nást. Ekki er vitað hvorn
háttinn yfirvöld í Suður-Kóreu
munu hafa á.
Ovíst um júníkosn-
ingar í Bretlandi
Lundúnum, 6. maí. AP.
ÍHALDSFLOKKUR Margrétar
Thatcher hélt meirihluta sínum í
kosningunum um opinber embætti á
vegum borgar- og sveitarstjórna, en
úrslit kosninganna gefa ekki til
kynna hvort efnt veröur til kosninga
á næstu mánuöum. Taliö var líklegt
aö niöurstaöa um kosningar í júní
fengist aö afloknum þessum kosn-
ingura.
Kosið var um 369 embætti víðs
vegar um landið og komu bæði
íhalds- og Verkamannaflokkurinn
svipað út úr kosningunum og áður.
Sagði talsmaður Ihaldsflokksins,
að Thatcher myndi grandskoða
kosningaúrslitin áður en ákvörðun
um kosningar í júní yrði tekin.
, ERLENT
Bretland:
Frækilegt afrek
uppi í háloftunum
Truro, Englandi, 6. maí. AP.
BKKSKUR fallhlífahermaöur,
Kenneth Yeoman að nafni, liggur
nú hryggbrotinn á sjúkrahúsi eftir
að hann bjargaði félaga sínum í
háloftunum þegar fallhlif hans féll
saman.
Kenneth, sem er 37 ára gamall
majór í hernum, náði taki á
nafna sínum Campell þegar slys-
ið varð og sleppti því ekki þótt
hans eigin fallhlíf legðist einnig
að nokkru saman í um 300 metra
hæð yfir jörðu. Þeir nafnarnir
voru að æfingum yfir Cornwall-
skaga og stukku úr flugvélinni í
3.000 metra hæð.
Fyrstu 1.000 metrana létu þeir
sig falla frjálst og héldust í
hendur en opnuðu síðan fallhlíf-
arnar. Þá vildi svo illa til að fall-
hlífarnar flæktust og fallhlíf
Campells féll saman. Ef Yeoman
hefði ekki náð til Campells hefði
ekkert beðið hans nema dauðinn.
„Þeir hefðu þó náð heilu og
höldnu til jarðar ef fallhlíf
Yeomans hefði ekki bilað líka en
síðustu 24 metrana lokaðist hún
alveg,“ sagði yfirmaður þeirra,
Mike Nunn kapteinn.
Kenneth Yeoman, sem er
þriggja barna faðir, er lamaður
fyrir neðan hné en líður að öðru
leyti vel. „Yeoman hlýtur að
hafa séð, að hann myndi slasast,
en hann kaus að hætta á það og
bjarga lífi vinar síns,“ sagði einn
félaga þeirra.
Bandarískir hermenn flytja vistir um borö í flugvélina sem rænt var.
Símamynd—AP
Tveir þingmanna græningja í vestur-þýska þinginu. Þeir þykja stinga dálítið
í stúf viö aöra þingmenn, bæði í útliti og framkomu. ap.
„Segist friðflytjendur
... en sáið bara hatri"
— sagði Kohl við græningjana
Bonn, 6. maí. AP.
HKLMUT Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, réöst í dag mjög harka-
lega á flokk unihverfisverndar-
manna, græningjanna svokölluðu,
og sakaöi þingmenn hans um aö
hafa „sáö hatri“ í vestur-þýska þing-
inu.
í ræðu, sem Kohl flutti á þingi
við lok þriggja daga umræðu um
stefnu stjórnarinnar, sakaði hann
græningjana um hræsni og yfir-
drepsskap. „Þið segist vera frið-
flytjendur ... þið komið hingað
blómum skreytt en hafið ekki ann-
að erindi en sá um ykkur hatrinu,"
sagði Kohl.
Fyrr í dag sagði einn þing-
manna græningja, Otto Schily, að
stuðningur vestur-þýsku stjórnar-
innar við áform NATO um að
koma upp kjarnorkuvörnum í
landinu væri „glæpsamlegur
verknaður" og í gær lét annar
þingmanna þeirra þau orð falla,
að enginn munur væri á Kohl og
Erich Honecker, leiötoga austur-
þýskra kommúnista.
Kohl vísaði einnig á bug þeirri
fullyrðingu græningja, að þeir
væru sérstakir fulltrúar friðarins,
og sagði, að „allir heiðarlegir
Þjóðverjar eru í einni og stórri
friðarhreyfingu".
Síðustu bílarnir '82.
Við sýxium American Eagle 4x4, árgerð 1982
um helgina. Líttu við og skoðaðu þenrvan
glæsilega bíl og spáðu í verðið.
AMC-Eagle 4X4
fl American Motors
Þú færö ekki aftur svona tækifæri til að
eignast amerískan lúxusbíl með Qórhjóladrifi.
EGILL.
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kopavogi, s. 77200 og 77202
OPEÐ LAUGARDAG
10 TO 18
I OPIÐSUNNUDAG
1) fitff |7
1 lw AMJU 4IX