Morgunblaðið - 07.05.1983, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Ekki rétt ályktað
Sigurjón Sigurbjörnsson skrifar:
„Velvakandi.
Að morgni sumardagsins fyrsta,
sagði þulur útvarpsins að loknum
sumaróskum: „Frosið hefir saman
sumar og vetur og boðar það gott
sumar.“
Hér er ekki rétt ályktað. Sagt
var í gamla dag, að ef saman frysi
sumar og vetur, yrði „gott undir
bú“ á því sumri. Það er að málnyt
úr kúm og kvíaám yrði feit og
smjörmikil. Því síðsprottinn gróð-
ur er kjarnbetri en það gras, sem
gróa fer upp úr sumarmálum. En
veðurfar getur orðið með ýmsu
móti, þó að saman frjósi sumar og
vetur.“
Hvert orð glæðist
lífi og krafti
Árelfus Níelsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil flytja séra Eiríki J.
Eiríkssyni bestu þakkir fyrir
„bænarorð" hans á morgnana.
Hvert orð glæðist lífi og krafti
á vörum hans, laust úr öllum
bókstafsfjötrum. Við skynjum
þar vorblæ hins fagra, sanna
og frjálsa á friðarvegum
Krists.
Hlustið á sólarljóð sannleik-
ans hjá þessum síunga vor-
manni íslands. Hann ætti að
verða vígslubiskup."
Sr. Eirfkur J. Eirfkaaon
Finnst þessi
nöfn bæði
hjákátleg
og vægast sagt
óæskileg
Ólöf hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til
að koma á framfæri spurningu
til viðkomandi aðila, sem ég er
ekki alveg viss um, hverjir eru.
Spurningin er þessi: Er það ekki
ólöglegt að kalla íslensk fyrir-
tæki erlendum nöfnum? Mig
minnir endilega, að dr. Gunn-
laugur Þórðarson hafi á sínum
tíma flutt tillögu um þetta mál á
Alþingi, sem varð að lögum. Ég
spyr vegna þess, að ég hef nýlega
séð fyrirtæki auglýst í blöðum og
sjónvarpi, sem virðist heita
Southern Fried Chicken, og ann-
að fyrirtæki, sem auglýsir Ken-
tucky Fried Chicken. Mér finnst
þessi nöfn bæði ákaflega hjá-
kátleg og vægast sagt óæskileg.
Eiga ríkisfjölmiðlarnir, að
minnsta kosti, ekki að hlú að
okkar ástkæra ylhýra máli? Er
þetta hægt, Matthías?
Stöndum í
þakkarskuld
við þessi börn
Keflvíkingur hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
— Mig langar að koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til krakk-
anna, sem stóðu fyrir undir-
skriftasöfnun og skoruðu á út-
varpsráð að hætta að sýna
glæpamyndir í sjónvarpinu um
helgar. Við sjónvarpsáhorfendur
stöndum í mikilli þakkarskuld
við þessi börn. Vona ég, að út-
varpsráð sjái sjóma sinn í því að
taka áskorun þeirra til greina.
Langvinsælasta og besta
þungarokkhljómsveitin
Gunnar Sævarsson skrifar:
„Velvakandi.
Mi£ langar til að taka undir
orð LÁ. og Ó.B.G., sem skrif-
uðu í Velvakanda og hvöttu til,
að hljómsveitin Iron Maiden
yrði fengin á listahátíð. Iron
Maiden er langvinsælasta og
besta þungarokkhljómsveit í
heiminum núna. Undanfarin
ár hafa skotið upp kollinum
tölvupopp-, pönk- og nýbylgju-
hljómsveitir og troðið upp á
listahátíð hér á landi, eins og
t.d. Clash, Stranglers og Hu-
man League. Er ekki tími til
kominn að þungarokkhljóm-
sveit fái að spreyta sig næst?
- • -
í sama streng tekur J.P.V. á
Blönduósi og nefnir hljóm-
sveitina AC/DC til vara, enda
hafi hún lýst áhuga á að koma
hingað til lands.
Hver er til-
gangurinn?
Halldór Alfreðsson, Keflavík,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Fyrir nokkru var sýnt í
Stundinni okkar, þegar börn
voru að beita félaga sinn ofbeldi,
og viku seinna lýsing á morði
(aftöku?), þ.e. skothvellur heyrð-
ist og síðan kom lýsing á því þeg-
ar blóðið 'rennur úr viðkomandi
fórnardýri á götuna. Nú langar
mig til að spyrja umsjónarmenn
þáttarins í hvaða tilgangi komið
sé með svona efni í þátt, sem er
fyrst og fremst ætlaður börnum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Á íslensku er „þú“ aðeins sagt um þann sem
talað er við, en alls ekki þann sem talað er
um, þó að enska fornafnið „you“ sé stundum
notað á þann hátt.
OPIÐ HUS
AUUIGARDAG
KL. 13-18
Chri Berglund kynnir fyrstu
saumavélina í heiminum sem
getur „hugsað".
Garðvörur - Gardena - Stiga.
Sundlaugar og pottar
- Allt í garðinn.
Sanyo hljómtæki
og Husqvarna heimilistæki
Ný verslun - miklar breytingar.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200