Morgunblaðið - 07.05.1983, Síða 48
Veist þú um einhverja
H;_________góóa frétt?
ringdu þá í 10100
Veist þú umeinhverja
góöa frétt?
Hs
ringdu þá í 10100
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
HEILDAKIORSKAFLI landsmanna það sem af er árinu er um 30% minni en
á sama tíma í fvrra, eða 56.279 lestum minni en þá. Samsvarar það 900
milljóna króna samdrætti í útflutningstekjum. Mestur er samdrátturinn hjá
bátaflotanum á Suðurnesjum og Vestfjörðum eða tæpur helmingur. A sama
tíma hefur sókn aukizt talsvert og veiðar hófust fyrr nú en í fvrra. Annar
botnfiskafli en þorskur hefur aukizt lítillega samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands. I>á er afli í aprílmánuði með minnsta móti að sögn Ingólfs
Arnarsonar hjá Fiskifélagi íslands.
Heildarþorskaflinn fyrsta þriðj-
ung ársins nam alls 139.555 lestum
en var á sama tíma í fyrra 195.834.
Bátar hafa fengið 96.390 lestir og
togarar 43.165, en sambærilegar
tölur frá síðasta ári eru 138.218
lestir og 57.616. Því hefur afli bát-
anna dregizt saman um 41.828 og
togara um 14.451 lest. Sé litið á
botnfiskaflann í heild er munurinn
nokkru minni eða 42.817 lestir. Nú
er botnfiskaflinn alls 250.651 lest á
móti 293.378 lestum í fyrra. Nokkur
aukning hefur því orðið á öðrum
tegundum en þorski, aðallega
karfa. Heildaraflinn er ails 258.849
lestir á móti 314.397 í fyrra. Sam-
drátturinn er því 55.548 lestir.
Samdráttur þorskafla hjá báta-
flotanum er mjög tilfinnanlegur og
aðeins á Vesturlandi náðist meira
aflamagn en í fyrra. Á Suðurnesj-
um féll aflinn nú niður í 25.720
lestir úr 43.739 í fyrra. Á Vestfjörð-
um hafa bátar nú aflað 4.834 lesta
á móti 8.570 í fyrra.
Sé litið á aprílmánuð kemur í
ljós að samdráttur í þorskaflanum
er verulegur, eða 24.902 lestir. í
apríl í fyrra fengust 67.688 en nú
42.766. Mismunur á heildarbotn-
fiskaflanum er 16.890 og hefur
karfaafli aukizt nokkuð. Aðrar
veiðar en botnfiskveiðar voru
óverulegar, aðeins 466 lestir af
rækju og 135 af hörpudiski.
Fokinn losaður og enn er vel eftir í trollinu við skipshlið.
Ljósm. Mbl. Sigurgeir.
Geir ræðir við for-
ystumenn launþega
GEIR Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins átti viðræður um
efnahagsúrræði við forustumenn
verkalýðshreyfingarinnar, þá Krist-
ján Thorlacius formann BSRB og Ás-
mund Stefánsson forseta ASÍ í gær,
en það er liður í stjórnarmyndunartil-
raunum hans. Þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins kemur saman árdegis og
verður þar væntanlega, samkvæmt
heimildum Mbl., tekin afstaða til
áframhalds stjórnarmyndunartil-
rauna Geirs Hallgrímssonar í Ijósi at-
burða síðustu viku.
Þá áttu sexmenningarnir úr
Sjálfstæðisflokki og Framsóknar-
flokki, þeir Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfstæðisflokksins,
Lárus Jónsson og Matthías Á.
Mathiesen og Steingrímur Her-
mannsson formaður Framsóknar-
flokksins, Halldór Ásgrímsson og
Tómas Árnason, fjórða viðræðu-
fund sinn um efnahagsmál í gær og
voru viðræðuaðilar sammála um
það, er Mbl. ræddi við þá í lok fund-
arins, að skoðanaskipti hefðu verið
gagnleg, þó ekki vildu þeir tjá sig
um hvort þau myndu leiða til
stjórnarmyndunar.
Að sögn þeirra Geirs og Stein-
gríms munu þeir ræðast við á ný í
dag um framgang viðræðna þeirra
í milli, þó ekki hafi formleg fund-
arhöld verið ákveðin. Þingmenn
Framsóknarflokks eru í viðbragðs-
stöðu og sagði Steingrímur að kall-
að yrði til þingflokksfundar um
leið og ástæða þætti til.
Sjá í miðopnu: Næstu fregna að
vænta í lok þingflokksfundar
Sjálfstæðisflokks.
Nýr ballett eftir Helga Tómasson:
Risaskref á
framabraut
— segir gagnrýnandi NY Times
SL. MÁNUDAG var í New York frumsýndur ballettinn Isoline, og fær
höfundurinn, Helgi Tómasson ballettdansari, frábæra dóma fyrir verkið
hjá Önnu Kisseigoff gagnrýnanda New York Times. Segir hún að „Ballet
Isoline“ sé risaskref á framabraut þessa nýja balletthöfundar. Raunar
mundi hvaða balletthöfundur sem er vekja athygli með þetta víðfeðma
myndmál sem Helgi hafi skáldað inn í hreinan sígildan balletrammann.
Segir þar að ballettinn sé svo góður að hann verði tekinn á reglulega
sýningarskrá City Ballettsins á þessari listavertíð. Undir fyrirsögninni
Nýtt verk eftir Helga Tómasson segir ballettgagnrýnandi Ny Times:
Ameríski ballettskólinn, sem urnar tvær. Hefur Helgi tekið
er dótturstofnun New York City
Ballettsins, flutti á mánudaginn
( Julliard leikhúsinu þá bestu
þáttaröð í árlega tilraunaleik-
húsinu sem sést hefur i fjölda-
mörg ár, og voru sýningar alla
helgina.
Dansfærni nemendanna í ár,
einkum drengjanna, er í háum
gæðaflokki. Svo maður tali ekki
um nýja ballettinn eftir Helga
Tómasson, sem er svo afburða
góður að hann verður tekinn inn
á reglulegar sýningar City Ball-
ettsins á þessu starfsári.
Ballettinn Isoline er aðeins
annað frumsamda verkið eftir
Helga Tómasson, sem hefur ver-
ið aðaldansari við City Ballet
síðan 1970. Eftir að hafa ráðfært
sig við George Balanchine sl.
haust, valdi Helgi tónlist eftir
franska tónskáldið André Mess-
ager, sem dó 1929, og frægastur
er fyrir balletttónlistina Dúf-
nokkur brot úr Dúfunum, en
mestur hluti tónlistarinnar kem-
ur úr óperunni Isoline, sem
Messager samdi 1888. Árangur-
inn er nýklassískur ballet án
söguþráðar, sem ekki er hægt að
kalla annað en stórfenglegan.
Einn af hápunktunum er „pas
de cinq“ eða danskvintett fyrir
karldansara, sem skólapiltarnir
leystu alveg prýðilega af hendi.
Maður getur þá rétt ímyndað sér
hvílíkt tækifæri þetta er fyrir
atvinnudansarana í City Ballett-
inum til að ná stórkostlegri sýn-
ingu.
Ballettinn Isoline er risaskref
á framabrautinni fyrir ungan
balletthöfundur. Raunar mundi
hvaða balletthöfundur sem er
vekja athygli fyrir þetta fjöl-
breytta myndmál innan ramma
hins hreina sígilda ballets, sem
Helgi hefur þarna skapað."
Þrír menn hafa látist á tíu
dögum af neyslu vímuefiia
Þrátt fyrir mikið minnkaða lyfjasölu, hefur dauðsföllum vegna vímuefna ekki fækkað
ÞRÍR menn hafa látist á undafórnum
tíu dögum, þar sem dánarmein hefur
mátt rekja til ofneyslu vímuefna af
einu eða öðru tagi.
Af því tilefni sneri Morgunblaðið
sér til Ólafs Ólafssonar, landlæknis
og spurði hann hvort um aukningu
á dauðsföllum af völdum vímuefna
hefði verið að ræða á síðustu árum.
Ólafur sagði að ekki virtist hafa
orðið aukning á síðusu 4—5 árum
og vísaði um það til ársskýrslna
Rannsóknarstofu í lyfjafræði, en
til hennar koma blóðsýni frá öllum
réttarkrufnum. Þeir eru réttar-
krufnir sem látist hafa voveiflega
og þeir sem læknir treystir sér ekki
til að gefa út dánarvottorð um. Á
árabilinu 1977—81 reyndist dán-
armein í 22—25% þeirra tilvika,
þar sem réttarkrufning fór fram,
vera af völdum vímuefna. Til dæm-
is að taka komu 95 dauðsföll til
rannsóknar árið 1981. Af þeim
reyndust 21 hafa látist af völdum
vímuefna. Ólafur tók það fram að
hann hefði ekki sundurliðaðar töl-
ur yfir árið 1982 og það sem af væri
þessu ári, en hann hefði það þó á
tilfinningunni að ekki væri heldur
þar um aukningu að ræða.
Ólafur sagði að vímuefnanotkun
hérlendis væri mun minni en er-
lendis. „Það er staðreynd að vímu-
efnanotkun hefur víðast hvar farið
vaxandi í nágrannalöndunum.
Vímulyfjanotkun hefur minnkað
hérlendis, en áfengisneysla aukist
og erfitt er að fullyrða um notkun
ólöglegra vímuefna," sagði ólafur.
Það er athyglisvert, að þó að sala
róandi lyfja og svefnlyfja undan-
farin 5 ár hafi minnkað um tæpan
helming, miðað við 5 árin þar á
undan, þá hefur ekki orðið fækkun
á dauðsföllum af völdum vímuefna.
Það vekur þá spurningu hvort
ólögleg neysla vímuefna hafi aukist
í staðinn.
„Okkar grunar að smygl hafi
aukist, en varla í þeim mæli sem
nemur minnkaðri lyfjanotkun,"
sagði Ólafur Ólafsson, landlæknir.
Þorskaflinn 56.000 lestum minni nú en í fyrra:
900 millj. samdrátt-
ur útflutningstekna