Morgunblaðið - 14.05.1983, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
... að skemmta sér
saman á skautum.
TH R*g U.S. P»t on.-tN rlgtrtí r««nd
•1982 Lm AngstM Tfenw Syncttcste
Nei, nei, hættu. Kf beita þarf
munn að munn-aðferðinni, þá skal
ég sjá um það, góði minn!
Fórstu aftur upp í höllina?
HÖGNI HREKKVlSI
*-»* © 1983
McNaught Synd . Inc.
ÉG TRÓI AO MOGOOAóBA SÉ NÆSTOR.}'
„Og höfum vér ekki gjört mörg
kraftaverk með þínu nafni?“
Kjartan Jónsson, Vestmannaeyj-
um, skrifar:
„7395-4991. Þú veltir því fyrir
þér og það ekki af ástæðulausu,
hvaða gagn myrkrahöfðinginn tel-
ur sig hafa af því að auka trú og
traust á Guði hjá fólki og hver
muni verða gróði hans.
Svarið við þessum vangaveltum
þínum getur þú fundið í Biblíunni.
Það þarf ekki að túlka eða útskýra
fyrir fólki með meðalgáfur hvað
hún segir um spíritisma. Hún ein-
faldlega bannar allt slíkt, og
hagnaður Satans er auðvitað sá,
að með því að fá fólk til þess að
framkvæma það sem Guð bannar,
þá er hann þar með búinn að fá
fólk til þess að snúa sér frá vilja
Guðs og það er einmitt æðsta
takmark hans.
„Ekki mun hver sá er við mig
segir: Herra, herra, ganga inn í
himnaríki, heldur sá er gjörir vilja
föður míns, sem er í himnunum.
Margir munu segja við mig á þeim
degi: Herra, herra, höfum vér ekki
spáð með þínu nafni og höfum vér
ekki rekið út illa anda með þínu
nafni, og höfum vér ekki gjört
mörg kraftaverk með þínu nafni?
Og þá mun ég segja þeim afdrátt-
arlaust: Aldrei þekkti ég yður, far-
ið frá mér þér sem fremjið lög-
málsbrot*. (Matt. 7:21—23). Eins
og því illgresinu er safnað og það
brennt í eldi, þannig mun fara við
endi veraldar; mannssonurinn
mun senda engla sína, og þeir
munu saman safna úr riki hans
öllum hneykslunarmönnum og
þeim er lögmálsbrot fremja munu
kasta þeim í eldsofninn; þar mun
verða grátur og gnístran tanna.
(Matt: 13:40-42).
Þessi orð Jesú ættu að vera næg
viðvörun. Margur maðurinn
stendur í þeirri meiningu að það
sé allt í lagi að leita frétta af
framliðnum, ef þeir geta það í
Jesú nafni, en Jesú segir: Farið frá
mér, þér sem fremjið lögmálsbrot.
„Gætið þess að enginn verði til að
hertaka yður með heimspeki og
hégóma villu sem byggist á manna
setningum, er runnið frá heims-
vættunum en ekki frá Kristi."
Þú spyrð: Hvernig getur Satan
komist upp með það að afvega-
leiða og blekkja fólk sem er að
enda við að fela sig í forsjá Guðs í
Jesú nafni?
Þetta er nokkuð góð spurning, ef
það er svo að það feli sig í forsjá
Guðs, ég hef aldrei farið á miðils-
fund, því ég hef alla tíð haft ógeð á
því sem þar fer fram, svo að ég
veit ekkert um það, hvort þessi
fullyrðing þín er rétt. En göngum
þó út frá þvf að svo sé. Ég get
fullvissað þig um það að Guð kær-
ir sig ekkert um að hafa forsjá
með athöfn sem er gegn vilja
Hans. Ætli þú hefðir forsjá með
því að maður stæli frá þér eign
þinni? Mundir þú hafa forsjá með
því að maki þinn tæki framhjá þér
með einhverjum öðrum? Að sjálf-
sögðu ekki. En þetta er einmitt
það sem gerist á miðilsfundum.
Þar er Satan að stela fólki frá
Guði. Þar er fólk að taka framhjá
Guði með Djöflinum. „Og sá sem
leitar til særingaranda og spá-
sagnaranda, til þess að taka fram
hjá með þeim, gegn honum vil ég
snúa augliti mínu og uppræta
hann úr þjóð sinni.“ (3. Mós. 20:6).
„Ef einhver segir þá við yður:
„Hér er Kristur" eða „þar“ þá, trú-
ið því ekki. Því að fram munu
koma falskristar og falsspámenn,
og þeir munu gjöra stór tákn og
undur til að leiða afvega jafnvel
hina útvöldu ef orðið gæti. (Matt.
24:23—25). En hverjum þeim sem
tælir til falls einn af þessum
smælingjum sem á mig trúa, væri
betra að vera sökkt í sjávardjúp
með mylnustein um háls. (Matt.
18:6).
Það sem þú kallar að auka fólki
trú á Guði, það vil ég meina að sé
frekar vantraust á Guði. Hvers
vegna að vera að leita til látinna
meðbræðra um lækningar og
fleira, ef það treystir Guði sfnum?
Þetta kalla ég ekki að trúa og
treysta Guði, þetta er að trúa og
treysta blekkingum Satans!
Biblían mín segir mér að Guð sé
kærleikur, en hún segir líka frá
reiði Guðs við þá sem framkvæma
það sem Guð hefur bannað.
Ég vil að lokum ráðleggja fólki
að láta ekki menn segja sér hvern-
ig það á að skilja Biblíuna, eða
láta þá mata sig á túlkunum. Lesið
hana sjálf og ég er viss um að þið
sjáið fljótt að það þarf ekki neinar
heimspekikenningar til túlkunar á
því sem Guð segir.
Það var ekki ætlun mín að
skrifa nema í eitt skipti í Velvak-
anda, en þar sem þú, 7395-4991,
biður um að þér sé svarað, og ég
tel að þú hafir lesið grein mína
„Mikilvægasta mál í heimi“, þá
taldi ég mér skylt að svara þér, en
ég mun jafnframt láta þess getið
að ég tel ekki ástæðu til þess að
vera að hafa fleiri orð um þetta
mál á síðum þessum.
„En forðast þú heimskulegar
þrætur og ættartölur, deilur og
lögmálsstælur, þær eru gagns-
lausar og til einskis. Þrætumanni
skalt þú sneiða hjá, er þú hefur
einu sinni og tvisvar áminnt hann.
Þú veist að slíkur maður er rang-
snúinn og syndugur. Hann er
sjálfdæmdur." (Títus 3:9—11).
Með kæru þakklæti fyrir birt-
inguna."
Evrópusöngvakeppnin:
Tilhlökkunarefni fjölda
fólks sem áhuga hefur á
sönglögum og góðum söng
Hlustandi skrifar:
„Vegna ummæla í Velvakanda
um Evrópusöngvakeppnina síð-
ustu, niðrandi orð um hana og
fullyrðingu um að þar sé grein-
arhöfundur að tala máli almenn-
ings, eða meiri hluta þjóðarinn-
ar, þá óska ég eftir því að þessar
línur fáist birtar.
Evrópusöngvakeppnin er til-
hlökkunarefni fjölda fólks, sem
áhuga hefur á sönglögum og góð-
um söng, og ég hefi haldið að þar
sé um almenning að ræða.
Ég vil fyrir hönd þessa fólks
þakka beina útsendingu þáttar-
ins. Mér þótti reyndar miður að
fá ekki að heyra endurtekið verð-
launalagið og sjá og heyra þá
stemmningu sem ríkti þarna í
lokin.
Mér fannst þessi síðasta
söngvakeppni bera af öðrum, sem
áður hafa komið í sjónvarpinu,
hvað lög og söng varðar, yfir
heildina tekið, skemmtilegri og
fágaðri.
Einnig þakka ég útsendingu
sjónvarpsins á íslensku söng-
keppninni, og hefði gjarnan vilj-
að heyra í þeim, sem féllu út í
forkeppninni. Mér skilst á um-
mælum, að þar hafi einnig komið