Morgunblaðið - 14.05.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
9
fidimGsö DaáQ
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Þórunn Guðmundsdóttir í
Reykjavík sendir mér mikið
bréf, og er sumstaðar úr vöndu
að ráða í því efni sem hún
leggur fyrir mig. Mun ég nú
reyna að fjalla um efni bréfs
þessa eftir því sem ég hef vit
og dug til.
Fyrsti hluti bréfs hennar
hljóðar svo:
„Ég þakka þér fyrir ágætar
greinar þínar í Morgunblað-
inu. Ég les þær alltaf fyrst af
efni þess. Mig langar þó til að
gera athugasemd við ummæli,
sem þú hafðir í vetur um nafn-
ið Hagkaup. Þú telur gott og
gilt að nota það óbeygt. Þú
bendir á heitin Eimskip og
Hafskip, sem enginn hafi am-
ast við. Ég hefi nú aldrei kunn-
að við þessi heiti. Ef til vill má
líta á þau sem nokkurs konar
skammstafanir. Þykja mér þá
betri þær sem ekki er hægt að
skoða sem orð, t.d. S.Í.S. Ég
álít að öll orð og heiti, sem
menn nota óbeygð, sljóvgi til-
finningu fyrir beygingum
málsins. Nú hefur orðið kaup
tvenna merkingu. í eintölu
merkir það laun, í fleirtölu
viðskipti. Ég geri ráð fyrir að
verslunin Hagkaup hafi verið
nefnd svo til þess að benda
mönnum á að þar versluðu
þeir sér í hag en ekki að þar
væri greitt haganlegt kaup.
„Kaup“ með ýmsum forskeyt-
um eru prýðileg heiti á versl-
unum, en því aðeins að þau séu
beygð og í fleirtölu. í auglýs-
ingum í útvarpi er fleirtölu-
myndin notuð góðu heilli."
Umsjónarmaður minnist
þess að hafa skrifað oftar en
einu sinni um þetta efni. í
þætti þeim, sem Þórunn vitnar
til, mælti ég að vísu ekki með
því að orðið Hagkaup væri not-
að óbeygt. Ég felli mig ekki við
að eignarfallsendingu sé
sleppt. A hitt vildi ég fallast að
hafa orðið í eintölu, eins og
forráðamenn fyrirtækisins
vilja sjálfir, þótt ég, eins og
Þórunn, skynjaði orðið upp-
haflega í fleirtölu og segði
Pálmi í Hagkaupum.
Ég vitnaði til heita fyrir-
tækja, svo sem Eimskips. Slag-
orð þess fyrirtækis hefur ver-
ið: Allt með Eimskip, og finnst
mér rétt að láta það óátalið.
Þetta er nefnilega heiti á einu
fyrirtæki. Þágufallsendingin i,
sem við ella höfum í orðinu
skip, fellur þarna niður eins og
oft vill verða. Menn sitja ýmist
á stól eða stóli, ég held fleiri á
stól. Ég get ekki fallist á að
heitin Eimskip og Hafskip séu
skammstafanir. En menn hafa
þetta í eintölu, sem heiti fyrir-
tækis. Hann er framkvæmda-
stjóri Eimskips, segja menn,
ekki framkvæmdastjóri Eim-
skipa. Hann vinnur hjá Eim-
skip, ekki Eimskipi eða Eim-
skipum.
Ég vil fallast á þessa mál-
venju og sömuleiðis þá sem al-
menningur hefur tamið sér um
Hagkaup. Ég fellst á að tala
um hagkaupsverð, hagkaups-
slopp og Pálma í Hagkaup. Ég
fellst á það tal að fólk versli í
Hagkaup, hvorki í Hagkaupi
né Hagkaupum. I þessu sam-
bandi þykir mér líka rétt að
taka tillit til eindreginna óska
þeirra sem að fyrirtækinu
standa.
Auðvitað erum við hér á hál-
um ís eða kannski ísi. Ég fellst
á þá skoðun Þórunnar Guð-
mundsdóttur að orð, sem við
notum óbeygð, geti sljóvgað
tilfinningu okkar fyrir beyg-
ingum málsins. En við megum
heldur ekki vera of einstreng-
ingsleg. Frá árdögum hafa í
máli okkar verið til orð, sem
eru eins í öllum föllum, svo
sem elli og auga. En hitt snert-
ir fremur ágreininginn um
Hagkaup, hvernig við eigum að
beygja eða beygja ekki heiti
ýmiss konar, t.d. verslana,
tímarita, listaverka o.s.frv.
Björn Guðfinnsson prófess-
or setti fram og kenndi þá
reglu, að heitin ættu helst að
beygjast, væri um eitt orð að
ræða, en beygjast ekki, eða
a.m.k. síður væri heitið sam-
sett.
Dæmi um ósamsett heiti:
Vikan, Árvakur, Vísir. Eftir
því ættum við að segja: Grein-
in birtist í tímaritinu Vikunni,
ekki tímaritinu Vikan. Hann
vinnur hjá fyrirtækinu Árvakri,
ekki fyrirtækinu Árvakur.
Hún hefur lengi starfað í versl-
uninni Vísi, ekki versluninni
Vísir.
Dæmi um samsett heiti:
Notað og nýtt, Blóm og ávext-
ir, Vér morðingjar. Eftir reglu
Björns ættum við þá að segja:
Hann er eigandi fyrirtækisins
Notað og nýtt, ekki fyrirtækis-
ins Notaðs og nýs. Hún vinnur
í versluninni Blóm og ávextir,
ekki versluninni Blómum og
ávöxtum. Hann er aðalpersón-
an í leikritinu Vér morðingjar,
ekki í leikritinu Oss morðingj-
um.
Ég felli mig við þessa reglu
dr. Björns Guðfinnssonar i
192. þáttur
meginatriðum. Undantekn-
ingar má löngum finna.
Næst segir Þórunn og
minnkar nú ekki vandinn:
„Ég hefi orðið þess vör að
þegar vísir menn meta, hvort
eitthvert orð sé gjaldgengt, þá
leita þeir í prentuðu máli
gömlu og nýju. Finnist orð-
myndin þar, gefi það henni
gildi jafnvel þótt um einstakt
afbrigði sé að ræða, sem
hvorki hafi áunnið sér þegn-
rétt í gömlu máli né nýju. Mér
hefur ætíð þótt þetta vafa-
samt. Bestu rithöfundar geta
misstigið sig. Þótt eitthvert
orðalag komi fyrir hjá meist-
ara Jóni, Jóni Sigurðssyni eða
Halldóri Laxness, svo ég lúti
nú ekki lágt, þá finnst mér það
út af fyrir sig ekki gefa því
gildi. Orðmyndir, sem hafa
náð almennri útbreiðslu, verða
varla sveigðar til annarrar
gerðar, en öðru máli gegnir um
einstök afbrigði.“
Nú verð ég að mestu að vera
Þórunni sammála. Jafnvel í sí-
gildum fornritum koma fyrir
orðmyndir sem mér þykja til
lítillar fyrirmyndar. I Snorra-
Eddu „aukaðist mannfólkið".
Ég sé enga ástæðu til þess að
taka upp þessa veiku beygingu
sagnarinnar að auka(st). Mér
þykir hún ljót og ég veit ekki
til þess að hún hafi nokkru
sinni náð almennri útbreiðslu.
Snillingum getur skjátlast,
eins og Þórunn segir. Enginn
er óskeikull. Jafnvel Svein-
björn Egilsson bjó til orð-
myndina viðsmjörsviðartré í
hinni frábæru þýðingu sinni á
Ódysseifskviðu. Hér þykir mér
sem smjörviður myndi duga.
Þórunn er ekki haldin því
sem með hálfútlendu orði er
kallað átórítetstrú, það er
trúnni á óskeikulleik hinna
háu og frægu. Þó að það komi
þessu kannski ekki nema
óbeint við, ætla ég að enda á
lítilli dæmisögu. Hvatvís mað-
ur og ógætinn stóð fyrir útför
nákomins ættingja. Honum
hafði láðst í tæka tíð að segja
fyrir um hvaða sálm skyldi
syngja yfir gröfinni. Þegar
þangað kom og hann var
spurður, sagði hann: „Eitthvað
eftir séra Hallgrím Pétursson.
Það er allt jafnfallegt eftir
hann. Síðan fletti hann í snatri
upp í Passíusálmunum og tók
að kyrja:
Sjá hér, hvað illan enda
ótryggð og svikin fá.
Júdasar líkar lenda
leiksbróður sínum hjá.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
LOGM JOH ÞOROARSON HDL
Á úrvalsstaö viö Síöumúia
Ný verslunarhæö um 200 fm (götuhæö). Skuldlaus eign. Margskonar
möguleikar. Ákv. sala.
Teikning og nánari uppl. aöeins
á skrifst.
ALMENNA
FASLEIGHASAIAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Fasteign á Akureyri
Tilboö óskast í fasteignina Ráöhústorg 3, Akureyri,
2., 3. og 4. hæö. Gólfflötur hverrar hæðar er um 106
m2. Fasteignin er nýlega endurnýjuö og hentar vel
fyrir skrifstofur, félagsstarfsemi og að hluta fyrir
íbúöir. Fasteignin selst sem ein heild, eöa hver hæö
fyrir sig.
Réttur er áskilin til aö taka hvaöa tilboði sem er eöa
hafna öllum.
Upplýsingar veittar aö Ráðhústorgi 3, Akureyri, 2.
hæö, síma 96—22890 kl. 9—12 og 14—16 alla virka
daga.
Trésmiðafélag Lífeyrissjóöur
Akureyrar trésmiöa
Dyngjuvegur — einbýli
Gott 250 fm einbýli á þrem hæöum. Mikiö útsýni. Möguleiki á sér
íb. í kjallara. Skipti koma til greina meö einbýli á tveim íbúöum.
Einbýli — Kópavogur
Fallegt einbýli viö Fögrubrekku á 2 hæöum. Stofa meö arin, stórt
eldhús, hjónaherb., 2 barnaherb. og baöherb. Kjallari ófullgerö 2ja
herb. íbúö. Bílskúr fylgir. Verö 2,4—2,6 millj.
Framnesvegur — raöhús
Ca. 100 fm endaraðhús á 3 hæöum ásamt bílskúr. Nýjar hitalagnir.
Verö 1,5 millj. Skipti koma til greina á 2ja—3ja herb. íbúð.
Laufásvegur
200 fm íbúö á 4. hæö. 3 svefnherb. og tvær stórar stofur. Gott
útsýni. Lítiö ákv.
Engihjalli
4ra herb. 100 fm íbúð á 2. hæö. Ákveðin sala.
Hraunbær — 4ra herb.
Ca. 116 fm íbúð á 2. hæö. 3 svefnherb., stofa og hol. Rúmgott
eldhús. Lítið áhvílandi. Verð 1350—1400 þús.
Höföatún — 3ja herb.
Góö 100 fm íbúð á 2. hæð. Stofa, 2 svefnherb., eidhús ný uppgert
og baðherb. Sér inng. Verö 1100—1150 þús. Skipti koma til greina
á 3ja herb. íbúö í vesturbæ eða miöbæ.
Njaröargata
3ja herb. íbúð, 90 fm. Öll nýstandsett.
Hraunbær — 3ja herb.
70 fm íbúö á jaröhæð. Verö 1050 þús.
Laufásvegur —2ja herb.
55 fm góö íbúö á 2. hæð. Stór stofa og eitt herb.
Sumarbústaöur — Grímsnesi
Hrísholt — Garðabær
Til sölu í smíöum stórt einbýlishús á tveim hæö-
um með innbyggðum, tvöföldum bílskúr. Um er
aö ræöa fallega teikningu, möguleika á tveim
íbúöum. Mikiö útsýni. Húsiö selst fokhelt til af-
hendingar í ágúst nk. Verö 2,5 millj.
Uppl. ekki veittar í síma.
Lögfræöiskrifstofan,
Hátúni 2.
Sveinn Skúlason hdl.
RÍKISSKIP
SKIPAÚTGERÐ
RÍKISINS
M.S. Baldur fer frá Reykja-
vík tíl Breiðarfj.hafna 17.
maí. Vörumóttaka til kl.
17.00 daginn fyrir brottför
hjá Ríkisskip.
Gódan daginn!
Gott 58 fm sumarhús í Hraunborgum. Verö 500 þús. Myndir á
skrifst.
Húsnæöi í Vestmannaeyjum:
Einbýli, Faxastígur. Lítiö einb. ásamt 40 fm steyptu bakhúsi.
Húsiö er á tveim hæðum, 2 svefnherb., stota, eldhús, baðherb.
og geymsla. Einnig er ca. 25 fm viöbygging þar sem starfrækt
hefur veriö verslun. Verð 750 þús. Skipti æskileg fyrir 3ja—4ra
herb. ibúö í Rvík.
Lindargata
2ja herb. íbúö, 40 fm. Öll nýstandsett.
Faxastígur — 2ja herb.
Ca. 60 fm íbúö í tvíbýli 2 herb., eldhús og baöherb. Verð 300 þús.
Tvær sérhæöir — Vestmannabraut
Ca. 100 fm sérhæöir ný uppgerðar. Seljast saman eða sér. Verð
530 efri hæöin og 460 þús. neöri hæöin. öll skipti koma til greina.
HUSEIGNIN
Sími 28511 [Vf2]
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 18, 2. HÆÐ.