Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
Bræður íslandsmeistarar í sjómanni:
Gömlu heybaggarn-
ir og mjaltirnar
tryggðu sigurinn
„ÁFRAM Ölfushreppur“, „Leggja hann, Smári“, „Þú færð helmjnginn
af búinu hans pabba þíns ef þú vinnur Jón.“
Já, þau voru ófá köllin og hvatningarorðin sem heyrðust í Klúbbnum
á fimmtudagskvöldið, en Islandsmeistaramótið í sjómanni var haldið
þar í annað skipti. Keppt var í tveimur flokkum, hægri hendi og vinstri.
I>að voru tveir bræður er skiptu með sér verðlaununum, Jón Gunnarsson
í hægri handar flokknum og Konráð Gunnarsson í flokki vinstri handar.
í öðru sæti í hægri handar
flokknum varð Jón Einarsson og
þriðji Smári Baldursson. I
vinstri handar flokknum varð
Jón Gunnarsson í öðru sæti og
Smári þriðji.
Þeir bræður, Jón og Konráð,
eru fæddir og uppaldir á bænum
Grímslæk austur í Ölfushreppi
og hafa stundað sveitastörf nær
allt sitt líf. í stuttu spjalli eftir
keppnina sögðu þeir að þessi
keppni hafi ekkert verið sér-
staklega erfið, en vissulega hafi
þeir þurft að hafa fyrir hlutun-
um. Hafa þeir stundað sjómann
mikið? „Nei, ég hef ekki verið
mikið í þessu," sagði Jón. „Það
hefur aðailega verið á sveita-
böllunum." Konráð tók í sama
streng: „Maður hefur ekkert
stundað sjómann í 2 ár, en
hérna áður fyrr var ég iðinn við
þetta." „Ég get sagt þér það,“
sagði Jón, „að við höfum aldrei
stundað neinar æfingar eða far-
ið í líkamsrækt. Þessi hreysti er
einungis tilkomin vegna sveita-
vinnunnar, gömlu heybaggarnir
og mjaltirnar. Eins og er erum
við í fríi frá sveitavinnunni, ég
vinn hérna í bænum, en Konráð
er í Þorlákshöfn, en það máttu
vita, að sveitin er og verður
númer eitt.“
Þaö voru ekki allir jafn vel búnir
og þessi kappi, sumir komu aðeins
með flösku og svefnpoka og happ
réði hver svefnstaðurinn yrði.
Ljósm. Mbl. GR.
Þetta fornfálega og skrautlega farartæki var einn aðal „partí“ staöurinn
á Hvítárvöllum, en ekki veitti af hlýjum vistarverum vegna kulda um
nóttina.
Útlit fyrir rólega helgi
ALLNOKKUR hópur unglinga
safnaðist saman á Hvítárvöllum í
Borgarfirði á föstudagskvöldið og
er blaðamaður ræddi í gærmorgun
við Þórð Sigurðsson lögregluvarð-
stjóra í Borgarnesi, sagöi hann
vera um 30 tjöld á þessum slóðum.
Aðrar heimildir Mbl. töldu að milli
400 og 500 unglingar væru á Hvít-
árvöllum og færi þeim fjölgandi.
Hann kvað allt hafa farið friðsam-
lega fram, og væri ekki útlit fyrir
að fólk drifi að í stórum hópum
það sem eftir væri hvítasunnuhelg-
arinnar.
Jón Guðmundsson yfirlög-
regluþjónn á Selfossi kvað í gær
rólegt í Arnesþingi, nokkur tjöld
væru í Þjórsárdal og allt frið-
samlegt þar, en unglingum hefði
verið snúið frá, er þeir ætluðu að
tjalda í Reykjadal innan Hvera-
gerðis. Sveitarstjórinn í Hvera-
gerði bannað notkun tjaldstæða
þar, en kvisast hafði að þar
mætti tjalda.
í Reykjavík var talsverð ölvun
í fyrrinótt og gistu margir
fangageymslur lögreglunnar.
Rúða var brotin í Alþingishús-
inu, en að öðru leyti var tíðinda-
lítið. Þrjú ungmenni sluppu
ómeidd er bifreið þeirra valt í
sunnanverðum Hvalfirði aðfara-
nótt laugardags, og komu þau til
lögreglunnar í Borgarfirði og til-
kynntu um óhappið. Nokkrir
voru teknir við ölvunarakstur í
Reykjavík, Árnessýslu, Borgar-
firði og víðar, en óvíða var meira
um slíkt en um venjulega helgi,
að sögn lögreglunnar. Um allt
land taldi lögreglan í gær því út-
lit fyrir fremur rólega hvíta-
sunnuhelgi að þessu sinni.
Vinstri viðræðurnar:
Líkur á viðræðuslitum
— sagði Steingrímur Hermannsson um hádegisbil í gær
Ljósm. Mbl. Gudjón.
Jón Gunnarsson fslandsmeistari í hægri handar flokki leggur bróður sinn
Konráð, en hann varð aftur á móti sigurvegari í vinstri handar flokki.
„ÉG HEF lýst því að það vanti ákaf-
lega mikiö í þessar tillögur til þess
að hægt sé á þeim að byggja,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins í gær, en þá
var hann nýkominn af viöræðufundi
með Svavari Gestssyni, formanni Al-
þýðubandalagsins.
Sagði Steingrímur líkur á því að
upp úr vinstri viðræðunum slitn-
aði á fundi sem halda átti kl. 15 í
gær, en þar áttu að hittast full-
trúar vinstri flokkanna fimm, sem
hafa verið í stjórnarmyndunarvið-
ræðum undir forsæti Svavars
Gestssonar undanfarna daga.
Saga síbrotamanns:
Á að baki 40 mál
þar af
nauðgun og fjölmörg rán
PILTUR sá sem rændi 93 ára gaml-
an mann í vikunni hefur nú hafið 18
mánaða afplánun fyrir eldri afbrot.
Rannsóknarlögregla ríkisins krafð-
ist 90 daga gæzluvarðhalds yfir
manninum vegna síbrota. Maðurinn
dró til baka áfrýjunarbeiðnir um
eldri dóma, sem lágu fyrir Hæsta-
rétti, þegar krafa RLR kom fram, og
piltur fór í afplánun.
„Mál þessa pilts er dæmigert
fyrir þann vanda, sem við er að
etja þegar síbrotamenn eru ann-
ars vegar. Hann sát í gæzluvarð-
haldi til 27. apríl og var þá gert að
sæta geðrannsókn. Hann var ekki
fyrr sloppinn út en hann tók upp
fyrri afbrotaiðju sína,“ sagði Arn-
ar Guðmundsson, deildarstjóri hjá
RLR, í samtali við Mbl.
„Fólk telur sjálfsagt að menn,
sem endurtekið gera sig seka um
afbrot, séu teknir úr umferð. Þeir
eru dæmdir og afplána refsivist
sína, en iðulega líður langur tími
frá því rannsókn mála er lokið og
mönnunum sleppt, þar til dómar
falla. Þarna skapast tómarúm.
Úrræði til þess að vernda samfé-
lagið á meðan eru ekki mörg —
það verða að vera forsendur fyrir
gæzluvarðhaldi. Það hefur skapast
sú réttarvenja hér á landi, að í
morðmálum eru viðkomandi úr-
skurðaðir í gæzluvarðhald og sitja
þar til dómur fellur og hefja þá
úttekt. í alvarlegum málum er
ekki óeðlilegt að sú þróun verði, að
mönnum verði haldið þar til dóm-
ar falla og þeir hefji afplánun
dóma sinna. Við getum krafist
gæzluvarðhalds ef ætla má að sak-
argögnum verði spillt, og til þess
að hafa hemil á síbrotamanni, en
aðeins um takmarkaðan tíma,“
sagði Arnar ennfremur.
Pilturinn, sem er tvítugur, á að
baki langa afbrotasögu, alls um 40
mál. Hann hefur gert sig sekan
úm alvarleg árásarmál. Árið 1981
naugðaði hann 16 ára gamalli
stúlku, eftir að hafa ógnað henni
með hnífi. í lok síðasta árs gerði
hann sig hvað eftir annað sekan
um rán og árásir; þá fyrst og
fremst gegn sér minni máttar —
öldruðu fóíki og unglingum.
{ nóvember réðst hann á mann
og rændi eftir að hafa brotist inn í
Bílasölu Garðars. Viku síðar
rændi hann konu á sextugsaldri í
hjólastól, þar sem hún var í her-
bergi sínu að Hátúni 12. Hálfum
mánuði síðar réðst hann á rúm-
lega sjötuga konu í Hátúni 10.
Hann réðst inn á heimili konunn-
ar, sló hana niður og rændi.
í byrjun marz réðst hann á
mann á Lindargötu og reyndi að
ræna, en mistókst. Þann 2. marz
var hann úrskurðaður í gæzlu-
varðhald til 27. apríl og gert að
sæta geðrannsókn, en niðurstaða
liggur ekki fyrir.
Pilturinn tók upp fyrri iðju sína
þegar hann losnaði úr gæzluvarð-
haldi. Þann 9. maí réðst hann á
tvo unglinga og krafði þá um pen-
inga og fékk. Hann réðst inn í íbúð
fullorðinnar konu að Hátúni lOb
og gerði tilraun til þjófnaðar. Á
mánudag réðst hann á 93 ára
gamlan mann og rændi og sama
dag reyndi hann að ræna fullorð-
inn mann veski á Snorrabraut en
komið var í veg fyrir það af veg-
farenda. Afbrotasaga þessa
ógæfusama pilts er löng og aðeins
stiklað á stóru. Hann er ekki fyrr
sloppinn út en hann tekur upp af-
brotaiðju sina. Saga hans er
óhugnanlega lík sögum annarra
ógæfumanna, sem á endanum
hafa unnið óbætanlegt tjón.
H. Halls.
Steingrímur sagðist myndu lýsa
þeirri skoðun sinni á fundinum að
hann teldi ósennilegt að flokkarn-
ir næðu saman, enda hefði Svavar
verið þeirrar skoðunar þegar
Steingrímur fór með stjórnar-
myndunarumboðið.
Þingflokkur sjálfstæðismanna
fundaði í gærmorgun, en einnig
var fundur hjá þingflokki Alþýðu-
flokksins, þar sem málin voru
rædd áður en Magnús H. Magn-
ússon varaformaður flokksins hélt
til viðræðna við Svavar Gestsson.
Um hádegisbilið í gær var búizt
við því að verulegur kraftur mundi
komast í viðræður milli Sjálfstæð-
isflokks, Framsóknarflokks og Al-
þýðuflokks um helgina.
Á strandstað. MorKunbtaðið/ hg
Haukur GK
farinn á veiðar
BJÖRGUNARSKIPIÐ Goðinn náði
skuttogaranum Hauki GK 25 af
strandstað rétt utan Sangerðishafn-
ar í nótt. Skipið er óskemmt.
Það var um klukkan hálf tvö í
nótt, sem Goðinn náði Hauki á flot
eftir um klukkutíma tilraunir.
Hann dró skipið síðan til Njarð-
víkur, þar sem kafari kannaði
hvort skemmdir væru á því. Svo
reyndist ekki vera og snemma í
gærmorgun hélt Haukur til veiða
á ný.